Dagblaðið - 19.05.1978, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1978.
BLAÐAMAÐUR
mmiAna
vill ráða til starfa
1. reyndan blaðamann og
2. háskólamenntaðan nýliða
í blaðamennsku.
Umsóknir, er tilgreini menntun og fyrri störf,
skulu hafa borizt ritstjóra fyrir 6. júní nk.
Eldri umsóknir verða því aðeins teknar til
greina að þær verði endurnýjaðar við þetta
tækifæri.
DAGBLAÐIÐ, ritstjóri
Síðumúla 12, Reykjavík
BLAÐAMAÐUR
Vikan
Ítalía:
Nærrí átta hundruð
árásir hryðjuverka-
manna frá áramótum
— fjórtán lögreglumenn myrtir
— Giulio Andreoiti forsætisráð
herra Ítaliu sagði i ræðu sem hann hélt
i gær að aukning ofbeldisverka á Ítaliu
i fyrra hefði verið 78% ef miðað væri
við árið 1976. Sama þróun hefði sýnt
sig fyrstu mánuði þessa árs. Var for-
sætisráðherrann þá að ræða um þau
ofbeldisverk sem framin væru gegn
stjórnmála- og embættismönnum eða
þar sem stjórnmálaskoðanir væru til-
efni hryðjuverkanna.
Á fyrstu mánuðum þessa árs hafa
769 árásir verið tilkynntar. þar af I42
á skrifstofur stjómmálatlokka og 26
gegn ýmsum einstaklingum að sögn
forsætisráðherrans.
Á þeim rúmlega tveim mánuðum
síðan Aldo Moro fyrrverandi forsætis-
ráðherra ítaliu var rænt af meðlimum
Rauðu herdeildarinnar voru gerðar
267 árásir af ýmsu tagi. þar af 38 þar
sem byssum var beitl. Fjórtán lög-
reglumenn hafa verið myrtir frá sið
ustu áramótum sagði Andreotti.
Hann sagði ennfremur að talið væri
að af þeim 6I6! föngum i itölskum
fangelsum. sem taldir væru tii hryðju-
verkamanna væru I52 taldir vera
meðlimir i Rauöu herdeildunum sem
meðal annars stóðu fyrir ráni og morði
Aldo Moros.
— Við munum gera allt sem i
okkar valdi stendur til að sigrast á of-
beldi og hryðjuverkum og sjá til þess
að regla og frelsi sigri — sagði Andre-
otti i ræðu sinni.
vill ráða til starfa
1. ritstjórnarfulltrúa og
2. blaðamann
Umsóknir, er tilgreini menntun og fyrri störf,
skulu hafa borizt ritstjóra fyrir 6. júní, nk.
VIKAN, ritstjóri,
Síðumúla 12, Reykjavík
Aðalfundur
Reykjavíkurdeildar
Norræna félagsins
verður í Norræna húsinu 23.maí 1978
kl. 20.30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Dagblaðið vantar umboðsmann í
Hveragerði
frá 1. júní. Upplýsingar hjá Sigríði Kristjáns-
dóttur í síma 99-4491 og afgreiðslunni í síma
91-22078.
MMBIAÐin
Staða skólastjóra
við tónlistarskóla Árnessýslu er laus til
umsóknar.
Starfið veitist frá 1. september nk. Umsóknir
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
berist fyrir 1. júlí nk., til formanns tónlistar-
félags Árnessýslu, Helga Helgasonar, Foss-
heiði 11, Selfossi, sem einnig veitir nánari
upplýsingar um starfið.
Dráttarbifreið
Volvo FB 88 árgerð 1968 með eða án
malarvagns til sölu. Opið laugardag og
sunnudag.
Vagnhöfða 3,
sími 85265.
Anker Jörgensen forsætisráðherra Dana hefur verið i opinberri heimsókn i Noregi undanfarna daga. Hefur hann auðvitað
rætt málin við hinn norska starfsbróður sinn, Odvar Nordli. Meðal annars hafa fiskveiðimál verið rædd þar. Danir eiga i
nokkrum crfiðleikum vegna þess að gömul mið fískimanna þeirra á E.vstrasalti hafa verið aö hverfa inn fyrir fískveiðiland-
helgi ríkja sem land eiga að Eystrasalti. Er skemmst að minnast er fískimenn frá Borgundarhólmi sigldu til Kaupmanna-
hafnar til að leggja áherzlu á kröfur sínar vegna þess. Á myndinni eru þeir Anker Jörgensen og Odvar Nordli við komu hins
fyrrnefnda til Oslo.
Bretarhreyknir:
(UR
NIMROD ÞOTA H
LANDHELGISBRJÓT í
FYRSTA SKIPTlH
Bretar eru helzt á þvi aö Nimrod
þota við gæzlu fiskveiðilandhelgi
þeirra hafi brotið blað i sögu slikrar
gæzlu, þegar hún stóð spænskan
togara að verki við ólöglegar veiðar
innan marka i gær. Var þetta nærri
þeim mörkum sem skipta hafsvæðinu
á milli Bretlands og írlands. Strax og
Nimrod þotan hafði komið auga á
togarann tilkynnti hún fund sinn til
nærstadds varðskips sem fylgdi
honum til hafnar i Wales.
Haft var eftir talsmanni varnar
málaráðuneytisins brezka að þetta
væri i fyrsta sinn sem skip hefði verið
stöðvað samkvæmt skipun flugvélat
við slikar aðstæður. Sagði hann að
áhöfn Nimrod þotunnar mundi verða
kvödd til að gefa skýrslu fyrir rétti ef
málið færi þá leið.
Bandaríkin:
ÆTLA EKKIAÐ EYÐA
ÖLLU EITURGASINU
Bandarikin hafa ákveðið að halda
el'tir um það bil 155 tonnum af
taugagasi ætluðu til hernaðar en
ætlunin hafði verið að eyða öllum
slikurn birgðum. Ástæðan l'yrir þvi að
nokkru magni af eitrinu verður haldið
eftir er að sögn yfirmanna hersins sú
að rétt þykir að eiga eitthvað ef ske
kvnni að Sovétmenn notuðu það i
hernaði.
Að sögn bandariska hersins eiga
Sovétmenn fimmtiu sinnum meira af
eiturefnum til hernaðar en hinir fyrr-
nefndu. Ákvörðun um að halda el'lir
þessum 155 tonnum hel'ur verið
samþykkt af æðsta herráði þar vestra.
Eitursprengjurnar. sem eins og áður
sagði vega 155 tonn. eru 900 talsins og
gcymdar i vopnabúri i Coloradofylki.
Ætlunin er að flytja þær meira úr
alfaraleið og hefur litt byggt landsvæði
i Utah orðið fyrir valinu.
Fregnir hafa borizt um að nokkuð
hafi borið á leka i eitursprengjunum
Talsmaður hcrsins sagði að cin
þcssarra sprengja hefði lekið en eitrið
hel'ði aldrei komizt lcngra en úr yztu
skelinni. Myndi sú sprengja verða
eyðilögð og séð um að hún ylli ekki
skaða.
Hernaðaryfirvöld i Bandarikjunum
hafa viljað koma sér upp eitur-
vopnum, sem væru mun fullkomnari
og að sögn öruggari en þau sem
liingað til hafa verið framleidd.
Ætlunin var til dæmis að þær
sprengjur yrðu ekki virkar fyrr en búið
væri að tengja saman tvo hættulausa
hluti.
Þessi hugmynd herstjórnarinnar
hefur ekki fengizt staðfest af öldunga-
deildinni i Washington. ÓG