Dagblaðið - 19.05.1978, Síða 15

Dagblaðið - 19.05.1978, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. MAl 1978. 15 Suðurnesjamenn geta framleitt alla sina raforku og varmaorku sjálfir, segir Odd- bergur Eiríksson, fyrsti maður á lista Alþýðubandalagsinsi Njarðvik. Oddbergur Eiríksson (G-lista): Stofnum samvinnu- útgerð Suðurnesja — eigum að ráða orkumálum okkar sjáffir í sjávarútvegsmálum hefur Suður- nesjamenn borið að vegamótum. Frá ómunatíð og fram til seinustu ára hefur sóknin og afkoma manna hér um slóðir byggzt á miklum vetrarvertíðarafla, sem t sóttur var i göngu hrygningarfisks, sem gekk á miðin i kringum Reykjanes á út- mánuðum. Til þess að veiða þennan fisk hentuðu vel fiskibátar af staerðinni 50 til 250 rúmlestir. Vart verður komið auga á hagkvæm- ara form við fiskvinnsluna við þær að- stæður sem hér er lýst heldur en hinar mörgu og tiltölulega smáu vinnslu- stöðvar, sem settu svip sinn á sjávar- plássin hér um slóðir. Þegar þær voru allar settar í gang og heimamenn sem vettlingi gátu valdið unnu við aflann auk fjölda aðkomumanna var næstum með ólíkindum hversu miklu var af- kastað á skömmum tíma. Nú eru timarnir breyttir og kemur fleira til. Fyrir það fyrsta hefur tekið fyrir hinar miklu fiskigöngur á heima- mið á vetrarvertið. Og í öðru lagi sækist fólk nú fremur eftir fastri vinnu allt árið en skorpuvinnu i fjóra mánuði. Það sem gera þarf í þessum málum þegar að afstöðnum kosningum til sveitarstjórna og Alþingis er að sveitar- stjórnir fyrir sunnan Straum beiti sér fyrir endurskipulagningu og nauðsyn- legri uppbyggingu fiskveiðanna og vinnslunnar. Hugsanlegt væri í þessu sambandi að fjórir togarar kæmu til við- bótar þeim sem fyrir eru. Það skal tekið fram að þessum skipum yrði ekki stefnt til aukinnar sðknar í þorskstofninn heldur að afla þess hluta sem Suður- nesjamönnum ber af því sem leyft er að veiða ár hvert auk annarra fiskitegunda. Til þess að hrinda i framkvæmd þessu verkefni verði myndað samvinnufélag umræddra sveitarfélaga auk þess sem til verði kvaddir þeir útvegsmenn og fisk- verkendur, sem hafa vilja, þor og fram- sýni til að ganga til sliks samstarfs. Af hálfu Alþingis og væntanlegrar rikis- stjórnar verður að krefjast gjörbreyttrar afstöðu til þessa landsvæðis samfara nauðsynlegum stuðningi við fram- kvæmdir þessar. Við fögnum þeim árangri sem náðst hefur með samstarfi sveitarfélaganna á Suðurnesjum og minnum á þátttöku Al- þýðubandalagsins við að koma samtök- unum á fót. Hin sameiginlegu verkefni eru mörg og stór; við minnum sérstaklega á skipu- lega uppbyggingu atvinnulífs á Suður- nesjum ogOrkubú Reykjaness. Orkubú- ið teljum við að eigi að hafa á sínum höndum alla vinnslu og dreifingu raforku og varmaorku á svæðinu, svo og þau við- skipti sem hafa þarf við Rafmagnsveitur rikisins og Landsvirkjun. Við teljum að ekki eigi að vera neitt feimnismál, að hægt er að framleiða alla þá orku sem Suðurnesin þurfa á heimaslóðum og ekki á að skammta orkuna í minívöttum. Félagsleg málefni eins og til dæmis mál unglinga, barna, aldraðra og fleiri hópa eru öll á mjög miklu frumstigi hér i Njarðvík, um þau mætti ræða mikið en erekki kostur í stuttu spjalli. -ÓG Hverju spáir þú um úrslit kosninganna? Jóhann Lfndal rafveitustjóri: Ja, hvað á nú að segja, líklega óbreytt og Sjálf- stæðisflokkurinn heldur meirihlutanum. Oliver Bárðarson múrarameistari: Sjálf- stæðisflokkurinn heldur meirihlutanum og fær fjóra fulltrúa. Annað væri ósanngjarnt eftir það sem gert hefur verið hér siðasta kjörtímabil. Óskar Kristjánsson trésmiðun Ég hugsa nú að sjálfstæðismenn haldi meirihlutanum en það verður mjótt á mununum. Hinir fá síðan einn fulltrúa hver. Valgarður Oskarsson rafvirkjanemi: Ég held úrslitin verði alveg óbreytt og sjálf- stæðismenn haldi meirihlutanum. Hér hefur verið gert svo mikið á síðasta kjörtimabili. Kjartan Rafnsson tæknifræðingur: Ég er ekki í nokkrum vafa um að Sjálfstæðis- flokkurinn heldur meirihlutanum, jafn- vel bætir við sig fimmta fulltrúanum. Hvaða flokkur missir þá sinn fulltrúa vil ég ekkert segja um. Hildur Hilmarsdóttir, nemi I Fjölbrauta- skólanum: Ég á siður von á því að nein breyting verði i bæjarstjórninni en verið getur að Sjálfstæðisflokkurinn bæti við sig fulltrúa eða þá Alþýðuflokkurinn. Mesti lúðrahljómur landsinsá laugardag: 450 UNGMENNIÁ LÚÐRASVEITARMÓT Áhugi unglinga og bama á tónlist hefur farið mjög vaxandi hin siðari árin, enda komin á bein tónmenntafræðsla i skólunum og tónlistarskólar, sem risið hafa víða um landið. Þá hafa lúðra- sveitir barna og unglinga skotið upp koll- inum viða um land og þótt vinsæll þátt- ur i bæjarlífi viðkomandi staða. Tónlistarskólinn i Görðum, Garðabæ, hefur nú boðið lúðrasveitum þessum til hátiðar um næstu helgi. Og þar verður sannarlega þeyttur lúðurinn, þvi hvorki meira né minna en 450 ungir hljóm- listarmenn koma þar fram. Þar mun stærsta lúðrasveit allra tima hér á landi leika 1 > -ir áhorfendur. Tónleikarnir verða á laugardaginn kemur kl. 15.15. Myndin eraf æfingu hjá hljómsveitinni i Görðum. scm býður til tónlcikanna. Björn R. Einarsson, sá landsþekkti tón- listarmaður, æfir hljómsveitina. Sigurður Örlygsson tilbúinn I slaginn. Hér er hann við eina af klippimyndum sinum sem honum þvkir svo gaman að fást > ið. DB-mynd Bjarnleifur. SiguröurOrlygsson með sýningu: Að brjótast út úr geometríunni Sigurður Örlygsson listamaður sýnir þessa dagana verk sín á Kjarvalsstöðum. Er hann þar með 7 mjög stór málverk og 36 klippimyndir eða myndir með formi sem kallast blandað. Eru þá bæði málað- ir og teiknaðir fletir og aðklipptir hlutir. Sýning Sigurðar er opin kl. 4—10 virka dagaen kl. 2—lOum helgar. Öll verkin á sýningu Sigurðar eru til sölu. Hann er einn af þeim sem reyna að lifa á listinni hér á landi og eins og hann orðaði það þá lifir hann ennþá þó erfitt sé. Enda má sjá það i húsum fólks að nú tímalist er þar litt á veggjum þósýningar ungra listamanna séu jafnan talsvert sóttar. Verðið á myndum Sigurðar er mis- jafnt eftir stærð og öðru. Þær ódýrustu kosta 40 þúsund en þær dýrustu 600 þúsund. Liggur misjafnlega mikil vinna á bak við myndirnar því „stundum get ég unnið þetta alveg beint af augum en stundum þarf ég að margbreyta mynd- unum," sagði Sigurður. Að sumum myndunum hefur Sigurður unnið frá 1976 og verið stöðugt að breyta og bæta. En flestar eru þó unnar á síðasta ári. Að sögn Sigurðar fylgjast islenzkir listamenn mjög vel með nýjum stefnum i listum og á sýningu Myndlista- og handiðaskólans sagðist Sigurður hafa séð flestar þær nýjungar sem hefðu komið fram úti i hinum slóra heimi. En sjálfur væri hann alveg „hættur að pæla i þessu" og ynni bara eftir eigin leiðum. Við hið blandaða form væri sérlega skemmtilegt að vinna og nú væri hann að reyna aðbrjóla sig út úr hinum hörðu geometrisku línum og bæta inn hlutum. - DS Húseign til sölu. Til sölu er verkstæðis- og skrifstofubygging Norðurflugs á Akureyrarflugvelli. Húsið er ein hæð, 360 fermetrar. Tryggvi Helgason flugmaður, Átfabyggð 4 Akureyri. Sími 96-21124.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.