Dagblaðið - 19.05.1978, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1978.
3
Mengun frá slökkvi-
Hðinu ekkert betri en
fráÁlverinu
Pétur hrinjidi:
Mér finnast slökkviæfingar slökkvi-
liðsins á Reykjavikurflugvelli keyra
úr hófi suma dagana. Það má jafnan
sjá kolsvartan reykjarmökkinn yfir
vellinum þegar þeir eru að æfa sig. Um
daginn var ég i Hafnarfirði og þá var
greinilegt að þeir kveiktu fimm
sinnum i. Kolsvartur reykjarmökkur-
inn kom alla leið til Hafnarfjarðar.
Svei mér þá. þetta er hata ekkert
betra en mengunin frá Álverinu.
Kolsvartur reykjarmökkurinn stígur upp frá slökkviliðsæfiniíunum á flug-
vellinum.
Raddir
lesenda
Hringiöísíma
27022millikl.
13-15 eðaskrifið
Nýjar tillögur um nafn á nýju myntina
Nýju seðlarnir eru óneitanlega ákal'
lega „útlendingslegir” í útliti. Við
eigum eftir að k.vnnast körlunum á
seðlunum betur.
Takið bara eftir hve vel það hljómar
aðsegjat.d. lOz. 100/. lOOOzo.s.frv.
Það hljómar t.d. ekki sem verst. ef
talað er um Kröflu. að hún kostar
núna ekki nema rétt eins og 17
milljarðaafz-um.
En i sambandi við það sem „gamli
maðurinn að austan” leggur til sem
nafn á undireiningu myntarinnar leyfi
ég mér að flytja honum minar alúðar-
fyllstu þakkir fyrir þá nafngift og styð
orðið „brandari" heilshugar.
Brandarar eru alltaf ómissandi, jafnvel
þótt þeir séu aðeins 5 „aura” virði. Þá
finnst mér sjálfsagt að 100 brandarar
yrðu i einni z.
Það er bæði von min og fjallgræn
vissa að þessi nafnbreyling á islenzku
myntinni myndi stórauka virðingu
fyrir henni, ckki aðcins meðal okkar
Íslendinga hcldur einnig og miklu
fremur úti i hinum stóra og litt
kannaða heimi. ef svo óliklega vildi til
að við þyrftum að leita þar lántöku
einhvern tima i framtiðinni.
Nú er svo komið að það beygir sig
að sjálfsögðu enginn eftir krónu. En
eftir nafnbreytinguna. hugsið ykkur
hvað það verður lærdómsrikt fyrir
æsku landsins að sjá ráðherra beygja
sig eftir. þólt ckki væri nema einum
„brandara”.
Ætli við eigum ekki eftir að sakna gömlu vinanna
okkar, Jóns Sigurðssonar og Einars Ben. Hver
veit?
ÞAÐ VÆRIALVEG
„BRANDARI” EF
MYNTIN YRÐI
KÖLLUÐ „SETA”
7860—3739 skrifan
í Dagblaðinu 10. maisl. vargreinar-
korn eftir „gamlan mann að austan”
sem vakti athygli mina enda bar
greinarkornið yfirskriftina Virðing
fyrir gjaldmiðlinum er mikilvæg.
Undir þessa setningu tek ég heils-
hugar, enda er ég lika „að austan”.
Ég felli mig þvi miður hins vegar
ekki við orðið sem „gamli maðurinn
að austan” vill velja sem heiti á hina
væntanlegu nýju mynt sem hann vill
kalla „funnýja”.
Mér finnst. og þar sem ég er líka „að
austan”, miklu sjálfsagðara að kalla
nýju myntina z. Það er aðeins einn
stafur og fullkomlega sjáll'stæður. Það
er líklega einn aldýrasti stafurinn i
islenzkri tungu ef meta ætti hann til
verðs í peningum miðað við þann tim'a
sem hæstvirtir alþingismenn hal'a.
virðingarfyllst og náðarsamlegast að
sjálfsögðu. eytt af þingtimanum
margsinnis i að ræða z-una. Hún
hlýtur þvi að standa fyrir sinu. Að
sjálfsögðu fórnuðu hæstvirtir alþingis-
menn. af sinni alkunnu glöggskyggni.
auðvitað siðustu minúlúm þing-
timans. vonandi, i að ræða um z.
Þvi ylli það mér. og e.t.v. fleirum.
sárum vonbrigðum ef þingstyrkur
fengist ekki fyrir að kalla nýju
myntinaz.
Ég vil leyfa mér- að bcnda á t.d.
Sverri Hermannsson. af þvi að hann er
'þingmaður ,.að austan”. að flytja og
fylgja eftir að koma z. unni inn sem
heiti á nýju myntina.
Póstsendum
Opið föstudag
til kl. 7, laugard.
9-12.
Rautt
leður
Kr. 10.600.-
Svartur,
brúnn
ogbláiij
strigi ff
Svart
og
Ijóst
leður
Kr.7.9
Brúnt
og
beige
leður
Kr.
10.600.
Kr. 5.950.-
Spurning
dagsins
--- —h
Áttþú bíla?
(Spurt í leikskólanum HUðaborg).
Halldóra Halldórsdóttir 4 ára: Já. ég á
marga niarga bila. Þeir heita Passat. Ég
ferstundum i bilaleik meðstrákum.
Sara Smart 4 ára: Ég á marga bila heima
hjá mér. Stundum l'cr ég að lcika við
Þórdisi. þá leikum við okkur með þá.
Bilarnir minir hcita líka Citroen.
Hafdís Ólafsdóttir 4 ára: Ég á enga bila.
þeir eru bara l'yrir stráka. Mig hel'ur
aldrei langað að eiga bil. Ég á margar
dúkkur.
KaroUna Steinbach 4 ára: Nei, ég á ekki
bila. Frændi minn á marga bila. Þeir
heita ekkcrt. hann er ckki búinn að skira
þá.
Guðrún Jónsdóttir 3 ára: Já. ég á marga
bila. Ég veit ekki hvað þeir heita. ég held
að það sé ckki búið að skira þá. Það er
voða gaman að leika sérað þeim.
Erna Hrönn Gcirsdóttir 3 ára: Nei.
stelpur eiga ekki að leika sér að bilum.
þeir eru bara fyrir stráka. Bróðir minn á
alveg fullt af bilum. Stundum lcr ég að
leika að bilunum hans. Bílarnir hans
heita strákar eins og hann.