Dagblaðið - 03.02.1978, Síða 11

Dagblaðið - 03.02.1978, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 3. FEBRUAR 1978. 11 |§ÍP Wmm. m ANDORRA ER ENN EINHVER FRIÐSÆLASTI STAÐURINN A JARÐRIKI. ÞAR BÚA EKKI NEMA 26 ÞUSUND MANNS EN ÞANGAÐ KOMA ÁRLEGA UM FIMM MILLJÓNIR FERDAMANNA. á jöróu þar sem fjárhagsvand- ræðin eru enn sem komið er tiltölulega óþekkt fyrirbæri. Gjaldeyrisspekúlantar hafa fengið augastað á landinu og bankayfirvöld í Sviss hafa kippt að sér hendinni í sam- bandi við alheimsfjármálin. Einnig getur sá dagur komið að furstarnir tveir vilji fá meira í sinn hlut heldur en fáeinar krónur, skinkur og egg. I Andorra er verðlag á byggingarlóðum orðið mjög hátt, svipað og er inni á miðri Manhattan í New York. En skozka viskíið kostar ekki nema sem svarar 40 krónum íslenzkum! Það væri kannski tilvalið að senda einhvern af ráðamönn- um Islendinga til Andorra til þess að þeir mættu læra hvernig stjórna á smáríki svo vel sé. Kjallarinn PállV. Daníelsson Atvinnuvegirnir ráða litlu um afkomu sina og getu til þess að mæta erfiðleikum. Þeir hafa i litlum mælifengiðað byggja sig upp. Það er næstum bannorð að tala um hagnað, þó viljum við öll hafa þénustu. Reýnt er að ala á þeirri hugsun að fyrir- tæki, einkum þau sem eru fjár- hagslega sterk, séu arðræningj- ar, sem engum góðum tilgangi þjóni. F.vrir þessu hafa stjórn- völd fallið og orðið þess vald- andi með margskonar ráðstöf- unum að nær ómögulegt er að byggja upp traust og arðbær fyrirtæki. En slík fyrirtæki gætu staðið undir betri kjör- um fólks jafnframt því sem þau gætu mætt ýmsum áföllum án þess þau þyrftu að lenda með fullum þunga yfir á herðar launþega. Afleiðing alls þessa er að fyrirtækin verða fjárhagslega ósjálfstæð og neyðast til þess að sækja flest til þess opinbera með þeim afleiðingum að vax- andi þörf er fyrir allskonar sjóði og lánastofnanir til fjár- mágnsskömmtunar svo að at- vinnuvegirnir stöðvist ekki. Og þá vill jafnan brenna við að arðbærissjónarmiðin gleymist með öllu. Öll teljum við verðbólguna bölvald, sem marga óáran megi rekja til. En er ekki stefna stjórnvalda gagnvart atvinnu- rekstrinum, eins og hún hefur verið um árabil, einn mesti valdur verðbólgunnar? Að byggja allt upp á lánsfé er hvati til þess að greiða í smærri krón- um aftur. Öll verðlagning undir kostnaðarverði veldur verð- bólgu og ég held að full ástæða sé til þess, þegar leitað er að verðbólguhvatanum, að skoða opinberu stjórnunina undan- farna áratugi og vita hvort hann finnst ekki þar í stað þess að einblína á launabreytirigar sem aðalhvatann í þessu efni. Ég tel að margir stórir mála- flokkar eigi að flytjast frá rík- inu til byggðarlaga, sveitar- félaga og einstaklinga. Má m.a. nefna framkvæmd grunnskóla- laga, löggæzlu, ýmsa þætti heil- brigðisþjónustu og félagsmála, atvinnumál, samgöngumál o.fl., sem eru staðarleg málefni og eigá að leysast þar af því fólki, sem til þekkir af eigin raun. Að sjálfsögðu þarf ríkið einnig að skila fjármagninu, sem þá mundi nýtast betur og verða arðbærara. Peningastofnunum í hinum einstöku byggðarlög- um þarf að stjórna af heima- mönnum og gæta þess að fjár- magn byggðarlaganna sé ekki flutt í burtu eða stjórnað utan frá. Eigi að takast að stjórna vel bg viturlega verða þeir, sem til þess eru valdir að vera til fyrir- myndar og sýna ábyrgð og heiðarleika í hvívetna. Glati þeir trausti tekst þeim ekki að leysa neinn vanda. Jafnframt verður að sýna hinum almenna borgara fullt traust og fá hann til hjálpar. Við ráðum ekki við verðbólguvandann án þess að fá aðstoð almennings. En til þess þarf hann að fara úr spennitreyju kerfisins. Reyrður vöðvi getur ekki tekið á. Eins og fyrr segir verður að skoða stjórnkerfið. Athuga hvort löggjafinn er ekki búinn að hrúga upp margvíslegri lög- gjöf, sem er ekki í takt við æðaslátt lífsins, heldur byggð á nokkurskonar módelþjóðfélagi, sem aldrei getur orðið til og aðeins þjakar þegna sína og leiðir óhamingju yfir þá. Réttur okkar til þess að ráðskast með náungann á að vera sem minnstur. Samfélagið verður að byggjast á traustum, starfhæfum og umburðarlynd- um einstaklingum. Við verðum að hafa þrek til þess að verjast hverskonar óáran og ógnun við heilbrigða skynsemi og lýð- ræðislegt hugarfar. Við viljum vernda okkar land og styrkjá okkar þjóð. BARÁTTA GEGN OFSTJÓRN Hvert atkvæði, sem ég hlýt i þessu prófkjöri, gefur mér styrk til þess að halda áfram að berjast gegn opinberri ofstjórn og byggja upp traust á hinum almenna manni, en það hlýtur að vera markmið þjóðfélagsins að honum geti liðið sem bezt, ekki með því að segja honum hvað honum sé fyrir beztu, heldur að hann eigi þess kost sem frjálsborinn maður að leita sjálfur og skapa sínar ham- ingjuleiðir. Páll V. Daníelsson forstjóri, Hafnarfirði. Réttbetismál Hvert prófkjörið rekur ann- að hjá flokkunum og hætt er við að fólki sé farið að leiðast allt umstangið, greinaflóðið og áróðurinn, sem prófkjörunum fylgja. Ég skal ekki þreyta þig, lesandi góður, með upptalning- um á kosningaloforðum, sem þú hefur enga tryggingu fyrir að ég muni efna, ef ég kemst á þing. En ég er frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins i Reykjaneskjördæmi, sem fram fer dagana 4. og 5. febrúar nk., og ég skrifa þessar línur til þess að biðja þátttakendur í prófkör- inu að merkja við mig í öruggt sæti á listanum. En hvers vegna? Jú, ástáiðan er fyrst og fremst sú, að ég hef' áhuga á þjóðmálum og mig langar til að hasla mér völl á vettvangi þeirra. Ekki síst vildi ég vinna að þvi. að gera hið svokallaða kerfi manneskju- legra og standa þannig að málum, að traust almennings á stjó nvöldum landsins mætti vaxa á ný. Annað mál er svo það, að ég er sameiginlegur frambjóðandi sjálfstæðisfélaganna á Suður- nesjum í prófkjörinu. Um mjög langt skeið hefur enginn Suður- nesjamaður átt sæti á Alþingi og ég og stuðningsmenn mínir erum þeirrar skoðunar, að það sé pólitísk nauðsyn og sjálfsagt réttlætismál, að Suðurnesja- maður komist á þing. Hinir flokkarnir hafa nú birt fram- boðslista sina í Reykjaneskjör- dæmi. Þeir eru allir þannig skipaðir, að enginn Suðurnesja- búi á þar einu sinni vonarsæti. Þetta er í hæsta máta óeðlilegt ástand, og allir réttsýnir menn eru þeirri skoðun sammála. Þess vegna fjölgar þeim þátt- takendum í prófkjörinu, sem Kjallarinn Eiríkur Alexandersson fram fer um næstu helgi, stöðugt, sem taka þá ákvörðun að grípa nú síðasta tækifærið sem gefst, til að bæta úr þessu ranglæti. Með þessu er ekki verið að vekja upp gamlan draug, hrepparíginn, enda eru ágrein- ingsefnin i þjóðfélaginu yfrin fyrir því. Hér er um að ræða baráttu fyrir þeim sjálfsögðu mannréttindum, að landshluti, sem er álíka fjölmennur og Vestfirðir, fái einn einasta for- svarsmann úr heimabyggðum inn á löggjafarsamkundu þjóðarinnar. Eg skora á ibúa Reykjanes- kjördæmis að leggja þeirri bar- áttu lið með því að veita mér drengilegan stuðning í próf- kjörinu sem framundan er. Eirikur Alexandersson bæjarstjóri, Grindavik.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.