Dagblaðið - 14.08.1978, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 14.08.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1978. 5 Kveikt í bifreið Kveikt var i bifreið við Suður- landsbraut aðfaranótt sunnudags- ins. Slökkviliðið var tilkvatt og gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins en bifreiðin skemmdist töluvert. Sá er ikveikjunni olli náðist og reyndist hann ölvaður. Hann var færður i fangageymslur lögreglunnar. - GAJ Allarfanga- geymslur fullar á Akureyri Óvenju mikil ölvun var á Akur- eyri á laugardagskvöld og aðfara- nótt sunnudags að sögn lögregl- unnar þar. M.a. voru tveir öku- ntenn teknir fyrir ölvun við akstur. Fangageymslur lögreglunnar voru fullar alla helgina, en slíkt gerist mjögsjaldan. - GM 12-15 þúsund landar búa á eriendrí grund — flestir í Bandaríkjunum og á Norðurlöndum Talið er að 12—15 þúsund íslending- ar séu búsettir erlendis um þessar mundir. Flestir eru í Bandarikjunum eða um fjögur þúsund. Hátt á þriðja þúsund eru i Danmörku og Sviþjóð. Þá eru í kringum eitt þúsund íslendingar búsettir í Noregi og Kanada. Vestur-lslendingar eru aðsjálfsögðu ekki taldir með. Þetta kemur fram í skýrslu sem Hag- stofa íslands hefur tekið saman um Ís- lendinga erlendis og birt hefur verið í Hagtiðindum. Ýmsir erfiðleikar eru á þvj að gefa upp nákvæmar tölur. Aðalstofn þjóð- skrár í upphafi var manntal sem fram fór 1952. Fólk sem var dáið eða alfarið af landinu þá hefur aldrei komið á þjóð- skrá. Það er undir hælinn lagt Itvort hingað berst vitneskja um andlát íslend- inga sem setzt hafa að i útlöndum. Og nefna má að á tölu islenzkra rikisborg- ara erlendis vantar trúlega allstóran hóp barna sem fæðzt hafa erlendis en hafa ís- lenzkt ríkisfang samkvæmt íslenzkum lögum. Vegna alls þessa er fjöldi íslendinga erlendis að nokkru áætlaður, en ekki er talið að verulega geti skeikað frá þeim tölum sem hér hafa verið nefndar. Landflótti? í byrjun þessa áratugs fjölgaði svo mjög íslendingum búsettum erlendis að likt hefur verið við landflótta. Var út- flutningur þessi tengdur atvinnuleysi og efnahagskreppu hér á landi á árunum 1967—70. Á þessum árum flutti stór hópur íslendinga, nokkur þúsund manns, til Norðurlanda og Ástraliu. Árið 1965 voru aðeins sex íslendingar búsettir í Ástralíu en árið 1970 voru þeir orðnir 293. Siðan hefur þeim fækkað verulega og var tala þeirra I. desember orðin 195. Árið 1970 voru íslendingar búsettir á Norðurlöndum rösklega 2700. Þeim fjölgaði á árunum 1975—77 og voru I. desember sl. á sjötta þúsund. í námi og starfi Hópur Íslendinga er búsettur erlendis tímabundið vegna náms og starfs. íslenz.kir námsmenn á Norðurlöndum eru taldir til „íslendinga erlendis” á manntali vegna nýrra laga. Þeir eru um 800. Flestireru i Danmörku. Starfsfólki á vegum íslenzkra fyrir- tækja erlendis hefur og fjölgað. Hér er einkum um að ræða starfsfólk hjá Flug- leiðum ogCargolux. íslenzkir starfsmenn Flugleiða erlcndis voru 74 í desember sl. Á sama tima voru starfsmenn Cargolux 100. Við þessar tölur bætist heimilisfólk. Flest þetta fólk er talið eiga lögheimili í við- komandi landi þótt dvölin þar sé stutt. 500 giftar varnar- liðsmönnum Á árabilinu 1954—76 giftust tæplega 500 íslenzkar konur bandariskum her- mönnum á Keflavikurflugvelli eða ,.sér- fræðingum" sem þar hafa starfað. Flestar voru þessar giftingar 1957 (rúm- lega 40) en fæstar 1967 og 1975 (9 hvort árið). •CM Að potast og troðast í umferðinni Með ólíkindum er hvernig bifreiða- árekstrarnir verða og „slys" eins og það sem myndin sýnir er harla erfitt að skýra. Svona lokaðist Fellsmúlinn um tíma á föstudag. Þama sést vel til allra átta og allt virðist klárt. En i umferðinni er troðizt, svinað og rétti stolið. Svona óhöpp verða tryggingamál og lögreglu- menn þarf á staðinn. Það tekur tíma og á meðan biða aðrir, hinir saklausu. Árekstrarnir urðu margir i gær en eng- inn með alvarlegum afleiðingum — nema fyrir veski manna. DB-mynd Bjarnleifur \ LL i_ # JKmdrsi V Umferðarslys á Öxnadalsheiði Umferðarslys varð á Öxnadalsheiði fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- árdegis á laugardaginn. Tvær bifreiðir eyri. Að sögn lögreglunnar fékk annar rákust á við mætingu. þeirra að fara heim eftir skoðun en hinn var lagður inn til frekari rannsóknar. Ökumenn beggja bifreiðanna voru -GM Sjóður dr. Victors Urbancic: LEGGUR GRUNN AÐ KAUPUM DÝRRA LÆKNINGATÆKJA 1 tilefni af 75 ára fæðingarafmæli dr. málefni. Victors Urbancic 9. ágúst, hefur stjórn Tæki þessi eru svo dýr að Islendingar minningarsjóðs hans ákveðið að leggja hafa fram að þessu ekki haft bolmagn til fram 160 þúsund kr. sem fyrsta stofn- aðkaupaþau. framlag til kaupa á svonefndu „CAT- Minningarsjóður dr. Victors scan"-rannsóknartæki. Urbancic skuldbindur sig til að afhenda Hér er um að ræða röntgen- þessa fjárhæð kaupanda tækisins, þegar skyggningartæki með tölvuúrvinnslu til þar að kemur, ásamt því fé öðru, sem rannsóknar á sjúklingum með meinsemd safnast kann í þessu sérstaka augnamiði i heila, en það er einmitt einn tilgangur og geymt verður á biðreikningi þangað minningarsjóðsins samkvæmt skipulags- til. skrá og ósk dr. Urbancic að styrkja slik - GM Gamla dötið þitt húsgagn að Sogni? Samtök áhugafólks um áfengisvanda- málið, SÁÁ, ætla að slá tvær flugur i einu höggi þessa dagana. Þau bjóðast til þess að losa fólk við húsgögn sem ekki lengur eru í notkun. Þessi húsgögn ætla þau siðan að nota til að búa upp Sogn i Ölfusi, hina nýju endurhæfingarstöð. Verði mikið af dóti afgangs, verður haldin tombóla þar sem fólki gefstu kostur á að kaupa það, vitandi að and- virðið verður notað að Sogni. Til þess að koma frá sér ónotuðum hlutum, bæði húsgögnum, eldhúsáhöld- um og öðru slíku. þarf fólk ekki annað en að hringja í síma 82399 og þá sækja sjálfboðaliðar dótið. Þeir taka það allt saman og flokka ekki fyrr en seinna hvað er nothæft og hvað ekki. Að sögn Hilmars Helgasonar. formanns SÁÁ er búizt við að Sogn taki til starfa þann 12. ágúst. Við þann dag eru allar ráðstafanir miðaðar. Núna er verið að sauma sængurföt, gluggatjöld og annað þess háttar í Reykjavik fyrir býlið og um helgina verður settur krafturiaðkomaþvifyrir. • DS co Dýrin á sýningunni bída spennt ef tir þér og f jölskyldu þinni Meðal annars tvær gyltur meö grísi, hænur og ungar, kal- kúnar, endur og gæsir, folaldsmeri, minnsti og stærsti hestur landsins, fimmtán mjólkurkýr, nýborinn kálfur, tólf ær, forystukind með lambi, geitafjölskylda — hafur, huðna og tveir fjörugir kiðlingar, dúfur, lax og laxaseiði, o.m.fl. Sýningin er opin 11.-20.ÁGÚST ffivinlýri fyrir alla !jölskylduna

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.