Dagblaðið - 21.06.1978, Blaðsíða 21

Dagblaðið - 21.06.1978, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2l.JÚNtl978. Syngurmeð rödd Bonnie Tyler— ný söngkona á stjömuhimninum Rods Stewart Bonnie Tyler nýtur mikilla vin- sælda þessa dagana fyrir söng sinn í laginu It’s A Heartache. Fólk kemst ekki hjá því aö taka eftir laginu, þeg- ar það heyrir þaö. Veldur þar mestu sérkennileg og rám rödd söngkon- unnar. En þessi ræma Bonnie Tyler á sér ekki langa sögu. Hún sem áður söng með silkimjúkri röddu lög eins og Lost In France, More Than A Lover og fleiri slik, minnir nú orðið einna helzt á Rod Stewart. Það voru eitlar í koki söngkonunnar, sem ollu breyt- ingunni. Þeir voru fjarlægðir fyrir tveimur árum og er Bonnie fékk að reyna á hálsinn að nýju fyrst eftir uppskurðinn kom gallinn í Ijós. Bonnie Tyler er ættuð frá Wales og bjó þar til skamms tima. Lengi vel vann hún í sælgætisheildverzlun á daginn og söng síðan annarra lög á smáskemmtistöðum á kvöldin. Loks kom þó að því að Ronnie Scott og Steve Wolfe uppgötvuðu hæfileika hennar og tóku hana með sér til London. Þeir sjá nú um að semja fyrir hana lög og koma þeim á fram- færi. DEILDARBUNGUBRÆÐUR eins og þeir lita út í dag. Lengst til vinstri er Olafur Kolbeins trommuleikari og við hlið hans Ágúst Birgisson bassaleikari. Þeir hafa oft áður ieikið saman i hljómsveitum. Þá kemur Axel Einarsson git- arleikari og söngvari og lengst til hægri er Jón Ragnarsson, sem lék meðal annars með hljómsveitunum Pops og Sálinni hér fyrr á árum. Ljósn). Hörður Guðnason. Deildarbungubnæður ætlaað halda sig við landsbyggðina Veruleg uppstokkun hefur orðið í hljómsveitinni Deildarbungu- bræðrum á síðustu vikum. Helmingur meðlimanna — Kristinn Sigurjónsson og Árni Sigurðsson — er hættur. 1 þeirra stað komu í hljómsveitina þeir Jón Ragnarsson og Ágúst Birgisson. Svona einfaldléga virðast manna- breytingarnar hafa orðið á yfir- borðinu, en eru öllu flóknari undir niðri. Axel Einarsson hljómsveitar- stjóri vildi kannski gjöra svo vel að útskýra málið betur: „1 raun og veru erum þaö við Ólafur Kolbeins trommuleikari sem hættum í Deildarbungubræðrum,” sagði Axel, er Dagblaðið ræddi við hann um hljómsveitina. „Það kom upp ágreiningur milli mín annars vegar og Kristins og Árna hins veg- ar, sem leiddi til þess að ég sagði upp, og Ólafur stuttu síðar. Hinir virtust þá ekki hafa áhuga á að starfa frekar áfram undir Deildarbungubræðra- nafninu, svo að við Ólafur stofn- uðum hljómsveitina aftur með nýjum mönnum." Agreiningsefnið kvað Axel hafa verið það, hvort bæta ætti fimmta manni i hljómsveitina. „Ég tel hæpinn grundvöll fyrir stærri hljómsveitum en kvartettum hér á landi á meðan verði hvers aðgöngumiða að dansleikjum er skipt eins og nú,” sagði Axel. Þrjár vikur eru liðnar síðan Deildarbungubræður hófu starf- semina á nýjan leik eftir manna- breytingar. Hljómsveitin hefur eingöngu haldið sig við lands- byggðina og ætlar að gera það í sumar. Hún er fullbókuð fram á haustið, utan tvær helgar .síðsumars. 1 næstu framtíð kemur hljómsveitin ekki nær Reykjavik en í Búðardal, svo að aðdáendur verða heldur betur að leggja land undir fót. Sem stendur eru Deildar- bungubræður á Austurlandi og yfir- gefa þann sælureit ekki fyrr en eftir næstu helgi. „Okkur líkar langbezt að leika úti á landi og miðum lagavalið algjörlega við þann markað," segir Axel. „Við erum meira að segja fótspor Jónas Þórir naut aöstoðar nokkurra manna rið gerð plötunnar Sveitin milli sanda. Frá vinstri eru Jónas Þórir Dagbjartsson, Guðjón B. Hilmarsson, Jónas Þórir Þórisson og Kristján Þórarinsson. DB-mynd Ari. Nýíslenzk hljómplata—Sveitin milli sanda, erkomin út Leikur fimmtán íslenzk lög á orgel Sveitin milli sanda nefnist hljómplata sem S.G. hljómplötur sendu nýlega á plötumarkaðinn. Þar leikur Jónas Þórir Þórisson orgelleikari fimmtán íslenzk lög frá ýmsum tímum, þar á meðal eitt eftir sjálfan sig. Jónasi til aðstoðar eru þeir Kristján Þórarinsson, Guðjón B. Hilmarsson og faðir hans, Jónas Þórir Dagbjartsson, sem leikur á fiðlu I tveimur lögum. Þá leikur upptökumaður plötunnar, Sigurður Árnason, á bassa í einu lagi, /jvendurá Eyrinni. Jónas Þórir Þórisson er einna kunnastur fyrir orgelleik sinn á tveimur af hótelum borgarinnar, Sögu og Esju. Þá hefur hann einnig leikið í einkasamkvæmum og sömuleiðis kom hann talsvert við sögu í sjónvarpsþættinum Á vor- kvöldi. Upphaflega var áætlað að Sveitin milli sanda kæmi út í febrúar síðast- liðnum. Miklar tafir urðu hins vegar á vinnslu plötunnar og kemur hún þvi ekki fyrir eyru landsmanna fyrr en nú. — Upptakan fór fram í stúdíói Tóntækni í júli í fyrra. -ÁT- mömmu Dóttir Carole King er að hefja feril sinn Dóttir Carole King, Louise Goffin, vinnur nú baki brotnu að undirbúningi fyrir hljóðritun fyrstu plötunnar sinnar. Louise er aðeins sautján ára gömul og undirritaði fyrir stuttu plötusamning við Elektra/Asylum útgáfufyrirtækið. Upptökustjóri hennar er sá marg- frægi Bob Ezrin, sem gerði hljóm- sveitina Alice Cooper að þvi sem hún varð. „Ég lofaði ættingjum Louise að hún skyldi Ijúka skólanámi áður en við byrjuðum á plötunni,” sagði Steve Wax yfirmaður Elektra/ Asylum er hann var spurður um plötusamninginn. „Hún útskrifast eftir nokkra daga og fer þá rakleiðis í stúdíóið. Louise hefur fengizt við laga- smíðar og er býsna liðtæk á því sviði,” sagði Wax ennfremur. „Lög hennar hafa mjög persónuleg einkenni.” úr rolling stone. búnir að fá okkur Blazer-jeppa méð kerru. svo að við getum farið allra okkar ferða." -ÁT.- BONNIE TYLER — Fólk veltir þvi gjarnan fyrir sér hvers konar herfa það sé, sem syngur It’s A Heartache. Á myndum kemur i Ijós að útlit hennar er i litlu samræmi við röddina. — Bonnie játar reyndar að Rod Stewart sé i uppáhaldi hjá henni.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.