Dagblaðið - 14.08.1978, Page 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1978.
Hvað
vita?
Vinningar 10 liísjón-
varpstœki
Hvert litsjónvarpstœki að
verðmceti kr. 400.000,-
heildarverðmæti
vinninga
KR- 4.000.000.-
Gleymdu kratar
happdrættinu?
„Einn af nýju krötunum” sagöi 1
slmtali:
„Ég er einn þeirra sem yfirgaf Sjálf-
stæðisflokkinn í tveim síðustu
kosningum. Ég arkaði á fundi
kratanna og kaus þá. Gott og vel, á
fundinum í Háskólabíói seldi ung og.
aðlaðandi stúlka mér happdrættis-
miða. Dregið 14. júlí, lofuðu kratarnir
á miðanum.
Nú hélt ég að flokkurinn lofaði
miklum bótum á siðferði almennt. Og
loforð er jú loforð, hvort heldur það er
á happdrættismiða eða einhvers staðar
annars staðar.
En þá bregður svo við að hvergi
virðist minnst á happdrættið. Síma-
númer á miðanum svarar aldrei þegar
ég reyni. Eru kratarnir búnir að
gleyma happdrættinu? Kannski
eru þeir svo önnum kafnir við að
mynda nýja stjórn, blessaðir
mennirnir. Það er nú gott og blessað.
En hvað um það. Ég keypti nú
miðann aðallega til aðstyrkja flokkinn
til dáða og kannski kom þúsund
kallinn sér vel. Það vona ég
einlæglega. Hitt er annað mál að mér
finnst einhvern veginn að vinnings-
númerin ætti að birta hið snarasta,
annað sæmir ekki hinum nýja flokki
sem skipaður er fjórtán fóstbræðrum
með svo ótrúlega mikla kennd fyrir
réttlætinu.”
Svar:
Eftir áreiðanlegum heimildum
fengum við þær upplýsingar að vegna
slæmrar innheimtu á seðlum sem
sendir voru til stuðningsmanna
flokksins var fenginn frestur til 15,
september n.k. Sími 29244 er opinn frá
kl. 9 til 17 alla virka daga.
Skallinn,
-þaó er
staðurinn
Ótal tegundir af ís. Gamaldags ís,
shake og banana-split.
Mjólkurís meö súkkulaöi og hnetum.
Ummm....
í í->
Sögurnar um ágæti þessarar
sendnu akrýlmálningar,
HRAUN-málningarinnar frá
Málningu h/f magnast með
árunum,og hróður hennar
eykst með hverju árinu, sem
líður.
Nú, eftir að HRAUN hefur
staðið af sér íslenska veðráttu í
rúmlega 10 ár, er enn ekki
vitað um hinn raunverulega
endingartíma þess, sé það
notað rétt í upphafi.
Þess vegna gerir þú góð kaup,
þegar þú velur HRAUN á
húsið.
HRAHi málning'f
Lækjargötu 8
Reykjavikurvegi 60 Hf.
/ :__________——■■
"Haflð þið heyrt um hjónin sem
máluðu húsið sitt
með HRAUNI fyrir 12 ánun,
og ætla nú að endutrmála þáð í sumar
bata lil að bieyta um lit.”
Guðjón H. Pálsson
Enginn kotbúskapur í Koti
Hvað er veriðað byggja hér? Dettur
stundum upp úr okkur þegar við
ökum eða löbbum framhjá
einhverjum nýbyggingum. Þess vegna
^ Það verður enginn kotbúskapur á
kvikmyndagerðinni Koti þegar hún
verður flutt inn í nýbygginguna sem
kvikmyndagerðin Víðsjá er nú að reisa
við Skipholt 31 í Reykjavík. Kot er
sameign 16 kvikmyndagerðarmanna
sem ætla að opna og reka stúdió í
þessu húsi. Fyrsti áfangi kemst
væntanlega i gagnið í haust, ef allt
gengur eftir áætlun húsasmíða-
meistarans Helga Valdimarssonar,
múrarameistarans Grétars Kristjáns-
sonar og pípulagningarmeistaranna
Karls Samúelssonar og Guðjóns Jóns-
sonar.
Ómar Þór Guðmundsson og
örnólfur Hall teiknuðu húsið með
aðstoð verkfræðinganna Gunnars
Rósinkranz, Steindórs Haarde,.
Hallgríms Sandholt og Kristjáns
Flygenring, sem önnuðust burðarþols-
teikningar og loftræstiteikningar.
Húsið er 5639 rúmmetrar, tvær
hæðir og kjallari, samþykkt í
Byggingarnefnd 11. marz 1976. —
datt okkur það snjallræði í hug að
kynna eða segja frá I stuttu máli hver
byggir og hvað verið er að byggja á
tilteknum stað í Reykjavík. Fyrsta
Ljósmynd Ari.
húsið sem sagt verður frá er Skipholt
31.
O
Ökukennsla
Kennslubifreiðin er
Toyota Cressida ’78
ógannað ekki
Geir P. Þorvnar
ökukannari.
Stmar 19896 og 21772 (simsvari).
ÍBÚAR í HJALTABAKKA
2- 32 EKKIÁNÆGÐIR ENN
Ingibjörg I Hjaltabakka 2 hringdi
og sagði, að blaðaskrifin um Hjalta-
bakka 2—32 hefðu þróazt á annan veg
en ætlazt hefði verið til. „Ég bjóst við
að þeir hjá Miðfelli hf. gætu upplýst
mig um hvenær þeir mundu ganga frá
planinu þeim til sóma. ég hélt að
þeirra sérgrein væri alls kyns steypu-
vinna en ekki hvernig mæður í Hjalta-
bakkanum gæta barna sinna. Annars
get ég upplýst þá um að síðan þeir
losuðu stífluna og settu ristina í hefur
þetta verið í lagi en þá er bara að Ijúka
við það sem á vantar svo allir verði
ánægðir.”
Ingibjörg sagði að Miðfell hf. ætti
eftir að setja ristar í öll hin niðurföllin,
mála bifreiðastæðin og hreinsa steypu-
hrúgur. Þessu verki hafi átt að vera
lokið 15. september i fyrra skv.
samningum en því væri enn ólokið.
Freyr Guölaugsson, gjaldkeri I
Hjaltabakka 18—32 hringdi og vildi
gera athugasemd við þau svör
Miðfellsmanna sem birtust í DB fyrir
nokkrum dögum, þar sem allri skuld-
inni er skellt á börnin í Hjalta-
bakkanum og talað um allt grjótið sem
komið hafi upp úr niðurfallinu.
Freyr sagði að þessi svör Miðfells-
manna væru algjörlega út I hött. Það
væri fráleitt, að allt það grjót sem sýnt
er á myndinni hafi komizt ofan i
niðurfallið eins og þeir væru að gefa í
skyn. Hið rétta væri að þetta væru
leifar af því grjóti sem Miðfellsmenn
hefðu átt að hreinsa á sínum tíma en
aldrei gert. Freyr sagði að mjög illa
hefði verið staðið að þessu verki á
allan hátt. Eyjarnar væru t.d. allar
hornskakkar og varla gæti Miðfell hf.
kennt börnunum um það. En fyrst og
fremst væru íbúarnir óánægðir yfir að
verkinu hefði aldrei verið lokið. „Þeir
svara því alltaf til að þetta stafi af því
að undirverktakar hafi séð um fram-
kvæmdirnar,” sagði Freyr og bætti því
við að þeir hefðu gert samninginn við
Miðfell hf. og þá varðaði ekkert um
undirverktakana. Það væri Miðfell hf.
sem ætti að sjá um að samningurinn
væri haldinn.