Dagblaðið


Dagblaðið - 28.11.1977, Qupperneq 32

Dagblaðið - 28.11.1977, Qupperneq 32
SVALL OG DRYKKJA KEYRÐI ÚR HÓFIUM HELGINA — slagsmál, rúöubrot, skemmdarverk og innbrot fijálst, áháð dagblah MANUDAGUR 28. NOV. 1977. Mjög mikil ölvun varö í höfuðborginr.i bæöi á föstu- dags- og laugardagskvöld. Alls kyns uppákomur urðu um alla borg og hafði lögreglan nóg að starfa. Fangageymslur lögregl- unnar voru yfirfullar bæði kvöldin og næturnar á eftir, jafnt karla og kvenna. Drykkjuskapurinn er meiri nú en tíðkazt hefur áður á þess- um árstima og svo seint í mánuði. Einsýnt er að margir hafa gnótt fjár handa á milli. Er það hugdetta að margir hafi við launasamninga BSRB og fleiri fengið góðar fúlgur sem nú streyma til Matthíasar fjár- málaráðherra aftur. Til slagsmála kom í tveimur veitingahúsum út af ágreiningi um kvenfólk. Slagsmálin fóru fram án stórmeiðinga. Gesti í Sesar fannst ljósa- stæðin eitthvað hversdagsleg og breytti nokkrum þeirra í abstraktform. Því kunni starfs- fólk og dyraverðir illa og fékk náunginn gistingu hjá lögregl- unni og þótti erfiður í viðræð- um. Rúðubrot voru framin um allan bæ, Austurstræti, Lang- holtsvegi og Skólavörðustíg og viðar. Á tilnefndum stöðum náðust sökudólgarnir með að- stoð sjónarvotta. Innbrot var framið í íbúð við Holtsgötu en talið að engú hafi verið stólið og náðist „góðkunn- ingi“ lögreglumanna, sem þar var á ferð. - ASt Þjóðverjar kveðjaídag „Nú ætti stjórnun fiskveiðanna að verða auðveldari," sagði Jakob Jakobsson fiskifræðingur í gær um brottför Þjóðverja af íslands- miðum. Þjóðverjar hefðu víst veitt litið af þorski, en þeir hefðu veitt annan fisk, sem við þyrftum á að halda, svo sem karfa. Þjóðverjar hverfa úr land- helginni í dag. Þá rennur út tveggja ára samningur milli land- anna, sem gaf Þjóðverjum heimild til að hafa hér allt að 40 ísfisktogara. Bretar hurfu úr landhelginni 1. desember í fyrra, eins og kunnugt er. Þá eru hér eftir Belgar, Norð menn og Færeyingar. HH. Kísiliðjan: Þrónr. 1 brast í gær „Þetta er gomul sprunga sem hefur verið að gliðna hægt og hægt,“ sagði Vésteinn Guðmunds- son, hjá Kísiliðjunni í Mývatns- sveit, en snemma í gærmorgun myndaðist sprunga í vegg á þró númer 1. „Það varð ekkert efnis- tjón í þetta skiptið, því gúrinn er seztur til á botninn," sagði Vésteinn ennfremur. Gert var við skemmdirnar I gærkvöldi og hófst vinna að nýju í nótt. Kísiliðjan varð fyrir verulegu efnistjóni í hræringunum núna í haust en Vésteinn bjóst við að þeir áettu nú efni fram í apríl. „Að minnsta kosti er ljóst að við ættum að þrauka af veturinn þar til við getum farið að dæla á ný.“ -HP. KVEIKT A AÐVENTUKERTUNUM Aðventan er undirbúningur jól- kirkju, en slík samkoma hefur kirkjunni svo hún uppljómast af herra hátíðarræðu. Kirkjukórinn anna og fyrsti sunnudagur í að- ventu var einmitt í gær. í gær- kvöldi var haldin mjög- fjölmenn aðventusamkoma í Bústaða- verið haldin í sókninni síðan 1964. Undir lok samkomunnar fær hver og einn kirkjugestur kerti og þau eru tendruð og jafnframt slökkt í kertaljósum. Bústaðasöfnuður er 25 ára um þessar mundir,og flutti Vilhjálm- ur Hjálmarsson menntamálaráð- og einsöngvarar fluttu tvær kant- ötur og samkoman var öll hin hátíðlegasta. . jjj DB-mynd Sveinn Þormóðsson. Prófkjör sjálfstæðismanna íVesturlandi: „Þátttaka í prófkjöri sjálf- stæðismanna í Vesturlandskjör- dæmi var mikil eða samtals um 2.250 atkvæði," sagði Guðjón Guð- mundssort, formaður kjörnefndar í viðtali við DB í morgun. ÞATTTAKA HELMINGIMEIRI EN SÍÐASTA KJÖRFYLGI A eftirtöldum kjörstöðum var þátttaka sem hér segir: Akranes 800, Borgarfjarðarsýsla annars staðar 140, Borgarnes 210, Dala- sýsla 180, þar af í Búðardal 140, Snæfellsnes- og Hnappadalssý„la 740, þar af Stykkishólmur 307. Grundarfjörður 170, Ólafsvík 140, Hellissandur 90. Utankjörstaðaratkvæði voru 180, nær öll greidd af Snæfelling- um og Dalamönnum. Þátttakan í Framsóknar- flokkurinn: Kjördæmisþing Framsoknar- flokksins í Reykjaneskjördæmi var haldið í gær og þar var gengið frá framboðslista flokksins við næstu alþingis- kosningar. Fjögur efstu sætin skipa þau Jón Skaftason alþingismaður, Listinn ákveðinn í Reykjaneskjördæmi Gunnar Sveinsson, kaupfélags- stj. Keflavík, Ragnheiður Sveinbjö'nsdóttir, Hafnarfirði og Haukur Níelsson, Mosfells- sveit. Fimmta sæti skipar Sigurður J. Sigurðsson, Keflavík, sjötti er Dóra Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur. Sel- tjarnarnesi, sjö.undi Halldór Ingvason kennari, Grindavík, áttundi Gylfi Gunnlaugsson gjaldkeri, Sandgerði, níundi „ Valtýr Guðmundsson, fyrrv. útibússtjóri Keflavík, og tíundi Hrafnkell Helgason, yfirlæknir á Vifilsstöðum. -HP. prófkjörinu varð 2.250 atkvæði sem fyrr segir. í síðustu alþingis- kosningum fékk Sjálfstæðisflokk- urinn 2.377 atkvæði i kjördæm- inu. Atkvæði verða talin eftir hádegi í Borgarnesi. - BS Flokksráðsfundur sjálfstæðismanna: Jafnari kosn- ingaréttur. aukið val- frelsi, per- sónubundnar kosningar „Nauðsyn ber til þess að á þessu Alþingi verði gerðar breytingar á kjördæma- skipun og kpsningareglum, er tryggi sem jafnastan kosningarétt landsmanna og auki valfrelsi kjósenda með persónubundnari kosning- um en nú er,“ segir í ályktun flokksráðsfundar Sjálf- stæðisflokksins. „Þessum markmiðum verður ekki náð nema með breytingum á stjórnar- skránni. Breytingar á kosningalögum einar sér duga skammt til að ná fyrr- greindum markmiðum." -BS. Skoðanakönnun hjá Framsókn lauk fgær: TALNING EKKIHAFIN SkoðanaKonnun Fram- sóknarflokksins um val fram- bjóðenda á lista til alþingis- kosninganna í Vesturlandskjör- dæmi og Norðurlandskjördæmi vestra lauk í gærkvöldi. Talning er hins vegar ekki hafin, hefst síðdegis í dag á Vesturlandi, en ekki verour talið í Norðurlandskjördæmi vestra fyrr en 1. des. nk. Engar tölur eru heldur komnar um kjörsókn, en að sögn frambjóðenda var hún góð. - HP

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.