Dagblaðið - 28.11.1977, Side 8

Dagblaðið - 28.11.1977, Side 8
8 DACBLAÐIÐ. M.ÁNUDAGUR 28. NÖVEMBER 1977.^ Smurbrauðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 — Sími 15105 Úlpur—jakkar — kápur—pils - kjólar — blússur — fíauelsbuxur peysur—belti—húfusett PAitl Keykjavík Hafnarstræti 15. Simi 1851):! Akureyri Hafnarstræti 85, sínii 19889. Fellibylurinn sem gekk yfir Indland fyrir nokkrum tjóni og er talið að í það minnsta tuttugu og fimm þúsund manns hafi farizt. Á myndinni sézt hvar gjörónýtt ibúðarhús hangir þó uppi en um rústirnar reika nautgripir í leit að fæðu. Bandaríkin: Fyrrum hermaöur drap einn og særöi tuttugu og fimm Fyrrum hermaður í Víetnam- stríðinu kom vopnaður byssu inn á veitingahús í Omaha í Nebraska þar sem verið var að sýna leikbrúður. Skaut hann strax á sextán ára stúlku í fatageymslunni og særði hana alvarlega. Skaut hann síðan nokkrum sinnum á hóp fólks í sal veitinea- hússins og að því loknu gekk hann út og bað nærstaddan mann að kalla á lögregluna. Einn maður lézt af skotsárum og tuttugu og fimm manns særðust, sumir alvarlega. Þar á meðal voru nokkur börn. Lögreglan sagði að hinn fyrr- verandi hermaður væri þrjátíu og tveggja ára og hefði átt við sálar- leg vandkvæði að stríða. Ekki gengur allt í haginn fyrir Boris Spassky i einvigi hans við Viktor Kortsnoj. Aðeins hálfur vinningur eftir þrjár skákir. Myndin er tekin í Belgrad þegar fyrsta skákin var tefld en þá náði Spassky jafntefli eftir að skákin hafði farið í bið. Þótti það vel af sér vikið því flestir skókspekingar tiildu að Kortsnoj hefði unnið tafl. JÓRDANÍA HUG- Bffgreinasambandið og Félag íslenzkra bifreiðaeigenda Viljum ráða bifvélavirkja eða annan sérfræðing til starfa á skrifstofu vorri 4—8 tíma á viku. Laun eftir samkomu- lagi. Uppl. í síma 29999 og 27060. LEIÐIR AD MÆTA A KAIRÓFUNDINN Sendiherra Jördaníu í Kairó gaf i skyn með mjög varfærnisleg- um hætti að land hans hugleiddi að taka þátt í friðarfundinum sem Sadat forseti hefur boðað til í Kairo. í ræðu sem sendiherrann hélt hvatti hann Arabaleiðtoga til að líta fremur á þá þætti deilunnar I Miðausturlöndum sem væru jákvæðir en lít-a síður á hina neikvæðu. Ekki hafa borizt nein svör frá stórveldunum Sovétríkjunum og Bandaríkjunum og heldur ekki frá Libanon. Sýrland hefur hafnað boði um að mæta á Kairófundinn en ætlar að mæta á fund Arabaleiðtoga, sem Gaddafi Libýuleiðtogi hefur boðað til í Tripoli. Þar er ætlunin að ræða um þá stefnu sem deilan I Miðausturlöndum hefur tekið eftir Israelsheimsókn Sadats. Flestir Arabaleiðtogar og leiðtogar Palestínumanna telja þessa ferð Sadats og viðræður hans við ísraelsmenn hrein og klár svik við heilagan málstað. Sadat lætur þó engan bilbug á sér finna og hefur tilkynnt, að hann mundi halda fundinn þó svo að einungis ísraelsmenn mæti. Þeir hafa einnig lýst því yfir að fundurinn geti þeirra vegna farið fram þó svo einungis fulltrúar Egypta og ísraelsmanna verði þar. Ekki hefur verið upplýst í ísrael hvernig boð um að koma til Kairófundarins bárust til ísraels- stjórnar og hafa stjórnvöld ekki viljað svara spurningum þar um. Kurt Waldheim aðalritara Sam- einuðu þjóðanna mun einnig hafa verið boðið að sitja. fundinn I Kairó.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.