Dagblaðið - 14.08.1978, Blaðsíða 32

Dagblaðið - 14.08.1978, Blaðsíða 32
f Fyrsta skreiðin íártil Nígeríu: Hvalvík pakka í losar 39 þús. Port Harcourt M/s Hvalvik kom inn á leguna í Port Harcourt í Nigeriu með 39^ þúsund pakka af íslenzkri skreið. sl. -föstudag. Stóðu vonir til að skipið gæti lagzt að bryggju þá um kvöldið eða nóttina að sögn seljenda. Er þessi farmur hinn fyrsti af fleiri skreiðar- förmum til Nígeriu á þessu ári. Eftir margar og erfiðar tilraunir tis að selja þessa vöru tókust samningar milli islenzkra útflutningssamtaka og Nígeriustjórnar um sölu á 115 þúsund pökkum. Heildarandvirði er um 6 milljarðar króna. Á sama tima og Nígeríustjórn jcaupir 115 þúsund pakka skreiðar af Íslendingum, kaupir hún 75 þúsund pakka af Norðmönnum. Miðað við verkaða skreið i þessum löndum lætur nærri að Norðmenn þyrftu að losna við fjórum sinnum meira magn. „Askorun til þing- manna að gera það sem fólk kaus þá til að gera...” — sagði Guðmundur J. Guðmundsson „Líta ber á þessa samþykkt sem mjög einlæga ósk verkafólks til þessara flokka, að þeir geri baráttumál verkalýðsins að sinum. Tuttugu og átta þingmenn eru ef til vill sterkara afl en við höfum áður átt. á Alþingi,” sagði Guðmundur J. Guð- mundsson um samþykkt Verkamanna- sambandsins sl. föstudag. „Viðbrögð flokkanna eru jákvæð. Tilgangurinn er ekki sá að þeir fari að rifja upp hvor í sinu blaði ásakanir og gagnáskanir, heldur ræði þeir í alvöru um hvort þeir geti orðið við kröfu verka fólks úr báðum flokkum. Þrætubókinnij má hreinlega loka, ef svo er,” sagðij Guðmundur. „Hér eru ekki á ferðinni neinir póli- tiskir klækir heldur áskorun til þing- manna þessara flokka um að þeir geri það sem þeir lofuðu og fólkið kaus þá tií að gera,” sagði GuðmundurJ. Guðmundsson. BS, METAREGN í VÍÐI- DAL UM HELGINA Skeiðmannafélagið og Fákur héldu hestamót á Fáksvellinum í Víðidal á laugardaginn. Mótið var vel sótt. Þar komu um 400 manns. Að sögn Sigurbjörns Bárðarsonar voru mörg glæsileg met sett á mótinu, þ.á.m. Evrópumet. Garpur, 8 vetra, sem Hörður G. Albertsson á, en Aðalsteinn Aðalsteins-i son reið, setti Evrópumet í 150 metra skeiði. Fór hann á 14,8 sek en metið er 16,2. | Þá setti Funi Marteins Valdimars- sonar frá Búðardal glæsilegt íslandsmet i' 800 metra brokki. Fór hann á 1,35,4! min. en gildandi met er 1,40,6. -GM., Frá 250 metra skeiði. Fyrstur i mark varð Skjóni. Knapi var Albert Jónsson. Skjónij varað þessu sinni aðeins 0,1 broti undir tslandsmetinu. ’ Fallhlifarstökkvarargetaláttþað á hættu að fá óvægilegarbyltur. Hér er Sigurður Bjarklind að lenda á mótinu nyrðra um helgina. DB-mynd Fax. Slasaðist í lendingu — á íslandsmótinu ífallhlífarstökki Ungur Akureyringur, Magnús Pétursson, slasaðist er hann kom illa niður úr fallhlifarstökki á íslands- mótinu I fallhlifarstökki um helgina. Áhorfendur urðu þó ekki varir við neitt óeðlilegt i fyrstu, enda var lendingin ekki ljót, að sögn leikmanns. Sennilegast hefur hann ekki gefið nægilega vel eftir í fótunum, er þeir snertu jörðina, með þeim afleiðingum að höggið leiddi upp hrygginn og brákaði hálslið. Var Magnús fluttur áj sjúkrahús í Reykjavik, og eftir þvi sem blaðið kemst næst, er líðan hans eftir atvikum góð. G.S. Samningafundur um Breiðholt hf. í dag: „Breiðholt á fyrir skuldum sínum” — segir Sigurður Jónsson, forstjóri „Við héldum fundi með stjórn Verkamannabústaða fyrir helgi og fundum verður haldið áfram i dag.> Við viljum frekar ná samkomulagi við stjórnina en stefna henni fyrir riftun verksamnings við Breiðholt hf. um byggingu verkamannabústaða,” sagði Sigurður Jónsson, forstjóri Breiðholts, hf. i samtali við DB i morgun. t Sigurður kvaðst vera vongóður um að samningar mundu takast. Forstjóri Breiðholts hf. var að þvi spurður hvort blaðafréttir um að fyrir- tækið hefði veðsett seldar eignir hefðu við rök að styðjast. Hann kvað þær fréttir stórlega ýktar. Þarna væri mest um frágangs- atriði að ræða sem gleymzt hefði að ganga frá. Sigurður Jónsson var að því spurður, hvort rétt væri eftir honum haft i blöðum að ákveðin verktakafyrirtæki væru að setja Breiðholti hf. stólinn fyrir dyrnar. „Ég vil ekki nefna nein ákveðin fyrirtæki. En það er rétt að mér finnst furðulega að þessu máli staðið,” sagði hann. „Ég veit ekki hvort tekst að lyfta fyrirtækinu upp úr þessum öldudal. , Það á eftir að koma í ljós á næstu. dögum. Við sjáum ekki ástæðu til að opna fyrr en mál skýrast. En ég tel að Breiðholt hf. eigi fyrir skuldum sínum ef þaö fer ekki á nauðungaruppboð,” sagöi Sigurður Jónsson, forstjóri Breiðholtshf. aðlokum. GM ; irjálst, úháð dngblað MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1978. Fékk lax á handfæri „Þetta er bara lax strákar,” sagði Þorkell Guðmundsson, skipverji á Búðarnesinu, GK-101, um leið og hann , innbyrti um fimmtán punda lax, fyrir forvitnum augum tólf skipsfélaga sinna, ;úti á Deildargrunni, sem er um 30 mílur norðvestur af Deild. „Ég hélt fyrst að þetta væri ufsi,” sagði Þorkell þegar hann sýndi okkur laxinn suður í Keflavik,” en brátt kom í Ijós að þetta var öllu verðmætari fiskur, stórlax, veiddur á handfæri, með svörtum krók.” Og Þorkell lyfti laxinum, sem reyndar hafði verið geymdur i frystikistunni, til myndatöku en þetta er annar laxinn sem hann veiðir á handfæri í sjó. emm Þjófnaður í Grindavík upplýstur Brotizt var inn í nýbyggingu í Grinda- vík og áfasta verzlun sem Bára heitir, aðfaranótt laugardagsins. Stolið var tals- • verðu af hljómplötum, sælgæti, vindlingum og fleiru. Rannsóknarlögreglumaður frá Kefla- vik kom á staðinn og um helgina hafði hann upp á þjófnum. Reyndist það vera piltur innan við tvítugt og var hann einn á ferð. Þýfið hafði hann falið á ýmsum stöðum en það er nú allt komið i leitirnarog til skila. ASt. 45 daga fang- elsi fyrir hrefnudráp Norski hrefnubáturinn Andfjord var tekinn aðólöglegum hrefnuveiðum út af Skagatá á laugardag, en þar hafði áhöfnin skotið eina hrefnu í óleyfi. Flug vél Landhelgisgæzlunnar flaug fyrst yfir bátinn, en varðskip náði honum suðaustur af Grímsey og færði hann til Akureyrar. Þar var skipstjórinn dæmdur til að greiða 50 þús. kr. i sekt í gær og hlaut að auki 45 daga fangelsisdóm. Þá var hrefnan og veiðarfærin gerð upptæk en andvirði þess mun vera um ein og háífmilljón. I - -G.S. ? Kaupið^ TÖLVUR OGTÖLVUÚR BANKASTRÆTI8

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.