Dagblaðið - 21.06.1978, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNt 1978.
9
TOLF SINNUM
REIS HALFUR
SALURINN
Á FÆTUR OG
HRÓPAÐI:
„HERRA
FORSETI”
ÍDB á blaðamannafundi
með Jimmy Carterf Hvíta húsinu
Fram og aftur um gangstéttina fyrir
framan Hvíta húsið í Washington D.C.
gekk maður með skilti, sem á var letrað:
„Engin vopn til Tyrklands” og „Frjáls
Kýpur”.
í næstu byggingu við hliðina,
Executive Office Building, var að hefjast
blaðamannafundur með Jimmy Carter
forseta. Búizt var við yfirlýsingu hans
um að aflétta vopnasölubanninu til
Tyrklands.
Þótt enn væri hálftími þar til blaða-
mannafundur forsetans ætti að byrja
var hitinn af Ijósum sjónvarpsmann-
anna orðinn griðarlegur i herbergi 450 á
þriðju hæð þessa gamla, fallega húss.
Ætlunin var að sjónvarpa fundinum
beint um öll Bandarikin. Ljósunum var
ekki einasta beint að ræðupúlti
forsetans, heldur um allan salinn, enda
átti þjóðin að fá að sjá fullmektuga
fulltrúa „fjórða stjórnvaldsins” — press-
unnar. Fimm sjónvarpsmyndavélar
voru i salnum — sem er heldur minn.i en
fundarsalurinn á Loftleiðum — og
snúrur þeirra og leiðslur lágu um hann
allan þvers og kruss.
Leyniþjónustumenn gengu um salinn
strangir á svip, nikkuðu til gamalla
kunningja í hópi fréttamanna og
skimuðu haukfránum augum til þeirra,
sem þeir ekki þekktu.
Fljótlega varð straumur fólks inn í
salinn nokkuð stöðugur og allir báru
nafnspjald í barmi, nema hvað að
óvæntir gestir eins og ykkar einlægur
voru með nafnlausa gestapassa. Það
kom á óvart hversu margar konur voru i
hópi fréttamanna og ungt fólk i meiri-
hluta. Inn á milli voru þó veðraðir
fréttahundar, sem höfðu séð marga
forseta koma og fara og lengi skrifað um
forsetaembættið. Fremstu sex-sjö sæta-
raðirnar voru fráteknar fyrir fasta Hvíta
húss-blaðamenn sem fylgja forsetanum
eftir hvert sem hann fer. Siðustu 2—3
sætaraðirnar voru ómerktar. Kliðurinn í
salnum fór vaxandi eftir því sem fleiri
komu inn. Ljósmyndarar komu sér fyrir
til hliðanna, tæknimenn óðu um salinn
með tæki sín og snúrur, starfsmenn for-
setaembættisins voru á þönum og leyni-
þjónustumenn skófu undan nöglunum
með eldspýtnabréfum.
Þegar klukkan nálgaðist þrjú kyrrðist
I salnum, sem var orðinn troðfullur og
fengu ekki nærri allir sæti. Trúlega hafa
verið nær tvö hundruð manns i allt
þarna samankomnir. Talsverður
munur á þvi og fjögurra-fimm manna
blaðamannafundum hér heima.
Andrúmsloftið var eftirvæntingarfullt,
rétt eins og eitthvað afskaplega mikil-
vægt væri um það bil að eiga sér stað.
Þveginn og strokinn starfsmaður
forsetaembættisins kom i fylgd með
öðrum eins og báru þeir innsiglismerki
forsetans á milli sin og komu fyrir
framan á púltinu. Allt var tilbúið.
Svo birtist forsetinn, hnetubóndinn
Jimmy Carter, í gegnum hliðardyr á
sviðinu. Allir risu á fætur. Forsetinn
brosti sínu fræga, breiða. Hann virtist
talsvert lægri og grennri en kosninga-
myndirnar höfðu gefiö til kynna. Hann
bauð fólki að fá sér sætiafturog sagðist
vilja lesa tvær stuttar yfirlýsingar áður
en hann svaraði spurningum frétta-
manna.
Á utanríkismálasviðinu hvatti Carter
þingið til aðaflétta vopnasölubanninu til
Tyrklands og til að styðja áætlun sina
um vopnasölu til bæði Tyrkja og
Grikkja, efnahagsaðstoð til Tyrkja og
frekari neyðarhjálp við flóttamenn á
Kýpur. i þjóðmálum talaði forsetinn um
verðbólguna og hvatti til sparnaðar,
einkum í opinberum framkvæmdum.
Það er regla meðal blaðamanna sem
skrifa um forsetann og Hvita húsið, að
stóru fréttastofurnar, UPI og AP, fá að
spyrja fyrstu spurninganna á fundum
forsetans. Þegar Carter hafði lokið við
að lesa upp yfirlýsingar sínar, bauð hann
Helen Thomas frá UPI að leggja fyrir
sig spurningu. Myndavélarnar klikkuðu
stöðugt og kvikmyndavél á bak við
ykkar einlægan suðaði og malaði eins og
gamall fressköttur.
íWashington
Helen Thomas spurði forsetann hvort
hann teldi aðCastro væri að Ijúga, þegar
hann fullyrti að Kúbumenn hefðu engan
þátt átt í innrásinni í Shaba-hérað i
Zaire, og hvaða sannanir forsetinn hefði
fyrir því að Castro hefði ekki reynt að
koma í veg fyrir innrásina, eins og hann
hefði sjálfur haldið fram.
Carter sagðist ekki vilja munn-
höggvast við Castro í fjölmiðl-
um....Siðan hellti hann sér yfir kúbanska
forsætisráðherrann og skammaði hann
eins og óþekkan skólastrák.
AP-maðurinn spurði næst um afstöðu
forsetans til „skattauppreisnarinnar” i
Kaliforniu, þar sem allsherjaratkvæða-
greiðsla lækkaði fasteignaskatta um allt
að30%.
Forsetinn hlustar brosandi á fyrir-
spyrjendur — nema þegar þeir verða
gagnrýnir, þá stirðnar brosið breiða.
Hann svarar reiprennandi og horfir
beint á þann sem spurði.
Þegar hann var búinn að svara varð
allt vitlaust í salnum. Að minnsta kosti
helmingur fréttamannanna stukku á
fætur og hrópuðu: „Herra forseti!”
Carter skimaði um salinn og benti
loks ungri og snoturri stúlku i bleikum
kjól að bera fram sína spurningi. Hinir
settust.
Þetta endurtók sig í hvert skipti sem
forsetinn hafði svarað; hópurinn stökk á
fætur og allir reyndu að ná athygli
Carters. Næst valdi hann aftur stúlku á
bleikum kjól — kannski er hann skotinn
i stúlkum á bleikum kjólum. Spurningar
fréttamannanna voru um margvísleg
málefni — skatta, útnefningu einstakra
embættismanna, hernaðarstöðu Tyrkja,
stöðu Bandarikjanna í Afríku, Castro og
Kúbu, fjárhagsaðstoð við New York
borg, sovézka andófsmenn og eigin
skattframtöl forsetans og fjölskyldu
hans. „Þér hafið ekki, herra forseti, birt
Fréttamenn reyna að ná athygli forsetans á blaðamannafundi í Washington.
opinberlega skattframtöl yðar fyrir tvö
siðustu árin, þótt þér hafið oft og
iðulega talað um nauðsyn þess í
kosningabaráttunni,” sagði einn frétta-
maðurinn.
Forsetinn vakti kátínu fréttamanna
þegar hann svaraði því til að þessar
upplýsingar lægju nú fyrir hjá blaðafull-
trúa sínum en hingað til hefði staðið yfir
endurskoðun á skattframtölum sínum. I
Ijós heföi komið að hann skuldaði um
160 dollara i skatta af lifeyrissjóðs-
vöxtum frá því að hann var fylkisstjóri i
Georgíu, en ætti siðan inni 5—6000
dollara, sem hann hefði ofgreitt í
skatta. „Við vorum að fá þessar tölur i
morgun,” sagði Carter. „Konan mín
kom til mín í hádeginu og sagði mér frá
þessu. Nú þurfum við að borga þessa
160 dollara og fá siðan hina 5—6000
dollarana aftur.”
Fréttamennirnir hlógu dátt.
Alls svaraði Carter tólf spurningum
og alltaf voru það jafn margir, sem
stukku á fætur og hrópuðu: „Herra
forseti” með uppréttar hendur. Þegar
forsetinn hafði svarað tólftu spurning-
unni sagði hann takk fyrir og gekk út.
Fundurinn stóð i 33 mínútur.
Fyrir utan var glampandi sól og hiti
— en þó ekki eins heitt og í salnum.
Maðurinn með skiltið fyrir utan Hvita
húsiðvarfarinn. ó.vald.
VILTU SELJA?
VILTU KAUPA?
Komdu í Chrysler-salinn. Þar er bílaúrval
á boðstólnum. Ef þú vilt ekki notaðan bíl,
þá eigum við einnig nýja bíla frá CHRYSL-
ER. Við getum einnig selt notaða bílinn
fyrir þig i okkar bjarta og glæsilega sýn-
ingarsal.
Ekkert innigjald.
Þvottaaðstaða fyrir
viðskiptavini.
CHRYSLER
ð
i IIIOMI K Vhjmoulfi
SIMCA | Oodgo
Suðurlandsbruui 10. Símur 83330 - 83454
Auglýsing
VÖRN GEGN VINSTRI STJÓRN