Dagblaðið - 19.08.1978, Page 15

Dagblaðið - 19.08.1978, Page 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1978. 15 Kate Bush ein bjartasta von Breta Brezka söngkonan Kate Bush virðist eftir öllum sólarmerkjum að dæma búin að gulltryggja vinsældir sinar i næstu framtið. Hún hefur það sem af er þessu ári komið tveimur lögurn i efstu sæti vinsælda- lista viða um heim og auk þess selst fyrsta breiðskífan hennar. The Kick Inside, mjög vel. Kate Bush er aðeins nítján ára gömul. Hún var ellefu ára þegar hún hóf að dútla við að setja saman lög við pianóið heima hjá sér. Bræður hennar fengust við að syngja enska og irska tónlist í þjóðlagahljómsveit sem þeir störfuðu i og vildi litla systir ekki vera eftirbátur þeirra Kate tók brátt að skemmta opinber- lega á minniháttar samkomum og það var á einni slíkri. sem Ðave Gilmour gitarleikari Pink Floyd heyrði í henni. Hann varð ákaflega hrifinn og hjálpaði Kate að gera prufuupptökur á nokkrum af lögum hennar. Siðan kontu þau upptökunum á framfæri hjá EMI. Er þetta gerðist var Kate Bush um það bil sextán ára gömul. Umsvifalaust var gerður við hana útgáfusamningur en hún jafnframt „geymd” i nokkur ár á meðan hún var að þroskast meira. Þennan tima notaði Kate til að semja lög og sækja tima i dansi og látbragðsleik. Það var seint í vetur sem lagið Wuthering Heights kom út. Það ber sama nafn og skáldsaga Emely Bronte og er samið undir áhrifum frá henni. Öllum bar saman um að Wuthering Heights væri sérlega skrýtið lag en mjög gott. Rödd Katie í laginu er ákaflega há og með austurlenzkum blæ. Lagið Man With The Child In His Eyes kom siðan út í sumar og hlaut litlu minni vinsældir en Wuthering Heights. Það var Kate Bush ákaf- lega mikill léttir að þetta lag skyldi hljóta hljómgrunn hjá hlustendum þvi hún var dauðhrædd um að eiga eftir að staðna með háu. austur- lenzku röddina. Það verður að teljast dágóður Kate Bush tók nýlega þátt 1 söngrakeppni i Japan og hlaut þar silfurverðlaun. Hér er hún á blaðamannafundi (heldur á mikrófóninum) ásamt sigurvegaranum, Debbie Boone frá Bandarikjunum, sem situr henni til vinstri handar. árangur á innan við ári að koma tveimur litlum plötum og einni stórri á topp vinsældalistanna. Reyndar er enn eftir að sigra Ameríku og í því augnamiði var Kate Bush nýlega á ferðalagi þar. Árangur þeirrar ferðar er enn ekki kominn í ljós. Hitt er víst að við eiguni eftir að heyra meira frá þessari nitján ára gömlu læknis- dóttur frá Englandi og það áður en langt um liður. ÁT Ég sá manninn minn breytast í skriðdýr” - John Lennon reyndi að fá stöðvaða birtingu kafla úrævisögu fyrrverandi eiginkonu sinnar Don Henley og Joe Walsh ásamt nýja manninum, Timothy Schmit (lengst til hægrí). Hann var áður I hljómsveitinni Poco. Næsta Eaglesplata verður tvöfóld Ákaflega litið hefur frétzt frá hljómsveitinni Eagles allt siðan siðasta platan. Hotel California, kom útifyrra. Nú hefur það þó upplýstst að næsta LP platan. sú sjötta í röðinni. verði tvöföld og komi út ein- hvern tima fyrir jólin. Eagles hafa á undanförnum mán- uðum unnið við gerð þessarar nýju plötu. en eru nú komnir i frí fram i sepiember. Ekki eru þeir þó með öllu aðgerðalausir. þvi að nú stendur yfir hljómleikaferð um Bandarikin og Kanada. Þá er jafnframt þess að geta að Randy Meisner er hættur í hljóm sveitinni. I hans stað kom Timothy Schmit fyrrum félagi i hljómsveitinni Poco. ÚrMELODY MAKER John Lennon tapaði nýlega máli, sent hann höfðaði í Englandi til að stöðva birtingu valdra kafla úr sjálfs- ævisögu Cynthiu fyrrverandi eigin- konu hans. Bókin nefnist (Twist of Lennon (eftirnafn núverandi eigin- manns hennarereinmitt Twist). Eftir að tveir kaflar úr bók C'ynthiu höfðu birzt i vikublaðinu News Of The World hóf Lennon aðgerðir sinar, sem báru engan árangur. Meðal setninga í fyrsta kaflanum voru þessar: „Ég sá manninn sem ég elskaði breytast í skriðdýr." og „Ég kenndi LSD neytendunum um hvernig fór. Það voru þeir sem eyðilögðu hljóm- sveitina og hjónaband mitt." Lennon varstaddur í Japan ásamt konu sinni Yoko Ono, er hann höfðaði málið. — Yoko er lýst sem versta varmenni i ævisögu Cynthiu. — Lögfræðingur Lennon sagði um málið: „Hann neitar ekki að hafa haldið partý og neytt eiturlyfja. Hann harmar að opinberuð skuli smáatriði úr hjónabandi sínu og Cynthiu.” í dóntsorðinu. þar sem máls- höfðun Lennons er hafnað. segir rueðal annars að árið 1968 hafi Lennon sjálfur látið hafa ýmislegt eftir sér um hjónaband sitt i viðtólum. Þannig hafi hann í rauninni .orðið fyrstur til að fjalla opinbcrlega um það og sé ekki ástæða til að stóðva eiginkonu hans fyrrverandi i sania verknaði. Úr ROLLING STONE Jnhn og Cynthia Lennon ásamt Julian syni þeirra og heimilishundi. Þau giftu sig þegar hún var átján og hann sautján. í hjónabandi þeirra gekk á ýmsu en út yfir allan þjófabálk tók þó þegar hann birtist einn dag með Yoko Ono og sendi Cynthiu i ferðalag til ítaliu með einkaspæjara á hxlunum. Ljóskastarastæða gerði næstum út af við trommuleikara BTO. Sáralitlu munaði að dagar Robbie Bachman, trommuleikara Bachman- Turner Overdrive. væru taldir. er hljómsveitin lék á útihljómleikum i Nebraska á dögunum. Í ntiðju kafi gekk hvirfilvindur yfir hljómleika- svæðið og sleit vir. sem hélt uppi risastórri stæðu af Ijóskösturum. „Robbie varð snöggvast litið upp i loftið og hann sá hvað verða vildi." sagði lögfræðingur BTO, Jay Bergen. stuttu eftir að atburðurinn varð. „Hann stökk þegar i stað upp frá trommusettinu og henti sér fram af sviðinu. Sckúndu siðar lcnti kastarastæðan og mölbraut trommu- settið.” Að sögn lögfræðingsins. sent varð sjónarvottur að slysinu. vildi Robbie Bachman sem minnst um það segja. „Taugar hans eru i einum hnút.”

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.