Dagblaðið - 27.10.1978, Side 4

Dagblaðið - 27.10.1978, Side 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1978. DB á neytendamarkaði Hvað kostar að reka f jölskylduna?_ virðist heppilegasta stærð fjölskyldunnar —en tveir sú óheppilegasta Lokið hefur verið við að reikna út meðaltalskostnað þeirra sem sendu upplýsingaseðla inn fyrir september- mánuð. Að [tessu sinni reyndist ódýrasta fjölskyldan fimm manna fjölskylda í Garðinum, með meðalkostnað upp á 9.139 kr. á mann yfir mánuðinn (sjá viðtal). Dýrasta fjölskyldan var tveggja manna fjölskylda í Reykjavik með rúmlega 40 þúsund kr. kostnað á mann. Okkur bárust margir seðlar eins og áður og ekki sakar að geta þess að þeir koma víðs vegar að af landinu, eða frá tuttugu og sjö stöðum á landinu. Mannfæsta fjölskyldan taldi einn en sú mannflesta átta. Lítum nú nánar á hverja fjölskyldustærð út af fyrir sig. Eins manns Eins manns „fjölskyldan” er búsett í Reykjavík og notaði 18.045 kr. til kaupa á mat og hreinlætisvörum í septembermánuði. Tveggja manna Meðalkostnaður tveggja manna fjölskyldnanna var 26.294. Hæsta var með 40.506 kr. meðalkostnað og er sú fjölskylda langhæst, búsett i Reykja- vík. Ódýrasta tveggja manna heimilið er í Hveragerði með 18.495 kr. Þriggja manna Hjá þriggja manna fjölskyldunum reyndist kostnaður ívið minni. Hann var 17.927 á mann. Hæst var fjölskylda I Vogum með 33.114 kr., en lægst fjölskylda á Hellu á Rangarvöll- um með 17.924 kr. Fjögurra manna Mun hagkvæmara virðist vera að reka fjögurra manna fjölskyldu en þriggja, því þar reyndist meðal- kostnaðurinn 23.651 kr. Hæst var fjöl- skylda I Þorlákshöfn með 31.265 kr.,en lægst var fjölskylda á Egils- stöðum með 9.727 kr., sem var reynd- ar næstlægsti seðillinn sem okkur barst. Fyrsti vinningshafinn okkar, sem dreginn var út úr júlíseðlunum, var einmitt frá Egilsstöðum. — Vinningshafinn að þessu sinni var með fjögurra manna fjölskyldu, úr Mosfellssveit. Fimm manna Það virðist heppileg fjölskyldustærð þvi meðaltalskostnaðurinn kemur vel út. Meðalkostnaðurinn reyndist 21.496 kr. — 1 þessari fjölskyldustærð reyndist langlægsti seðillinn, 9.139 kr. úr Garði (sjá viðtal). Sá hæsti var nokkuð mikið hærri eða rúml. 20 þús. kr., var hann upp á 29.848 og tilheyrði fjölskyldu á Bíldudal. Sex manna Kostnaðurinn hjá sex manna fjölskyldunum var ivið hærri eða 22.028 kr. á mann. Sú hæsta var með 30.884 kr., búsett i Kópavogi en sú lægsta var með 15.191 kr. og búsett I Reykjavík. Sjö manna Sjö manna fjölskyldan var fáeinum hundruð krónum yfir þeirri sex manna eða með 22,320 kr. i meðaltals- kostnað. Hæst var Reykjavikur- fjölskylda með 26.818 kr. Það var einnig Reykjavikurfjölskylda sem var með lægstan kostnaðeða 17.500 kr. Átta manna Stærstu fjölskyldurnar er sendu inn seðil að þessu sinni voru átta manna, en þær voru aðeins tvær. Sú hærri var meö 21.650 kr. meðalútgjöld og var hún úr Reykjavik. Sú lægri var úr Kópavogi með 16.584 kr. Sendið tímanlega inn seðlana Nú geta menn borið saman sín eigin útgjöld við meðalútgjöld fjöl- skyldnanna sem komu með i út- reikninginn okkar. Við viljum þakka þeim sem gerðu sér það ómak að senda okkur seðlana. Við minnum á að til mikils er að vinna, því mánaðarlega drögum við út vinning sem er meðaltal mánaðarútgjalda þeirrar fjölskyldu- stærðar sem vinnur. Loks viljum við einnig hvetja sem allra flesta til þess að vera með — og senda inn október seðilinn sem allra fyrst. Því miður koma alltaf nokkrir seðlar of seint — og eru þvi ekki með I útreikningum okkar, — þótt þeir séu með í pottinum þegar dregið er. •A.Bj. ?' Foreldrar með þrjú börn, — það virðist vera hin æskilega fjölskyldustærð hvað heimilisútgjöldin varðar. Það er sú fjölskyldustærð sem kemur bezt út i heimilis- reikningunum I septembermánuði. Karlmenn geta líka verið hagsýnir: Eiginmaðurinn sér um innkaupin — Spjallað við eina af sparsömustu húsmæðrum landsins ,Ef heimilisreikningur minn hefur komið vel út miðaö við aðra seðla vil ég þakka það þvi að við erum fiskætur,” sagði Helga Jóhanna Þor- steinsdóttir húsmóðir I Garðinum I samtali við DB. Helga Jóhanna var með meðaleyðsluna 9.139 kr. á mann, en fimm eru í fjölskyldunni, eigin- maðurinn, Þórður Guðmundsson og þrjú börn á aldrinum sjö til nitján ára. — Meðaleyðsla innsendra upplýsinga- seðla hjá fimm manna fjölskyldu var ■ 21.046 kr. — Helga Jóhanna var með lægstan kostnað við heimilishald á mann af öllum innsendum seðlum. — Við ræddum við þessa sparsömu hús- móður til þess að reyna að komast að raun um hvernig hún færi að þessu. „Það verður auðvitað að taka fram að við fáum oft gefinn fisk í soðið og upp.staðan i okkar máltiðum er fiskur kartöflur. — Það er hægt að mat- reiða fisk á svo marga skemmtilega vegu. — Svo nota ég mikið pakka- súpurnar, en drýgi þær með þvi að baka súpuduftið upp meö svolitlu hveiti og þynni svo með vatninu sem á að fara I súpuna. Þannig fæst mjög saðsöm súpa, sem er prýðisgóð sem aðaluppistaðan í máltið ásamt smurðu brauði. — En aðallega borðum við fisk, eins og áður sagði. Okkur þykir síldin góð og reynum að hafa hana eins oft á borðum og nokkur leið er að útvega hana. Þá bý ég til bollur og mér finnst gott að blanda einhverju saman við síldarbollumar, annaðhvort einhverjum kjöt- eða fiskafgöngum eða mörðum köldum kartöflum. Mér finnst afleitt að ekki skuli vera hægt að kenna íslenzkum neytendum að borða sild, þetta er alveg dásam- legur matur og mjög næringarrikur. Það er bara svo erfitt að fá síldina, hún fæst yfirleitt ekki I búðum. Það hefur heldur aldrei verið fúlsað við hafragraut og slátri á mínu heimili. Það þykir kannske undarlegt, en ég þykist hafa komizt að raun um að það sé miklu dýrara að baka sjálfur heldur en að kaupa með kaffinu I bakaríum. Ég hef því gert það — þegar ég hef boðið upp á eitthvað slikt með kaffi. Loks sakar ekki að geta þess að það er eiginmaðurinn sem sér um innkaupin. Þeir geta oft verið skynsamari í innkaupum en margur heldur, blessaðir karlarnir,” sagði Helga Jóhanna. — Eruð þið dugleg að skrifa niður á veggspjaldið góða frá Vikunni og Dag- blaðinu? „Já, við gerum það alltaf. Ég hef heyrt fólk segja að það kæri sig ekki um að hafa þetta spjald hangandi á eldhúsveggnum. Mér finnst það líka alveg óþarfi og geymi það niðri I skúffu, en nota það samt alltaf,” sagði ein af sparsömustu húsmæðrum landsins, sem búsett er i Garðinum. -A.Bj. ívandræðum með afgangana? Rúgbrauðið ígómsæta brauðsúpu Neyzla á grófum brauðum hefur verið brýnd fyrir almenningi á undan- förnum árum. Hefur neyzla á þeim stóraukizt og er það vel. Stundum vilja verða afgangar af brauðinu og rúgbrauð og maltbrauð er af ganga er hægt að nýta með mjög góðu móti I brauðsúpu. Brauðsúpa er hollur matur og saðsamur og getur verið sem aðal- uppistaða i máltiðinni þann daginn. — 1 dag skulum við borða brauðsúpu: Rúgbrauðsafgangur (ca 300 g) 3/41 vatn um75g sykur rúsínur, ca 1 bolli saft — rabarbara-, rifs- eða berjasaft. Brauðið er skorið I smábita og látið liggja I bleyti í nokkra klukkutíma. Það er síðan soðið í vatninu og marið í gegnum sigti. Síðan eru sykurinn, saftin og rúsínurnar látin út í súpuna og hún soðin við vægan hita, þar til rúsinurnar eru orðnar soðnar. — Súpan er borin fram með þeyttum rjóma. Ef, við reiknum með að nota brauðafgang í súpuna kostar hver skammtur af henni ekki ýkja mikið. Svo sem ekki heldur þótt við kaupum brauðið sérstaklega fyrir súpugerðina. Okkur telst til að brauðsúpa fyrir fjóra kosti um 90 kr. fyrir utan rjómann. Ef notaður er þeyttur rjómi (1 peli) kost- ar hann 232 kr, en ef nota á óþreyttan rjóma út á er hægt að nota kaffirjóma og pelinn af honum kostar aðeins 128 kr. Súpan með þeyttum rjóma kostar því 322 kr., eða um 80 kr. á mann, en með óþeyttum rjómanum 218 kr. eða um 55 kr. á mann. -A.Bj.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.