Dagblaðið - 14.08.1978, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 14.08.1978, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14.ÁGÚST 1978. vnsan e I i áSjli Iþróttir Iþróttir Þjálfarinn flúði Bill Haydock, sem verið hefur þjálfari meistaraflokks Víkings í knattspyrnunni siðustu þrjú sumur, flúði frá íslandi á föstudagsmorgun án þess að kveðja kóng eða prest. Enginn i Víking vissi neitt um brottför hans — eða að hann væri á förum. Víkingar léku við íslandsmeistara Akraness á laugardag — og Haydock hafði boðað leikmenn sina á fund með sér á föstudag kl. sjö. Þeir mættu — og biðu — en Haydock lét ekki sjá sig. Mætti ekki á fundinn — og leikmenn og forráðamenn knattspymudeildar voru steini lostnir. Þegar þeir komust að þvi siðar um kvöldið að fleiri hefðu verið að biða og leita að Bill Haydock — kvenfólk — fór þá að gruna margt. Þeir snéru sér til Flugleiða og komust þá að þvi, að Haydock hafði pantað far til Lundúna á föstudagsmorgun — og farið með flug- vél félagsins utan þá um morguninn. Hafði pakkað niður og horfið sporlaust án þess að láta nokkurn mann vita um þafyrirætlunsína! Bill Haydock hefur átt í ýmsum erfið- leikum í sumar og engan veginn staðið sig í því starfi, sem hann var ráðinn til. Mikið rót á persónulegu lífi hans og ástæðuna hægt að rekja til þess, að eiginkona hans var ekki með honum hér á landi í sumar eins og áður. Það hefur dregið dilk á eftir sér og orðið til þess, að maðurinn tók þá ákvörðun upp á eigin spýtur að flýja frá Íslandi. Þetta kom á óvart — eins og þruma úr heiðskíru lofti á leikmenn Vikings og Iþróttir Bill Haydock, þjálfari Víkings, hvarf f rá íslandi án þess að kveðja kóng eða prest Iþróttir setti ýmsa þeirra úr skorðum fyrir leikinn við Akranes. Þeir Pétur Bjarnar- son og Hafsteinn Tómasson stjórnuðu Víkingsliðinu í leiknum á laugardag. Engin ákvörðún hefur verið tekin um það hvað tekur við hjá Viking i þeim leikjum, sem liðið á eftir í 1. deild — eða hvort nýrþjálfariverðurráðinn. Bill Haydock er 41 árs og var á árum áður kunnur atvinnumaður í enskri knattspyrnu — lék meðal annars með Manch. City. Hann réðst til Víkings snemma árs 1976 og byrjaði vel. Gerði Vikinga strax að Reykjavíkurmeistur- um. Þá um sumarið náði Vikingur betri árangri en áður í 1. deild. Varð i fjórða sæti — og það varð til þess, að Víkingur gerði samning við Haydock á ný þá um haustið.- Samning til tveggja ára. Sumarið 1977 varð Víkingur i fimmta sæti i 1. deild og hlaut hærri stigatölu en áður, eða 20 stig. Miklar vonir voru bundnar við Víkingsliðið i suntar, sem ekki hafa rætzt. Ástæðan fyrst og fremst að þjálfunin hjá Haydock hcfur vcrið i molum. Hann engan veginn staðið sig i starfi sinu. Það má þvi segjá, að það skipti Viking litlu ntáli úr þvi sem kontið er hvar Haydock heldur sig — þó vissulcga hafi hin fyrirvaralausa og óvænta brott- för komið róti á marga leikmenn liðsins. sem voru farnir að gera sér von unt þriðja sætið i I. deildinni og þar ntcð sæti í UEFA-keppninni. hsim. Markaregn í Laugardal Það er ekki á hverjum dcgi, sem íslenzkum knattspyrnuunnendum gefst kostur á að sjá átta mörk skoruð í einum leik eins og á Laugardalsvellinum i gær- kvöldi. Þar leiddu saman hesta sína Fram og FH og skildu jöfn, fjögur mörk : skoruð af hvoru liði. Útlitið hjá Frant var reyndar ekki :glæsilegt i gærkvöldi. Hafnfirðingamir búnir að skora hjá þeim þrjú mörk og höfðu átt meira i leiknum þó þriggja marka munur væri kannski of mikið af þvi góða. En mörkin telja og þau fóru að telja fyrir Fram i siðari hálfleik. Fallegasta markið í gær var örugglega jöfnunarmark Frammara á tuttugustu og fyrstu mínútu síðari hálfleiks. Guð- þegar Fram og FH gerðu jafntef li 4-4 mundur Steinsson lék með knöttinn utan af kanti inn á völlinn. Enginn átti von á skoti þegar það reið af frá Guðmundi af tuttugu metra færi rétt við samskeytin. Leikar stóðu jafnir eftir sannkallað draumamark. Fyrsta mark leiksins kom annars eftir góða sendingu frá Janusi til Ásgeirs Arnbjörnssonar sem skoraði 1—0 fyrir FH á 14. minútu. FH réði meiru á miðju vallarins og voru þeir fremur afgerandi i fyrri hálfleiknum. Annað markið kom síðan á þrítugustu og annarri minútu er Leifur Helgason gaf fyrir og Guðjón skaut knettinum í vamarmann Fram og þaðan fór hann í netið, 2—0. Tveim minútum fyrir lok fyrri hálfleiks kom þriðja mark FH er Magnús Teitsson gaf fyrir frá hægri, knötturinn fór yfir Guðmund markvörðog Leifur Helgason skallaði í opið markið. Strax á sjöttu minútu síðari hálfleiks kom fyrsta mark Fram. Þar var Pétur Ormslev að verki eftir góða sendingu frá Guðmundi Hafberg. Strax tveim minútum síðar kom Guðmundur Steins- son inn I sendingu til markvarðar FH oig skoraði annað mark Fram. Þriðja markið á 21. mínútu eins og áður sagði. Staðan var nú orðin jöfn og I loftinu Iá að bæði liðin væru búin að sætta sig við úrslitin. En síðustu minúturnar kom skemmtilegur sprettur. Ólafur Danivals- son FH skaut rétt utan við stöng á 38. minútu og finim min. siðar nær FH fjórða markinu eftir gróf varnarmistök Fram. Aðeins tvær minútur eftir. Frarn fær innkast á vallarhelmingi FH. Kristinn Atlason fær knöttinn inn i vila- teig og skallar yfir markvörðinn. Jafn- tefli orðið staðreynd þvi andartökunt síðar flautar Valur Benediktsson dómari leikinn af. Dóntarinn sá \eröur sannar lega ekki sakaður um að misnota flautuna enda komust lcikmenn upp með ýmis furðuverk. sent þó ollu ckki skaðaaðþessusinni. ÓCi. BUBOT FRA BIFRÖJT 25% verðlækkun Skipafélagið Bifröst hefur nú lækkað farmgjöld sín á leiðinni milli íslands og Ameríku um 25%, og eru farmgjöld Bifrastar þau lægstu sem boðin eru á þeirri leið. HAFNARFJÖRÐUR NORFOLK ( Portsmou(h) Lægra vöruverð Lægri farmgjöld þýða lægra vöruverð og er 25% farmgjaldalækkun kærkomin búbót bæði innflytjendum og neytendum. Viðskipti við Bandaríkin hagkvæm Lág farmgjöld, vörugæði og staða dollarans gera það að verkum að viðskipti við Bandaríkin eru nú mjög hagkvæm okkur íslendingum. Ferðir á 23 daga fresti milli Hafnarfjarðar og Portsmouth Va. Allar upplýsingar veittar á skrifstofunni að Klapparstíg 29, símar 29066 og 29073. SKIRAFÉLAGIÐ BIFRÖST HF Skrifstofur: Klapparstig 29. Sími 29066 og 29073 UmboSsmaöur í USA: Hansen and Tideman Inc. Suite 1627, ONE WORLD TRADE CENTER, New York, N. Y. 10048. Simi432-1910 Afgreiösla í Norfolk: Capes Shipping Agencies Inc: 1128 West Olney Road, Norfolk, Virginia 23507. Símar (804) 625-3658, /59 og /50 og(804) 627-2966 og /67 Telex 823-476 Bill Haydock, fyrrum þjálfari Vikings. Nær óþekktur Englendingur vann Bayi — á Samveldisleikunum Samveldislcikunum — mesta íþrótta- móti sem haldið er í heiminum, þegar Olympiuleikarnir eru frátaldir — lauk í Edmonton í Kanada á laugardag. Kanadamenn stóðu sig með miklum ágætum — og hlutu fleiri verðlauna- peninga en nokkur þjóð hefur áður unnið á leikunum. 45 gull, 31 silfur og 33 bronsverðlaun. England hlaut 27 gull, Ástraliu 24 og Kenýa sjö. Aðrar þjóðir færri en þó flestar af þeim 46 þjóðuni, sem tóku þátt í leikunum cngin verðlaun. Á siðasta degi mótsins kom mest á óvart, að 25 ára Englendingur, Dave Moorcroft, sigraði heimsmethafann Filbert Bayi, Tanzaníu, í 1500 m. hlaupinu. Moorcroft hljóp á 3:35.48 mín. Erábær tími. Englendingar höfðu mikla yfirburöi í frjálsíþróttakeppninni og þjóðsöngur Englands — Land of hope and glory — hljómaði mun oftar en nokkur annar á aöalleikvanginum í Edmonton. Á lokadeginum lilutu enskir sex gullpeninga i þeim níu greinum, sem keppt var í. Enska svcitin varð einnig fyrst yfir marklínuna i 4X400 m boðhlaupi karla en var dæmd úr leik. Það var vegna þess, að Glen Cohen, Engiandi, hafði hlaupið fyrir Bill Koskei, Kenya, á þriðja spretti. Kenya hlaul gullið — var sekúndubroti á eftir ensku sveitinni í mark. Skotland sigraði í 4X100 m boðhlaupi og þar hljóp Allan Wells, hinn 26 ára spretthlaupari frá Edinborg, mjög vel. Hann hlaut líka gullverðlaun í 200 m hlaupi og varð annar í 100 m. Wells var hcldur slakur langstökkvari hér á árum áður en sneri sér að sprctthlaupum fvrir þremur áruni. Ensku stúlknrnar sigruðu i háðum boðhiaupunum. England hlaut 16 gullverðlaun i fri’Kam þ'-c.m. Ástralía og Kanada sev h- u þjóð og Kenýa fimm. í maraþonhlaupinu á lostudag sigiaúi óþekktur hlaupari frá Tanzaniu Gidemas Shahanga. Hann er aðeins tvítugur og varð sjöundi á Afríku-leikun- um fyrr I sumar.Á siðusti. klómetrunum i Edmonton fór hann fram ár Kanada- mönnunum Jerome Dra.'ioa og Paul Bannon cftii að Bannon hafði liaft forustu mest allt hlaupið. Drayton. sá þekkti hiaupari, varð annar. Tanzaníu- maðurinn vai 13 sek. á eftir Drayton, þegar míla var eftir af hlaupinu. Shahanga, elztur 12 svstkina, korn vel fyrstur 1 mark—alveg óþreyttur og hljóp strax heiðurshring. Frá sama héraði og Filbert Bayi. Fréttastofa Reuters hefur ekkert fyrir því að gefa upp tima hans — frekar en árangur flestra annarra verðlaunahafa á leikunum. Svíinn ók hraðast Svíiinn Ronnie Pettersson sigraði i austurriska grand prix kappakstrinum i Zeltweg í gær. Keyrði á 1:41.21.57 og meðalhraði hans var 189.91 km. Deapiller Frakklandi, varð annar á 1:42.09.01. Mario Andretti, LSA, hefur forustu í stigakeppninmni með 54 stig. Pettersson er skammt á eftir með 45 stig. Patrick Dcapillcr hefur 32 stig, Niki Lauda, Austurriki, og Carlos Reutemann, Argentinu, 31 stig.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.