Dagblaðið - 05.05.1978, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 05.05.1978, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. MAt 1978. 13 innar. Oft Játa ráöamenn undan slík- um kröfum, enda koma þær gjarnan frá flokksbundnu fólki, og er það að minni hyggju ein aðalástæðan fyrir því stefnuleysi, sem einkennir íslenskt stjórnmálalíf. Almennir kjósendur úthúða stjórnmálamönnum heima í stofum sínum meðan þrýstihóparnir syngja kröfugerðarsönginn háum og snjöllum rómi i fjölmiðlum. Það verður að teljast óliklegt að al- mennir kjósendur hefji í náinni framtið virka þátttöku innan stjórn- málaflokkanna og lög sem fyrirskip- uðu slíkt stæðust ekki gagnvart stjórnarskránni enda ótvírætt brot á mannréttindum. Eina færa leiðin til þess að auka áhrif kjósenda ágang mála er þvi að taka upp persónu- bundnar kosningar. Þá gætu kjósendur að minnsta kosti ráðið ein- hverju um það hverjir fara með umboð þeirra á alþingi. Ekki er i fljótu bragði hægt að benda á heppilegri leið til virks lýðræðis en þá að stjórnmálaflokkar starfi i landinu. Það er hins vegar Ijóst að sem stendur eru íslenskir flokkar staddir í pólitískri blindgötu þar sem örfáir einstaklingar stjórna ferðinni. Óháð framboð og krafa um per- sónubundnar kosningar er til þess fallið að vega að rótum þess meins sem nú hrjáir íslenska stjórnmálaflokka. Æskilegt væri að slíkt framboð kæmi fram í öllum kjördæmum landsins. Gfsli K. Sigurkarlsson lögfræðingur, Keflavík \ landsins atómstilinn sem hinn eina sanna i Ijóðlist á íslandi. Raunar er Dagur Sigurðarson nú þegar orðinn þekktari en Davið Stefánsson i menntaskólum landsins. Margir undrast að þetta skyldi hafa gerzt meðan Vilhjálmur Hjálmarsson var menntamálaráðherra — maður vandur að virðingu sinni og heiðarlegur. En nú er haft í flimt- ingum, þegar talað er um afgreiðslu mála í menntamálaráðuneytinu: Talaðu við Birgi „sjálfan”. Slík er niðurlæging ráðherrans. Skýringin er ef til vill sú að á heimavigstöðvunum, á Austurlandi, berst Vilhjálmur um svipaðan skoðanahóp og Lúðvik Jósepsson. Vilhjálmur hefur því ekki efni á þvi að moka flórinn i sinu ráðuneyti né skólunum. Til þess yrði ramakvein Þjóðviljans og hatursher- ferð of mikil. Við bíðum sannarlega eftir einhverjum hugrökkum manni sem vill taka ástandið i menntamálun- um til bæna. Hilmar Jónsson bókavörður, Keflavik. Ásmundur Bjarnason skrifar f rá Húsavík um leiklist: Bitastæðara en „menningarauki” Þjóðleikhússins Skjaldhamrar á Húsavík Leikfélag Húsavikur frumsýndi Skjaldhamra eftir Jónas Árnason 31. marz sl. Síðan hefur leikritið verið sýnt 15 sinnum fyrir fullu húsi og mjög góðum undirtektum. Það væri að bera i bakkafullan lækinn að fara að láta ljós sitt skina um leikritið þar sem búið er að sýna það svo víða hérlendis og erlendis og þar af leiðandi margbúið að skrifa um það, og í flestum tilfellum er farið um það fögrum orðum. Aftur á móti er það um sýninguna hér að segja að hún er mjög vel upp- færð. Leikstjórn Sigurðar Hallmars- sonar er markviss og fagmannleg og leikendur leggja sig alla fram við að gera sina hluti vel. Snædís Gunn- laugsdóttir leikur Katrinu Stanton leftenant, Benedikt Sigurðsson leikur Kormák vitavörð, en Snædís og Benedikt eru nýliðar á sviði hér á Húsavík, bæði nýflutt hingað, en það er enginn nýliðabragur á leik þeirra. Jón Fr. Benónýss. leikur Stone major korporállinn er leikinn af Ólafi Straumland, Einar Njálsson leikur Pál Daniel Nielsen, sem allt farganið stendur um og Maria Axfjörð leikur Birnu. Ég verð að segja það að mér þótti þetta bitastæðara verk heldur en Á sama tima að ári sem Þjóðleikhúsið sendi hingað um daginn okkur til „menningarauka” eins og stóð i leik- skránni. Nú fer sýningum að fækka á Skjaldhömrum en fólk er hvatt til þess að fara á þessa ágætu sýningu leik- félagsins, sem ennþá einu sinni kemur manni á óvart með enn einni heil- steyptri leiksýningu. Ásm.Bj. SKJALDHAMRAR — Snædís Gunnlaugsdóttir og Benedikt Sigurdsson I hlutverkum sinum hjá Leikfélagi Húsavikur. — Ljósmyndastofa Péturs. Húsmóðir efst hjá Sjálfstæðis- flokknum á Húsavfk Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins á Húsavík er skipaður eftirtöldum mönn- um: 1. Katrín Eymundsdótt'r húsmóðir, 2. Hörður Þórhallsson útgerðarmaður, 3. Guðmundur A. Hólmgeirsson skipstjóri. 4. Jón Ármann Árnason trésmíða meistari, 4. Sverrir Jónsson póstfulltrúi 6. Ingvar Þórarinsson bóksali, 7. Krist inn Magnússon framkvæmdastjóri, 8. I laraldur Jóhannesson mjólkur Iræðingur, 9. Skúli Jónsson verkstjóri. 10. Reynir Jónasson kaupmaður, II. Særún Jónsdóttir húsmóðir, 12. Haukur Ákason rafvirkjameistari, 13. Benedikta Steingrimsdóttir launafulltr., 14. Pálmi Pálmason iþróttakennari. 15. Þröstúr Brynjólfsson varðstjóri, 16. Dórothea Guðlaugsdóttir húsmóðir, 17. Hákon Aðalsteinsson sjómaður og 18. Jóhann Kr. Jónsson bókari. Við síðustu bæjarstjórnarkosningar fengu sjálfstæðismenn 213 atkvæði og tvo bæjarfulltrúa kjörna af niu. A.Bj. Alþýðubandalag ogóháðirsaman íMosfellssveit Framboðslisti Alþýðubandalagsins og annarra vinstri manna i Mosfellssveit er skipaðureftirtöldum mönnum: 1. Ulfur Ragnarsson rannsóknar- maður, 2. Ásdís Kvaran kennari, 3. Sturlaugur Tómasson nemi 4. Aðal- heiður Magnúsdóttir kennari, 5. Trausti Leósson byggingafræðingur, 6. Þórður Axelsson húsgagnasmiður, 7. Guðlaug Torfadóttir skrifstofumaður, 8. Fróði Jóhannsson garðyrkjubóndi, 9. Helga Hólm húsmóðir, 10. Runólfur Jónsson verkstjóri, 11. Sigriður Halldórsdóttir kennari, 12. Anna S. Gunnarsdóttir kennari, 13. Ásgeir Norðdahl verka maðuf og 14. Sigurður A. Magnússon rithöfundur. Við siðustu sveitarstjórnarkosningar fengu vinstri menn og óháðir 299 atkvæði og þrjá fulltrúa af sjö i hrepps- nefnd Mosfellshrepps. A.Bj. Lenin og Stalín voru að flestu góðu þekktir þó svo að hin nýja yfirstétt hafi notað annan til þess að kenna sig við en hinn til að klína eigin fólsku- verkum á. Fólki eins og Mariu og Morgunblaðsritstjórum, að ó- gleymdri APN, hefur tekist að rugla margan manninn. En sárafáir tengja Sovétriki nútímans við sósíalismann, nema til þess að sverta hann eða þá fegra afturhaldið — þegar allt kemur til alls. Afturhald Sovétríkjanna, með eða án Maríu, er ofurselt eyðingunni á sama hátt og þaðer öruggt að þjóð- frelsisöfl Afríku brjótast undan oki og yfirráðum beggja risaveldanna og afturhaldsins þar. „Á reiðskapnum sést hvar heldri menn fara” — María notar gamlan málshátt i grein sinni. Ég tel víst að margur alþýðumaðurinn sjái í gegnum Brésneff og kó. Reiðskjótar hans eru deyðandi vígvélar í öllum heims- hornum i „nafni sósíalismans”, sovésk fyrirtæki i öðrum löndum í „nafni sósíalismans,” rányrkjutogarar sem eyða fiskimiðum annarra þjóða í „nafni sósialismans” og jafnvel Cadilac frá vininum honum Carter — auðvitað í „nafni „sósialismans”. Og nú hefur María Þorsteinsdóttir hlaupið undir bagga. Svo ráðlegg ég Maríu að setjast við skrifborðið strax, því 1. mai beindust aðgerðir „Samfylkingar 1. maí" m.a. gegn báðum risaveldunum og þar var gestur — fulltrúi þjóðfrelsishreyfinga Eritreu. Ari Trausti Guðmundsson formaður miðstjórnar EIK(m-l). Hverfafundir borgarstjóra í apríl - maí 1978. Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri flytur ræðu og svarar fyrirspurnum fundarcesta Austurbær og Norðurmýri Hlíða- og Holtahverfi. Laugardaginn 6. maí kl. 14:30. Domus Medica — Egilsgötu 3. Á fundunum verður: 1. Sýning á líkönum og uppdráttum 2. Litskuggamyn'dir af helztu fram- af ýmsum borgarhverfum og kvæmdum borgarinnar nú og nýjum byggðacvæöum. a"ð undanförnu. Fundarstjóri: Barði Friðriksson. hœstaróttarfög- nrtaður. Fundarritarar Magnús Ásgeirsson, viðskiptafræðinemi og Rúna Guðmundsdóttir, verzlunarstjóri. Reykvíkingar — tökum þátt í fundum borgarstjóra

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.