Dagblaðið


Dagblaðið - 28.11.1977, Qupperneq 15

Dagblaðið - 28.11.1977, Qupperneq 15
Einstök þjónusta fyrir Stór-Reykjavík. Við mælum flötinn og gerum fast verðtilboð. Þér komið og veljið gerðina, við mælum og gefum yður upp endan- legt verð - án nokkurra skuldbindinga. Athugið, að þetta gildir bæði um smáa og stóra fleti. Þér getið valið efni af 70 stórum rúllum eða úr 200 mismunandi gerðum af WESTON teppum. Við bjóðum mesta teppaúrval landsins í öllum verðflokkum: 1.260 pr. ferm til kr. 17.000 pr.ferm. \ A A A A A A LJ' ' * III i |;! Ui JUPJ I li-! ffli Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10600 0BB0SÍ! Gaman að passa litlu svstkinin —obbosí! Þau geta sigið í þau iitlu, einkum ef stóra systir er ekkert sérlega stór. En með einbeitninni hefst það. DB-mynd Hörður. Lestrarlag þulanna í útvarpi ogsjónvarpi: EKKIUNAÐ VIÐ ÞETTA LENGUR — segir Félag íslenzkra fræða „Fundurinn telur nauðsynlegt, að komið verði á fót námskeiðum í íslenzku, einkum eðlilegum og áheyrileg- um lestri íslenzks máls, fyrir þuli hljóðvarps og sjónvarps, enda verði þeim gert bæði kleift og skylt að sækja slík námskeið. Á þetta bendir fundurinn sökum þess að hann telur að ekki verði lengur unað við það lestrarlag sem æ meir hefur rutt sér til rúms i hljóðvarpi og sjónvarpi á síðustu árum,“ segir í frétta- tilkynningu frá Félagi ísl. fræða. A fjölmennum fundi félagsins nýlega fóru fram tals- verðar umræður um málfar og framburð þula og stjórnenda þátta. Var skorað á útvarps- stjóra og framkvæmdastjóra hljóðvarps að sjá svo um að ekki yrðu ráðnir í þessi störf aðrir en hæfir menn, lausir við framburðargalla og tak- markaða tilfinningu fyrir töl- uðu og rituðu íslenzku máli. -JBP. P VtiBI.ADIf). M ANUDACiFR 28. NÓVKMBKR 1977. Allt vitlaust í Kef lavík —og meira til HREVFHi Sími 8-55-22 Eftir fremur tíðindalitlar helg- ar í Keflavík undanfarið breyttist ástandið heldur betur nú um helgina og lögreglan fekk nóg að starfa. Árekstur varð á mótum Reykja- nesbrautar og afleggjarans til Innri-Njarðvíkur kl. rúmlega fjögur á föstudag. Ekki urðu meiðsli á fólki en eignatjón mikið á bifreiðum. Þá varð harður árekstur á laugardagsmorgun er Datsun bifreið var ekið austur Háaleiti og aftan á Ford. Kast- aðist Fordbíllinn 10 metra og afturstuðari hans gekk inn að hjólum. Bílstjóri . Datsunbílsins slapp ómeiddur en farþegi hand- léggsbrotnaði og hlaut höfuð- meiðsli. Grunur leikur á að öku- maður hafi verið undir áhrifum áfengis. Þá varð enn hörkuárekstur á Hafnargötu aðfaranótt sunnudags og var Chevrolet Nova bifreið ekið aftan á Mazdabifreið og kastaðist Mazdabifreiðin 32 metra en bremsuförin eftir tjónvaldinn reyndust yfir 40 metrar. Meiðsli reyndust lítil, ökumaður Chevroletsins kvartaði um eymsli á hálsi og var fluttur til læknis. Lögreglan í Keflavík telur að höfuðpúðar í Mazdabilnum hafi bjargað lífi þeirra sem sátu í framsætum bílsins. Mikið eigna- tjón varð i áreksstrinum. En lögreglumenn höfðu fleira að gera en að sinna árekstrunum. Olvun var mikil og almenn og ágerðist er lí.ða tók á helgina. Brotizt var inn í Tjarnarkaffi og náðist ungur piltur þar en hann hafði ekkert tekið eða skemmt. Ekið var utan í bifreiðar og stungið af og sumir dunduðu við að stela bensíni svo hægt vapri að keyra meira. Aðfaranótt sunnu- dags, þegar ölvun var komin í algleyming, gerðust menn nokkuð æstir við samkomuhúsið i Sandgerði. Þar áttu þrír lögreglu- þjónar í vök að verjast, þar sem 20-30 manns sóttu að þeim. Lög- reglumennirnir voru að færa mann út í bíl þegar félagi hans æsti sig upp og réðst að lögreglu- mönnunum og söfnuðust margir fleiri að. Lögreglumennirnir urðu að sleppa báðum mönnunum til þess að komast burtu en þá voru föt þeirra rifin og þeir ataðir auri og meiddir í andliti eftir spörk. Aukalið var sent á staðinn, mennirnir náðust og sá sem kom átökunum af stað situr inni á meðan málið er í rannsókn. Róstusamt var áfram við sam- komuhúsið og hnefarétturinn látinn ráða. Þá kviknaði í kjallaraíbúð að Hringbraut 83. Þar bjargaðist móðir naumlega út með ÍVt árs gamalt barn sitt en brjótast varð inn í húsið til þess að bjarga manni, sem var gestkomandi í húsinu. Skemmdir urðu á innbúi og einnig af vatni og reyk. Þá var, áður en yfir lauk, stolið útvarpi úr bíl og segulbandi úr öðrum. -JH. Þessir fallegu og vönduðu skór frá v-þýzka fyrirtækinu MANZ eru nýkomnir ásamt mörgum öðrum gerðum. Litir: Svart óg mahóni. Með leður- og stöm- um sólum. Allir Manz-skór eru með ekta leðurbindisóla, skinnfóðri og úr úrvalsskinni í yfirleðri. Margar gerðir með ekta leöursólum. Nokkrar gerðir fvrir breiða fætur. Manz-skórnir fást aðeins í skóverzlun DOMUS MEDICA Egilsgötu 3, pósthólf 5050. Sími 18519. SAMDÆGURS VERÐ KR. 10.410,-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.