Dagblaðið - 14.08.1978, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR14. ÁGÚST 1978.
Má bjóða yður kaff ibolla?
Verðlækkun
Kaffiverð i SVíþjóð hefur nú verið
lækkað um rúmlega 3 kr. sænskar
hvert kg (eða um 211 kr. ísl.). Segir í
frétt að það sé Kooperativa (StS í Sví-
þjóð) sem lækkað hafi kaffiverðið
<3
Kaffiverðið hefur verið lækkað I Svi-
þjóð vegna þess að góðar horfur eru
með kaffiuppskeru i Brasiliu. Við
eigum einnig von á verðlækkun á kaffi
— ef gengisfellingar og verðbólga
verða þá ekki búnar að koma verðmis-
muninum fyrir kattarnef. — Eins og er
kostar bolli af „venjulegu” kaffi um 17
kr.
DB-mynd Bjarnleifur.
Sumarhótelið Nesjaskóla
Hornafirði sími 97—8470
Gisting í björtum og rúmgóðum eins og tveggja
manna herbergjum.
Svejnpokapláss í herbergjum og í skólastofum.
Heitur og kaldur matur allan daginn.
Góð aðstaða til hvers kyns funda- og
ráðstefhuhalda.
Verið velkomin í Sumarhótelið Nesjaskóla Horna-
firði. ___________ ,
28311 28311
Fasteignasalan Eignavör
Hverfisgötu 16 A.
Til sölu:
2 herbergja íbúð á 3. hæð í Hlíðunum.
2 herbergja ibúð á Stokkseyri. Ekkert áhvílandi.
3 herbergja íbúð við Kópavogsbraut.
3 herbergja íbúð við Njálsgötu.
4 herbergja íbúð við Álfhólsveg.
4—5 herbergja við Álfaskeið í Háfnarfirði.
5 herbergja við Miklubraut.
5 herbergja íbúð við Leifsgötu.
Einbýlishús á byggingarstigi í Breiðholti.
Einbýlishús, ca 120 fm á Selfossi. Bein sala eða skipti.
Fokhelt einbýlishús í Þorlákshöfn.
Einbýlishús á Eyrarbakka.
Sumarbústaður í Þrastarskógi á eignarlahdi. Skipti á bíl
möguleg. Verð: 4 milljónir.
Heimasímar eru:
41736 Einar Óskarsson
74035 Pétur Axel Jónsson lögfræðingur.
á kaffi væntanleg
vegna þess að nú eru góðar uppskeru-
horfur i Brasilíu.
Það vill oft brenna við að þótt getið
sé um verðlækkun á vörum i heims-
fréttum þá lækka ekki sömu vörur hér
norður á hjara veraldar. Hins vegar
finnst neytendum að verðhækkanir
séu býsna fljótar að segja til sín.
Neytendasíða DB hringdi til Sig-
urðar Sigurðssonar sem sér um kaffi-
innflutning Sambandsins hér á landi
og spurðist fyrir um hvort kaffiverð
væri lækkandi.
„Snemma i sumar fór kaffiverð að
hreyfast verulega niður á við og það er
alveg öruggt að það laekkar einnig hér
á landi. Það hlýtur að verða fljótlega
en ekki gott að segja nákvæmlega hve-
nær og heldur ekki gott að spá neinu
um hver verðlækkunin verður. Það er
yfirvofandi gengisfelling og þvi ekki
gott aðsegja neitt ákveðið.
Annars koma verðbreytingarnar
fram seinna hér en annars staðar, eins
og t.d. í Svíþjóð. Við fáum kaffið
okkar frá Brasiliu. Það er flutt til
Rotterdam þar sem því er umskipað og
flutt til Reykjavíkur, umskipað aftur
og flutt til Akureyrar þar sem kaffi-
brennslan okkar er. En Svíar fá sitt
kaffi frá Rio eða Santos beint til
heimahafnar,” sagði Sigurður.
Hann sagði ennfremur að kaffi-
neyzla í heiminum hefði minnkað um
15% við verðhækkanirnar sem urðu
þegar uppskeran eyðilagðist vegna
frosta árið 1975. Til þess að ná þeirri
neyzlu uppaftur verður að verða veru-
leg verðlækkun á kaffinu, sagði
Sigurður.
En hvað kostar svo venjulegt kaffi á
íslandi i dag? Sigurður upplýsti okkur
um að „venjulegt” kaffi kosti 2.340 kr.
kg. eða kr. 585 hver 250 gr. pakki. Við
mældum upp úr einum pakka með
mæliskeið fyrir kaffivél og taldist til að
hægt sé að laga allt að 35 bolla af kaffi
úr einum slíkum pakka. Þannig kostar
hver kaffibolli í kringum 17 kr. — Það
er nokkuð sterkt kaffi, en ef menn
vilja frekar „lap-þunnt” kaffi má að
sjálfsögðu búa til fleiri bolla úr hverj-
um pakka.
A.Bj.
.UTSALA - ÚTSALA
— Sakaði ekki að hafa spegil á útsölumarkaðinum
„Mig langar til að biðja neytenda-
síðuna að athuga aðbúnað viðskipta-
vina á útsölumörkuðum, eins og nú er
í gangi hjá Völvu í Iðnaðarmannahús-
inu við Hallveigarstíg. Ég fór þangað i
morgun og mig langaði að máta tvær
peysur en sá þá ekki nema einn (að þvi
er mér sýndist Ijóslausan) mátunar-
klefa. Var að sjálfsögðu löng biðröð
fólks fyrir framan hann. Var fólk bæði
með mismikið og misjafnlega „erfið"
föt til mátunar. Enga spegla sá ég fyrir
utan klefann þó ég hefði treyst mér til
að fara út í horn, snúa mér undan og
smeygja mér í peysurnar. Að sjálf-
sögðu var „ekkert endurgreitt” þegar
ég bauð að greiða báðar peysurnar og
fara burt með þær í kortér til mátunar,
koma síðan og fá aðra eða báðar
endurgreiddar. Svoég hætti við þetta.
Finnst mér sjálfsagt, viðskiptavin-
anna vegna, að setja upp mátunar-
klefa með speglum og lýsingu (eða
bara einn stóran spegil fyrir framan).
Klefarnir þurfa ekki að vera merki-
legir, t.d. má nota óseljanlega efnis-
stranga úr gömlum lagerum og setja
þá upp á gamaldags gorma. Ég held að,
söluaðili græddi á þessu líka. Margir
mega ekki vera að því að bíða í löng-
um röðum við mátunarklefa þar sem
fólk er mislengi inni og þá tapast við-
skiptavinir (eins og ég). Með hinu lag-
inu gengi sala hraðar fyrir sig og þá
sparast sjálfsagt leiga á salnum (?) og
kaupsiarfsfólks.
Þetta eru beztu „kúnnarnir” í
bænum sem á svona sölur koma,
þ.e.a.s. húsmæður og mæður að kaupa
skóla- og vinnufötin fyrir veturinn,
stundum á fleiri manns. Ber að sýna
þeim lágmarksþjónustu og iétta þeim
innkaupin, því ekki get ég ímyndað
mér (ég er ekki móðir) að þetta sé
skemmtilegt eða þakklátt verk.
Vinsemd og virðing
Sigurbjörg Guðmundsdóttir.”
SVAR:
Blaðamaður Neytendasíðunnar
lagði leið sína á útsölumarkaðinn sem
Sigurbjörg minnist á. Sá hann að
mátunarklefar voru af skornum
skammti. Hitt var aftur augljóst að
markaði þessum hafði verið komið
upp til þess að bjóða vöru á nógu ódýru
verði og hafði allt verið til sparað.
Húsnæðið þetta mun vera leigt út í
smátima i einu til slikra skyndisalna.
Erlendis eru svona markaðir algengir
og þykja sjálfsagðir.
P.S. Blm. spurði um verð á skyrtu
sem hann sá. Þegar hann hins vegar
var ekki viss um að hún passaði bauð
afgreiðslumaður að skipta henni ef
komið væri með hana aftur. — DS
Soðin ýsa með hollenzkri
sósu
Við skulum fá okkur soðna ýsu i
dag. Gott að hvíla innyflin á kjötmeti
eftir helgina. Eins og áður reiknum við
með fjórum i matinn. —
1 — 1 1/4 kgýsa eða
5—600 gr flök.
Fiskurinn er hreinsaður og skorinn i
sneiðar ca 4 cm þykkar áður en hann
er soðinn í saltvatni. Flökin má
gufusjóða eða sjóða eins og niður-
skorinn fisk, í stykkjum.
Þegar soðinn fiskur er á boðstólum
er gott að bera fram með honum
einhvers konar sósu, t.d. hollenzka
sósu, sem er þá búin til úr soðinu. —
Gætið þess jafnan er þið sjóðið ýsu að
henda ekki soðinu þvi það er svo
dæmalaust gott í súpur eða sósur.
Hollenzka sósan er búin til á eftir-
farandi hátt:
Tvö egg eru þeytt vel í hrærivél og
ca 20. gr. (2 matsk) af hveiti bætt út i.
Smávegis af heitu soðinu er hrært
varlega saman við (alls má reikna með
um 3 dl. af soði í sósuna). Þessu er
síðan hellt út í pottinn og hrært í allan
tímann. Sósan á að sjóða í um það bil
5 mín., þá er safi úr einni sítrónu og
pínulítið salt látið saman við.
Þessi sósa er mjög góð, en ef hún
sýður of „sterkt” og án þess að hrært
sé í henni er hætt við að hún „skilji”.
Svona sósu er einnig hægt að búa til
með því að „baka” hana upp með
smjörlíki, en það er talið óhollt (og
einnig mjög fitandi) að búa sósur til á
þann hátt og flestar húsmæður fyrir
löngu hættar slíkri sósugerð.
Verö:
Ef notuð er heil ýsa kostar þessi
Soðið af fiskinum verður langtum kraftmeira ef notuð er „heil” ýsa I stað flak-
anna sem hentugri eru ef á að steikja fiskinn.
DB-mvnd Ari
matur (með sósunni og soðnum
kartöflum) um 680 kr. eða um 170
kr. á mann. Ef notuð eru flök (sem er í
rauninni ekki eins gott, vegna
sósunnar) þá kostar rétturinn um 635
kr. eða um 160 kr. á mann. A.Bj.
Vi