Dagblaðið - 05.07.1978, Side 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1978.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLt 1978.
13
12
i
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
Eitt silfur, eitt
brons en neðsta
sætiðíTel-Aviv
— Þórunn Alfreðsdóttir hreppti
silfur og Hermann Alfreðsson
bronsíTel-Aviv
Noregur hefur forustu 1 8-landa keppninni i sundi,
sem níi fer fram í Tcl-Aviv i ísrael eftir fyrri dag’
keppninnar. tslendingar reka hins vegar lestina.
íslendingar voru þó ekki án verðlaunapeninga. Þórunn
Alfreðsdóttir varð önnur i 200 metra flugsundi er hún
synti á 2:23.86 en sigurvegari varð Martine Verbreyt
frá Belgiu á 2:22.88. Þá varð bróðir Þórunnar,
Hermann Alfreðsson, I þriðja sæti i 100 metra
bringusundi á 1:11.17. Þar varð sigurvegari Ron
Kemrmann frá ísrael á 1:08.75 og annar Pardo,
Spáni, á 1:08.79. Sem sagt, silfur og brons I Tel- Aviv.
Annars varð árangur íslendbiganna sem hér segir:
100 metra skriðsund:
Bjarni Björnsson 56.51 — hunn varð sjöundi. Sigur-
vegari Barro, Spáni, á 53.42.
200 metra baksund:
Hugi Harðarson 2:23.42 — hann varð áttundi. Sigur-
vegari Thomann, Sviss, 2:14.76.
100 metra skriðsund kvenna:
Guðný Guðjónsdóttir 1H)4J — áttunda. Sigurvegari
Jensen, Noregi, 57.81.
200 metra baksund:
Þórunn Héðinsdóttir 2:43.04, — áttunda. Sigurvegari
Verbauwen, Belgíu, 2:21*52.
lOOmetra baksund:
Hermann Alfreðsson, 1:11.17. — þriðji. Sigurvegari
Kemrmann, 1.08.76.
100 metra baksund kvenna:
Sonja Hreiðarsdóttir, 1:21.17, — sjötta. Sigurvegari
Olsen, Noregi, 1:16.75.
200 metra flugsund:
Axel Alfreðsson 2:24.62 — áttundi. Sigurvegari
Morris, Wales, 2KI9J7.
200 metra flugsund kvenna:
Þórunn Alfreðsdóttir 2:23.86 — önnur. Sigurvegari
Verbreyt, Belgiu, 2:22.88.
400 metra skriðsund:
Bjarni Björnsson 4:18.76, -— sjötti. Sigurvegari
Borgströmn, Noregi, 4d)1.97.
400 metra skriðsund kvenna:
Ólöf Eggertsdóttir 4:5554 — áttunda. Sigurvegari
Verbauwcn, Belgíu, 4:30.72.
4 X100 metra boðsund:
ísland 452.07. Nr. 1. Noregur á 4:29.79.
4 X100 metra boðsund karla:
tsland 4:23.64, númer átta — tsrael sigurvegari á
4:05.67.
Staðan eftir fyrri dag er því: stig:
1. Noregur 90
2.Spánn 88
3. Belgfa 74
4. Sviss 68
5. tsrael 62
6. Wales 60
7. Skotland 46
8. ísland 30
A-þýzkt heimsmet
Andrea Pollack frá A-Þýzkalandi setti annað heims-
met sitt á a-þýzka meistaramótinu i sundi i A-BerUn
Hún bætti eigið heimsmet i 200 m flugsundi er hún
synti á 2:09.87,1.37 sekúndum betri tími en fyrra met
hennar, sem hún setti i Leningrad fyrir þemur
mánuðum. Áður hafði hún sett heimsmet i 100 metra
flugsundi f A-BerUn.
Giles til Leeds?
Eftir að Jimmy Armfleld, stjóri Leeds, sagði af sér f
gær hafa verið miklar getgátur um hver taki við af
Armficld, sem ekki tókst að leiða Leeds til neinna
sigra.
Liklegastir til að taka við Leeds erutaldir Jackie
Charlton, fyrrum leikmaður Leeds og enska landsUðs-
ins, en hann er nú framkvæmdastjóri Sheflield
Wednesday. Þá hefur Don Howe, þjálfari Arsenal,
verið nefndur og Johnny Giles, fyrrum leikmaður
Leeds. Giles tók sfðan við WBA, og kom Uðinu i 1.
deild Hann er nú á trlandi.
Finnskt
met í tugþraut
Jóhannes Lahti frá Finnlandi sigraði I tugþrautar-
keppni Finnlands, Sovétrikjanna og A-Þýzkalands og
bætti finnska mctið, sem hann átti sjálfur. Lahti náði
8094 stigum. Hann hljóp 110 m grindahlaup á 14.94,
kastaði kringlu 40.06 m, stökk 4*30 f stangarstökki,
kastaði spjóti 71.08 hljóp 100 metrana á 10.76, stökk
7,45 i langstökki. 14.48 f þristökki, 2.00 i hástökki,
varpaði kúlu 14.94, hljóp 400 metrana á 49.75 og
hljóp 1500 metra á 4:32.6. Annar i tugþrautinni varð
Rainer Pottel, A-Þýzkalandi með 8034 stig og þriðji
Kutsenko, Sovétrikjunum með 7.905 stig.
A-Þýzkaland hlaut samanlagt 31.235 stig, Sovét-
ríkin 31.096 og Finnland 29.471.
Tony Knapp kom á ritstjórn DB f gær og eins og ávaUt lá vel á fyrrum landsUðs-
þjálfaranum. — DB-piynd Hörður Vilhjálmsson.
KR LAGÐIVÍKING
— 1-OíLaugardal
KR tryggði sér sæti í S-liða úrslitum
bikarkeppni KSÍ í gærkvöld er KR
sigraði Víking 1—0 i Laugardal. Eina
mark leiksins skoraði Sigurður Indriða-
son, á 42. minútu síðari hálfleik eftir að
Víkingsvömin hafði beinUnis sofið á
verðinum.
Víkingar sóttu mjög i síðari hálfleik
en KR-ingar vörðust vel og skynsam-
lega. Skyndisóknar þeirra gerðu iðulega
usla. Þrátt fyrir að knötturinn væri mest
á vallarhelming KR sköpuðu Víkingar
sér ekki nema eitt verulega gott mark
tækifæri, og hvilikt marktækifæri. Helgi
Helgas. skaut framhjá af aðeins metra
færi — það virtist erfiðara að koma
knettinum framhjá en í netmöskvana.
Víkingar sóttu stíft, en ekki að sama
skapi skynsamlega. Ávallt upp miðjuna
og þar var Ottó Guðmundsson kóngur
— var mjög góður og ófáar sendingar
strönduðu á höfði hans.
KR-ingar léku skynsamlega, raunar
má segja betur en þeir hafa gert undan-
farin ár í 1. deild. Leikmenn reyndu
ávallt að spila, halda knettinum niðri.
Eitthvert vonleysi, nánast örvænting
virtist rikja í liði Víkings. Leikmenn
skortir allt sjálfstraust, alla leikgleði. Þá
er og stór þáttur að hinn ungi og efnilegi
Arnór Guðjohnsen er nú aðeins svipur
hjá sjón miðað við fyrstu leiki sína í
sumar. Virðist þarfnast hvíldar
drengurinn — mikið hefur verið lagt á
herðar hans, aðeins 16 ára.
Jóhann Ingi einvaldur
— gengið f rá ráðningu hans í gær
HSl gekk I gær frá ráðningu Jóhanns
Inga Gunnarssonar sem landsliðs-
þjálfara Islenzka landsliðsins I hand-
knattleik, eins og raunar var skýrt frá i
DB i gær. Jóhann Ingi tekur að sér
þjálfun karialandsliðsins og unghnga-
landsliðsins — og verður einvaldur.
Jóhanni Inga verður heimilt að nota
þá leikmenn erlendis er hann telur að
henta þurfi. Þá verður Jóhann Ingi í
fullu starfi hjá HSt. „Við bindum miklar
vonir við starf Jóhanns Inga,” sagði
Sigurður Jónsson formaður HSÍ.
Samningur Jóhanns Inga er til
fjögurra ára en hann er aðeins 26 ára.
ísland á mörgerfið verkefni framundan í
vetur i handknattleik. B-keppnin fer
fram á Spáni um mánaöamótin febrúar,
marz. ísland getur þar tryggt sér sæti í
A-riðli, verður raunar að gera þaö.
Jóhann Ingi hefur náð góðum árangri
með islenzk unglingalandslið og verður
fróðlegt að sjá hvernig hinum unga
þjálfara tekst til með landslið lslands.
Þrír leikir
íbikarnum
Þrir leikir fara fram i bikarkeppni
KSÍ i kvöld — Þróttur mætir ÍBK 1
Reykjavik, Einherji, Vopnafirði, fær
Viking, Ólafsvik, i heimsókn og i
Hafnarfirði eigast við FH og Fram.
Síðasti leikur 16-liða úrslita fer fram á
morgun, þá leika á Siglufirði KS og
Valur.
Fái ég þrjá íslendinga
verður Viking meistari
— næsta ár, sagði Tony Knapp, fyrrum landsliðsþjálfari,
sem nú er á höttum eftir leikmönnum hér
„Ég er kominn til tslands í frí auk
þess sem ég er að leita eftir þremur leik-
mönnum frá tslandi i lið mitt, Viking frá
Stafangri. Fái ég þessa þrjá leikmenn
sem ég hef augastað á, þá verður Viking
meistari næsta ár,” sagði Tony Knapp,
þegar hann leit inn á ritstjórn DB i gær.
Knapp fyrrum landstiðsþjálfari tslands
þjálfar nú norska liðið Viking frá
Stafangri og Viking er i þriðja sæti i
norsku deildinni.
„Við höfum leikið 91 leik frá því að
ég tók við snemma í vor og aðeins tapað
einum leik. Víking var síðasta félagið i
Noregi er tapaði leik í 1. deild, þá á
heimavelli gegn Start. Á sama tíma i
fyrra var Viking með 9 stig — nú 15
stig.
Ég tel sex lið koma til greina um
norska titilinn i ár, Start, með 17 stig,
eftir 11 leiki, Likkeström 16, Viking 15,
Valerengen 13 og síðan Bryne og Brann,
en möguleikar þriggja efstu eru mestir.
Norskir leikmenn eru flinkari en
íslenzkir en Norðmenn hafa ekki
skapgerð tslendinga. Þess vegna er ég á
höttunum eftir þremur leikmönnum. Ef
íslendingar hefðu leikni Norðmanna
væru þeir með stórkostlegt lið — nú, eða
öfugt, ef Norðmenn hefðu hina sterku
skapgerð íslendinga.
íslenzka landsliðið verður ávallt
sterkara og betra. Ungir leikmenn eins
og Janus Guðlaugsson, Pétur Pétursson,
Guðmundur Þorbjömsson og Atli
Eðvaldsson eru nú sjálfsagðir leikmenn
í isl. landsliðið. Ég sakna þess að
vera ekki lengur landsliðsþjálfari, sér-
staklega þegar ég sé alla þessa ungu,
snjöllu leikmenn.
tslenzka liðið á að geta spjarað sig i
Evrópukeppninni. Leikirnir við PóUand
og Holland verða erfiðir. Pólska liðið er
mjög gott en leikmenn famir að eldast.
Hollendingar eru nú að skapa nýtt lið
og eru með mjög gott lið. Að sjálfsögðu
verða leikirnir við A-Þýzkaland einnig
erfiðir en Sviss hefur aldrei gert neitt á
alþjóðamælikvarða.
Ég held þvi að tsland geti .spjarað sig
vel og þegar ég ieit yfir leikmennina er
Orðsending til allra golfklúbba innan
G.S.t. __________
Vegna opna golfmótsins sem G.R.
heldur 8. og 9. júlí var gerður samningur
við Svein Egilsson og co. um Ford-bif-
reið í verðlaun fyrir að slá holu i höggi af
teig á 17. braut, en sá samningur hefur
nú verið rofinn af Sveini Egilssyni á
siðustu stundu. En stjórn GR „sló holu í
höggi” ef svo má segja og náði sam-
komulagi við Heklu hf. um AUDI 100
78 í verðlaun i staðinn fyrir „Fordinn
góða” frá Sveini og co. Fyrir þennan
stuðning við golfíþróttina hér á landi á
Hekla hf. beztu þakkir skilið.
En annars er það um keppnina að
segja að kl. 21 á föstudagskvöld verður
haldinn fagnaður fyrir væntanlega
keppendur þar sem keppnisfyrirkomulag
verður kynnt og til stendur að sýna
nýjar golfmyndir frá Bretlandi, ásamt
ýmsu öðru skemmtilegu. Nú eru síðustu
forvöð að vera með þvi skráningu i
keppnina lýkur i kvöld. Þeir sem ætla
léku gegn Dönum þá kom tilfinningin
fram — já, það var góður tími er ég var
með islenzka landsliðið” sagði Tony
Knapp, en hann verður hér í um 10 daga
og mun að sjálfsögðu fylgjast með
leikjum, mörgum leikjum. Hvort
íslenzka leikmenn fýsir mjög að fara til
Noregs skal ósagt látið en að vísu eru nú
þegar margir leikmenn í Svíþjóð og Dan-
mörku.
að vera með og ekki eru þegar skráðir
geta gert það í símum 30949 — 86651
- 75620 og 84735.
í gær héldu G.R.-menn svonefnt
Stereo-mót í tilefni af breytingu sem
gerð hefur verið á vellinum, þ.e.a.s. að
16. braut sem hefur verið par 3 var lengd
og er nú par 4 og er par vallarins nú
komið í 71 högg. 16. brautin er nú orðin
mjög skemmtileg og verður að spila
hana af mun meiri nákvæmni en áður.
Ragnar Ólafsson var beztur allra og lék
á 77 höggum og er það nú vallarmet á
vellinum eftir breytinguna, en það
verður örugglega slegið fljótlega.
Beztu menn án forgjafar voru þeir
Ragnar Ólafsson á 77 höggum og Jón
Þór Ólafsson á 79 höggum. Með forgjöf
varð Jón Þór beztur á 71 höggi nettó, en
Finnbjörn Finnbjörnsson varð annar á
72 og þriðji varð Magnús R. Jónsson á
74 HBK.
Enn glæsilegri verð-
laun en áður
Akranes í erfiðleikum
með KA á Skipaskaga
— en meistarar ÍA sigruðu þó, 3-2
Íslandsmeistarar ÍA tryggöu sér sæti i
8-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ með
sigri á KÁ á á Akranesi, 3—2 í gær-
kvöld. Sigur Skagamanna var ekki sann-
færandi, raunar hafði KA yfir i leikhléi
og það var ekki fyrr en komið var fram
yfir miðjan síðari hálfleik að ÍA jafnaði
— og þá brotnaði KA-liðið.
Meistarar ÍA voru aðeins svipur hjá
sjón í fyrri hálfleik, léku langt undir
getu. Þrátt fyrir að ÍA sækti meir
sköpuðu leikmenn sér ekki tækifæri. KA
skoraði hins vegar á 34. minútu.
Ármann Sverrisson stökk hæst og
skallaði knöttinn í netið eftir hom- ■
spyrnu.
Heldur lifnaði yfir Skagamönnum í
síðari hálfleik en mörkin létu á sér
standa. Það var síðan á 23. minútu að
lA jafnaði, Jón Alfreðsson tók auka-
spyrnu, sendi vel fyrir og þar var fyrir
Pétur Pétursson, sem skallaði knöttinn i
netið, 1—1.
Leikmenn KA gáfu nú eftir og þegar
á næstu minútu kom Matthías
Hallgrímsson Skagamönnum yfir, Pétur
sendi knöttinn á Kristin Björnsson,
sem síðan renndi knettinum til
Matthíasar sem skoraði, 2— 1.'
Þriðja mark sitt skoraði ÍA á 35.
mínútu og nú var Kristinn Björnsson á
ferð, skallaði i netið eftir fyrirgjöf Jóns
Áskelssonar. Á 40. mínútu minnkaði
KA muninn, Jóhann Jakobsson komst
innfyrir vörnina og skoraði — en mikil
rangstöðulykt, að ekki séu sterkara til
orða tekið, var af markinu. KP.
Blikarnir sluppu
naumt fyrir horn
— sigruðu Fylki, 2-1
Breiðablik slapp naumlega fyrir hom i
bikarkeppni KSÍ i gærkvöld — tvö mörk
á síðustu mín. leiksins forðuðu liðinu
frá algjörri niðurlægingu gegn nýliðum
2. deildar, Fylki. Blikarnir skoruðu
Eyjamenn unnu Þór
stórt, 4-1 — áAkureyri
Eyjamenn tryggðu sér sæd i 8-liða
úrslitum bikarkeppni KSt með ömggum
sigri á Þ6r á Akureyri í gærkvöld, 4—1.
Þ6r hafði þ6 yfir I leikhléi, 1—0 en í
síðari hálfleik vom yfirburðir iBV
algjörir og fjögur mörk tryggðu sigur.
Sigtryggur Guðlaugsson, hinn kunni
handknattleiksmaður skoraði fyrir Þór
þegar á 2. minútu. Þrátt fyrir mun meiri
sóknarþunga IBV tókst ekki að jafna
fyrir leikhlé.
I siðari hálfleik tóku Eyjamenn ÖU
völd i sínar hendur. Karl Sveinsson
jafnaði, Sigurlás Þorleifsson bætti við
tveimur mörkum og undir lokin skoraði
Óskar Valtýsson fjórða mark lBV —
öruggur sigur, þrátt fyrir að Þór hafi
haft yfir í leikhléi. St.A.
tvivegis síðustu minúturnar og sigruðu,
2-1.
Fylkir hafði yfir lengst af, á 24.
mínútu skoraði Hörður Antonsson lag-
legt mark en vöm Blikanna var þá illa á
verði. Blikamir sóttu mun meir, en eins
og svo oft áður létu marktækifærin á sér
standa.
Látlaus sókn Blikanna var i síðari
hálfleik og þeir fóru illa að ráði sinu. Það
var ekki fyrr en á 84. minútu að
Blikarnir náðu að jafna, Sigurður
Halldórsson var þá að verki.
Aðeins fjórum mínútum síðar skoraði
Heiðar Breiðfjörð sigurmark Blikanna,
2—1. Blikarnir því áfram í 8 liða úrslit.
Loks tókst því Blikunum að binda enda
á átta leiki í röð án sigurs — en liðið er
enn án sigurs í 1. deild, aðeins eitt stig,
ej afrakstur 9 leikja. Fylkir kom nokkuð
á óvart í Kópavogi og greinilegt að
Fylkir er að ná frambærilegu liði.
Óskarannar í Stokkhólmi
íkrínglukastinu, 60.40, ogErlendur þríðji, 58.36
Óskar Jakobsson, ÍR, sannaði enn
hve mikið efni hann er þegar hann varð
annar á Gata-leikunum i Stokkhólmi,
kastaði kringlunni 60.40 m. Erlendur
Valdimarsson varð þriðji með 58*36 en
sigurvegari i Stokkhólmi varð Banda-
rikjamaðurinn Mac Wilkins, 65J4.
Óskar Jakobsson náði sinum bezta
árangri á erlendri grund, 60.40, og það
gaf honum annað sætið i Stokkhólmi.
Erlendur Valdimarsson er nú óðum að
ná sér eftir meiðsli sem hafa hrjáð hann i
vor.
En Gata-leikirnir í Stokkhólmi voru
Bandarikjamanna, nánast eign Banda-
ríkjamanna, hvað I. sæti snertir. Clancy
Edwards, sem á beztan heimstíma í ár í
100 metra hlaupi, setti nýtt vallarmet i
Stokkhólmi, í 200 metra hlaupi, er hann
hljóp á 20.43. Annar varð James
Gilkes, Panama, 20.46 og þriðji Guy
Abrahams, Panama, 21.28.
Martin Liquiri frá Bandarikjunum
sigraði í 5000 metra hlaupi, 13:26.1.
íþróttir
Hann skaut Rod Dixon frá Nýja-
Sjálandi aftur fyrir sig, 13:17.37. Jafnvel
í 200 metra hlaupinu varð bandarísk
stúlka sigurvegari, skaut þar Irenu
Szewinskuafturfyrirsig. Þásetti Banda-
ríkjamaðurinn Reynaldo Nchemiah
vallarmet i 110 metra grindahlaupi
13:28.