Dagblaðið - 19.05.1978, Page 21
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1978.
25
VILJA
ÞEIR?
Ef enginn væri fiskurinn yrði lítið úr
mörgum plássum úti við sjóinn, þar á
meðal Sandgerði. Þeir rétt rúmir 1100
ibúar sem þar eru lifa ýmist á fiski eða
við það að þjónusta sjómenn og fisk-
verkafólk, nema einir 30—40 sem
vinna á Keflavíkurflugvelli, bæði hjá
hernum og íslenzkum aðilum.
Sandgerði eða Miðneshreppur eins og
staðurinn heitir samkvæmt símaskrá og
öðrum viðurkenndum bókum tekur nú
mikinn þátt i samvinnu sem komin er á
milli sveitarfélaga á Suðurnesjum. Sú
samvinna hefur stöðugt aukizt með ár-
unum enda stutt á milli staða og sam-
göngur góðar. Öll sveitarfélögin reka
þannig saman sjúkrahús í Keflavík sem
er með útibú á hverjum hinna staðanna.
Einnig er rekið sameiginlegt elliheimili i
Garðinum sem öll sveitarfélögin nema
Grindavik standa að.
í Sandgerði er stjórn hreppsmála sér-
stök að því leyti að enginn formlegur
meirihluti er í hreppsnefnd, heldur nokk-
urs konar þjóðstjórn allra flokka. Hefur
þetta fyrirkomulag gefizt vel að flestra
mati. Á kjörskrá i Miðneshreppi eru
635. DS.
Lif og fjör var á hafnargarðinum í
Sandgerði er DB-menn sóttu
staðinn heim. Menn þar máttu
ekki vera að slíkum óþarfa og
spjalli við blaðamenn þvi helgin var
framundan og bjarga þurfti bless-
uðum fiskinum undan skemmdum.
Unga stúlkan á myndinni setur ís í
kassa og fer hamförum en verk-
stjóranum finnst samt vissara að
hafa auga með hlutunum._
Úrslitífjórum
síðustu
kosningum
Þiír
listar
i kjori
Aðalat-
vinnu-
veitand-
inn
Miðnes hf. er það fyrirtæki í Sandgerði
sem flestum veitir atvinnu, við fiskinn,
auðvitað.
Jón Norðfjörð (K-lista):
Bætta höfn ogíþróttaaðstöðu
„Þau mál sem efst eru á baugi i Sand-
gerði cru uppbygging hafnarinnar og
bygging íþróttahúss,” sagði Jón Norð-
fjörð brunavörður, efsti maður á K-list-
anum.
„Herða þarf mjög á framkvæmdum
við höfnina. Ef rétt er á málum haldið
getur hér verið ein bezta höfn á Suður-
nesjum.
Með byggingu íþróttahúss sem Ijúka á
1979 batnar öll féiagsleg aðstaða fyrir
yngri'jafnt sem eldri. Bygging sundlaug-
ar er fyrirhuguð á lóð hússins og
munum við beita okkur fyrir að flýta
hennieftir mætti.
í dagvistunarmálum verður að gera
stórátak og einnig i að endurnýja hol-
ræsi og vatnslagnir. Auk þess verður að
leggja varanlegt slitlag á götur bæjarins.
Þættir eins og atvinnumál, málefni
aldraðra. fræðslumál. æskulýðsmál.
stjórnunarmál sveitarfélagsins og sam-
starf við nærliggjandi sveitarfélög eru
allir ofarlega i huga okkar sem stöndum
að framboði K—listans." sagði Jón.
DS.
Jón Norðfjörð. „Ég vona að byggðarlag-
ið verði rekið skynsamlega og með góðu
aðhaldi sem aðeins verður ef sterkur
meirihluti er fyrir hendi.” DB-mynd
Ragnar.
Jón H. Júkusson (D-lista):
Bæta þarf höfnina, undirstöðu
byggðarlagsins
„Á siðasta kjörtimabili vareins konar sé lika aðkallandi sem ekki er tóm til að
þjóðstjórn allra flokka sem gafst mjög ræða núna,” sagði Jón. DS.
vel. En vitaskuld stefnum við öll að þvi
ná meirihluta," sagði Jón H. Július-
son vigtarmaður. sem er í efsta sæti D—
listans.
hreppsnefnd af og til frá árinu 1958.
DB-myndir Hörður.
„Efst er mér í huga áframhaldandi
uppbygging við höfnina sem er undir-
staða byggðarlagsins. Bæta þarf bæði
höfnina ogaðstöðuna við hana.
Svo eru það iþróttamálin. Þau eru
reyndar nokkuð vel á veg komin. En
mörg mál eru þar óleyst, til dæmis vant-
ar sundlaug við íþróttahúsið.
Við þurfum að stórauka byggingu
leiguhúsnæðis á vegum bæjarins. Þetta
allt er mér efst í huga þó að margt annað
Elsa Kristjánsdóttir (H-lista):
Mál málanna höfnin
og innsiglingin
„Mál málanna er að sjálfsögðu að
höfnin og innsiglingin komist i viðun-
andi horf,” sagði Elsa Kristjánsdóttir.
húsmóðir. bankastarfsmaður og nem-
andi i Öldungadeild Fjölbrautaskóla
Suðumesja, en hún skipar efsta sæti
H—listans við sveitarstjórnarkosningar
í Sandgerði, „en einnig er mjög brýnt að
auka fjölbreytni atvinnulífsins í byggð-
arlaginu, sem er mjög einhæft."
Önnur aðkallandi verkefni taldi hún
vera byggingu nýs leikvallarhúss, aukna
æskulýðsstarfsemi og aðstöðu fyrir
hana, endurbyggingu vatnsveitunnar i
tengslum við væntanlega hitaveitu, var-
anlegt slitlag á allar götur, en í þeim efn-
um hefur eitt elzta hverfi bæjarins oröið
útundan.
„Að fegrun byggðarlagsins þarf að
vinna betur en hingað til,” sagði Elsa.
„og í sambandi við málefni aldraðra
kemur mjög til greina heimilisaðstoð á
vegum sveitarfélagsins. Ýmislegt fleira
mætti nefna, en það yrði of langt mál.
Þó vil ég geta þess, að meira samband
milli sveitarstjórnarinnar og hins al-
menna borgara væri mjög nauðsynlegt.”
Elsa er aðflutt — hefur búið i Sand-
gerði í fjögur ár — en henni finnst eigi
að siður að Sandgerðingar mæltu hafa
meiri „þjóðerniskennd" gagnvart byggð-
arlaginu. DS.
Elsa Kristjánsdóttir bankamaður,
aðflutt í Sandgerði, en finnst menn þar
hafa litla þjóðerniskennd. DB-mynd
emm.
1974
Sjálfstæðisflokkur 196-2
Frjálsl. kjósendur 127-2
Óháðir borgarar
Alþýðufl. og óflokksb. kjós. 190-2
Alþýðuflokkur
1970 1966 1962
98-1 94-1 114-1
67-1 98-1
195-2 141-2 103-1
91-2
120-1 175-3
D-listi
Sjálfstæðisflokks:
Jón H. Júliusson.
ÓskarGuðjónsson,
Kári Sæbjömsson.
Gunnar Sigtryggsson,
Jón Erlendsson.
Sigurður Jóhannsson.
Sigurður Bjamason.
Þorbjörg Tómasdóttir.
Reynir Sveinsson,
Margrét Pálsdóttir.
H—listi
frjálslyndra
kjósenda:
ELsa Kristjánsdóttir.
Gylli (Junnlaugsson,
Karl Einarsson.
Marel Andrésson.
Guðjón Bragason.
UnnurGuöjónsdóttir.
Ómar Bjarnþórsson.
Jón Þórðarson.
Sigurður Margeirsson.
Magnús Marteinsson.
K-listi
Alþýðuf lokks og
óháðra borgara:
Jón Norðfjörð.
Kristinn Lárussbn.
Friðrik Björnsson.
Jórunn Ciuðmundsdóttir.
Sigurrós Sigurðardóttir.
SigurðurCJuðjónsson.
Egill Ólafsson.
CJuðni Sigurðsson.
Elias CJuðmundsson.
BcrgurSigurösson.
Hverju spáir þú um
úrslit kosninganna?
Helena Fugk húsmóðir: Það þýðir ekki
að spyrja mig. Ég er útlendingur og má
ekki hafa skoðun. Að minnsta kosti má
ég ekki kjósa.
Ármann Halldórsson beitingamaðun Eg
vil engu spá. Ég er utanaðkomandi, þó
ég kjósi hér og hef litið kynnt mér málin.
Ætli sé þó ekki óhætt að segja að D
listinn fái 3 mcnn.
Guðjón Krístjánsson kennari: É.g veit
það ekki. Ég hef satt að segja ekki nug
mynd um það. Ætli þetta vcrði ekki
svipað og var. Ég gef ekki upp hvað ég
kýs.
Guðmunda Guðmundsdóttir, vinnur i
fiski: Það veit ég ekki. Mér cr satt að
segja nákvæmlega sama. Hvað ég svo
kýserönnursaga.
Sigrún Sigurðardöttir, vinnur i fiski: Ég
vona aö K-listinn fái 3 menn og hinir
einn hvor. Það cr ekkert leyndarmál að
égkýs K listann.
Ármann Baldurss., vinnur á l.vftara. Ég
hef litið kynnt mér þessi mál. Ætli þetta
verði ekki svipað og vanalcga. Ég hel
ekki hugsað um hvað ég muni kjósa þvi
þetta verður i fyrsta sinn, sem ég geri
það.