Dagblaðið - 15.08.1978, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15.ÁGÚST 1978.
7
London:
Má ekki
kalla páfann
fáfróðan
gamlan karl
Útvarpsmaður í London hefur verið
settur af eftir að hann kallaði Pál páfa
sjötta sem nýlátinn er fáfróðan gamlan
karl. Mótmælin heltust yfir útvarps-
stöðina eftir að þessi orð höfðu verið
látin falla og linnti simhringingum
reiðra hlustenda ekki lengi á eftir.
Sviss:
Stálu lög-
reglubún-
ingum
Þjófar létu greipar sópa um lögreglu-
stöð i Le Landeron i Sviss í gærkvöldi.
Komust þeir heldur en ekki i feitt.
Höfðu mennirnir á brott með sér
byssur, vopn, fimmtán hundruð
svissneska franka og siðast en ekki sizt
nokkra lögreglubúninga. Ekki er Ijóst
hvort þjófarnir ætla sér að skrýðast þeim
sér til hægðarauka við störf sín á næst-
unni.
Moskva:
Krístín
Onassis
komin
aftur iír
vestrinu
Christina Onassis Kauzov er
aftur komin til hins nýja eigin-
manns sins Sergei eftir að miklar
sögur höfðu gengið um að hún
ætlaði að binda endi á nokkurra
daga hjónaband þeirra. Fékk sú
saga byr undir báða vængi er
Christina hætti við brúðkaupsför
þeirra til S:beriu en fór í þess stað
til Aþenu og siðar til London án
nokkurra skýringa. Siðar mun hún
hafa rætt við framkvæmdastjóra
fyrirtækja sinna á eyjunni
Scorpios í Miðjafðarhafi.
Hún kom til Moskvu i gær-
kvöldi en þá höfðu hjónakornin
verið aðskilin i niu daga. i gær-
kvöldi ræddi Christina við brezkan
blaðamann og sagðist aðeins hafa
verið í viðskiptaferð eins og hún
mundi þurfa oft á næstunni.
Munu þau Christina og Sergei
hafa mikinn hug á að finna sér
ibúðarhúsnæði i Moskvu.
Ekki vildi hún ræða við aðra frétta
menn en hinn brezka, sem ók
frúnni af flugvellinum inn til
Moskvu. Sagði hún honum að
fregnir af skilnaði hennar að þessu
sinni væri alveg úr lausu lofti
gripnar. Hinn nýi eiginmaður
C'hristina er fyrrverandi yfirmaður
við sovézka skipiaútgerð. Hann
var ekki á flugvcllinum til að taka
á móti eiginkonunni. Hittust þau í
íbúð móður hans en óku siðan
aftur til flugvallarins til að ná í far-
angurhennar.
Búizt hafði verið við að þar sem
öll leyfi til giftingarinnar fengust
með óvenju skjótum hætti, er
Christina og Sergei Kauzov gengu
i hjónaband, að þau fengju einnig
leyfi til að kaupa eina af íbúðum
samvinnufélaga i Moskvu. Þar er
mikill húsnæðisskortur og fyrir-
komulagið þannig að fólk greiðir
inn á ibúðir sem það fær síðar til
afnota. Þarf leyfi yfirvalda til að
selja þær til annarra. A meðan
ibúðin finnst ekki munu hjónin
búa hjá móður Sergei.
Arabarkaupa
hótelskip
í Danmörku
búizt við fleiri viðskiptum þeirra og kaupum
á fyrirtækjum
Kaup arabiska olíufurstans
Hammad Sabah á teppaverksmiðjunni
í Holsterbro í Danmörku. sem sagt var
frá í DB i gær, mun aðeins vera fyrsta
skref Araba i fjármála- og viðskiptalífi
þar.
Kunnugt er um að Sabah og félagi
hans i Gulf olíufélaginu ræddu einnig
við forustumenn hjá skipafélaginu
DFDS og skipasmiðastöðvar i
Helsingör. Mun samningur um sniiði
tvö hundruð sjötiu og sex herbergja
hótelskips vera fyrirhugaður i Dan-
Ollufurstarnir tveir, Hamad Sabah og Khaleel Osman, hafa mikinn hug á að fjár-
festa I Danmörku. Nú þegar hafa þeir keypt teppaverksmiðju sem var gjaldþrota.
Samningur um hótelskip er I undirbúningi og einnig hafa þeir lýst yfir áhuga á að
koma upp mjólkurvinnslu I Kuwait með aðstoð danskra sérfræðinga.
mörku. Á skipið að liggja i Alexandriu að halda rekstri sinum áfram um
í Egyptalandi. Ekki er enn búið að nokkurt skeið. Voru horfur á að hún
undirrita samninga en ef úr vcrður yrði mjög að draga sanian seglin
mun skipasmíðastöðin fá verkcfni til vegna verkefnaskorts.
In-Line myndlampi (RCA), Kalt Einingakerfi,
Snertirásaskipting, Spennuskynjari, Viðarkassi,
Möguleikar fyrir Plötu og myndsegulbandstæki
Sölustaður:
TH. GARÐARSSON HF.
Vatnagörðum 6. Sími: 86511 (2 línur)
Viðgerðaþjonusta:
Radio og Sjónvarpsverkstæðið
Laugavegi 147. Simi: 23311
ÚTVARPSVIBKJA
MEISTARI
■
3 ára ábyrgð á myndlampa ■ Staðgreiðsluafsláttur
Tækin eru send heim án kostnaðar á Reykjavíkursvæðinu.