Dagblaðið - 09.11.1978, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1978.
Falsanir, bókhalds- og
söluskattsvik hjá
Kaupfélagi Önfírðinga
— kaupfélagsstjórinn settur af, hrikaleg bókhaldsóreiða og vörurýmun með ólíkindum
Umfangsmikil söluskattsvik, vísvit-
andi bókhaldsfalsanir, rangfærslur,
mikil bókhaldsóreiða, gifurleg vörurýrn-
un og verulegur óútskýrður sjóðsmis-
munur er meðal þess sem bókhaldsrann-
sókn hjá Kaupfélagi önfirðinga á Flat-
eyri hefur leitt í ljós. ítarleg rannsókn fer
nú fram hjá rannsóknardeild ríkisskatt-
stjóra.
Um mánaðamótin maí-júni var Gylfa
Traustasyni vikið úr starfi kaupfélags-
stjóra á Flateyri við Önundarfjörð. Þá
höfðu endurskoðendur félagsins tekið
eftir því að dularfullir hlutir voru á
ferðinni. Einnig var orðið altalað í þorp-
inu að úr næturlöngum drykkjuveizlum
í kaupfélaginu bæru einhverjir heim til
sín fulla sekki af „ókeypis” vörum.
Við erum ekki aðeins stórir í
metsölubókum
Á ahcLii heldureinnig
d CII5IVU tímaritumá
• Ritfímg ensku, dönsku
Papptrsvörur Ogþýzku
Filmur
9Málverk
QKassettur
%Leikfíjng
OPIÐ LAUGAR-
DAGAKL. 10-12
HÚSIÐ
LAUGAVEGI178 - SÍMI86780
(NÆSTA HÚS VIÐ SJÓNVARPIÐ)
fyrir kokkteilpartfíð
eða bamaafmælið
) Gjafapappír,
böndogslaufur
Spilogtöfl
BðiMk
Sambandið sendir
endurskoðanda
Þegar farið var að kanna málið komu
ljótir — og stundum hinir ótrúlegustu —
hlutir I Ijós.
í lok apríl sl. óskaði stjórn Kaupfélags
önfirðinga eftir því að SÍS útvegaði
endurskoðanda til að fara yfir bók-
haldið. Geir Geirsson, löggiltur endur-
skoðandi, kunnugur rekstri kaupfélaga
víða um land, fór vestur í lok april og
hefur farið fjórum sinnum síðan, að því
hann sagði í samtali við fréttamann
blaðsins. Hann kvaðst að öðru leyti enga
heimild hafa til að tjá sig um málið og
vísaði á formann kaupfélagsstjórnarinn-
ar.
• Fyrir liðlega hálfum mánuði skilaði
Geir skýrslu sinni um málið til stjórnar
Flateyri: Fyrst sveitarfélagið,
þá kaupfélagið, sem er vinstra
megin á myndinni.
DB-mynd Ingólfur.
kaupfélagsins. Þá var haldinn aðal-
fundur félagsins og þar flutti Geir, að
beiðni stjórnarinnar, útdrátt úr skýrsl-
unni.
„Anzans ári mikil
tala"
„Það var anzans ári mikil tala,” sagði
Guðvarður Kjartansson, oddviti, sem
var fundarritari á aðalfundinum. „Þar
kom fram að það höfðu átt sér stað allal-
varleg söluskattsvik upp á 17—18
milljónir. Við það mætti bæta tíu millj-
ónum í vexti og viðurlög. Með þessu var
falin rýrnun á vörum. Þá kom fram að
kaupfélagsstjórinn fyrrverandi hafði lagt
fram lognar upplýsingar um raunveru-
lega afkomu félagsins. Engu að siður er
fjárhagsstaða félagsins sterk, að því er
virðist. Það verður nú gerð vörutalning
og málið rannsakað niður í kjölinn áður
en félagsstjórnin tekur endanlega af-
stöðu til þess.”
Bókhaldsbrot,
falsanir,
söluskattsvik
Það var ekkert ofmælt hjá Guðvarði
Kjartanssyni að endurskoðandi Sam-
bandsins hefði flutt „anzans ári mikla
tölu”á fundinum.
í máli hans kom fram, skv. þeim upp-
lýsingum sem blaðið hefur aflað sér og
telur fullkomlega öruggar, að niður-
stöðutölur reikninga kaupfélagsins væru
falsaðar og að tilraunir hefðu verið
gerðar til að leyna þeim fölsunum fyrir
stjórn félagsins og endurskoðendum.
Hann sagði að i mjög ófullkomnu bók-
haldi væru óskráðar inn- og útborgamir
til félagsins, og bendi allt til þess, að
kaupfélagsstjórinn fyrrverandi þurfi að
gera grein fyrir verulegum sjóðsmismun.
Hann talaði um gróf bókhaldsbrot og
falsanir með tilheyrandi söluskattsvik-
um, sem i lok maí námu samtals um
sautján milljónum. Óhætt mun vera að
hækka þá upphæð um að minnsta kosti
tíu milljónir til að fá hugmynd um vexti
og viðurlög.
(Samkvæmt upplýsingum skattrann-
sóknarstjóra, Garðars Valdimarssonar,
geta vextir af vangoldnum söluskatti
orðiðyfir 50%á ári.Einnig væri hægt að
beita sektum, allt að tvöföldum á upp-
hæðinni, og loks væru í refsilögum
heimild fyrir því að dæma menn í allt að
6 ára fangelsi fyrir brot á þessum lög-
um.)
Gífurleg rýrnun
falin með sölu-
skattsvikunum
Við bókhaldsrannsókn málsins hefur
komið í ljós, að rýrnun á vörubirgðum
kaupfélagsins hefur verið gífurleg. Á
sautján mánaða tímabili nam rýrnunin
andvirði nær fimmtán milljóna króna.
Það mun vera nær lagi, að „eðlileg”
rýrnun í verzlunum af þessu tagi sé um
eitt prósent. Þá tölu gaf kaupfélagsstjór-
inn fyrrverandi upp í uppgjöri sínu fyrir
árið 1976 en rannsóknin leiddi í Ijós að
sú tala var fölsk. Rýrnunin i fyrra
reyndist vera 2.7% og fyrstu fimm mán-
uði þessa árs 11.4%.
Þessi rýrnun, eins og fram kom i þvi
er haft var eftir Guðvarði Kjartanssyni
hér að framan, var falin af veikum-
mætti með söluskattsvikunum. Kaup-
félagsstjórinn hefur sjálfur sagt frá því
að undandrátturinn hafi farið fram á
þann hátt, að peningamir sem komu í
kassann hafi ekki alltaf veriö færðir i
bækur sem sala.
Upphæðir færðar
milli reikninga
Þá kom fram við athugunina að með
því að færa verulegar upphæðir (nær niu
milljónum um áramót 76—77) á milli
sjóðsreiknings og vörukaupareiknings,
lækkaði veltan og upphæðin dregin
undan við söluskattskil. Þetta sama
endurtók sig í fyrra með ýmiss konar
bókhaldslegu möndli, sem ekki reyndist
erfitt að sjá í gegnum. Grófustu bók-
haldsbrotin reyndust vera í vörureikn-
ingum félagsins og má nefna sem dæmi
að verzlunarstjóri gerði aldrei skriflegar
skilagreinar fyrir sölu dagsins, né heldur
var kvittað fyrir móttöku þess fjár á
skrifstofu. Óreiðan lýsir sér m.a. I þvi að
í fyrra var rangfærð og vanfærð sala um
sautján milljónir. Í fyrra voru lika um
tuttugu milljónir færðar á milli vöru-
kaupareiknings og sjóðsreiknings til að
laga sjóðinn og lækka söluskattskyld-
una.