Dagblaðið - 28.11.1977, Síða 14
14
DAdBI.AÐIÐ. M ANUD.VHJ’H 28. NOVKMBKR 197.7.
Haraldur Magnússon
viðsklptafræðingur
Sigurður Benediktsson
sölumaður
Kvöldsími 42618.
Til sölu
HVERFISGATA HAFNARFIRÐI
3ja herbergja sérhæð, um 80 fermetrar, harðviðarinnrétt-
ingar, ný teppi, sérhiti. Útborgun 5,5—6 milljónir.
DIGRANESVEGUR
5 hcrbergja sérhæð um 130 fermetrar. Góðar svalir,
harðviðarinnréttingar, tvöfalt verksmiðjugler. Útborgun
9—10 millj.
ÁLFASKEIÐ
3ja herbergja, um 86 fermetrar, bílskúrsréttur. Útborgun
6 milljónir.
HRAUNBÆR
Góð einstaklingsíbúð. Útborgun 2,5 milljónir.
VEGNA DAGLEGRA FYRIRSPURNA ÓSKAST
EIGNIR Á SÖLUSKRÁ.
Tónlistarhvöld
Melchior
Heimdallur heldur tónlistarkvöld í
sjálfstæðishúsinu Valhöll í kvöld,
mánudag, kl. 20.30. Hljómsveitin
Melchior leikur. Allir velkomnir.
HEIMDALLUR
r~mmmmmmmmmmmmmm~mmmmm~^
BYGGINGAMARKAÐURINNhf
VERZLANAHÖLLINNI GRETTISG. / LAUGAV. Sími 13285
Fiskifræðingar um boðað 12 daga veiðibann og
tillögur útvegsmanna:
„Állt í rétta átt”
— en af linn er nú þegar kominn langt yf ir mörkin
—10 þúsund tonna minnkun ræður ekki úrslitum
„Aflinn er nú þegar kominn
langt yfir þau mörk, sem við
höfum lagt til,“ sagði Jakob
Magnússon fiskifræðingur í
gær um yfirlýsingu sjávarút-
vegsráðherra um veiðibann á
þorski í tólf daga í desember.
„En allt sem gert er, er í rétta
átt. Það, sem gert var í sumar,
nægði ekki, svo nú er verið að
reyna eitthvað meira.“
Annar fiskifræðingur, Jakob
Jakobsson, sagði í gær, að vera
mætti, að þessi veiðistöðvun
þýddi minnkun þorskafla um
rúmlega tíu þúsund tonn. Hún
væri í rétta átt, en „önnur
saga“ væri, hvort hún dygði.
Nafni hans Magnússon sagði,
að úr þessu skipti mestu, hvað
gert yrði á næsta ári.
Jakob Magnússon sagði, að
bann vió þorskveiðum 'með flot-
vörpu, sem Landssamband
íslenzkra útvegsmanna mælir
með, yrði mjög mikilvægt, ef af
yrði. Mjög mikið hefði verið
veitt af þorski með þessu
veiðarfæri. Frá fiskifræðilegu
sjónarmiði væri það ekki verra
veiðarfæri en önnur, en hefði
slíkar veiðar verið bannaðar í
sumar, hefði það haft mjög
mikil áhrif.
LÍÚ vill ganga
lenara en róðherra
Itfatthías Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra boðaði 12 daga
veiðibann á þorski í ræðu á
aðalfundi LtÚ á föstudag. Þó
skyldi heimilt að stunda aðrar
veiðar þessa banndaga, enda
næmi hlutdeild þorskafla ekki
meira en 10 prósent. Útvegs-
menn samþykktu hins vegar á
aðalfundi sínum tillögur um
miklu róttækari aðgerðir en
ráðherra boðaði. Til dæmis
skyldi tafarlaust ákveðið, að á
tímabilinu 10. desember til 7.
janúar skyldu öll skip, sem
stunda þorskveiðar, hætta
veiðum, í að minnsta kosti 15
daga. Ennfremur skuli þorsk-
veiðum hætt í 7 daga um páska.
Bannað verði að veiða þorsk
með flotvörpu allt næsta ár. Þá
skuli farið að tillögum fiski-
fræðinga um hámarksþorskafla
á næsta ári, samjsykki stjórn
LÍÚ þær á fundi með fiski-
fræðingum. LÍÚ samþykkti
fleiri takmarkanir, svo sem um
friðun, aukið eftirlit, skyndi-
lokanir og möskvastærð.
-HH.
Landsfundi Samtakanna lauk ígær:
Bjóða fram í
öllum kjördæmum
— samþykkt undanþága fyrir Karvel
„Á fundinum voru afgreidd
þau tvö meginmál, sem því var
ætlað að fjalla um,“ sagði Magnús
Torfi Ólafsson, nýendurkjörinn
formaður Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna í viðtali við Dag-
blaðið í gær en þá lauk landsfundi
Samtakanna. „Þessi tvö mál voru
samþykkt nýrrar stefnuskrár en
Samtökin höfðu búið við stefnu-
yfirlýsingu frá stofnfundinum
árið 1969 og einnig var tekin af-
staða til þeirra pólitísku mála sem
efst eru á baugi þessa stundina."
Magnús sagði að á fundinum
hefói verið samþykkt ávarp þar
sem því er lýst yfir að Samtökin
muni stefna að því að bjóða fram í
öllum kjördæmum við næstu al-
þingiskosningar og eins er hvatt
til þátttöku í sveitarstjórnar-
kosningunum á vori komandi.
Miklar umræður og fjörugar
urðu á fundinum og urðu þær
sérstaklega snarpar eftir að
Karvel Pálmason mætti. Með hon-
um var Hendrik Tausen, for-
maður kjördæmisráðs Sam-
takanna á Vestfjörðum.
„Karvel er samtakamaður,
enda mætti hann á landsfundin-
um,“ sagði Magnús. „Eftir
fjögurar umræður var samþykkt
sú breyting á lögunum að flokks-
mönnum er heimilt að bjóða sig
fram í eigin nafni þar sem Sam-
tökin bjóða ekki fram. Þessi laga-
breyting var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum gegn þrem.
Karvel Pálmason hefur sem
kunnugt er lýst því yfir, að hann
fari i framboð utanflokka við
næstu alþingiskosningar.
Á fundinum í gær var Magnús
Torfi Ólafsson endurkjörinn for-
maður Samtakanna, eins og áður
sagði, en með honum í stjórn voru
kjörin þau Herdís Ólafsdóttir,
Akranesi, varaformaður, Andrés
Kristjánsson, Kópavogi, ritari og
Kári Arnórsson, Reykjavík, ritari.
Þá var einnig kjörinn ellefu
manna framkvæmdastjórn og tólf
menn í flokksstjórn.
-HP.
Samvinnubankinn
færir út kvíamar
Enda þótt stöðugt þrengi að
bönkum landsins varðandi fyrir-
greiðslur við viðskiptavini sína,
opna bankarnir sífellt fleiri útibú
og hvarvetna virðist ærið nóg að
gera. Lífið heldur áfram sinn
gang í bönkum ekki síður en á
öðrum sviðum mannlífsins. Á
dögunum opnaði Samvinnu-
bankinn sitt 15. útibú en af þeim
eru tvö í Reykjavík. Þetta gerðist
á 15 ára afmæli bankans.
Nýja útibúið er á Suðurlands-
braut 18 í húsi Essó. Á myndiniii
er starfsfólk útibúsins, Pálmi
Gíslason útibússtjóri og starfs-
stúlkurnar Kristín Káradóttir og
Sigríður Ásgeirsdóttir. Öll
störfuðu þau áður í aðalbankan-
um i Bankastræti.