Dagblaðið - 21.01.1978, Side 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1978.
23
Sjónvarp
Utvarp
Sjónvarp annað kvöld kl. 20.30:
Eldeyjan
Sjónvarp á morgun kl. 18.00:
Stundin okkar
Fjögurhundrað-
asta stundin
I Stundinni okkar á morgun
kennir margra grasa: Farið er í
heimsókn á dagheimilið Víðivelli
í Hafnarfirði. Börnin á Víðivöll-
um syngja, fara í leiki og gera
margt skemmtilegt. Krakkar úr
Alftamýrarskóla sýna nýjustu
tízkuna, eins og hún kemur þeim
fyrir sjónir, tvær tíu ára telpur
sýna fimleika og talað verður við
sjö ára gamlan dreng sem undan-
farna þrettán mánuði hefur
ferðazt um mörg Evrópulönd með
foreldrum sínum og kann frá
mörgu merkilegu að segja.
Þá verður í Stundinni okkar
mynd um sænska teiknistrákinn
Albin og síðast en ekki sízt fara
kátir krakkar í leiki, eins og títt
er í afmælum, en Stundin okkar á
einmitt nokkurs konar afmæli 22.
janúar því að þá hefur hún verið
sýnd í 400 skipti.
Umsjónarmaður er Asdís
Emilsdóttir en kynnir ásamt
henni er Jóhanna Kristín Jóns-
dóttir. Stjórnandi upptöku er
Andrés Indriðason.
Útvarp í fyrramálið kl. 9.30:
Veiztu svarið?
Mikið hlustað
á þáttinn
Jónas Jónasson og Ólafur Hans-
son vekja okkur að vanda eld-
hressir í fyrramálið með spurn-
ingaþætti sinum Veiztu svarið? I
þetta sinn verða þeir Páll Líndal
og Jónas Guðmundsson spurðir
spjörunum úr.
Jónas sagði aðspurður að hann
væri hreint ekkert viss um að
þátturinn væri á svo afleitum
tíma. Fjöldamargt fólk væri
vaknað á sunnudagsmorgnum
fyrir allar aldir og komið á stjá.
Hann sæi þetta bezt á því að oft
hefði hann verið með þátt f út-
varpi en aldrei hefði verið eins
mikið við sig rætt um nokkurn
eins og þennan. Þeir sem hafa
áhuga á þættinum láta sig víst
ekki muna um að vakna þó
snemma sé. - DS
Jónas Júnasson stjórnandi þáttar-
ins Veiztu svarið?
Verðlaunamynd um
Vestmannaeyjagosið
Það gekk ekki lítið á fyrir
réttum fimm árum er jörðin
opnaðist fyrir fótum Vestmann-
eyinga og byrjaði að spúa eldi
og eimyrju. Um þá atburði og
afleiðingar þeirra verður sýnd
kvikmynd í sjónvarpinu annað
kvöld.
Ásgeir Long, Ernst Kettler,
Páll Steingrímsson og fleiri
tóku þessa mynd og fengu fyrir
hana gullverðlaun á kvik-
myndahátíð í Atlanta í Georgíu.
Galli á þessari mynd er að
ekki er hægt að njóta hinna
stórkostlegu litbrigða sem
alltaf fylgja eldgosi. En við því
er víst ekkert að gera og svart-
hvítt er betra en ekkert þegar
um verðlaunamynd er að ræða.
- DS
Asdís ræðir við ungan svein í Stundinni okkar.
lllfo Útvarp
LAUGARDAGUR
21. JANÚAR
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl.
7,00, 8.15 og 10.10. Morgunloikfimi kl.
7.15 og 8.50. Fréttir kl. 7,30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunban kl. 7.50 Tilkynningar kl.
9.00. Létt lög milli atriða. Óskalög
sjúklinga kl. 9.15: Kristín Sveinbjörns-
dóttir kynnir. Bamatimi kl. 11.10:
Stjórnandi: Jónina H. Jónsdóttir.
Heimsótt verður fjölskyldan að Sörla-
skjóli 60, Troels Bendtsen, Björg
Sigurðardóttir og tveir synir þeirra.
— Jóhann Karl Þórisson (11 ára) les
úr klippusafni sem helgað er Charles
Chaplin i þetta skipti.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Vlkan framundan.
15.00 MiAdogistónlaikar. a. Pfanósónata
nr. 24 í Fis-dúr op. 78 eftir Beethoven.
Dezsö Ránki leikur. b. „Astir skálds-
ins“ (Dichterliebe), lagaflokkur op.
48 eftir Schumann. Tom Krause
syngur; Irwin Gage leikur á píanó.
(Hljóðritun frá finnska útvarpinu).
15.40 íslonzkt mál. Jón Aðajsteinn Jóns-
son cand. mag. talar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vinssslustu popplögin. Vignir
Sveinsson kynnir.
17.00 Enskukennsla (On Wo Go). Leið-
beinandi: Bjarni Gunnarsson.
17.30 Framhaldsloikrit bama og unglinga:
„Antilópusöngvarinn", Ingebrigt
Davik samdi eftir sögu Rutar Under-
hill. Þýðandi: Sigurður Gunnarsson.
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson.
Fyrsti þáttur: Hver var Nummi?
Persónur og leikendur: Ebeneser
Hunt/ Steindór Hjörleifsson, Sara /
Kristbjörg Kjeld, Toddi / Stefán Jóns-
son, Malla /Þóra Guðrún Þórsdóttir
Emma /Jónína H. Jónsdóttir, Jói /
Hákon Waage, Nummi / Arni Bene-
diktsson, Marta / Anna Einarsdóttir.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fróttaauki. Tilkynningar.
19.35 Böm í samfélaginu. Ingi Karl
Jóhannesson ræðir við dr. Matthias
Jónasson.
20.00 Á óperukvöldi: „I Voaprí Siciliani"
oftir Giuseppe Vordi. Guðmundur Jóns-
son kynnir. Flytjendur: Martina
Arroyo, Placido Domingo, Sherrill
Milnes, Ruggero Raimondi, John
Alldis-kórinn og hljómsveitin Nýja
Philharmonia. Stjórnandi: James
Levine.
21.25 TeboA. Sigmar B. Hauksson ræðir
við séra Halldór S. Gröndal, Ólaf
Jóhannesson dómsmálaráðherra o.fl
um félagsleg og siðferðileg áhrif verð-
bólgunnar.
22.10 Úr dagbók Högna Jónmundar.
Knútur R. Magnússon les úr bókinm
Holdið er veikt eftir Harald A.
Sigurðsson.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Danslög.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR
22. JANÚAR
8.00 Morgunandakt. Séra Pétur Sigur-
geirsson vígslubiskup flytur ritn-
ingarorð og bæn.
8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Út-
dráttur úr forustugreinum dagbl.
8.35 Morguntónleikar.
9.30 Veiztu svaríð? Jónas Jónasson
stjórnar spurningaþætti. Dómari:
ólafur Hansson.
10.10 Veðurfregnir. Fréttir.
10.30 Morguntónleikar — framh.
11.00 Mossa i Kópavogskirkju. Prestur:
Séra Þorbergur Kristjánsson. Organ-
leikari: Guðmundur Gilsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.20 Um riddarasögur. Dr. Jónas
Kristjánsson flytur fyrsta hádegiser-
indi sitt.
14.00 MiAdegistónleikar: Frá ungverska út-
varpinu.
15.00 Dagskrárstjórí í klukkustund.
Eyvindur Erlendsson leikstjóri ræður
dagskránni.
16.00 Sasnsk lög af léttara tagi. Eyjabörn
syngjaog leika.
,16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Ríki skugganna. Dagskrá um undir-
heima í forngrískri trú, tekin saman
af Kristjáni Arnasyni. Meðal annars
lesið úr verkum Hómers. Pindars,
Platóns og Óvíds. Lesarar með Krist-
jáni: Knútur R. Magnússon og Kristín
Anna Þórarinsdóttir. (Aður á dagskrá
annan jóladag).
17.30 Útvarpssaga bamanna: „Upp á líf og
dauAa" eftir Ragnar Þorsteinsson.
Björg Arnadóttir byrjar lesturinn.
17.50 Harmónikulög. Adriano, Charles
Magnante og Jularbo-félagar leika.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
Sjónvarp
Laugardagur
21. janúar
16.30 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.15 On We Go. Enskukennsla. Tólfti
þáttur endursýndur.
18.30 Saltkrákan (L). Sænskur
sjónvarpsmyndaflokkur. 3. þáttur.
Þýðandi Hinrik Bjarnason. (Nord-
vision —Sænska sjónvarpið).
19.00 Enska knattspyman.
Hlé.
20.00 Fréttir og veAur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Gestaleikur (L). Spurningaleikur.
Stjórnandi ölafur Stephensen. Stjórn
upptöku Rúnar Gunnarsson.
21.10 Dave Allen Intur móAan mása (L).
Breskur gamanþáttur. Þýðandi Jón
Thor Haraldsson.
21.55 Dagbók stofustúlku. (Diary of a
Chambermaid). Bandarísk bíómvnd í
léttum dúr frá árinu 1943, byggð á
skáldsögu eftir Octave Mirabeau.
Leikstjóri Jean Renoir. Aðalhlutverk
Paulette Goddard. Herbergisþernan
Célestine ræður sig í vist hjá sér-
stæðri aðalsfjölskyldu uppi í sveit.
Hún er metnaðargjörn og ætlar sér að
komast áfram I lífinu. Þýðandi Ragna
Ragnars.
23.20 Degskráríok.
SUNNUDAGUR
22. JANÚAR
16.00 Húsbnndur og hjú (L). Breskur
mynaflokkur. A nýjum vettvangi. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
17.00 Krístsmenn (L). Breskur fræðslu-
m.vndaflokkur. 5. þáttur. OrAsins makt.
Þrenn meiri háttar trúarbrögð hafa
orðið til í Austurlöndum nær. g.vðing-
dómur. kristni og múhamcðstrú.
Margt er sameiginlegt með þcssum
trúarbrögðum og menning í þessum
löndum að mörgu leyti af sömu rót
sprottin. En undanfarin jmsund ár.
eða frá dögum krossfaranna. hafa
kristnir og múhameðstrúarmenn bor-
ist á banaspjót. Þýðandi Guðbjartur
Gunnarsson.
18.00 Stundin okkar (L að hl.). Um-
sjónarmaður Asdis Emilsdóttir.
Kynnir ásamt henni Jóhanna Kristín
Jónsdóttir. Stjórn upptöku Andrés
IndriðaSon.
19.00 Skákfr»Asla (L). Leiðbeiuandi
Friðrik ólafsson.
Hló.
20.00 Fréttir og veAur.
20.25 Auglýsingar og dagskré.
20.30 Eldeyjan. FVrir réttum fimm árum,
eða aðfaranótt 23. janúar 1973, hófst
eldgos í Heimaey. Mynd þessa tóku
Asgeir Long, Ernst Kettler. Páll Stein-
grímsson o.fl., og lýsir hún eynni, gos
inu og afleiðingum þess. Mvndin hlaut
gullverðlaun á kvikmyndahátíð í
Atlanda í Georgíu.
20.55 Röskir sveinar (L). Sænskur sjón-
varpsmyndaflokkur i átta þáttum,
byggður á sögu eftir Vilhelm Moberg.
2. þáttur. Efni fyrsta þáttar: Gústaf er
vinnumaður á bæ í Smálöndum. Eftir
erfiða vinnuviku er upplífgandi að
bregða sér á ball á laugardagskvöldi.
Gústaf kemur heim einn morgupinn
eftir viðburðaríka nótt og sinnast þá
við húsbóndann og slær hann niður.
Síðan flýr hann til skógar. Ilann er
hungraður og illa haldinn. en hittir
vinnustúlku, sem gefur honum að
borða. Skömmu síðar fréttir hann, að
Jagerschiöld kaptein vanti nýliða i
herinn. Hann sýnir. hvers hann er
megnugur. og kapteinninn tekur
honum tveimur höudum. Þýðandi
óskar Ingimarsson. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið).
21.55 Nýérskonsert í Vínarborg (L). FII-
harmoníuhljómsveit Vinarborgar
leikur einkum dansa eftir Strauss-
feðga. Stjórnandi Willi Boskovsky.
(Evróvision — Austurríska sjónvarp-
ið).
23.05 AA kvöldi dags (L). Séra Skírnir
Garðarsson. sóknarprestur I Búðardal.
flytur hugvekju.
23.15 Dagskrárlok.