Dagblaðið - 05.05.1978, Síða 6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1978.
Guðmundur Oddsson yfirkennari (A-lista):
Tökum landakaup bæjarins
til athugunar
„Við þurfum að koma á fót fjöl-
brautaskóla hér í Kópavogi en þó ekki
með hinu hefðbundna sniði,” sagði
Guðmundur Oddsson yfirkennari í við-
tali við DB en hann er í fyrsta saeti á lista
Alþýðuflokksins við bæjarstjórnar-
kosningarnar. „Þar á ég við að koma
þarf á sérhæfingu í einhverjum vissum
greinum því tilgangslaust er fyrir okkur
að vera að keppa við þá fjölbrautaskóla
sem fyrir eru í nágrenninu.”
Guðmundur sagði það einnig skoðun
sina, enda þótt hann vildi taka það fram
að margt gott hefði verið gert á síðasta
kjörtímabili, að ýmsir þættir félagslegs
eðlis hefðu orðið út undan. Nefndi hann
sem dæmi að frjáls félagsstarfsemi ætti
nú í fá hús að venda með starfsemi sína,
Félagsheimilið hefði að mestu verið
tekið undir skrifstofur fyrir bæinn.
„Þá er það skoðun mín að landakaup
bæjarins eigi að taka til athugunar,”
sagði Guðmundur. „Við getum ekki
endalaust keypt land undir byggingar-
lóðir fyrir morð fjár.
Ég mun svo koma þeirri skoðun minni
á framfæri að ég tel rétt að afnema fast-
eignaskatt af eigin húsnæði bæjarbúa
sem komnir eru yfir sextugt,” sagði
Guðmundur. „Þetta má gera með
hliðsjón af tekjum — það er engin goðgá
að gera eitthvað fyrir eldra fólkið áður
en það er orðið svo gamalt að það fær
ekki notið þess.”
HP
Guðmundur Oddsson yBrkennari: Hygla þarf eldra fólkinu áður en það er of gamalt
til þess að njóta þess.
Guðni Stefánsson járnsmioameistari: Niðurstöður prófkjörsins voru hundsaðar.
Guðni Stefánsson járnsmiður (S-lista):
BETRIFJÁRHAGS- OG
FRAMKVÆMDAÁÆTLANIR
„Þetta er ævagamall ágreiningur,”
sagði Guðni Stefánsson járnsmiður, en
hann er efsti maður á lista Framboðs
sjálfstæðisfólks i Kópavogi. Listi sá varð
til eftir að deilur höfðu komið upp innan
Sjálfstæðisflokksins eftir prófkjörið þar
í bæ. „Niðurstöður prófkjörsins voru
algerlega hundsaöar og þvi vildum við,
aðstandendur þessa lista, ekki una,”
sagði Guðni. „Að öðru leyti er ekki um
stefnubreytingar frá stefnu Sjálfstæðis-
flokksins að ræða.
Við munum leggja áherzlu á gerð
vandaðra fjárhags- og framkvæmda-
áætlana,” sagði Guðni ennfremur.
„Gerð var áætlun um lagningu varan-
legs slitlags á fjölmargar götur hér í bæ
á kjörtímabilinu en eins og verður að
viðurkennast hefur ekki verið unnt að
standa við hana og sumar þeirra gatna
eru á fjárhagsáætlun fyrir árið i ár.
Það þarf því að huga betur að þessum
málum og jafnvel flokka göturnar betur
— hverja þeirra á að malbika nú,
o.s.frv.,” sagði Guðni.
„Við þurfum einnig að fylgja vel eftir
því stórátaki sem gert hefur verið í at-
vinnumálum og hlúa að þeim sem hér
vilja setja á stofn atvinnufyrirtæki,”
sagði Guðni.„Félagmál hér í bænum eru
á góðri leið en ég vil nefna að við
þurfum að styðja við bakið á frjálsri
félagsstarfsemi með beinum styrkjum en
láta félögin starfa sjálfstætt.”
-HP
Miðbæjarkjarninn hefur lengi
veríð Kópavogsbúum þungur baggi
og mikill höfuðverkur. Svæðið er
nú að fá á sig nokkuð heillega
mynd og ruglaðir vegfarendur
farnir að læra á brýrnar og áttir. Á
næsta kjörtimabili er fyrirhugað að
Ijúka sem mestu af kjarnanum
austan við gjána (fjærst á mynd-
inni) og fjöldi fólks hefur nú flutzt
inn i ibúðir þar. — DB-myndir
Hörður.
Innst inni á „Hálsi” hefur risið
mikið iðnaðarhverfi, tæpir 30 ha.
að stærð, á kjörtímabilinu.
Svæðið er eftirsótt af atvinnurek-
endum, enda liggur það vel i fram-
tíðarþjóðbraut og með tiiliti til
nálægðar við þéttbýl hverfi, ný
hverfi i Kópavogi og Breiðholts-
hverfið i Reykjavfk.