Dagblaðið - 05.05.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1978.
3
„MENN VERÐA DÆMDIR AF
VERKUM SÍNUM EN EKKI
ORÐUM”
segir bréfritari til forystumanna verkalýðshreyfingarinnar
Bcnedikt Kristjánsson, Hverfisgötu
98A, hringdi:
Hann vildi gjernan koma með at-
hugasemd vegna ummæla Guð-
mundar J. Guðmundssonar í sjón-
varpinu að kvöldi 1. mai:
„Guðmundur hafði orð á að hann
vildi gera verkalýðshreyfinguna lýð-
ræðislegri og auka vald hinna einstöku
félagsmanna. Mig langar til þess að
það komi fram að almennur félags-
fundur hefur ekki verið haldinn i
Dagsbrún síðan sl. haust. Það er enn
ekki búið að halda aðalfund i félaginu
en lögum samkvæmt á að halda hann
ekki síðaren 15. febrúar.
í sambandi við fræðslustarfið vil ég
taka fram að neitað var að birta grein í
félagsblaðinu þrátt fyrir að um hafi
verið að ræða svargrein við árás Eð-
varðs á framboðstilraun i félaginu. Á
fé|agsfundi 21. nóv. 1976 samþykktu
tæplega tvö hundruð verkarnenn að
Akureyrarhöfn:
Burt
með
flökin
Akureyringur hringdi:
Heldur er leiðinlegt að sjá skipaflot-
ann sem að staðaldri liggur við
bryggju í höfninni hér neðan undan
Kaupvangsstræti.
Gamall og kolryðgaður ný-
sköpunartogari, Snæfellið, hið
gamla og farsæla síldarskip að þvi
komið að sökkva og gamla Akra-
borgin.
Allt voru þetta farsæl og aflasæl
skip á sinum tima en sú ágæta
tímans tönn hefur sett á þau sitt mark
og því er fullkomlega tímabært að fjar-
lægja þau.
í því ásigkomulagi sem þessi þrjú
skip eru nú eru þau engum til gagns
eða ánægju. Þau setja ljótan svip á
bæinn og því skora ég á þá sem um
málið eiga að fjalla að fjarlægja skipin
hið bráðasta.
PUNKIÐ
EKKERT
PRUMP
H. Rottcn skrifar:
Ég las það þann 24.4. i DB að ein-
hver fröken ABBENSTEIN var að
lofa ABBA sem rosalega hljómsveit.
En þú (frk. Abbenstein) sagðir: „Ég
held því fcam að ABBA sé helmingi
betri en allar punkhljómsveitir sem
eru að reyna að þenja sig með litlum
árangri.”
Ég tel það ekki litinn árangur t.d.
meðlima Sex Pistols að eiga alltaf litlar
og eða stóru hljómplötuna mörgum
sinnum á lista þegar rætt er um vin-
sældakosningar. Ég man að ég las i DB
seint á árinu 1977 að Johnny Rotten
hafi verið 4. vinsælasti söngvari ársins
i heiminum og annar í Bretlandi og
hljómsveit hans, Sex Pistols, hafi verið
í 2. sæti. Svo voru 3 litlar plötur Sex
Pistols í 2„ 3. og 8. sæti yfir litlar
plötur. Einnig má nefna að Stranglers,
Television, Clash og Damned voru
allar á einhverjum lista í einhverju tíu
.efstu sæta. Þarna tel ég punkið ekki
vera að þenja sig með litlum eða
engum árangri.
þetta blað skuli vera öllum opið, þá er
ekkert tillit tekið til þess. Einnig var
mjög athyglisvert að blaðið kom ein-
mitt út strax eftir að mótframboðið
kom fram.
Á þingi Verkamannasambandsins í
byrjun desembermánaðar á sl. ári var
samþykkt að halda fundi með forystu-
mönnum verkalýðshreyfingarinnar á
vinnustöðum til þess að verkamenn
hefðu einhver tök á að -hafa áhrif á
gang mála.
Enginn slíkur fundur hefur verið
haldinn svo vitað sé i Dagsbrún.
Að lokum vil ég taka fram að menn
munu verða dæmdir af verkum sínum
en ekki orðum og lýðskrumi.”
Bréfritari telur forystumennina sjálfa eiga sökina á doða verkalýðshreyfing-
arinnar.
Spurning
dagsins
Borðar þú
morgunmat?
Helga Finnbogadóttir afgreiðslustúlka:
Stundum, það fer eftir þvi hvenær ég
vakna. Ég legg mikla áherzlu á að það sé
jorðaður morgunmatur.
\ 'V
<9
Oft skiptast á skin og skúrir ífjármálum
fólks. Tekjur og gjöld eru breytileg
frámánuðitilmánaðar.Kannski ererfið
afborgun framundan, en fjármunir af
skornum skammti. Útiitið virðist ekki of
bjart. Fyrirhyggja er lausnarorðið í
slíkum vanda.
Við bendum á IB-lán okkar.
Þau byggjast á reglubundnum sparn-
aði sem gefur rétt til lántöku. IB-lánin
gætu lyft mörgum yfir erfiðan hjalla, en
það krefst fyrirhyggju.
Leitið upplýsinga um IB-lán, fáið
bækling.
Banki þeirra sem hyggja að framtíðinni
Iðnaðarbankinn
Aðalbanki og útibú
Jóhann Hclgason verzlunarmaður: Já,
það geri ég svo sannarlega. Morgun-
maturinn hjá mér er te og tvær ristaðar
brauðsneiðar. Stundum borða ég
afganga frá kvöldinu áður, ef þeir eru
einhverjir.
Óvissa
framundan
i fjármálunum?
Guðný Snorradóttir, vinnur I Faco: Já,
það geri ég. Það eru nú aðallega ávextir,
kornflex eða eitthvað létt.
Einar Pétursson, vinnur i Karnabx: Já,
ég fæ mér eina kók.
Bjarni Jónsson verkamaður: Já, é|
borða kornflex. Ég legg mikla áherzlu i
að fólk borði morgunmat áður en þa(
fer i skóla eða til vinnu.
Anton Reinoldbeck: Það er nú misjafnt,
það eru þá helzt ávextir.