Dagblaðið - 09.11.1978, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 09.11.1978, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1978. —og eitt saf naðarheimili neðan jarðar Hún er reisuleg & að Stefnt er að þvi að syngja messu i sjálfu kirkjuskininu á 1000 ára afmæli kristniboðs á tslandi árið 1981. hægt og eru orðnir þreyttir á okkur sem stöndum í þessu en við megum ekki þreytast,” sagði Hermann Þorsteinsson að lokum. Langholtssókn: „Bezti kirkjukór landsins" Garðar Þórhallsson, gjaldkeri i Lang- holtssókn sagði: „Við byrjuðum á að byggja hér safnaðarheimili og það hefur fullnægt okkar þörfum og þjónað okkur vel. Kirkjubyggingin hefur verið að smá- koma siðan. Safnaðarheimilið hefur verið notað af alls konar félögum, t.d. hafa AA-menn verið með tvær fastar samkomur hér í viku, einnig A1 Anon sem eru aðstandendur AA-manna. Einnig hafa hér ýmis kristileg félög aðgang til fundahalda auk átthaga- félaga. Þá hefur hér verið starfandi bræðrafélag kirkjunnar og mjög öflugt kvenfélag, sem hefur unnið mikið og gott starf fyrir kirkjuna og verið með ýmsa þjónustu við eldra fólkið og fleira sem lýtur að líknarmálum. Þá er hér starfandi voldugur kirkjukór, sem við teljum bezta kirkjukór landsins, með stjórnandann Jón Stefánsson í broddi fylkingar. Þá má náttúrlega ekki gleyma starfi prestanna, sem er meira en það eitt að messa einu sinni i viku. Kvenfélagið safnaði 10 milljónum Framkvæmdirnar við kirkjubygging- una eru aðallega fjármagnaðar með framlögum ýmissa aðila innan safnaðar- ins og félaga sem hafa staðið að fjáröfl- un. Þar hefur kvenfélagið verið drýgst. En það er búið að leggja um 10 milljónir til kirkjubyggingarinnar á siðustu árum. Bræðrafélagið hefur einnig staðið sig vel þó ekki sé þaö nema um hálfdrættingur á við kvenfélagið. Staðan í byggingunni er nú sú að þakið er komið langleiðina á. Annar gaflinn er enn ekki kominn upp en þar strandaði á fjárskorti. Við erum nú að fara i gang með heljarmikla fjár- öflun og við höfum áður fengið mjög góðar undirtektir hjá almenningi. Frá kirkjubyggingasjóði Reykjavíkur fengum við á síðsta ári 7 l/2 milljón sem er mesta fjármagn sem við höfum fengið þaðan. Frá ríkinu er hins vegar ekkert fjármagn. Hugmyndin hjá okkur var að reyna að ljúka við þessa framkvæmd í haust en það tókst ekki og við erum nú skuldum hlaðnir en engu að síður von- umst við til að kirkjan verði fokheld á næsta ári.” Safnaðarheimilið neðanjarðar DB hafði einnig samband við sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, sóknarprest í Laugarnesprestakalli. Hann sagði: „Fyrsta skóflustungan að safnaðarheim- ili hér var tekin 14. okt. sl. Safnaðar- heimili þetta á að byggjast fyrir framan og til hliðar við kirkjuna, mest neðan- jarðar og er því ákaflega nýstárleg bygg- ing og hefur enda hlotið verðskuldaða athygli arkitekta. Þaö voru arkitektarnir Þorvaldur Kristmundsson og Magnús Guðmundsson sem teiknuðu safnaðar- heimilið. Það verður 508 fermetrar að stærð allt i allt. Fyrri áfanginn á að rúma 200 manns við borð. Einnig verður þar eldhús, snyrting og skrifstofa sóknarprests. I seinni áfanga verður lítil álma þar sem verða skrifstofur og stofa sem er ætluð fyrir fótsnyrtingu o.þ.h. Þetta kemur til með að skapa mikla möguleika fyrir starf hér í söfnuðinum og ekki sízt sem þjónusta við eldra fólkið, en alls eru um 850 ellilífeyris- þegar í Lau'garnessókn. Þessi fram- kvæmd er fyrst og fremst fjármögnuð með frjálsum framlögum en einnig fáum við eitthvað úr kirkjubyggingasjóði Reykjavikur og víð væntum lika að- stoðar frá Félagsheimilasjóði.” Sr. Jón sagði að hann þyrði litlu að spá um kostnaðinn en sagði: „Við höfum veriö að leika okkur með töluna 60 millj. fyrir fyrri áfangann. Við erum ákaflega bjartsýn og vonum að hægt verði að gera fokhelt á næsta ári. Þaðer knýjandi þörf að fá meira húsnæði svo að safnaðarstarfið geti orðið eins og bezt verður á kosið,” sagði sr. Jón aö lokum. - GAJ Hallgrímskirkja: Sungin messa í kirkjuskipinu árið 1981 „Við stefnum að þvj aðhæet verði að syngja messu i sjálfu kirkjuskipir.u á 1000 ára afmæli kristniboðs á tslandi árið 1981,” sagði Hermann Þorsteins- son, formaður sóknarnefndar Hallgríms- kirkju, er DB spurði hann hvenær búast mætti við því að kirkjubyggingunni yrði lokið. Það hefur ekki farið framhjá neinum að mikið er nú um að vera í bygginga- málum kirkna I Reykjavík. Sl. sunnudag var tekin fyrsta skóflustungan að nýrri kirkju, Breiðholtskirkju. Kirkjan mun rísa í Mjóddinni í Breiðholtshverfi og verður hún kirkja ibúa i neöra Breiðholti og Seljahverfi. Auk hennar eru þrjár kirkjur i smiðum í Reykjavík, þ.e. Hall- grímskirkja, Langholtskirkja og Ás- kirkja. DB hafði samband við nokkra aðila er standa framarlega í þessum framkvæmdum og spurði hvernig miðaði. „Staðan í byggingamálum Hallgríms- kirkju er sú,” sagði Hermann, „að steypt er annan hvern dag. Verið er að steypa súlurnar inni í kirkjuskipinu undir þak- hvelfingunni. Þetta eru fyrstu skrefin I áætlun um að gera kirkjuskipið fokhelt. Verkið er nú unnið undir stjórn nýs byggingameistara, Alberts Finnboga- sonar, en Halldór Guðmundsson, sem hefur verið byggingameistari við Hall- grímskirkju frá því að hafizt var handa við verkið, lézt snemma á þessu ári. 1 nóvember i fyrra var gerð kostnaðar- áætlun fyrir þennan áfanga og hljóðaði hún upp á 57 milljónir. Verkið hefur gengið greitt upp á síðkastið og ég vona að það takist að fullgera kirkjuskipið ytra á einu og hálfu til tveimur árum.” Hermann sagði að Albert bygginga- meistari væri með hóp af mönnum í sinni þjónustu og mannaði verkið eftir þörfum. Auk þess væri rafvirki sem legði í allar súlurnar fyrir væntanleg hljóm- flutningstæki. Talað orð í kirkjunni á að berast meö míkrófónum en hins vegar er gert ráö fyrir að tónlist hljómi náttúr- lega. Sagði Hermann að allar fram- kvæmdir þarna væru miðaðar við að tryggja sem allra mestan hljómburð í kirkjunni og hefði Ingólfur Guðbrands- son gefið kirkjunni margar stórgjafir í þvi skyni. Til fleiri hluta en guðsþjónustu- haldsins eins DB spurði Hermann hvort áherzla væri lögð á það við smíði kirkjunnar aö hún mætti notast til fleiri hluta en guðs- þjónustuhaldsins eins. Hann sagði að svo væri og væri Hall- grímskirkja raunar I mikilli notkun nú þegar. Fyrir utan allt starf safnaðarins þar væru AA-samtökin með reglulega fundi þar svo og aðstandendur AA- manna. Þarna væri Hið íslenzka biblíu- félag með sitt húsnæði, bibliuleshópar kæmu þarna saman, kórar héldu æfingar sinar og auk þess væri húsið notað til ýmissa fundahalda og mætti I því sambandi nefna að kirkjuþing hefði haldið fundi sína þarna undanfarinn hálfan mánuð. Þá nefndi Hermann, að Sigurbjörn Einarsson, biskup hefði komið fram með þá tillögu að samtök yrðu mynduð til að standa fyrir tónlistarhaldi I kirkjunni og tryggja að húsið yrði notað mikið og skipulega til þeirra hluta. „Söngsveitin Fílharmónía og Polýfónkórinn hafa flutt mikið af hinni sigildu kirkjutónlist og þarna gæfist þeim og sinfóníuhljóm- sveitinni gott tækifæri til að flytja verk eins og Massias og Sköpunina. Dr. Páll ísólfsson hefur lýst því á prenti hvernig hann hafi upplifað þessi klassisku verk flutt I stórum kirkjuhúsum erlendis og hann barðist mjög fyrir að Hallgríms- kirkja yrði að veruleika á tímum sem hún átti mjög I vök að verjast.” 320 þús. um eina helgi Hermann sagði að almenningur virtist bera hlýjan hug til kirkjunnar og ekki væri lengur deilt um þessa fram- kvæmd. Aðspurður um fjárhagshorfur sagði Hermann, að I hinu nýja fjárlaga- frumvarpi væri kirkjunni ætlaður 7 1/2 milljón króna eða sama upphæð i krónu- tölu og á siðasta ári. „Við virðum það, að I þessum þrengingum við gerð fjár- lagafrumvarpsins fær þessi tala að standa óbreytt. „Þá væri 28 milljónum úthlutað úr kirkjubyggingasjóði Reykja- vikur og af þeirri upphæð fengi Hall- grímskirkja 7 1/2 milljón. Þá sagði Her- mann, að kirkjunni bærust alltaf miklar gjafir frá ýmsum velunnurum. Þannig hefði norski presturinn sr. Harald Hope nýlega afhent kirkjunni gjafabréf að upphæð 7 millj. króna. Við messu 27. október hefðu safnazt 100 þús. krónur og alls hefðu kirkjunni borizt 320 þús. um þá helgi. Þá nefndi Hermann að ýmsir aðilar hefðu gefið kirkjunni 5% afslátt af vörum, timbri o.þ.h. „Okkar höfuðverkur er að búa við ótryggan fjárhag og ýmsum finnst miða Verslið þar sem varan er góð og verðið hagstætt Stjörnu ★ litir sf. Málningarverksmiðja Höfðatúni 4 - Sími 23480 10% afsláttur þessa vioi. Öll okkar málning á verksmiöjuverði Kirkja Ásprestakalls I Laugarásnum er vel f sveit sett innan um mörg af glæsilegustu einbýlishúsum höfuðborgarinnar. Smiði Langholtskirkju miðar vel og er það ekki hvað sfzt kvenfélagi kirkjunnar að þakka sem lagt hefur fram mikið fé og ómælda vinnu svo kirkjan mætti risa af grunni. \ Miklar framkvæmdir við kirkjurnar: INGUIHÖFUÐBORGINNI FJORAR KIRKJURIBYGG-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.