Dagblaðið - 21.06.1978, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 21.06.1978, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1978. HÆKJUR AUSTANRODANS kvæðum heimasetumenna. Island hrópar á atkvæði ykkar um næstu helgi. Útstrikun er kosningaréttur lslenzk löggjöf gerir ráð fyrir að kjósendur geti breytt röðun á fram- boðslistum á tvennan hátt: í fyrsta lagi má flytja einstaka frambjóðendur einn eða fleiri framar eða aftar á listanum með þvi að skrifa tilsvarandi sætis- númer framan við þau nöfn sem flytja skal. Í annan stað getur kjósandi strik- að yfir nöfn þeirra frambjóðenda sem hann vill fella út af listanum. Þannig mega kjósendur færa til frambjóðend- ur á þeim lista sem þeir ætla að kjósa. Tilfærslur á listum annarra flokka en krossað er við ógilda hinsvegar kjör- seðilinn. Gramir sjálfstæðismenn hafa iðu- lega kosið Alþýðuflokkinn til þings I gegn um árin. Stundum hafa kratar fengið slíkt magn gremju í kjöltu sér að orðið hefur þeim tilefni til rangláts mats á eigin verðleikum. Flokkurinn hefur áunnið sér þann undarlega sess í sögunni sem fjóspúki Sæmundar forð- um. Hann fitnar sjálfkrafa i hlutfalli við óánægða bölverki sjálfstæðisfólks. I komandi alþingiskosningum munu reiðir sjálfstæðismenn finna gremju sinni útrás á eðlilegan hátt. Þeir kjósa D-listann um land allt en strika yfir nöfn þeirra frambjóðenda sem þeir telja mega missa sín i þjóðmálabarátt- unni. Af tvennu iilu er útstrikaður D- seðill steinn I vamarmúr borgarastétt- ar en atkvæði greitt krötum styrkir hækju austanroðans yfir Sovét-ís- landi. urinn sérstaklega rétt frambjóðenda til að fylgjast með kosningum. Eftirlit nauðsynlegt Alþýðuflokkurinn I Reykjavík hefur iýst því yfir, að hann muni ekki fylgj- ast með þvi hvort menn kjósi á kjör- dag. Með þessu segist flokkurinn vera að láta af leiðinlegum og hvimleiðum njósnum um borgarana. Benedikt Gröndal getur þess ekki í grein sinni, að hér er um að ræða rétt frambjóð- enda til þess að fylgjast með kosning- unni, reglur, sem m.a. eru settar til þess að koma i veg fyrir að reynd séu kosningasvik. Það vill alltaf bregða við I kosningum, að einhverjir óprúttnir menn reyni að kjósa fyrir annarra hönd. Fulltrúar frambjóðenda i kjör- deildum hafa komið i veg fyrir slik svik, m.a. vegna þess að þeir vissu deili á viðkomandi. Og þar fyrir utan er ekkert óeðlilegt Kjallarinn Haraldur Blöndal við það að fylgjast með þvl hverjir kjósi og hverjir ekki. Það var einu sinni reynt að banna slikt eða árið 1958, þegar vinstri flokkarnir ætluðu að setja Sjálfstæðisflokkinn til hliðar. Reynslan af því banni var slik, að það var afnumið með atkvæiðum allra flokka á Alþingi strax á eftir. Ekki lýðræðisást Ástæðan fyrir þvi að Alþýðuflokk- urinn er hættur að notfæra sér rétt sinn til að fylgjast með kosningunni er alls ekki ást þessa flokks á lýðræði. Ástæðan er miklu fremur sú, að flokksfylgi Alþýðuflokksins er orðið svo litið, að það hefur enga þýðingu fyrir flokkinn að fylgjast með. Það eru nokkur hundruð flokksbundnir al- þýðuflokksmenn í Reykjavík á kosn- ingaaldri. Alþýðuflokkurinn hefur ekki hugmynd um hverjir kjósa hann og hverjir ekki. Hann hefur ekki end- urbyggt upp fylgi sitt með jákvæðu flokksstarfi heldur með því, að treysta á æsiskrif Vilmundar Gylfasonar og óánægju kjósenda. Af þessum ástæð- Sigur fjölskyldunnar Fjölskyldan er sterkasta vé i sjálf- stæðu þjóðfélagi. Þess vegna vilja bolsévikar leysa hana upp i ósjálf- stæða einstaklinga og koma fyrir á til- heyrandi dagvistunarhælum. í öllum fjölskyldum liggja hins vegar dauð atkvæði' í almennum kosningum. Sumir eru gæddir minni áhuga fyrir þjóðmálum en aðrir. Víða gætir ein- hverrar óánægju með ýmsa skipan dægurmála. um hefur það enga þýðingu fyrir Al- þýðuflokkinn að fylgjast með kosning- unum. En einnig liggja til þessarar ákvörð- unar aðrar og veigameiri ástæður. Undanfarin misseri hefur Alþýðu- flokkurinn verið gerður út af sænska sósíaldemókrataflokknum og blað flokksins verið prentað á norskan gjafapappír. Gjaldkeri Alþýðuflokks- ins er ekki Vilmundur Gylfason, heldur Olov Palme, sá ráðherra sænsk- ur, sem hefur sýnt Islendingum mest- an fjandskap. Eðlilega stöðvaði Al- þingi útgerð erlendra manna á islensk kjósendamið. Hefur Alþýðuflokkur- inn siðan barist í bökkum fjárhagslega, enda snikjudýrseðlið orðið svo mikið, að flokkurinn getur tæpast staðið einn og óstuddur. Að Ijúga sér út fylgi Það kostar vitanlega fé að fylgjast Oft má glæða áhugann eða leið- rétta misskilning ef réttur maður vinnur verkið. Það er til dæmis telj- andi á fingrum annarrar handar sem börn og tengdabörn vilja ekki gera fyrir gömlu hjónin séu málin rædd af einlægni. Islenzk borgarastétt þarf á slíkri ein- lægni að halda um helgina. Það er orð- ið stutt til kjördags en þó nógur tími til að spjalla við fjölskylduna.Góð kvöid- stund innan um litlu barnabörnin getur riðið bapamuninn. Ásgeir Hannes Eiriksson verzlunarmaður. glöggt með kosningunum. Það fé er ekki mikið, en þó meira en svo, að Ai- þýðuflokkurinn eigi það til. Það er af þessum ástæðum ein- göngu, sem Alþýðuflokkurinn í Reykjavik hefur hætt að fylgjast með kjörfundum í Reykjavík. Alvaran á bak við grein Benedikts sést svo á þvi, að hvergi annars staðar á landinu hefur Alþýðuflokkurinn hætt við að fylgjast með kjörfundum. Alls staðar, þar sem flokkurinn telur sig vita eitt- hvað um kjósendur sína verður fylgst grannt með kjörfundi og unnið sam- kvæmt þvi. Grein Benedikts Gröndal er því tómur loddaraskapur og lygi. Hún er. skrifuð til þess að blekkja menn, — til þess að Ijúga menn til fylgis við Al- þýðuflokkinn. Hún er skrifuð í þeim anda, sem einkennir hina nýju for- ystumenn Alþýðuflokksins. Haraldur Blöndal lögfræðingur. ......... AB GEFA BARNINU TÚKALL sameiginlega yfirlýsingu með fulltrúa fulltrúa síns. Um þær mundir áttu verkalýðsfélög og samtök opinberra starfsmanna viðræður við ríkisstjórn- ina og væntu sameiginlegrar yfirlýs- ingar um niðurstöðu. Ríkisstjórnin kallaði fulltrúa launamanna á sinn fund og gaf þeim kerlingarklof. Gott er að eiga góða að. Það fór ekki fram hjá forsætisráðherra vorum er kosningar nálguðust að staða „atvinnuveganna” hafði batnað. Að visu hafði það allt farið fyrir ofan garð og neðan hjá alþingi meðan það sat og þingmenn nú farnir að þeysa . um hreppavegi og heimreiðir. Richterskvarði efnahagslifsins er tengdur skrifborðsskúffu ráðherrans með undr^verðum hætti. Þar titra siritar segulsviðs efnahags og afkomureikninga Eimskipafélagsins, Flugleiða, Sameinaðra verktaka, Morgunblaðsins, Ræsis, Nóa, Hreins og Sirius, Steypustöðvarinnar, H. Ben. & Co., Sjóvátryggingafél. íslands og hvað þau heita nú öll gróskufyrir- tækin er forsætisráðherra ber fyrir brjósti og mæla hverja hreyfingu á debet og kreditdálkum, auk afskrifta og flýtifyrningar. Því var það að ráðherra vor og landsfaðir hafði snör handtök og ákvað. í samráði við tindátana staðföstu í Garðastræti, að liðnum ársfundi, að skila aftur hluta af ráns- feng þeirra, ef verða mætti að kurr launaþræla lægði. Launajafnaðar- mannaflokkur Morgunblaðsmanna Morgunblaðsmönnum verður nú tiörætt um launajöfnuð og byrðar þjóðarbúsins. Er það ætlun þeirra að stofna flokk Launajafnaðarmanna? öðruvísi þaut i þeim skjá. Hver veit nema siðar gefist tækifæri til þess að rifja upp afstöðu blaðsins til tekjujöfn- unar og jafnréttismála. Þeim er tamt að skirskota til lagasetningar, lög- hlýðni og samábyrgðar er rætt er um þunga þjóðfélagsbyrða og skyldur þegnanna. Svo var og á dögum Farísea og lög- vitringa í Miðjarðarhafsbotnum fyrir nær tvö þúsund árum. Sá sem þá varð fyrir svörum er rætt var um löghlýðni og byrðar sagði: „Vei yður líka, þér lögvitringar því að þér íþyngið mönnum með lití-bærum byrðum, og sjálfir snertið þér byrðarnar ekki með einum fingri.” Varnarsigrar íslenskum verkalýð er nú mikill vandi á höndum. Ýmis loddarabrögð svonefndra vinstri manna verða honum lítil stoð. Mannalæti músar- innar: Komið þið nú með helvitis köttinn, leysa engin vandræði. Engin ein þjóð leysir þann vanda er blasir við heimi nifteindasprengju, mann- réttindaskerðingar og aðráns. Slíkt verður sameiginlegt átak mannkyns, vinnandi almúga og hugvitsmanna um gjörvallan heim. En varnarsigrar eru einnig sigrar. Því ber oss að sækja rétt vorn til þeirra launa er ákveðin voru með samningum og hlifa hvergi ræningjum þeim er sóttu með rangindum og reikningskúnst ofrikis- manna i launaumslög vinnandi fólks. Kjörorð og raunsæi 1 seinustu alþingiskosningum var kjörorð Geirs Hallgrimssonar: Við eigum samleið. Nú kemur hann og segir: Fylg þú mér. Hann Doddi kunni að koma fyrir sig orði við svipaðar kringumstæður, í Ijósi þess sem orðið er. Hann reis á fætur i hópi lags- bræðra og sagði: „Strákar. Ég er að fara i hundana. Er nokkur samferða? Pétur Pétursson útvarpsþulur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.