Dagblaðið - 21.06.1978, Blaðsíða 32

Dagblaðið - 21.06.1978, Blaðsíða 32
Skoðanakannanir DBogVísis: Vísir her út enn meiri sveifiu Vísir birti í gær niðurstöður skoð- anakönnunar sinnar um fylgi fram- boðslista og ganga þær í meginatriðum i sömu átt og niðurstöður Dagblaðsins en Vísiskönnunin sýnir þó mun rót- tækari breytingar. Samkvæmt könnun DB fékk Al- þýðuflokkurinn 22,1 prósent þeirra sem tóku afstöðu en 25,1% sam- kvæmt könnun Vísis. Flokkurinn fékk 9,1% í siðustu kosningum. Framsókn fékk samkvæmt könnun DB 12,9% en 14,9% í könnun Vísis. Hann fékk GuðmundurJ. um hafnamefnd: Baráttan stendur um kjörin — ekki ráðin og nef ndirnar „Kosningabaráttan stendur um laun og kjör verkafólks en ekki ráð og nefnd- ir,” sagði Guðmundur J. Guðmundsson, er fréttamaður DB innti hann eftir ágreiningi um formannskjör i Hafnar- nefnd Reykjavikur. Svo virðist sem borgarfulltrúar Al- þýðubandalags hafi sparlega leitað sam- ráðs um nokkur atriði varðandi skipan manna í nefndir, m.a. formennsku í hafnarnefnd. Sýnist nú sitt hverjum og sló í nokkra brýnu um það mál. Flokkarnir sem nú mynda meirihluta í borgarstjórn, gerðu samkomulag um skipan fulltrúa þeirra í nefndir og ráð borgarinnar. Kom formennskan i hafn- arnefnd í hlut Björgvins Guðmundsson- ar. Mun honum fast i hendi að ekki verði hvikaöfráþví. „Ef hvergi verður harðar barizt um nefndarstörf og bitlinga en af mér þá verður ákaflega friðsælt í þessu þjóðfé-j lagi,” sagði Guðmundur J. Hann bætti við: „Ég neita þvi ekki að mér er ákaf- lega annt um hafnarverkamenn i Reykjavík og alla aðstöðu á þeirra: vinnusvæði. Hvorki eru þó hús eða hús- munir í hættu vegna ágreinings um| þetta mál.” BS. I Vinnuskóli Kópavogs: Hærri laun— ogvinnu- gleðin eykst Kópavogskaupstaður greiðir ungl- ingum sínum snöggt um hærri laun í j vinnuskóla sínum en nágrannabæir I gera. Unglingar fæddir '62 fá 90% af Dagsbrúnarkaupi, en unglingar fæddir '65 60%. „Þessi stefna hefur gefizt vel og rikir góður vinnuandi innan skólans og af- köstin hafa fárið langt fram úr öllum vonum,” segir Einar G. Bollason, for-: , stöðumaður vinnuskólans. ’ ! Skólinn heldur áfram að nota hluta 1 starfstímans til að kynna unglingunum ýmsa þætti atvinnulifsins og í þessari viku er farið i dagróðra með v.b.; Steinunni. ' I 24,9% i siðustu kosningum. Hjá Visi er fylgisaukning Alþýðuflokks því meiri en hjá DB en tap Framsóknar j nokkru minna. Ennfremur fær Vísir út meiri aukn- ingu hjá Alþýðubandalaginu en DB og meira tap hjá sjálfstæðismönnum. Hjá Visi fær Alþýðubandalagið 26,6% en: 21,0% hjá DB. Bandalagið hafði 18,3% 1974. Hjá DB fékk Sjálfstæðis- flokkurinn 37,8% en 29,9% hjá Vísi. Hannhafði 42,7 %árið 1974. Hvað þýða niðurstöður DB og Vísis fyrir þingmannatölu flokkanna? Hið merkilega er að Vísir fer í forsíðufrétt í gær ekki eftir niðurstöðunum fyrir einstök kjördæmi, sem birt eru inni 1 blaðinu. Vísir breytir niðurstöðum um kjördæmakjöma þingmenn í Reykja- vík, á Vesturlandi og Norðurlandi vestra. Séu reiknaðir kjördæmakjömir þingmenn, miðað við tölur Vísis úr einstökum kjördæmum, og uppbótar- sæti síðan reiknuð, kemur út eftirfar- andi: Alþýðuflokkur 16 þingmenn, Framsókn 8, Sjálfstæðisflokkur 19, Alþýðubandalag 16 og svo Karvel. Skoðanakönnun DB leiðir til eftirfar- andi niðurstöðu um þingmannafjölda: Alþýðuflokkur 14, Framsókn 8, Sjálf- stæðisflokkur 24, Alþýðubandalag 13 og svo Karvel. Núverandi þingmannatala er þessi: Alþýðuflokkur 5, Framsókn 17, Sjálf- stæðisflokkur 25, Alþýðubandalag 11, Samtökin 2. —HH. Það er ekki amalegt veðrið 1 Reykjavik. Loks þegar sólin brýzt fram úr skýjum næðir isköld norðanátt um mannskapinn. En hvað um það, fólk klæðist þá skjólgóðum flikum og reynir að njóta sólargeislanna. Þessir voru að dorga 1 Elliðavatni við Reykjavík i gær. Ekki er þetta neinn Lagarfljótsormur sem þarna er kominn f vatnið — bara ofur saklaus vatnsleiðsla sem á þarna leið um. DB-mynd Hörður. FIRRAN SEM VARÐ AÐ VERULEIKA! — Norskir skólakrakkar á íslandi „Krakkarnir töluðum um i haust að fara til Islands að loknum grunnskóla. Ég leit á þetta sem firru i upphafi en þrákelkni þeirra varð ofan á og hér erum við nú.fimmtán nemendur ásamt mér,” sagði Matthías Kristjansen, íslenzkur. kennari við Rosenborg ungdomsskola í Þrándheimi. „Vegna hagstæðs tilboðs Arnarflugs varð draumurinn að veruleika,” sagði Matthias ennfremur. Norsku krakkarnir fimmtán, sem luku grunnskólanámi í Noregi eru 16 ára og komu hingað fyrir rúmri viku. Þau fara aftur út 25. júní, á kosningadaginn. Þau búa í Víghólaskóla í Kópavogi og hefur Kópavogur, sem er vinabær Þrándheims, verið krökkunum sérstaklega innanhandar. Þannig fá krakkarnir fri strætisvagnagjöld, frítt í sund, auk þess sem Kópavogsbær lánaði þeim rútu til að skoða Kópavog og Reykjanesið. „Krakkamir eru himinlifandi með ferðina hingað til íslands. Þeim finnst mikið til íslenzkrar gestrisni koma, íslendingar opnir og þeir taka þeim eins og heimamönnum,” sagði Matthías ennfremur. Þá fóru krakkarnir i þriggja daga ferð. um Suðurland en áður höfðu þau farið til Eyja og skoðaö sig þar um. Já, það er merkilegt að á dögum Spánarferða skuli krakkarnir velja ísland. H. Halls. Norskn krakkarnir er héldu i ævintýraferö tfl tslands. DB-mynd Ari. irjálmt' ilaijMaA MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1978. Formaður þ jóðhátíðar- nefndaríReykjavík: Hætta ber við dansleiki mm m r r 17. jun „Það er afskaplega leiðinlegt að þetta skuli koma fyrir ár eftir ár,” sagði Margrét Einarsdóttir formaður þjóðhátiðamefndar Reykjavíkur, er DB spurði hana álits á hinni miklu ölv- un unglinga i Reykjavik á þjóðhátíöar- daginn. „Með þessu móti eyðileggja unglingamir möguleikana á því að hægt sé að halda uppi slíkum skemmt- unum.” „Ég held að það sé alveg tímabært að athuga,” sagði Margrét, „að hætta öllu dansleikjahaldi á 17. júní, eða að .hafa það aðeins á fimm ára fresti. For- sendurnar fyrir dansleikjunum eru brostnar. Það hefur trúlega haft sitt að segja nú, að 17. júní bar upp á laugar- dag, en ég hef ekki trú á að veðrið hafi haft afgerandi áhrif. Það virðist vera þannig að einhver einn staður dregur að sér fjöldann og þar verða lætin. Það skiptir ekki máli hvað haldnir eru margir dansleikir.” „Það er síðan stóra spurningin. Hvar fá unglingarnir vínið? Varla kaupa þeir það sjálfir. Það er ekki hægt að álíta annað en að það sé full- orðið fólk sem það gerir.” „Að öðru leyti er ég afskaplega ánægð með daginn,” sagði Margrét, allt annað fór mjög vel fram.” —JH. I Kjeil við stýrið á 18 feta bátnum sem hann er nú að sigla umhverfis landið. DB-mynd Ari. Einn Nordmannanna semhéreru á hringsiglingu: — of stuttur fyrirvari nú Verð með næst Einn Norðmannanna sem hér eru á hringsiglingu á sportbát fyrir tímaritið Vi Menn og DB sagði frá í gær, Kjell S. Stenmarch, sagði i viðtali við DB að 'hann hefði hiklaust tekið þátt i Sjórall- inu nú, líklega á 22 feta báti, hefði hann vitað af þessu fyrr. Jafnframt sagði hann* að hann yrði örugglega með næst, ef út- lendingum stæði slíkt til boða. Hann er þaulreyndur siglingamaður. —G.S.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.