Dagblaðið - 23.10.1978, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 23.10.1978, Blaðsíða 1
4. ÁRG. - MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1978 - 235. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11. — AÐALSÍMI 27022. iru komin til landsins ívor: Senaútaftur á meðan kerfið tris og Gunnar Þór — fórnarlömb kerfisins. DB-mynd þrefaði um málið — ráðuneytin kasta málinu á milli sín á meðan t. d. Danir tolla ekki slík tæki af mannúðarástæðum „Heyrnartækin voru komin til landsins í vor, en vegna þófs í kerfinu um greiðslur sendu tollayfirvöld þau aftur til framleiðanda þótt óskað hafi verið sérstaklega eftir að slíkt yrði ekki gert að svo stöddu,” sagði Birgir Ás Guðmundsson, forstöðumaður heyrnardeildar Heilsuverndarstöðvar- innar I viðtali við DB í morgun er hann var spurður nánar um mála- rekstur \egna heyrnartækja handa sex ára dreng, sem skýrt var frá I laugar- dagsblaðinu. í fyrra hófst málið með þvi að haft var samband við Tryggingastofnun ríkisins, sem taldi af og frá að greiða slíkt fyrir börn á skólaaldri. Þá var haft samband við menntamálaráðu- neytið og taldi sérkennslufulltrúi þar þetta vera mál Tryggingastofnunar- innar. Þar sem tækin voru komin I sumar en óljóst með hvaða hætti þau yrðu leyst út, var fjármálaráðuneytinu skrifað bréf og óskað eftir fyrir- greiðslu. Ekki var málinu tekiö þar illa í fyrstu, en í sept. sl. ritaði ráðuneytið til baka tilkynningu um tolla.lækkun- ina á tækjunum. Áður hafði ménnta- málaráðuneytið talið koma til greina að greiða hámark helming tækjanna. Birgir tók fram að tryggingalæknir hafi ávallt sýnt þessu máli jákvæða af- stöðu, en greinilegt væri að hann hefði ekki frjálsar hendur um lausn þess. Það nýjasta í málinu er að trygg- ingaráðuneytinu var ritað bréf fyrir viku siðan og hefur ekki enn frétzt af viðbrögðum viö því. Það skal tekið hér fram að heyrnardeild Heilsuvemdar- stöðvarinnar hefur ekkert fjármagn til slíkra tækjakaupa. Að lokum má geta þess að t.d. Danir tolla slík tæki ekki, af mannúðarástæðum. - G.S. „Lady” er fegursti hundur íslands Hér er Lady sem dæmd var fegursti hundur tslands á hunda- sýningunni í Garðabæ á sunnudaginn. Aðaldómarinn var enskur sérfræðingur. Eigandi Lady er Jón Sigurðsson. DB-mynd Helgi Garðarsson. Sjá bls. 5. ANDRIHEIÐ- BERG LÁTINN . Hinn landskunni þyrluflug- maður og kafari, Andri Heiðberg, varð bráðkvaddur á heimili sinu siðastliðinn laugardagsmorgun. Andri var 48 ára gamall. Þingmenn fái ekki laun fyrir önnur störf en þingstörf — Sjábls.6 V___ Dönsuðu i þrettan tima samfleytt Það er ekki öllum gefið að halda út þrettán klukkustunda langan dans. Það tókst þó átta pörum, sem tóku fyrsta sporið laust fyrir klukkan tólf i gærdag og hættu ekki fyrr en eitt eftir miðnætti síðustu nótt. Það var veit- ingahúsið Klúbburinn sem stóð að þessari maraþondanskeppni. Á meðan hún stóð yfir var opið hús fyrir alla, sem vildu fylgjast með keppninni. AIIs komu um þrjú þúsund manns og litu á dýrðina. Sigurvegarar keppninnar urðu að mati dómnefndar þau Ragna Sigur- steinsdóttir og Hjalti Jensson. Sjö pör til viðbótar héldu þrettán tímana út, sem er afrek út af fyrir sig. — Þá má geta þess að Vilhjálmur Ástráðsson, sem stjórnaði tónlistinni, stóð alla þrettán klukkutímana í búri sínu. Það er væntanlega met hér á landi. — Myndin er af sigurvegurunum, eftir að úrslitin höfðu verið tilkynnt. - ÁT/DB-mynd Ragnar Th. Sig. — Sjá nánarábls.7 Magnús H. Magnús- son ráðherra: „Þetta er mjög sorg. legt slys” -hyggst þegarbeita sérfyrir úrbótum „Mér finnst þetta mjög sorglegt slys, annað orð er ekki til yfir það, og mun ég þegar gera það sem ég get til að bæta þarna úr,” sagði Magnús Magnússon tryggingaráð- herra i viðtali við DB í morgun. Hann svaraði þessu til er saga litils drengs er ekki fær viðeigandi heyrnartæki, m.a. vegna lúxus- tolla, var rakin fyrir honum. Fyrir nokkrum dögum ritaði heyrnardeild Heilsuverndar- stöðvarinnar ráðuneytinu bréf, en Magnús hafði ekki séð það enn. Sagðist hann strax ætla að kanna málið til hlitar. . G.S. Hálkan olli fáum óhöppum Allt söltunarverk gatnakerfis höfuðborgarinnar var sett í gang í nótt er vetur heilsaði borgarbúum á fyrsta vinnudegi vetrarins. Víða var glæra á götum og hált, en þó sennilega hvergi eins og verst getur orðið. En eins og oft áður fóru öku- menn sér varlega I fyrstu hálkunni. Ekki urðu nema 5 árekstrar og umferðaróhöpp frá kl. 6 til kl. 9 í Reykjavík. í Hafnarfirði fór bíll er kom úr Lækjargötu út á Reykjavíkurveg á staur og tveir menn voru fluttir i slysadeild. Annar var skorinn á hendi en hinn kvartaði um eymsli i baki og brjósti. í Kópavogi varð einn árekstur — án meiðsla. Nú er bara að menn haldi vöku sinni. Oft hefur það viljað brenna við að vari hálkan eitthvað bjóði menn öllum hættum byrginn án þess að hugsa um afleiðingarnar.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.