Dagblaðið - 05.05.1978, Page 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1978.
5
Sigurjón Hilaríusson kennari (K-lista):
Meirihlutinn tók upp helminga
skipti við stöðuveitingar
„Þaö sem einkennt hefur
kjörtimabilið er hversu meirihlutinn i
baejarstjórninni hefur verið ósamstæður
og ágreiningsmálin mörgsagði Sigur-
jón Hilariusson, efsti maður borgaralist-
ans í viðtali við DB. „Þetta hefur komið
niður á stjórn bæjarins í heild og má
it
Sigurjón Hilariusson sérkennarí,
starfar við sérkennslu vangefinna á
Kópavogshxli.
segja að orsakir klofningsins séu
tvíþættar. t fyrsta lagi er klofningurinn í
liði sjálfstæðismanna og í öðru lagi eft-
ir að svonefnd helmingaskipti meiri-
hlutans við 'stöðuveitingar á vegum
bæjarins voru tekin upp.”
Sigurjón sagði mörg dæmi þess að
hagsmunir flokkanna sjálfra en ekki
Kópavogs hefðu verið látnir ganga fyrir
„og við höfðum því fyrst og fremst til
þeirra Kópavogsbúa sem vilja ráða sér
sjálfirsagði Sigurjón.
„Fyrir mig persónulega eru skóla- og
félagsmál mjög aðkallandi verkefni,”
sagði Sigurjón ennfremur. „Það tekur
auðvitað langan tíma að gera skóla
einsetta, en hitt er vist að bæta má til
muna hið innra starf skólanna, þeir eru
fyrir nemendurna, ekki kennara.”
Sigurjón sagði fólki ekki lengur upp á
það bjóðandi að ekki skuli vera búið að
rykbinda allar götur i Kópavogi. „Þetta
er heilbrigðisspursmál, alveg eins og
gerð ræsisins I Kópavogi sem við
munum leggja áherzlu á að fram-
kvæmdir verði hafnar við á kjörtíma-
bilinu.
„Það hefur margt verið gert til þess
að bæta félagsmálin hér I bænum en við
munum leggja áherzlu á að halda félags-
starfi eldra fólksins I nánum tengslum
við tómstundastarf unga fólksins en ekki
stía þeim aldurshópum í sundur,” sagði
Sigurjón ennfremur.
HP
Jóhann H. Jónsson bæjarfulltrúi (B-lista):
FJÖLBRAUTASKÓLI
í ÞINGHÓLSSKÓLA
„Skólamálin i Kópavogi eru sígildur
málaflokkur,” sagði Jóhann H. Jónsson,
efsti maður á lista framsóknarmanna í
Kópavogi, í viðtali við DB. „Á því sviði
hefur mikið verið gert á siðasta kjör-
tímabili en framkvæmdir eru að hefjast
eða eru hafnar við þýðingarmikla þætti,
eins og íþróttahúsið við Digranesskóla,
fyrsta hluta Snælandsskóla og ljúka á
við Digranesskóla I náinni framtíð.
Framkvæmdir i gatnagerðarmálum
hafa verið miklar en ekki nægar en nú
eru margar götur fullfrágengnar með
götulýsingu og gangstéttum,” sagði
Jóhann ennfremur. Gatnagerð verður
því ofarlega á baugi á næsta kjörtima-
bili en við framsóknarmenn munum
leggja áherzlu á að rykbinda allar götur í
bænumogfullgera þær svoiáföngum.
Þá viljum við fá samvinnu við ríkið
um að koma á fjölbrautaskóla í Þing-
hólsskóla og haga þvi þannig að þaðan
geti nemendur jafnvel útskrifazt eða
öðlazt rétt til frekara náms annars
staðar.
Mér veitist nú eins og öðrum erfitt
að spá fyrir um úrslit kosninganna,”
sagði Jóhann ennfremur. „En Ijóst er
að hægri vængurinn er klofinn og við
framsóknarmenn deilum ekki um menn
heldur snúum okkur af fullum krafti
sameinaðir að verkefnum þeim sem fyrir
liggja.”
HP
Jóhann H. Jónsson, yfirverkstjóri hjá Mjólkursamsólunni.
Skólamál eru sigild mál I Kópavogi og stór hluti tekna bæjarins rennur til fræðslu-
mála. Þó telja sumir að bærinn sé að dragast aftur úr I þróuninni og eins eru uppi
raddir um að erfitt sé að átta sig á þvi hvað koma skuli yfirleitt I fræðslumálum og
þvi sé málum nú svona komið. Myndin sýnir einn af nýrri skólum I bænum, Þing-
hólsskóla.
iW>'i
Gríðarlegar ibúðarbyggingar hafa verið i Kópavogi að undanförnu og má sérstaklega nefna Hjallahverfið innst I Kópa-
vogi til austurs. Þar má segja að litlu muni að byggðin renni saman við Reykjavík eins og sésl á þessari mynd.
Helga Sigurjónsdóttir kennari (G-lista)
Höfum dregizt langt
aftur úr í framhalds-
menntun
„Næsta bæjarstjórn stendur frammi
fyrir því að leysa mörg og fjárfrek verk-
efni,” sagði Helga Sigurjónsdóttir annar
maður á lista Alþýðubandalagsins i
Kópavogi.
„Þrátt fyrir að Kópavogur inn-
heimti hæstu skatta af bæjarbúum sem
nokkurt sveitarfélag gerir virðist lítið
verða úr þeim miklu fjármunum sem
fara um hendur ráðamanna. Hér er t.d.
lagt á sérstakt holræsagjald og var þvi
komið á til að hefja framkvæmdir við
stóra ræsið i Kópavogsdal. Þrjú ár eru
liðin síðan gjaldið var lagt á og ekkert
bólar á ræsinu ennþá. Og sama er að
segja um gatnagerð. Hún er ekki burðug
hérna eins og þú sérð. Til að flýta fram-
kvæmdum var lagt á svokallað gatna-
gerðargjald B til að fullgera göturnar.
Þetta gjald greiðist þegar gata og gang-
stétt eru fullgerð en auk þess eru að sjálf-
sögðu lögð á gatnagerðargjöld A, sem
greiðast þegar húsbygging hefst. Kópa-
vogur mun vera eina bæjarfélagið á
landinu sem lepur bæði þessi gjöld á í
hæsta verðflokki.
— Á siðustu 8 árum hafa verið byggð
upp ný og fjöbnenn ibúðahverfi. Þar er
öll þjónusta langt á eftir ibúðabyggðinni
skóla- og dagheimilisbyggingar hafa
dregizt mjög úr hömlu og sérstaklega
erum við illa sett hvað varðar framhalds-
menntun. Bæjaryfirvöld hafa ekki tekið
það frumkvæði um skipulagningu fram-
haldsmenntunar i bænum sem hefði
þurft að gera og afleiðingin er sú að
fjöldinn allur af ungmennum verður að
sækja framhaldsnám til nágranna-
byggða. Það er orðið býsna dýrt þegar
verður að greiða með hverjum nemanda
sem það gerir. 15 millj. eru ætlaðar til
þessa liðar á árinu. Nú, annað stórt
verkefni verður að ráðast í sem fyrst en
það er holræsið sem ég nefndi áðan.
Bæði er að Kópavogslækurinn og
fjaran eru orðin hættulega menguð og
eins er ekki unnt að skipuleggja nýtt
svæði fyrir atvinnurekstur sunnan
lækjarins eins og gera þarf nema hol-
ræsið komi til. Þetta ræsi mun kosta
hundruðmilljóna.
— Þá er að nefna landakaup sem
sífellt verður bæjarfélaginu þyngri baggi
að bera. Svo að hægt sé að auka at-
vinnurekstur í bænum þarf að kaupa
upp rándýr lönd sem nú eru i einKa-
eign.” 11
Helga Sigurjónsdóttir kennari: Viö höfum dregizt langt aftur úr I framhaldsmenntun.