Dagblaðið - 28.04.1978, Side 8
8 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. APRlL 1978.
Bylting í Afghanistan
— Herinn tekur völdin— Mohammad Daout forseti drepinn
Singapore:
Hinnfyrsti
f gálgann
fyrir
heróínsmyglið
í morgun var fyrsti heróinsölumaður-
inn tekinn af lífi í Singapore i samræmi
við lög sem sett voru þar árið 1975.
Samkvæmt opinberri tilkynningu var
malasiskur verkamaður, tuttugu og átta
ára að aldri. fyrsta fórnardýr hinna nýju
laga fyrir að vera handtekinn með rúm-
lega fjórðung kílós af efninu í fórum sín-
um.
Verjendur hans höfðu reynt sitt
itrasta til að fá dómnum breytt eða
frestað bæði með náðunarbeiðnum til
Elisabetar Bretadrottningar og forseta
Singapore en án árangurs. Singapore er
eilt af rikjum Brezka samveldisins.
Lögin sem sett voru árið 1975 gera
ráð fyrir dauðarefsingu fyrir að hafa í
fórum sínum meira en 15 grömm af
hreinu heróíni. Til þessa hafa fjórtán
einstaklingar verið dæmdir til dauða
samkvæmt þeim en enginn tekinn af lífi
fyrr en I morgun. Þremuii hefur tekizt að
fá dóma sína mildaða. einum dómi var
hrundið og níu bíða eftir að beiðnir
þeirra um náðun verði afgreiddar.
Forseti Afghanistans, Mohammad
Daout var skotinn til bana í byltingu í
gær. eftir að neita að gefast upp, að
því er Kabulútvarpið sagði i gær. Hin
nýja byltingarsljórn. sem náði völdum
í gær eftir bardaga. þar sem skriðdrek-
um, flugvélum og stórskotaliði var
beitt, sagði að hinn 68 ára gamli for
seti hefði verið skotinn eftir að hafa
margsinnis neilað uppgjöf. Þá sagði
útvarpið einnig að bróðir forsetans.
Mohammad Naim. hefði einnig verið
skotinn. Útvarpið gaf ekki frekari
skýringar og sagði ekki hvar eða hve-
nær forsetinn hefði verið skotinn.
í gær gerðu herdeildir árás á forseta-
höllina með skriðdrekum og flugvélar
studdu árásina með skothríð. Einnig
var ráði/t á flugvöllinn i Kabul og
aðalstöðvar flughersins urðu einnig
fyrirárás.
Heimildir greindu að höll forsetans
hefði staðið í Ijósum loguni, og lik
hefðu verið á við og dreif á götunum
umhverfis eftir hin miklu átök. Hinn
nýi leiðtogi er Dagarwal Abdul Khadir
herforingi og hefur hann verið út-
nefndur yfirmaður byltingarráðs hers-
ins.
Hin nýja byltingarstjórn virtist
nokkuð trygg I sessi í morgun. Undan-
farið hafði Mohammad Daout forseti
verið gagnrýndur fyrir einræðistil-
hneigingar og tilraunir til þess að
koma á eins flokks kerfi i Afghanistan.
Landamæri Afghanistan liggja að
Sovétríkjunum, Pakistan. Iran og
Kina.
Átökin brutust út um nónbilið I gær
og eftir skörp átök náði hin nýja bylt-
ingarstjórn völdum. í tilkynningu
hinnar nýju stjórnar sagði að hún
myndi byggja á múhameðstrú, frelsi
og komið yrði á lýðræði, sem stuðla
myndi að framþróun í Afhanistan.
Utanríkisstefnan byggðist á hlutleysi,
sem styddi frið, hvar sem væri í heim-
inum.
Muhammad Daout forseti komst til
valda með byltingu árið 1973. er hann
steypti frænda sinum Zahir konungi
af stóli.
Flugstjóri og siglingafræðingur s-kóreónsku Boeing 707 farþegaþotunnar sem nauðlenti á isilögðu vatni i Sovétrfkjunum eru enn i haldi þar. Þeir hafa verið fluttir
til Leningrad til frekari yfirheyrslna. Það er þvf enn ekki Ijóst hvaö olli hinni miklu villu vélarinnar, en hún var komin 1600 km af áætlaðri flugleið. Bandarikjastjórn
hefur lagt hart að Sovétstjórninni að sleppa flugmönnunum hið fyrsta og skýra frá rannsókn málsins. Þessa mynd tók einn farþega hinnar nauðlentu vélar þar sem
hún var á isnum, en vatnið er f námunda við sovézku borgina Kem f norðurhluta Sovétrfkjanna.
Tékkneski geimfarinn Vladimir Remekfyrsti útlendingurinn sem þotið hefur um himingeiminn f sovézku geimfari, kom til
Prag f gær.
Var hann ásamt hinum þremur sovézku félögum sfnum og fagnaði Husak forsetis Tékkóslóvakiu þeim á flugvellinum við
borgina en siðan óku þeir um götur Prag þar sem þúsundir manna fögnuðu þeim. Hér er Remek með svoézkum félögum
sfnumumborðf Salyut 6 geimstöðinni.
Kappinn John Wayne eins og flestir kannast við hann.
Kvikmyndaleikarinn John Wayne er
kominn heim af sjúkrahúsi því í Boston
þar sem hann gekkst undir hjartaskurð-
aðgerð í byrjun þessa mánaðar. -
Kappinn sagðist vera bráðhress og
Erlendar
fréttir
óþreyjufullur að byrja aftur störf. Hann
var að sögn grennri en áður en læknar
segja hann við fulla heilsu og skjótur
batinn sé vegna þess hve Ijónfjörugur og
lífsþyrstur hinn sjötugi leikari sé.
John Wayne sem hefur leikið í um
það bil 200 kvikmyndum um ævina var
skorinnupp við lungnakrabbameini fyrir
fjórtáti árum en læknar fullyrða að
skurðagerðin núna sé á engan hátt tengd
þeirri meinsemd.
Vestur-Virginía:
MISSTIFJÓRA SYNIOG
FJÓRA AÐRA ÆTTINGJA ER
VINNUPALLARNIR HRUNDU
— Fimmtíu og einn fórst í miklu vinnuslysi
Aðeins tveimur þeirra fjörutíu og
tveggja manna sem voru við störf sin á
vinnupöllum utan á kæliturni við orku-
ver I Vestur-Virginíu í Bandarikjunum í
gær tókst að stökkva að turninum og
halda sér þar. Hinir hröpuðu til jarðar
og létust ásamt ellefu öðrum verka-
mönnum sem voru við vinnu sina fyrir
neðan.
Atburður þessi varð við lítið þorp St.
Marys þar sem aðeins búa um þrjú
þúsund og fimm hundruð manns.
Flestir hinna látnu munu þvi hafa
verið tengdir eða skyldir á einhvern hátt
og meðal annars er getið eins manns,
Lee Steel, sem sjálfur lenti að visu ekki í
slysinu en missti fjóra syni sína og fjóra
aðra ættingja.
Varð slysið er vinnupallarnir hrundu
skyndilega, án nokkurra skýringar enn
sem komið er.
John Wayne kom-
inn af sjúkrahúsi