Dagblaðið - 19.05.1978, Side 31

Dagblaðið - 19.05.1978, Side 31
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1978. 35 Útvarp Sjónvarp Utvarpið í kvöld kl. 19.35: Boðið til veizlu miklu í Veizluhöldin Kína^flH í kvöld kl. 19,35 verður í útvarpinu 6. þáttur Björns Þorsteinssonar, Boðið til veizlu. Þessir þættir eru úr Kínaferð sem farin var árið 1956 og í kvöld ætlar Bjöm að segja okkur frá fagnaði hjá Sjú- en-laí fyrrverandi forsætisráðherra Kina. Þessi fagnaður var haldinn 1. október 1956 og var sá fyrsti sem haldinn var eftir Maóbyltinguna og því nokkurs konar opnunarhátið þar sem lýðum var gert Ijóst að Kína væri orðið nýtt stór- veldi. í tilefni veizluhaldanna voru reistir veizluskálar sem voru engin smásmíði, þeir rúmuðu um 1000 manns. Sagði Björn að veizluhöld hjá Kín- verjum væru alltaf miklar veizlur og hefði þessi verið alveg með einsdæmum, enda dagurinn þjóhátíðardagur Kín- verja. Veizlan stóð í þrjá daga og var mikið um að vera með alls kyns skemmtiatriðum og gleðskap. Þáttur Björns er ums 25 mínútna langur. RK Björn brá sér á bak steinhesti með þessa litlu kinversku stúlku fyrir framan sig og virðist hún kunna félagsskapnum vel. Björn Þorsteinsson tök mjög mikið af myndum i Kínaförinni 1956 og á þessari sjáum við Sjr-en-laí. Ljósm. Bjöm Þorsteinss. Sjónvarpíkvöld kl. 22.00: FrancisGaryPowers ÞEGAR RÚSSAR SKUTU NIÐUR BANDARÍSKU NJÓSNAVÉLINA U-2 „Þetta er leikin fréttamynd sem segir frá þeim fræga atburði er Rússar skutu niður bandarísku njósnaflugvélina U-2,” sagði Ellert Sigurbjömsson okkur m.a. um myndina Francis Gary Powers sem er á dagskrá sjónvarpsins i kvöld kl. 22,00. Í maímánuði árið 1960 flaug banda- riski flugmaðurinn Francis Gary Powers vél sinni, U-2, yfir Rússland en þessi vél var útbúin Ijósmyndavélum og var sér- staklega hönnuð til þess að geta tekið myndir úr lofti. Er Rússar skutu vélina niður kom það Bandarikjamönnum illi- lega á óvart að Rússar skyldu búa yfir þeirri tækni sem þurfti til slíkra hluta. sjálfs en hún nefnist Operation Over- flight. Með aðalhlutverk fer Lee Majors og er myndin i litum og tekur hálfa aðra klukkustund í sýningu. Þýðandi er Ellert Sigurbjörnsson. RK Flugmaðurinn var handtekinn og sagði Ellert að myndin fjallaði að miklu leyti um hann sjálfan, handtöku hans og yfirheyrslur. Hann sat í rússnesku fang- elsi i u.þ.b. tvö ár og var þá skipt á honum og öðrum þekktum njósnara. Myndin er byggð á bók flugmannsins Lee Majors fer með hlutverk flugmannsins Francis Gary Powers 1 myndinni i sjónvarpinu 1 kvöld. I Sjónvarp Föstudagir 19. maí 20.00 Fréítir og veóur. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Prúðu lcikaramir (L). Gestur leik- brúðanna i þessum þætti er söngkonan * ClecLaine. Þýðandi ÞrándurThoroddsen. 21.0Ó Kastljós (L). Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Sigrún Stefánsdóttir. 22.00 Francis Gary Powers (L). í maimánuði 1960 var bandarísk U-2 njósnaflugvél skotin niöur yfir Sovétrikjunum. Flugmaöurinn var handtekinn og dæmdur til fangavistar. Þessi bandaríska sjónvarpsmynd er byggð á bók flugmannsins Francis Gary Powers, Operation Overflight. Aðalhlutverk Lee Majors. Þýðandi EUert Sigurbjömsson. 23.35 Dagskrárlok. i Q Útvarp Föstudagur 19. maí 12.00 Dagskráin. Tónleikar. TUkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. TUkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Middegissagan: „Saga af Bróður Ylfing” eftir Fríðrík Ásmundsson Brekkan. Séra Bolli Gústavsson les sögulok (24). 15.00 Miðdegistónleikar. Josef Suk og Alfred Holecek leika Sónötu í G-dúr op. 100 fyrir fiðlu og píanó eftir Antonin Dvorák. Melos hljómUstarflokkurinn leikur Septett i B-dúr eftir Franz Berwakl. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. TUkynningar. (16.15 Veður- fregnir). 16.20 Popp. 17.20 TónUstartimi barnanna. Egill Friðleifsson sér um timann. 17.40 Tónleikar. TUkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrákvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. TUkynningar. 19.35 Boðió til veizlu. Bjöm Þorsteinsson prófessor flytur þætti úr Kínaferð 1956; — VI: t fagnaöi hjá Sjú-en-lai. 20.00 Tónleikar Sinfóniuhljómsveitar íslands i Háskólabiói kvöldiö áður, — fyrri hluti. Stjórnandi: Karsten Anderscn. Sinfónía nr. 12, „Lenin-hljómkviðan,,, eftir Dmitri Sjostak- hovitsj. — Jón Múli Ámason kynnir. 20.50 Hákarlaútgerð Eyfirðinga á síðari hluta 19. aldar. Jón Þ. Þór sagnfræðingur flytur annað eríndi sitt. 21.20 Flmm sálmar á atómöld eftir Herbert H. Ágústsson við Ijóð eftir Matthias Johannes- sen. Rut L. Magnússon syngur. Jósef Magnús- son leikur á flautu, Kristján Þ. Stephensen á óbó, Pétur Þorvaldsson á seUó og Guðrún Kristjánsdóttir á pianó; höfundurínn stj. 21.40 Ór visnasafni Útvarpstfðinda. Jón úr Vör flytur tíunda þátt. 21.50 Þrjú Intermezzi op. 117 eftir Johannes Brahms. WUhelm Kempff leikur á pianó. 22.05 Kvöldsagan: Ævisaga, Sigurðar Ingjalds- sonar firá BalaskarðL Indriði G. Þorsteinsson les siðari hluta (10). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Gleðistund. Umsjónarmenn: Guðni Einarsson og Sam Daniel Glad. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. SÚPER-SPÁNARSKÓR Á SPÁNARVERÐUM Brúnir karlmannaskór. Kr. 1.400.- Bláir kvenskór. Kr. I.OOO.- Hvítir leðurskór Kr. 2.600.- Leðurskór á börnin Frá löunni Stærðir:25-34. Kr. 4.650. Stærðir:35-40. Kr. 4.940.- Litir: Ljósbrúnt eða dökkbrúnt Frá Marbot Óreimaður meðinnleggi. Nr. 28-34. Kr. 4275.- Nr. 35-40. Kr. 4.940.- Mikið úrvaíaf barnainniskóm alitárið Aðeinskr. 1350.- PÓSTSENDUM Skóbúðin Suðurveri StigahKð 45. Sími 83225.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.