Dagblaðið - 23.10.1978, Page 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1978.
15'
\
List og last
um brosið
fræga
Það hefur ætíð verið óútskýranlegt
hvers vegna sum listaverk virðast búa
yfir meira seiðmagni en önnur.
Kannski veltur þetta á hæfileikum
listamannsins til að búa til tviræð eða
margræð verk sem ekki láta uppi
afdráttarlausa skoðun eða viðhorf. Allt
um það verða sum verk að óræðum
táknmyndum sem hver og einn túlkar
eftir sinu höfði — þetta verða
„vinsæl” verk og umtöluð. Af þessu
leiðir að þjófar girnast þau sem
verðmæti og ofstækisfólk gerir að
þeim atlögur til að vekja athygli á
einhverjum málstað.
Eitt af þessum seiðmögnuðu verkum
er Móna Lisa eftir Leonardo da Vinci
sem máluð var i Flórensborg um 1504.
Er Leonardo hélt til Frakklands á efri
árum tók hann þessa mynd með sér og
þvi er hún nú í Louvre-safninu I París.
Tilurð myndarinnar hefur verið
mönnum ráðgáta síðan og aukið á
orðstír hennar. Hvers vegna tók
Leonardo, sem ekki málaði nema ca
20—30 olíumálverk um dagana og var
umsetinn af höfðingjum, upp á því að
mála óþekkta eiginkonu kaupmanns i
Flórens? Og hvers vegna brosir konan
svona?
Um þetta hafa fræðimenn,
rithöfundar og ýmiss konar leikmenn
rætt allt frá þvi Leonardo lauk mynd-
inni fyrir 474 árum en fyrirferðarmest
hefur þessi umræða verið á þessari öld.
Blekbændur hafa búið sér til skáld-
sögur kringum Mónu Lisu, kvik-
myndaleikstjórar hafa gert myndir um
hana, ljóðskáld hafa ort Ijóð til
hennar, tónskáld hafa vitnað i hana,
auglýsendur hafa spilað á töfra hennar
og myndlistarmenn hafa bókstaflega
verið með hana á heilanum.
Tilbrigði
Fyrir þremur vikum var sett upp
mikil sýning i Wilhelm-Lehmbruck
listasafninu í Duisburg í V-Þýskalandi
á útsetningum og tilbrigðum mynd-
listarmanna á 20stu öld um Mónu
Lísu. Var undirritaður svo heppinn
að hitta á opnun þessarar sýningar.
Það er næsta ótrúlegt hve margir
þekktir listamenn hafa lagt þar orð i
belg. Einna frægust þessara „Mónu-
mynda” og jafnframt ein fyrsta mynd
sinnar tegundar á öldinni er að sjálf-
sögðu póstkort Marcels Duchamp af
Mónu með yfirskegg og hökutopp,
með undirskriftinni „L.H.O.O.Q” sem
mun vera fónetískt letur fyrir „Henni
er heitt i brókum”. Aörir listamenn
sem koma við sögu eru m.a. Arakawa,
Erró, Filliou Johns, Léger, Malvitsch,
Dali, Rotella, Spoerri, og Rauscen-
berg. Afstaða listamannanna er tals-
vert mismunandi. Sumir hylla Mónu I
ljóðrænum fantasium, aðrir gera gys
að henni og þeim trúarbrögðum sem
myndast hafa í kringum hana og enn
aðrir reyna að finna leyndardóminn i
brosi hennar.
Tónlistog
kvikmyndir
1 sambandi við þessa sýningu var
gerð mikil leit i námunda við Duisburg
að stúlku sem liktist Mónu Lísu og
fannst loks ein sem ekki var fjarri lagi
og var hún máluð af þekktum lista-
Bls. 133 — Sigarettuauglýsing
manni þar i bæ. Ekki fannst mér hún
sláandi lík, en nóg um það. Einnig var
sýnd notkun auglýsingaiðnaðarins á
töfrum Mónu Lísú og tekinn var
saman listi yfir allar þær hljómplötur
og kvikmyndir þar sem Móna Lísa
kemur á einhvern hátt við sögu. Þegar
þeirri statístík er flett, kemur ýmislegt
skemmtilegt í ljós. Alls virðast 39
dægurlagasöngvarar og hljómsveitir
um allan heim hafa minnst á Mónu
Lísu í lögum sínum, en frægast þeirra
er án efa „Mona Lisa” eftir þá Jay
Livingston og Ray Evans sem Nat
King Cing Cole söng svo yndislega.
Frá Dylan
til Eisensteins
En meðal annarra skemmtikrafta
sem sungið hafa um Mónu Lisu eru
Hank Ballard, Pat Boone, Bob Dylan
(I „Visions of Johanna”), Duane Eddy,
Elton John, Mantovani, Gisela May,
Chris Montez, Donny Osmond, Demis
Roussos, Roxy Music, Smokie,
Conway Twitty og Billy Vaughn. Eftir
því sem aðstendendur þessarar
sýningar segja virðast 'um 20 kvik-
myndir og sjónvarpsmyndir á þessari
öld minnast á Mónu Lísu eða fjalla
beinlínis um hana. Hún mun koma
fyrir i stuttri mynd Eisensteins,”
Gamalt og nýtt,” frá 1926—29 og þá
sem tákn fyrir hnignun. Philippe de
Broca gerði myndina „Monsieur de
Compagnie” með Catherine Deneuve
árið 1964 þar sem Móna Lísa kemur
fyrir, John Houston minnist á hana í
„Moulin Rouge” frá 1952 og ótal
aðrar litt þekktar kvikmyndir mætti
nefna um ævi hennar, stuld hennar
1911 o.fl. Og enn yrkja menn, hugsa,
teikna, kvikmynda og syngja um
Mónu Lísu. Sýningin í Duisburg
stendur til 3. desember og verður
enginn svikinn af henni.
Bls. 127 — Úr timaritinu „Lui”, okt. 1977
Timm Ulrichs
1x klingeln
Mona Lisa
2x klingeln
Bls. 284 — Timm Ulrichs — M6na
Lisa 423,5 km.
Bls. 56 Marcel Duchamp — L.H.O.O.Q. 1919 og Marvin Lazarus — Duchamp sem Móna Lisa, 1963.
Húsgagnavika
20-29 október
GLÆSILEG SYNING
ÍÁG HÚSÍNU,
ÁRTÚNSHÖFÐA
Skoóið nýjungar innlendra framleióenda:
húsgögn, áklœói og innréttingar.
Opió virka daga kl. 17 — 22
Laugardaga og sunnudaga kl. 14—22
argus