Dagblaðið - 19.08.1978, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1978.
Fnn ai* hð/i iil>2ftnhincrcctÍAi*n • Spurning
biiii ci |i<iu uidii|iiiig5dijuni dagsins
Óli skáti skrifar:
Fyrir mér er það staðreynd að ykkar
lóð á vogarskálina gerði herzlumuninn
um fall síðustu stjómar. Nú finnst mér
að þið ættuð að þurrka burtu sigur-
brosið og taka til hendinni við að
aðstoða við ntyndun nýrrar stjórnar.
Brunalyktin af þeirri gömlu er að kæfa
heila þjóð og með tilliti til þess að það
er tekið ntark á ykkur er skylda ykkar
að koma með uppástungur unt
menn i utanþingsstjóm en annað
virðist varla konia til greina þvi ævin-
týrið uni litlu gulu hænuna er i fullum
gangi hjá þessum sjálfkjörnu forystu-
mönnum sent allt geta nema það sem
þeireiga aðgera.
Ég þykist vita að erfitt verður fyrir
ykkur að stinga upp á mönnum. sem
þið hafið deilt á vegna annarra starfa i
þjóðfélaginu og bendi ykkur á að slíkt
má alls ekki henda ykkur. Margir hafa
að undanfömu gert sér að leik í grini
og alvöru að koma með uppástungur
um væntanlega stjórn i blaði ykkar.
Sumar þeirra eru þó þannig að varla
hafa þær verið gerðar í alvöru. En
málið er það að ég hef komið saman
minni óskastjórn eftir mikla umhugs-
un og er í dag sannfærður um að betri
stjórn mundi aldrei hafa verið mynduð
á íslandi fyrr og siðar. Þetta eru alll
menn sem þora og eru ekki háðir
neinum klíkum eða þrýstihópum. Þeir
mundu segja öllu slíku að fara i það
kolgræna og fylgja fram sinum málum
af þeim kjarki og drengskap sem til
þarf en það er einmitt það sem við
þurfpm i dag því höfuðið hefur vantað
i alltof mörg ár. Hér á eftir er min
óskastjórn og hugsið ykkur nú vel um
áður en þið gerið grín að hug
myndinni.
Forsætisráðherra. Albert Guðmunds-
son hefur tvimælalaust mesta per-
sónufylgi allra stjórnmálamanna og
það væri móðgun við almenning að
fela honum ekki þetta starf. Hann
þorir og með það úrval af mönnunt
sem hér fer á eftir mundi almenningur
sameinast um hann.
Utanríkis- og menntamál. Guðlaugur
Þorvaldsson er sjálfkjörinn i þetta.
Hann er diplómat fram i fingurgóma
og mundi sóma sér vel i veigalitlu emb-
ætti utanríkisráðherra en gnæfa yfir
með sina yfirburðakosti sem mennta-
málaráðherra.
Fjármálaráðherra. Jón Sigurðsson i
járninu er sá eitilharðasti sem við
eigum. Hann hefur sýnt fjármálavit og
ekki sizt kjark. Hann taiar tæpitungu-
laust og mundi hafa litið fyrir að berja
af okkur blóðsugurnar og koma hlut
unum í lag.
Iðnaðar- og orkumál. Davið Sch.
Thorsteinsson er vegna frammistöðu
sinnar síðustu ár sjálfkjörinn i þetta
starf. Hann veit hvar skórinn kreppir
og hefur kjark til að lagfæra vitleysur
siðustu ára.
Heilbrigðis- og félagsmál. Hilmar
Helgason i SÁÁ ereinhver eftirtektar-
verðasti maður sem fram hefur komið
siðustu ár. Það sem hann hefur gert
fýrir alkóhólista er með ólikindum.
Hann þorir og ekkert verkefni virðist
vefjast fyrir honum.
Dómsmálaráðherra. Páll S. Pálsson er
einhver harðasti málafylgjumaður
sem við eigum. Hann mundi ekki laka
á málunum með silkihönzkum heldur
stinga á kaunin. Hann þorir og fram-
kvæmir.
Viðskipta- og landbúnaðarmál. Þor-
varður Elíasson er maður sem hefur
það umfram aðra að hann ekki bara
veit hver vandamálin eru heldur
virðist hann einnig kunna svör við
þeim og er það meira en ónefndir
skussar hafa gert. Hann er ábyrgur
maður sem hiklaust á að leyfa að
spreyta sig.
Sjávarútvegsmál. Hér kemur enginn
til greina nema Pétur Sigurðsson. sjó-
Guðlaugur Þorvaldsson
maður. Enginn getur vænt hann um
kjarkleysi og hann mundi þora að
stjórna sókninni á miðin sem er lifs-
spursmál fyrir okkur i dag. Hann veit
líka hvar hjartað slær hjá sjómönnum.
Ég er sannfærður um að þessir
drengskaparmenn mundu leiða is-
lenzku þjóðina til sigurs og góðra
daga. sem hún á svo sannarlega skilið
eftir óendanlega hörmungarsögu
undanfarinna ára og jafnvel alda. Nú
er það ykkar að meta hvort þið komið
henni að.
Athugasemd DB: Ekki getur þetta
nú talizt hreinræktuð utanþingsstjórn.
A.m.k. vitum við ekki betur en Albert
Guðmundsson sé fyrsti þingmaður
Reykvikinga og þvi ekki liklegur til að
taka sæti í utanþingsstjórn.
Er filman
glötuð?
Hulda Grimsdóttir Borgarholtsbraut
5 Kópavogi hringdi.
Hún sagðist hafa sent filmur i fram-
köllun hjá Gíró-myndum um mánaða-
mótin mai-júní. „En þetta framköll-
unarfyrirtæki lofar sjö daga afgreiðslu-
fresti. Þegar þrjár vikur voru liðnar frá
því að ég sendi filmurnar i framköllun
hringdi ég til þeirra og þeir lofuðu að
athuga málið. Ég hringdi aftur og
aftur og fékk alltaf santa svarið. Þeir
ætluðu að athuga ntálið en siðan ekk-
ert meir. Loks núna fyrir rúmri viku
náði ég sambandi við einhvern yfir-
’ ntann þarna. Hann var alveg gáttaður
á þessu og sagði að sér þætti þetta
mjög leiðinlegt og lofaði að hringja i
mig strax daginn eftir. Ég hef ekkert
heyrt frá honum eða fyrirtækinu
siðan,” sagði Hulda og bætti því við að
sér væri kunnugt um að yfirleitt bættu
framköllunarfyrirtæki viðskiptavinin-
unt a.m.k. filmuna í slikum tilfellum.
Baddir
Hringið
í síma
27022
milli
kl. 13ogl5
MMM
ISiP
Tískusýningar
á hverjum degi
Sýningin er opin 11.-20. ÁGÚST
Virka daga kl. 14 - 23,
kl. 10 - 23 laugardaga og sunnudaga.
Landbúnaðarsýningin 1978
væri ekki fullkomin án
' ■ • . . ' -f ■
sérstakrar tískusýningar, sem
sýndi nýjustu tísku — unna úr
íslenskum ullarvörum.
Auk tískusýninganna verður
sérstök dagsskrá á hverjum degi,
meðýmsum atriðum bæði til
fræðslu og skemmtunar.
Sérstök barnagæsla fyrir yngstu börnin.
Komið á Selfoss — Komið á Landbúnaðarsýninguna 1978
Ævintýri fyrir alla f jölskylduna
Ertu ánægðlur)
með sýnínguna?
(Spurt á landbúnaðarsýningu)
Krístján Sigurðsson bóndi Höskulds-
stöðum Húnavatnssýslu: Já, ég er mjög
ánægður með það sem ég hef séð. Við
vorum einmitt að skoða búvélarnar. Við
brugðum okkur hingað suður í þeim til-
gangi að skoða sýninguna. Og það er
líka margt að skoða hér en svo tekur
maður líka heim með sér heilmikið af
bæklingum og athugar þetta betur í ró
og næði.
Steinar Krístjánsson vegavinnumaður:
Jú, ég er ánægður með það sem ég er
búinn að sjá. Þetta er vel upp sett og
skipulagið gott. Annars kom ég hingað
eiginlega bara af einskærri forvitni og
auðvitað með börnin, þau hafa mest
gaman af þessu.
Áslaug Sig. Guðjónsdóttir húsmóðir:
Mér finnst sýningin ágæt og mun viða-
meiri en ég hélt. Það er margt að sjá og
sýningin er yfirgripsmikil. Að sjálfsögðu
er þetta skemmtilegast fyrir börnin, þau
hafa svo gaman af að siá dérin.
Laufey Þorgeirsdóttir gagnfræðaskóla-
nemi: Jú, ég er ánægð með sýninguna.
Það er gaman að skoða dýrin, ég hef
aldrei verið i sveit, er úr Kópavoginum.
Víst væri gaman að eiga heima i sveit en
það fer nú samt eftir ýmsu hvort maður
vildi gerast bóndi.
Williard Ólason sjómaðun Ég er a.m.k.
ánægður með það sem ég er búinn að
sjá, annars er ég nýkominn hingað að
heiman úr Grindavikinni. Það er nú
fremur litill búskapur þarna á Suður-
nesjunum, þeir eru helzt með einhverjar
kinrlnr
Guðborg Hákonardóttir hárgreiðslu-
kona: Jú, ég held það. Þetta er þó mest
gaman fyrir börnin, þau hafa svogaman
af því aö fá að heilsa upp á dýrin. Stóri
og litli hesturinn vöktu sérstaklega
kátínu þeirra.