Dagblaðið - 27.10.1978, Síða 11

Dagblaðið - 27.10.1978, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1978. 11 \ nefnd hefur verið Evrópukommún- ismi. Bættist það þá við áfallið, sem varð ljóst eftir marzkosningarnar, þegar leiðir franskra sósíalista og kommúnista skildu í það minnsta um sinn. Vinstri flokkarnir og þar með taldir kommúnistaflokkarnir í Frakk- landi, á Ítalíu og Spáni hafa aldrei getað komið sér saman um mjög mörg mikilvæg mál. Aftur á móti virtist svo um nokkurt árabil — um það bil tvö ár — að stefnumál þeirra nálguðust mjög og svo virtist sem velgengni í kosning- um mundi færa flokkana nær hver öðrum jafnframt sem staða þeirra gagnvart Moskvuvaldinu styrktist. Þessi þróun mála var litin illu auga i Moskvu. Nú eftir að franski komm- únistaflokkurinn og einnig að nokkru leyti bræðraflokkarnir á Ítalíu og Spáni, eru uppteknir við innanflokks- deilur hafa þeir eins og áður sagði fjar- lægzt aftur samvinnustefnu Evrópu- kommúnismans. Hafa leiðtogarnir í Moskvu lýst ánægju sinni með þá þróun og samfagnað hinum vestur- evrópsku félögum sinum. En franskir kommúnistar eru margir hverjir hundóánægðir með þessa þróun mála. Er þá ekki eingöngu um að ræða þá, sem stefna vilja í meiri frjálslyndisátt og nálgast stefnumörk sósialistanna. Nýlega var birt bréf frá einum flokksmanni i dagblaðinu Le Monde. Var þar um að ræða stjórnar- mann í unghreyfingu kommúnista- flokksins og ritstjóra vikulegs menn- ingarrits flokksins „Nýtt Frakkland”. í bréfinu segist hann ætla að hætta störfum fyrir kommúnistaflokkinn því flokkurinn hafi bæði misst sjónar á hlutverki sínu og tapað hæfileikanum til að læra af reynslunni. Þarna var ekki á ferðinni frjálslyndur maður heldur flokksfélagi, sem gekk úr flokknum vegna þess að hann álítur kommúnistaflokkinn ekki stefna nóg til vinstri. Kommúnistaflokkur Frakk- lands á þvi greinilega við margs konar erfiðleika að glima. Flokkurinn hefur ávallt síðan í stúd- entauppreisninni árið 1968 verið mjög viðkvæmur fyrir allri gagnrýni frá vinstri vængnum. 1968 tóku alls konar vinstri sinnaðir hópar — sumir hreinir stjórnleysingjar — allt frum- kvæði af kommúnistaflokknum og í óeirðum sem urðu í Frakklandi aðal- lega í Paris varð mörgum ljóst að kommúnistaflokkurinn eða i það minnsta foringjar hans voru jafnvel enn hræddari við afleiðingar þeirrar óstjórnar, sem hefði getað leitt af at- burðum þá. Þeir hafa meira að segja gagnrýnt félagana á Italíu fyrir að stefna um of inn að miðju i itölskum stjórnmálum og á þann hátt opnað leiðir til fylgisaukningar Rauðu her- deildanna og annarra öfgahópa. Stjórnarmaðurinn í ungliðahreyf- ingu kommúnistanna og ritstjórinn var mjög beizkur i umsögn sinni um stefnu flokksins á síðustu árum. Sagði hann að síðan á sjöunda áratugnum hefði franski kommúnistaflokkurinn byggt stefnu sína á því, að styrkur og stöðugleiki sovézka kommúnista- flokksins væri viss trygging fyrir Evrópukommúnista. Meðal annars væri ljóst, að ef kommúnistar og fylgismenn þeirra kæmust til valda í kosningum, til dæmis í Frakklandi, þá mundu þeir halda völdum sínum i skjóli áhrifavalds stófveldisins í austri. Þetta segir hinn ungi gagnrýnandi, að sé hin mesta firra. Nú sé öllum sem vilja vita orðið ljóst að Bresnev forseti Sovétríkjanna og félagar hafi á flestu meiri vilja en að koma kommúnisma á í Vestur-Evrópu. Þeir séu í óðaönn að drepa allt sem heitið geti kommúnismi í Sovétríkjunum. Hann réðst harðlega gegn Sovétmönnum fyrir að standa nú fyrir mestu gyðingaofsóknum siðan Hitler leið. Einnig er bent á, að nokkuð lang- sótt sé fyrir franska kommúnista- flokkinn að berjast fyrir því að stjórn kommúnistaflokksins í Chile verði leyst úr haldi en á sama tíma að gleyma algjörlega Dubcek hinum tékkneska félaga sinum sem stóð fyrir „vorinu” í Prag árið 1968. TEKJUSKATTUR, TEKJUÖFLUN, TILBERASMJÖR Það þykir orðið sjálfsagður hlutur að bera fram tillögur um afnám tekju- skatts. Árviss viðburður á Alþingi. Ársfjórðungslega a.m.k. grein í blaði Alþýðuflokksins um réttmæti þess að afnema tekjuskatt. Kannske sama dag talað um þörf fyrir launajöfnuð. Ekki skortir okkur þversagnir. Okkur finnst sumum einfaldara að hafa persónufrá- dráttinn miðaðan við eðlilegan fram- færslueyri og halda tekjuskattinum. Hvers vegna? Vegna þess að við vitum ofurvel að framlag okkar til opinberra þarfa, svonefndrar samneyslu, er sjálf- sagður þáttur í nútímaþjóðfélagi. Við vitum að óbeinu skattarnir koma þyngra niður á lágtekjufólki og inn- heimta þeirra er sífellt tortryggð; að hvaða leyti er það betri eða hentugri innheimtuaðgerð? Hvar var starfandi starfshópur um skattamál innan Alþýðuflokksins t.d. í Reykjavík? Er það ekki óþolandi gamaldags vinnuaðferð að foringjar segi fyrir um stefnuna, án samráðs við flokksbundna kjósendur a.m.k.? Ekki bólar á tillögu um að afnema útsvör, sem eru auðvitað tekjuskattur. Þykir ekki ósanngjarnt eða hvað að fólk greiði til síns sveitarfélags? Er rikið eitthvað réttlægra i þessu tilliti eða hefur það sérstöðu? Sést hefur og heyrst tillaga um brúttóskatt af tekj- um til ríkisins. Er það ekki girnileg leið fyrir þá sem telja að menn eigi ekki að greiða eftir efnum og ástæðum? T n Kjallarinn Guðjón B. Baldvinsson beita má þeirri álagningaraðferð einnig á þann veg. Það fylgir ekki tillögum um afnám tekjuskatts að draga eigi úr innheimtu rikisins, enda mun það óraunhæft, miðað við kröfur fólksins og allt það fjármálamöndl sem löggjafinn fæst við vegna óhagkvæmrar afkomu atvinnu- veganna. Hvað mælir með því að orðið tekjuskattur hverfi úr fjárlaga- frumvarpinu, en i staðinn komi orðið virðisaukaskattur eða verðbólgutillag til ríkisins eða eitthvað álíka? Er það siðferðilega rangt að gjald- andi viti af því að hann leggur af mörkum til samneyslunnár? Ég hygg að svo sé alls ekki, en hitt veit ég að það er hægara að villa um í pólitiskum umræðum um tekjuöflun ef óbeinn skattur kemur í stað hins bcina — tekjuskattsins. í fljótu bragði virðist afnáms- tillaga um tekjuskatt bara vera froðusnakk, hreint tilberasmjör, auð- vitað borið á borð i blekkingaskyni, því að það hverfur fljótt vegna þess að pyngja skattþegna þyngist ekki. Há- tekjumenn mega greiða tekjuskatt. Láglaunafólki á að sleppa með því að hafa eðlilegar frádráttarupphæðir miðað við framfærslu. Hiklaust er rétt að um leið og vara er keypt, sýni kassakvittun hvaða upp- hæð 1 formi sölugjalds eða annarra sllkra gjalda er ríkisfé. Þannig verður þegninn vitandi um framlag sitt og hefur þá tækifæri til að beita sér vak- andi í sinum flokki fyrir þvi hvernig þessu fé er varið. Það sem skiptir öllu máli er til hvers féð er notað, og um það á ekki að vera neinn feluleikur, miklu fremur upplýsingastreymi. Hvemig væri að ræða stóru málin í starfshópum innan flokkanna? Guðjón B. Baldvinsson deildarstjóri. Stjómarandstaða með tilbrigðum En hér á landi, gagnstætt öðrum vestrænum löndum, hafa kommún- istar náð að koma þvi inn hjá fólki, að „skipulagning” sé bezta ráðið til þess að ná framförum í efnahagslegu tilliti. Ekkert er jafn fjarstæðukennt. Fram- farir verða sjaldan fyrir tilstuðlan skipulagningar, nema í einræðisríkj- um, þar sem almenn velmegun er metin til jafns við tölustafinn núll. Framfarir verða aldrei, nema skilyrði séu sköpuð fyrir framfarir. „Við verðum að skapa skilyrði fyrir fram- farir, fremur en að „skipuleggja” fram- farir” var sagt af einum merkasta stjórnmálamanni Bandaríkjanna, Benjamín Franklin, og hafa þau orð verið höfð að leiðarljósi þar í landi æ síðan. Ef til vill má skilja betur hvers virði notkun peninganna er, ef athugað er hver afleiðingin í raun og veru yrði, ef farið væri eftir þeim boðskap, sem Al- þýðubandalagsmenn halda fast við, að „gróðahvötinni” yrði útrýmt að mestu en aðrar „ósíngjamar” hvatir látnar koma i hennar stað. Ef allar viðurkenningar eða laun væru, í stað þess að vera veitt sem pen- ingalaun, látnar vera fólgnar í opin- berri viðurkenningu eða forréttindum, valdaaðstöðu eða fæði, aðgangi að menntun, ferðalögum o.s.frv., myndi þetta hafa þá þýðingu, að sá sem laun- in fengi, hefði ekki lengur valfrelsi, en þeir sem launin veittu, myndu ekki aðeins ákveða upphæð þeirra, heldur einnig á hvern hátt þeim skyldi varið. Það er þetta, sem þingmenn Al- þýðubandalagsins eru nú að keppast við að framkvæma, meðan þeir hafa tækifæri til þess að hafa bein áhrif á efnahags- og atvinnumál með setu i ríkisstjórn á Islandi, og það er gegn þessari hættu sem Sjálfstæðisflokkur- inn í stjórnarandstöðu á Alþingi, ásamt hverjum þeim úr öðrum flokk- um, sem ekki vilja koma á einræðis- skipulagi hér á landi, verður að berjast með öllum tiltækum ráðum. Sú bar- átta verður stöðugt að vera háð, þar má neðanjarðarstarfsemi innan þing- flokks Sjálfstæðisflokksins og ómerki- legt karp um völd og nefndarsetu ekki sitja í fyrirrúmi. Hvernig standa stigin? Eftir úrslit siðustu þingkosninga kom það berlega í ljós, að fólkið vildi breyta til. Eðli mannfólksins er nú einu sinni þannig, að það vill breyt- ingar, oft og einatt breytinganna vegna eingöngu. Þetta skeður um all- an heim. Stjórnmálaflokkar skiptast á að fara með völd og það er einn þáttur lýðræðisskipulagsins. Hins vegar hafa íslendingar verið fremur fastheldnir og íhaldssemi er þeim í blóð borin, það sannar sagan gegnum árin. Það verður því að teljast afar óliklegt, að þótt landsmenn hafi 1 síðustu kosningum riðlað fylgi stjórn- málaflokkanna íslenzku meir en áður hefur þekkzt, hafi þeir ekki söðlað um, til þess að gera kommúnistum kleift að koma á því þjóðskipulagi, sem þeir stefna að hér sem annars staðar. Aðalbaráttan i íslenzkum stjórn- málum í dag er því um það hvort Al- þýðubandalagsmönnum tekst, með setu sinni í ríkisstjórn, að koma svo ár sinni fyrir borð að áhrifa þeirra gæti, löngu eftir að valdatíma þeirra lýkur, eða jafnvel um það hvort þeim takist að festa sig svo í sessi eftir að hafa iamað allt einstaklingsframtak og fært það undir ríkisforsjá, að lýðræðisöfl- unum reynist ókleift að þoka þar nokkru til. Og það mun verða hart barizt af hálfu Alþýðubandalagsins til þess að ná fram stefnumörkun sinni. Þeir munu ryðjast inn á. fjölmiðlana, því þeirra eigið málgagn nægir þeim ekki í svo viðamikilli fyrirætlan. Flokks- blöðin ásamt síðdegisblöðunum og ríkisfjölmiðlunum munu verða undir- lögð með áróðri þeirra, og höfum við þegar séð forsmekkinn af þvi. Og merkilegt; hinir lýðræðislegu fjöl- miðlar eru mjög opnir fyrir þeim áróðri, sem kommúnistar rétta þeim. Þannig er dagblaðið Vísir farið að birta viðtöl og greinar eftir róttæka vinstri menn og Morgunblaðið heldur áfram uppteknum hætti með birtingu greina og viðtala um menn og stofn- anir, sem dreifa kommúnískum áróðri til landsmanna. „Norræna húsið að sprengja utan af sér starfsemina eftir 10 ár”, segir í fyrirsögn Morgunblaðsins með viðtali við forstöðumann þessarar stofnunar sem er ein helzta áróðursmiðstöð kommúnista á Norðurlöndum. 1 sama blaði og sama dag (19. okt. sl.) ritar einn helzti andstæðingur lýðræðis í landinu, Ólafur Ragnar Grímsson, pistil um nefndakosningu Sjálfstæðis- flokksins á Alþingi. Og þannig standa stigin, að komm- únistar hafa greinilegt forskot í áróðri sínum fyrir sósialísku þjóðskipulagi i landinu, meðan stjórnarandstaðan á vart aðgang að málgagni fyrir sjónar- mið sín. Krafa flokksmanna Af áhuga flokksmanna Sjálfstæðis- flokksins á störfum hans verður það engan veginn greint að fara eigi hægt i sakirnar, þegar heimskommúnisminn er annars vegar og hefur tekið sæti i ríkisstjórn landsins. Og þótt það sé rétt metið að kanna vandlega, hverjir það eru úr röðum lýðræðisflokkanna tveggja i ríkis- stjórn, sem munu leggja stjórnarand- stöðunni lið, þegar I odda skerst, þá verður virk stjórnarandstaða að vera fyrir hendi af hálfu Sjálfstæðisflokks- ins i þingbyrjun. En á skortir nú, að svo sé. Formaður Sjálfstæðisflokksins, hver svo sem hann er á hverjum tíma, verður að hafa slfkan styrk til að bera, að hann geti kveðið niður hvers konar tilraunir til undanlátssemi, að ekki sé nú talað um upphlaup og skripalæti, sem stofnað er til með það fyrir augum að veikja flokksstarfið og gera and- stæðingunum auðveldan eftirleikinn. Krafa flokksmanna getur verið með margvíslegum hætti og um ólík efni, t.d. það að flokkurinn stofni sitt eigið málgagn, sem og aðrir stjórnmála- flokkar hafa. Sú krafa er ekki út í blá- inn eins og á stendur og ætti ekki að sæta neinum ágreiningi innan Sjálf- stæðisflokksins. Ef einstaklingar innan flokksins vilja leggja því máli lið með fjármögnun og starfi ættu forystu- menn flokksins að styðja slíka hug- mynd. En fyrst og fremst hlýtur krafa flokksmanna Sjálfstæðisflokksins að vera sú að þeir menn, sem kjósendur flokksins sýndu það tr,aust að fela þeim trúnaðarstörf, m.a. með setu á Alþingi, taki starf sitt alvarlega fyrir umbjóðendur sína, en láti ekki bitlinga og nefndarstörf ráða afstöðu sinni til þess eina starfs, sem þeim er ætlað, að standa með sínum flokki, að vera full- trúar flokksfólksins. Ef slíkt bregst, verður flokksfólkið sjálft að taka til sinna ráða og víkja viðkomandi mönn- um úr trúnaðarstöðum, sem þeir voru kjörnir til. Stjórnarandstaða krefst ábyrgðar, ekki síður en stjórnarseta og Sjálfstæðisflokkurinn á gnótt ágætra manna og kvenna, sem geta fyllt skarðið, ef einhverjir bregðast skyldu sinni. Geir R. Andersen.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.