Dagblaðið - 19.05.1978, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1978.
HilmarÞórarinsson
(A-lista):
Lokun helztu
atvinnufyrir-
tækja vofir
yfir
Pólitikin hefur ekki riðið hér húsum í
bæjarmálum nema þá rétt ívrir kusn-
ingar, segir Hilmar Þörarinsson, efsti
maður á lista Aiþýðullokksins.
Að hverju verður stefnt á næsta kjör-
tímabili? Það er fyrst og t'rcmst að
tryggja lekjustofna bæjarfélagsins. Eins
og útlitið er núna hér á Suðurnesjum i
sjávarútveginum. sjáum við frant á lok-
un helztu atvinnufyrirtækjanna. Þvi
verður bæjarstjórnin að beita sér l'yrir
því af alefli að þau fái nauðsynlega fyrir-
greiðslu. Því aðeins að fyrirtækin gangi
og geti skapað atvinnu eru tekjustofn-
arnir tryggðir.
Af því sem inn kemur til bæjarins fara
um það bil tveir þriðju hltttar í lögboðin
framlög. Sá þriðjungur sem eftir er er til
reiðu til nýframkvæmda.
Nýlokið er að leggja hér hilaveitu og
ganga verður frá varanlegu gatnakerfi,
undjrbúa ný ibúðahverfi og Ijúka við
gerðiþróttahússins.
Ella þarf enn frekar samstarf sveitar-
lélaganna hér á Suðurnesjum. Sameigin-
legur rekstur þeirra á brunavörnum.
heilsugæzlu, elliheimili, hitaveitu og
fleiru, hefur gefið mjög góða raun. Nú
er bygging sorpeyðingarstöðvar efst á
baugi i samstarfsmálunum.
Hér i Njarðvík hefur pólitíkin ekki
riðið húsum i bæjarmálum nema þá rétt
fyrir kosningar. Þeir sem i sveitarstjórn
hafa setið, í það minnsta þessi þrjú kjör-
timabil sem ég hef verið þar, hafa veré
samhentir um að vinna byggðarlaginu
sem bezt. Eina kosningaloforðið sem ég
get gefið er að starfa af heilindum fyrir
Njarðvík og Njarðvíkinga framvegis
eins oghingað til.
- ÓG
Aldrei meiri framkvæmdir en
síðasta kjörtímabil atvinnulífinu vofir yfir
Njarðvíkingar eru almennt sammála
um að sjaldan hafi verið meira fram-
kvæmt af hálfu sveitarfélagsins en á sið-
asta kjörtímabili. Þar sem annars staðar
eru menn auðvitað ekki algjörlega sam-
mála um röðun framkvæmda en flokka-
pólitíkin á landsvisu setur litinn svip á
bæjarmálin nema þá rétt fyrir kosning-
ar.
Sjálfir telja Njarðvikingar sig eiga
framtíðina fyrir sér með nægt land til að
byggja á ibúðarhús og byggingar fyrir
atvinnureksturinn.
Þeir telja kaupstaðinn vel i sveit sett-
an fyrir iðnfyrirtæki sem hyggja á út-
flutning vegna nálægðar góðrar hafnar
og flugvallarins á Miðnesheiði.
Helzta vandamálið, sem fyrirsjáanlegt
er, er á sviði atvinnumála. Stöðugt
minnkandi afli fiskiskipaflotans af Suð-
urnesjum á hinum hefðbundnu miðum
veldur áhyggjum og hefur þegar sett
mark sitt á afkomu útgerðarfyrirtækj-
anna og fiskverkunarinnar, sem er únd-
irstaða atvinnulífsins í Njarðvík auk
starfa á Keflavíkurflugvelli.
—ÓG.
ÁkiGranz (D-listi):
Kosningaloforðin öll efnd á miðju kjörtímabilinu
— traustur grunnurundirframtíðaruppbyggingu bæjarins
„Sjálfstæðismenn i Njarðvik fara
mjög bjartsýnir til kosninga. Segja má
að aldrei hafi framkvæmdir verið jafn
miklar á einu kjörtimabili í sögu sveitar-
félagsins og á þvi sem nú er að renna sitt
skeið," sagði Áki Granz málarameistari,
fyrsti maður á lisla sjálfstæðismanna i
Njarðvík.
„Á miðju kjörtimabilinu var búið að
standa við öll kosningaloforðin. Aðstaða
grunnskólans var stórbætt, sex nýjar
kennslustofur teknar I notkun ásamt
skólaeldhúsi, kennaraaðstaða stækkuð
og nýtt bókasafn opnað i nýbygging-
unni.
Einnig má nefna að stofnaður var
tónlistarskóli og voru nemendur hans 94
í vetur og kennarar fimm auk skóla
stjóra. Á kjörtimabilinu var stofnaður
lista- og menningarsjóður ásamt íbúða-
lánasjóði.
Gert hefur verið stórátak i skipulags-
málum. Hjallahverfi og Fitjar eru nú i
uppbyggingu. Gengið hefur verið frá
heildarskipulagi fyrir Innri-Njarðvik.
Þar er meðal annars gert ráð fyrir ibúða-
hverfi með nýstárlegu sniði ásamt svæði
fyrir iðngarða.
Vatnsveita kaupstaðarins var stór-
bætt og átak var gert í lagningu varan-
legsslitlags.
Njarðvikingar hafa ávallt sýnt
iþróttamálum sóma enda ræðst fram-
tiðin af heilbrigðri æsku. Nýbúið er að
bjóða út 30 milljón króna verk til við-
byggingar iþróttahúsinu.
Eitt mesta hagsmunamál Njarðvík-
inga komst í höfn á kjörtimabilinu. Með
samningum við landeigendur hefur
skapazt traustur grunnur undir fram-
tiðaruppbyggingu bæjarins. Um siðustu
áramót voru 114 íbúðarhús í byggingu
auk 14 iðnaðarbygginga.
Hitaveitan hefur verið baráttumál
sjálfstæðismanna um langa hríð og er
hún nú komin i flest hús í Ytri-Njarðvík
og lokið mun verða við lagningu hennar
í Innri-Njarðvík næsta haust.
Vegna þess brennidepils sem sjávarút-
vegur og fiskvinnsla er i hér á Suðurnesj-
um verður að geta þess að hafnargarður-
inn i Landshöfninni var lengdur um 150
metra, sem hlýtur að vera sjávarútvegin-
um til góða. Bæjarfélagið hefur og mun
leggjar fram alla krafta sína til að sá
vandi sem vofir yfir í atvinnumálum
megi leysast á farsælan hátt. Mun þar
verða haft samráð við stjórnvöld og
hagsmunaaðila i atvinnugreinunum.
Ég veit að Njarðvíkingar hvar i flokki
sem þeir standa kunna að meta þá fram-
sýni og einhug sem einkenm hefur
stjórn Njarðvíkur síðasta kjörtímabil og
munu því áfram kjósa samhenta sjálf-
stæðismenn til forustu " - ÓG
Framkvæmdir hafa aldrei verið jafn-
miklar í Njarðvík og á siðasta kjörtíma-
bili, segir Áki Gránz málarameistari,
fyrsti maður á lista sjálfstæðismanna.
Ólafur í. Hannesson (B-lista):
NJARÐVÍK KJÖRINN STAÐUR FYRIR ÚTFLUTNINGSIÐNAÐ
— stjórnendur sjóðabáknsins verða að vakna af þyrnirósarsvefni sínum
„Þeir málaflokkar sem ég lel brýnasta
hérna í Njarðvik þessa stundina eru at-
vinnu-, æskulýðs og umhverfismál,”
sagði Ólafur I. Hannesson fulltrúi lög-
reglustjórans á Keflavíkurflugvelli og
fyrsti maður á lista Framsóknarflokks-
ins i Njarðvik.
„Njarðvík byggir afkomu sína fyrst og
fremst á sjávarútvegi og þjónustu við
hann, svo og staríseminni á flugvellin-
um. Ef eitthvað dregst þar saman eins
og nú hefur raun á orðið i fiskveiðum
verður ástandið alvarlegt. Hér þarf að
koma upp fjölbreyttúm iðnaði og ætti
Njarðvik að vera kjörinn staður fyrir út-
flutningsaðila með tilliti til Landshafnar-
innarogflugvallarins.
Gera þarf heildarúttekt á atvinnumál-
um Suðurnesja og stjórnendur sjóða-
báknsins þurfa að vakna af þyrnirósar-
svefni sínum og gera sér grein fyrir þvi,
að héðan er ekki hægt að mjólka pen-
inga lengur. Hingað þarf að beina þeim.
Æskulýðsmál hala verið utangarðs
hérna nema hvað nokkrir unglingar
hafa að eigin frumkvæði staðið l'yrir
dansleikjum og annarri takmarkaðri
starfsemi.
Skolpi og öðru frárennsli er veitt í
fjöruna hér við bæjardyrnar og þarf að
gera þar mikla bragarbót á. Þá eru opin
svæði, gamlir braggar og drasl. sent safn-
azt hcfur saman viðs vegar. sérstaklega í
kringum-sum fyrirtæki. bæjarfélaginu til
skammar.
Einn af forustumönnum l'ráfarandi
meirihluta lýsti þvi yfir i upphafi þessa
kjörtimabils að mál ættu að afgreiðast
eftir flokkspólitískum linum. Ég er nú
svo gamaldags að ég tek afstöðu eltir
málefnum og hag bæjarfélagsins en ekki
eftir því hver tillögurnar flytur." —ÓG.
m-----------------------►
Skulpinu er veitt í fjöruna hér við bæjar-
dyrnar; úr því þarf að bæta, segir Ólafui
í. Hannesson, fyrsti maður á lista Fram-
sóknarflukksins.
Úrslitífjórum
síðustu
kosningum
1974 1970 1966 1962
Alþýðuflokkur 138-1 169-2 154-2 182-2
Framsóknarfl. 94-1 119-1 158-2
Sjáffstæðisfl. 427-4 293-3 235-3 215-2
Alþýðubandalag 93-1 84-1 57-0 115-1
Fjórir listar í kjöri
A-listi B-listi D-listi
Alþýðuflokksins Framsóknarflokksins Sjálfstæðisflokksins
l. Hilmar Þórarinsson I. Olafur í. Hannesson I. Áki Gránz
2. Guðjón Helgason 2. Olafur Eggertsson 2. Ingólfur Aðalsteinsson
3. Erna Guðmundsdóttir 3. Hclgi Maronsson 3. Ingvar Jóhannsson
4. Eðvald Bóasson 4. Sigurður Sigurðsson 4. Július Rafnsson
5. Hreinn Óskarssnn 5. GunnarÖrn Ciuðmundsson 5. Helga Óskarsdóttir
6. Hilmai Hafsteinsvson 6. Bjþrn Steinsson 6. Karl Sigtryggsson
7. Jón Friörik ÓlaNson 7. Ingibjörg Danivalsdóttir 7. Ingólfur Bárðarson
8. ÁsdisSigmundsdóttir 8. Hreinn Magnússon 8. Ólafur Júliusson
9. Þorvaldur Reynisson 9. CiunnarÓlafsson 9. Kristbjörn Albertsson
I0. Grímur Karlsson I0. Áslaug Húnbogadóttir 10. Sigriður Aðalsteinsdóttir
11. Ásmundur S. Jónsson 11. Sigurjón Guðbjörnsson I I. Ólafur Magnússon
12. Helgi M. Sigvaldason I2. Eiður Vilhelmsson I2. GuðmundurGestsson
13. Guðmundur S. Kristjánsson 13. Ólafur Þórðarson 13. Ásbjörn Guðmundsson
I4. Helgi Helgason I4. Kristján Konráðsson I4. KarvelÖgmundsson.
G-listi
Alþýðubandalagsins
1. Oddbergur Eiriksson
2. Sigmar Ingason
3. Randý S. Guðmundsdóttir
4. Þórarinn Þórarinsson
5. IngunnGuðnadóttir
6. Hreiðar Bjarnason
7. Sigurbjöm Ketilsson
8. Ester Karvelsdóttir
9. Bóas Valdórsson
10. Óskar Böðvarsson
11. ÞórðurGislason
12. Ólafur Pálsson
13. Jóhann B. Guðmundsson
14. Árni Sigurðsson