Dagblaðið - 05.05.1978, Side 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1978.
9'
Vestur-Þýzkaland:
Dekkið sprakk á
bifreiö Bresnevs
— allt annað samkvæmt áætlun í heimsókn Sovétforsetans
Fjögurra daga heimsókn Bre&nevs
forseta Sovétrikjanna til V-Þýzkalands
hefur verið hefðbundin að flestu leyti að
undanskildu því að það sprakk á bíl
hans. Hann hefur rætt við leiðtoga V-
Þýzkalands um pólitísk málefni og mun
halda því áfram í dag. Mótmæla-
göngur hafa verið farnar í Bonn til þess
að mótmæla stefnu Sovétrikjanna í
mannréttindamálum.
Sovézka forsetanum var virðulega
tekið og 21 fallbyssuskoti skotið af
honum til heiðurs er hann kom í gær. í
ræðu yfir kvöldverði lagði Bresnev
áherzlu á það að samkomulag næðist
um alþjóðlegt bann við framleiðslu
nifteindasprengja.
Augljóst var að ekki fögnuðu allir
komu forsetans því ekki færri en 25
þúsund lögreglumenn og öryggisverðir
voru i og umhverfis borgina. Þá mátti
lesa af skilti í námunda við flugvöllinn,
Sovétrikin — stærstu fangabúðir heims.
Fyrir helztu mótmælagöngunni fór
Pyotr Grigorenko, fv. sovézkur her-
foringi, sem nú hefur verið sviptur
sovézkum borgararéttindum. Hann
sagði að mannréttindi ættu að ganga
fyrir efnahags- og verzlunarmálum.
Eins og fyrr var getið sprakk á bíl
þeim sem flutti Bresnev, þegar ekið
var með leiðtogann eftir hraðbraut á 125
km hraða. Afturdekk 'Mlsins sprakk og
svo virtist sem öryggisverðir héldu að
um árás hryðjuverkamanna væri að
ræða. öll bílalestin hemlaði mjög snöggt
og heimildir sögðu að ef hraðbrautin
hefði verið blaut eftir rigningu, hefði
ekki verið komizt hjá fjöldaárekstri.
Sovézki forsetinn var siðan fluttur með
hraði yfir i annan bíl.
Sagt er að viðræður leiðtoganna hafi
verið hreinskilnar og ánægjulegar og
fjallað mikið um viðskiptamál, en V- ,
Þýzkaland er mesta viðskiptaland Sovét-
rikjanna i V-Evrópu.
Við byggingu þessa turns lézt fimmtiu
og einn maður, þegar vinnupailar
hrundu. Þetta er kæliturn við væntan-
legt orkuver i Virginiuriki. Flestir
mannanna létust er þeir hröpuðu niður
með vinnupöllunum en ellefu er voru
við vinnu sina á jörðu niðri urðu undir
brakinu.
«
hann kom af sjúkrahúsi i Boston fyrir nokkrum dögum. Þar var hann skorinn upp
vegna hjartameins og að sögn lækna er hinn 71 árs leikari bráðhress.
Gamla tréð
féll ogþrjátíu
létust
Þrjátíu manns eru sagðir hafa látizt
Dg um eitt hundrað særzt er fornt risa-
ré, sem stóð við markaðssvæði í þorpi
;inu í suðvestur Bangladesh rifnaði upp
fyrir nokkrum dögum. Mikill stormur
gekk yftr og tréð féll yftr markaðs-
svæðið.
Kínaforseti
í opinberri
heimsókn
Hua Kuo-feng mestur valdamaður í
Kína kom til Pyongyang, höfuðborgar
Norður-Kóreu, í morgun. Er þetta fyrsta
opinbera heimsókn Hua til erlends ríkis
eftir að hann komst til æðstu valda.
Samkvæmt fregnum frá Norður
Kóreu var tekið vel á móti kínverska for-
sætisráðherranum og flokksformann-
inum við komuna og var þar fremstur í
flokki Kim USungforseti landsins.
Erlendar
fréttir
Matador
sjálfskiptur, ’73, bíll í al-
gjörum sérflokki. Skipti koma til
greina á ódýrari bíl.
Fíat
131 S Mia Fari 77, ekinn 8 þús-
und.
Galant 112 GL '75
sjálfskiptur, 2ja dyra, hardtop með
lituðu gleri.
Mazda 929
75,2ja dyra.
Citroen
D special 74, góðir greiðsluskil-
málar.
Audi
100 GLS 77, sjálfskiptur, litað
gler, vökvastýri, ekinn 900 km,
glæsilegur bill.
Volvo
14471.
Mazda
Pickup 74.
Cortina
1600XL73.
Cortina
1600 L 77,4radyra.
Dodge Power
Wagon ’65, alls konar skipti.
Dodge Aspen
77, ekinn 10 þús., 4ra dyra, sjálf-
skiptur.
Peugeot
304 74.
Buick '76
2ja dyra, glæsilegur bíll.
Cortina
1600XL’76,ekinn 14þús. km.
bilasalg
GUÐMUNDAR
Bergþórugötu 3 - Reykjavik
Símar 19032 & 20070
Stefnirí gjald-
þrot hjá
Lundúnahöfn
Gjaldþrot Lundúnahafnar vofir yfir
ef áfram heldur sem horfir að sögn for-
manns hafnarstjórnarinnar. Þykir
mörgum þar hafa orðið skjót umskipti
því fyrir fimmtán árum var höfnin sú
stærsta í heimi og annríkið þar mest.
Þetta kom fram þegar formaðurinn
var að kynna afkomuna síðastliðið ár.
Sagði hann að tapið yrði komið upp í
76 milljónir punda árið 1982 eða jafn-
virði tæplega 40 milljarða íslenzkra
króna, ef ekkert yrði aðhafzt.
Rúmlega 50 milljón punda varasjóður
sem til var fyrir fimm árum er þegar
uppurinn.
Til að leysa vandann þarf að sögn
formannsins að endurskipuleggja alla
starfsemi hafnarinnar og auk þess
fækka mjög starfmönnum, sem eru
um níu þúsund.
Sagðist hann hafa kynnt jjessar
rekstrarniðurstöður og framtíðar-
horfur hafnarinnar fyrir rikisstjórn
Verkamannaflokksins og leiðtogum
verkalýðsfélaganna.
Fyrir fimmtán árum var London
stærsta höfn heimsins eins og áður
sagði. Þá störfuðu um það bil þrjátiu
þúsund hafnarverkamenn við hana.
Síðan hefur stöðugt hallað undan faeti.
Kom þar aðallega til að gáma-
flutningar jukust stórlega en Lund-
únahöfn var sein til að aðlaga sig
þeim aðstæðum. Einnig voru verka-
lýðsfélögin treg til að viðurkenna
þörfina fyrir nývinnubrögð og færri
verkamenn er gámarnir komu til.
Nú mun svo komið að sá hluti hafn-
arinnar þar sem gámar eru afgreiddir,
við minni Thames árinnar, er rekinn
með hagnaði en gamla höfnin í
Austur-London með bullandi tapi og
þar fer aðeins þriðjungur flutnings um
á við það sem fór þar um fyrir fimm
árum.
Stjórn hafnarinnar ber sig enn illa
undan ýmsum vinnureglum, sem
verkalýðsfélögin komu á meðan allt
lék í lyndi.