Dagblaðið - 21.06.1978, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 21.06.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNt 1978. LÁTIÐ ekki blekkjast af stráks- LEGU OFSÓKNARÆÐIKRATADRENGJA Gráskeggur skrifan Sú skoðun er nú orðin mjög út- breidd meðal manna á höfuðborgar- svæðinu að andstæðingar sjálfstæðis- manna óttist verulegt fylgistap frá borgarstjórnarkosningunum. Vonandi er þessi ótti á rökum reistur þvi að vit- að er að fjölmargir fylgjendur Sjálf- stæðisflokksins létu blekkjast af áróðri, eða öllu heldur áróðursleysi, andstæðinganna fyrir kosningar og það var einmitt þessi blekking, þetta andvaraleysi sjálfstæðismanna, sem varð til þess að „rauða hættan” náði Hver kaus Alfreð í umferð- arnefnd? Óánægður kjósandi skrifan Nú er búið að birta lista yfir þá sem sæti eiga í nefndum og ráðum borg- arinnar eftir valdatöku vinstri stjórn- arinnar. Ég varð forviða þegar ég sá að í hópi fulltrúa vinstri flokkanna eru tveir alræmdir íhaldsmenn úr Fram- sóknarflokknum: Alfreð Þorsteinsson skransali bandariska hersins og Jón Aðalsteinn Jónasson kaupmaður. Ég spyr: Hver kaus þessa menn? Ég veit ekki betur en að skömmu fyrir kosningar hafi farið fram miklar „hreinsanir” í Framsóknarflokknum. Þá misstu Alfreð, Jón Aðalsteinn, Kiddi Finnboga og það lið öll völd í flokknum, eða svo var manni sagt. En núna fáum dögum eftir kosningar kemur í Ijós að það er alls ekki búið að „hreinsa” þessa menn. Þeir eru ennþá i forystu Framsóknarflokksins. Þeim er bara ekki hampað fyrir kosningar. Mér finnst það alveg sérstakur dónaskapur að skipa Alfreð Þorsteins- son sem fulltr. vinstri stjórnarinnar i umferðarnefnd Reykjavíkur. Hann lét Morgunblaðið taka við sig viðtal skömmu fyrir kosningar þar sem hann lýsti þvi yfir að samstarf Alþýðu- bandalags, Alþýðuflokks og Fram- sóknarflokks væri dæmt til aö mistak- ast. Þar með gekk hann i verki til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og hefur senni- lega greitt honum atkvæði i kosning- unum. Á slíkur maður skilið að gegna trún- aðarstörfum fyrir vinstri stjórnina i Reykjavík? Eitt er víst. Hinn almenni kjósandi Framsóknarflokksins greiddi B-listan- um ekki atkvæði sitt til þess að Alfreð, Jón Aðalsteinn og klíka þeirra kæmist til forystu í Reykjavíkurborg. Ef leið- togar Framsóknarflokksins hafa ein- hverja sómatilfinningu ættu þeir að sjá að sér og skipa nýja fulltrúa i stað þeirra Alfreðs og Jóns Aðalsteins. Hver kaus Alfreð Þorsteinsson I um- ferðarnefnd Reykjavíkur? spyr bréfrit-. ari. Eins og kunnugt er var Alfreð ckki i framboði fyrir B-listann í síðustu borgarstjórnarkosningum þar sem hann beið ósigur i prófkjöri framsókn- armanna fyrr á árinu. fótfestu í stjórn Reykjavikur. Og nú óttast einmitt þessir menn líka að enn geti illa farið og þess vegna halda þeir vöku sinni við alþingiskosningarnar. Enginn kjósandi Sjálfstæðisflokks- ins má láta undir höfuð leggjast að mæta til alþingiskosninganna. Og þó að mörgum þeirra sé gramt í geði til forystunnar og telji frammistöðu hennar á ýmsan hátt ámælisverða má Sjálfstæðisflokkurinn í heild ekki gjalda þess. Það koma timar og það koma ráð og þá er að snúa sér að mis- tökunum inn á við og muna það að „alltaf má fá annað skip og annað föruneyti”. Verkefni framtíðarinnar er að byggja upp það sem fúið er og 'forgengilegt í dag, velja nýtt og sterkt timbur i flokksbygginguna. Einn meginþátturinn í því að vel megi takast í þeim efnum er að magna ótta andstæðinganna. Við vitum að óttinn hefur náð tökum á þeim og lið sem slegið er ótta og hræðslu á fallið víst. Sjálfstæðísmenn mega ekki láta blekkjast af strákslegu ofsóknaræði kratadrengja á athafnasama og dug- mikla flokksbræður eða af gaspri póli- tískra snældusnúða sem uppeldi hafa fengið í Framsóknarflokknum, Möðruvallarhreyfmgu, Frjálslyndum og vinstri og nú siðast hjá kommúnist- um, jafnvel þó að þeir séu háskóla- kennarar. Allra sízt má nokkur sjálf- stæðismaður rétta hendi til hjálpar Frjálslyndum og vinstri-samtökunum ‘hér i Reykjavík. Slíkt ólán gæti þýtt 2 töpuð uppbótarsæti fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Sjálfstæðismenn vita og finna að andskotaflokkarnir eru óttaslegnir. Látum þá finna enn betur fyrir því að sjálfstæðismenn eru hvarvetna að starfi. Látum þá finna fyrir því að sjálfstæðismenn hafa tekið upp leikað- ferðina: Maðurá mann! cciv,. conu í CUCi FORSALA AÐGÖNGUMIÐA Á ^ Gerry Cottle’ s sirkus Laugar- dalshöll dagana 30. júní — 9. júlí, kl. 18 og 21 virka daga og kl. 15 og 20 um helgar. HEFST Á MORGUN í hjólhýsi í Austurstræti og í Laugardalshöll kl. 13—17. Takmarkaðar sýningar — Takmarkaðir miðar i tVE A- kr. 3700,- B- “ 3300,- C- - 2800.- \L. J Miöapantanir í símum 29820 og 29821 milli kl. 13 og 17. Miðaverð er þrenns konar, eftir staðsetn- ingu á sætum: A bestu sæti kr. 3.700.- B betri sæti kr. 3.300.- C almenn sæti kr. 2.700.- Mörg heimsfræg sirkusatriði, sem sum hver hafa aldrei sést áður. Sýning sem enga hefur átt sér líka hérlendis, m.a. mótorhjólaakstur á háloftalínu, loftfimleikar, king kong apinn mikli, eldgleypir, hnífakastari, stjörnustúlkur, austurlenskur fakír, sterkasti maður allra sirkusa, sprengfyndnir trúðar og fjölmargt fleira. FÆRRI KOMAST AÐ EN VILJA! 21 <0 Finnst þér gaman að vinna i skólagörðunum? (Spurt i skólagörðum Reykjavikurborg- ari Laugardal). Svanhildur Björk Sigfúsdóttir, 9 ára: Já, mér finnst mjög gaman að vinna hér. Skemmtilegast finnst mér að setja niður blóm. Þetta er fyrsta sumarið sem ég vinn hér, kannski verð ég aftur hérna næsta sumar. Björn Róbert Jensson, 9 ára: Já, það er ofsalega gaman hérna. Mest þótti mér gaman að setja niður kartöflurnar, það gerðum við fyrsta daginn. Ég hef aldrei unnið hér áður, ég ætla að reyna að komast i vinnu hér á hverju sumri. Það er svo gaman að vinna úti, þegar það er svona gott veður. Henrik Óskar Þórðarson, 8 ára: Sko, ég er ekki að vinna hérna. Ég kem hingað til þess að hjálpa systur minni henni Lindu Björk. Skemmtilegast fannst mér þegar var verið að sá fræinu. Ég ætla kannski að byrja að vinna hérna ekki næsta sumar heldur þarnæsta, þvi þá verð ég orðinn nógu gamall til þess. Linda Björk Þórðardóttir, 10 ára: Já, há, það er sko gaman hér. Þetta er annað sumarið sem ég vinn hérna. 1 fyrra var ofsalega skemmtilegt, vonandi veröur bara meiri sól í sumar en í fyrra. Mest þykir mér gaman að setja niður blóm, því mér finnst öll blóm svo falleg. Ingunn Steinþórsdóttir verkstjóri, 19 ára: Persónulega finnst mér einna skemmtilegast að leiðbeina krökkunum. Þau eru mjög viljug og iðin við það sem þau eru að gera. Einnig ér mjög gaman að gróðursetja og svo auðvitað að taka upp. Við byrjum að taka upp i endaðan júli, þá er yfirleitt byrjað á að taka upp radísur, sem er mjög auðvelt. Þetta er annað sumarið sem ég vinn hér.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.