Dagblaðið - 09.11.1978, Blaðsíða 26
I
Dagblað
án ríkisstyrks
örninn er setztur
Sýnd kl. 3,10,5,10 7,10,9,10og 1 í,10.
• solwr
Þjónn
sem segir sex
Bráðskemmtileg og djörf ensk gaman-
mynd.
tslenzkur texti.
Endursýnd kl. 3.15, 5.15, 7.15, 9.15 og
11.15.
AUSTlJRBÆJAltBlÓ: FJötdamorflingjar (The| 1
Human Factor) Aðalhlutverk: George Kennedy, John I
Mills, Raf Vallone. BOnnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5,7
og 9. Islenzkur texti.
GAMLA Bió: SJ* auglýsiagu.
HAFN ARBlÓ: SJA auglýaingu. ____
HÁSkÓLÁBÍÖ: Saturday Night Fever kí. 5 og 9.
LAUGARÁSBlÓ: Hðrkuakot, aðalhlutveik Paul
Newman.kL 5,7.30og 10. Bðnnuðinnan 12 ára.
NVJA BtÓ: Stjömustrið, aðalhlutverk: Mark Hamill,
Carrie Fisher og Peter Cushing, kl. 2.30,5,7.30 og 10.
REGNBOGINN: Sjá auglýsingu.
STJÖRNUBlÓ: Close Encountera of the Third Kind
kl.2.30,5 7,30 og 10. ■
TðNÁBÍÖ: Let It Be, siðasta. kvikmynd Bltlanna.1'
Sýndkl. 5,7og9. I t
Afar spennandi og vel gerö bandarískfit-
mynd um óvenjulega hefnd. Myndin
sem Bretar vildu ekki sýna. Rod Steiger,
Lee Remick. Leikstjóri Don Sharp.
tslenzkur texti
Bönnuðinnan 14ára
ENDURSKIIVÍS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEC
FYRIR ALLA
UMFERÐARRÁÐ
IIW «ADI - AMOOAnO fitWUL nLMJ—. MtOt MIVIH. Jk.
„MKMAELCAIHE DOHALD SUTHERLAND
ROOERT DUVALL "THE EAGLE HAS LAHDED7
Frábær ensk stórmynd i litum og Pana-
vision eftir samnefndri sögu Jack Higg-.
ins, sem komiö hefur út í islenzkri þýð-
ingu. Leikstjóri John Sturges.
tslenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Endursýnd kl. 3,5.30,8 og 10.40.
salur
B
Mefl hreinan skjöld
Sérlega spennandi bandarisk litmynd'
með Bo Svenson og Noah Beery.
tslenzkur texti.
Sýnd kl. 3,05,5,05,7,05,9,05 og 11,05
>salur'
Hennesy
tslenzkur texti
Sýndkl. 5.
•Sama verð á öllum sýningum.
Bróðurhefnd
Amerisk sakamálamynd.
Endursýnd kl. 9.
. HAFHARBiC
Til í tuskið
Skemmtileg og hispurslaus bandarísk lit-
mynd, byggð á sjálfsævisögu Xaviera1
Hollander, sem var drottning gleði-
kvenna New York borgar. Sagan hefur
komið út í isl. þýðingu.
Lynn Redgrave, Jean-Pierre Aumont.
tslenzkur texti.
Bönnuð innan löára.
Endursýnd kl. 5,7,9 og 11.
GAMLA BIO
Mary Poppins
«aSrtLv»
Kvikmyndir
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1978.
d
Útvarp
Sjónvarp
NÝR SKEMMTIÞÁTTUR - útvarp kl. 20.10:
r
Ullen, dúllen doff
Margir muna eftir þeim gömlu, góöu
dögum þegar útvarpið okkar bauð upp á
skemmtiþætti í útvarpssal. Var það vel
þegið dagskrárefni hjá ungum sem
öldnum. í kvöld ætlar útvarpið að taka
upp þessa góðu stemmningu og leyfa
okkur að heyra þátt sem nefnist Ullen,
dúllen doff. Er það hinn kunni útvarps-
maður Jónas Jónasson sem er stjórnandi
þáttarins.
Þáttur þessi verður í vetur einu sinni í
mánuði, á fimmtudagskvöldum. 1 kvöld
eru það sex ungir leikarar sem koma
fram og má þar nefna hina þekktu kaffi-
brúsakarla, Gísla Rúnar Jónsson og
Júlíus Brjánsson. Leikarinn Randver
Þorláksson mun einnig koma fram
ásamt fleirum.
Hljómsveitin Melchior ætlar að spila
nokkur lög og verður eitthvaö fleira
skemmtilegt á boðstólum. Þar sem
stjórnandinn, Jónas Jónasson, var
erlendis þegar DB ætlaði að spyrja um
þáttinn, fékkst ekki nákvæm lýsing á
honum en hann lofar góðu.
Má segja að þarna taki útvarpið spor
i rétta átt.
Ekki veitir okkur af dálítilli
upplyftingu þegar skammdegið færist
ELÍN
ALBERTS
Dúnm
yfir. Þátturinn hefst kl. 20,10 og stendur
í klukkustund.
•ELA.
»
Hljómsveitin Melchior verður meðal
þeirra sem fram koma i nýjum skemmti-
þætti 1 útvarpinu i kvöld.
r
MÍN
SKOÐUN
Jón Birgir Pétursson
fréttastjóri segirskoðun
sína á útvarpi og sjónvarpi
Sjónvarp í „sauðalitum”
Sá sem heima situr og horfir á sjón-
varpstækið sitt flytja efnið í „sauðalit-
unum” er kannski ekki rétti maðurinn
til að fjalla um sjónvarpsdagskrána.
Nú er allt miðað við litadýrðina, sem
menn keppast nú um að veita sér með
auknu vinnuálagi.
Góðar sendingar
og slæmar
Það er margt gott að finna í
sjónvarpi og útvarpi. Forráðamenn
stofnananna eru furðu naskir á að
finna gott efni erlendis frá, góða fram-
haldsþætti frá Bretlandi og Bandaríkj-
unum og góða tónlist fyrir útvarpið
hvaðanæva. En svo kemur einstaka
sinnum fyrir að við verðum að sinna
þvi sem kallaö er „norrænt samstarf’.
Það samstarf er þungur biti í hálsi.
Þessir ágætu nágrannar okkar eru
orðnir hálfleiðinlegir og næsta hvim-
leiðir inni á heimilum manna með
þessa sifelldu „þjóðfélagsfræði” sína.
Tilfellið er að það efni sem
vinsældum nær i sjónvarpi er ákaflega
oft frá hinum engilsaxnesku löndum,
en ekki frá nágrönnum okkar og
frændum. En trúlega rætist úr þessu,
mér skilst að þeim sé ekki nærri eins
umhugað lengur um að breyta og
bæta þjóðfélagið, vinum okkar á
Norðurlöndunum.
Kládíus og
krakkarnir
Merkasti viðburður síöustu viku var
án efa fyrsta sýningin á Kládíusi
keisara. Sumum fannst fyrsti þáttur-
inn þunglamalegur, en mér er sagt að
þessir þættir verði mergjaðir mjög, og
börnin á heimilinu séu jafnvel betur
geymd úti í sjoppu meðan sýningin
fer fram, þ.e. ef þau fást ekki til að fara
í rúmið.
íþróttir eru einhver allra fyrirferðar-
mesti þáttur sjónvarpsfréttanna,
sumum finnst nóg um. Eitt vil ég
minnast á i sambandi við frétta-
myndir frá iþróttaviðburðum. Þegar
íslenzk lið keppa, þá er eins og að leik-
irnir fari fram í niðdimmri kolanámu.
Þetta nefni ég bara til að minna arki-
tekta okkar á að lýsing í húsum
þessum er af skomum skammti eins og
í húsi Bakkabræðra forðum. Ætti sjón-
varpið sem allra minnst að mynda i
þessum óhæfu húsum þar til sér-
fræðingum hefur tekizt að finna leið
til að lýsa húsin þannig að þar sé
hægt að leika við eðlilegar aðstæður
og einnig að taka þar myndir af
leikjunum.
Páll Heiðar
og Sigmar
fái að sofa út
En svo vikið sé að þeim fjölmiðlin-
um, sem ég tel nú alltaf öllu merkari,
útvarpinu gamla, þá vil ég endilega að
Páli Heiðari og Sigmari sé leyft að
sofa út á morgnana. Ekki vegna þess
að þáttur þeirra sé lélegur eða leiður.
Heldur vegna þess að ég held hann eigi
heima á öðrum tíma í dagskránni. Það
er hressandi að vakna upp við Jón
Múla, Pétur Pétursson eða maður tali
nú ekki um Róbert T. Árnason, sem
var að verða „stjarna” í svefndrukkn-
um augum þeirra sem vakna árla á
morgnana. Það er nefnilega mun betra
að vakna við hressilega tónlist en
hjalið i mismunp,‘di syfjuðum mann-
skap.
Að öðru leyti er tónlistm oezti
þáttur dagskrár útvarpsins. Þar er líka
hægt að fræðast um firnin öll af
málefnum. Dæmi: allt um verzlun og
viðskipti, protein, vegagerð. Allt þetta
og meira til getur maður fræðzt um á
einum einasta degi ef setið er við
tækið, milli þess sem maður sveiflar
sér eftir tónum frá heimsfrægum
hljómsveitum af öllu tagi.
Eitt verður þó að gagnrýna. Leik-
ritaval útvarpsins er lélegt, og endur-
tekningarnar allt of margar og tiðar.
Fimmtudagsdagskráin ætti lika að
vera bezta dagskrá vikunnar og fjöl-
breyttust, en er það ekki, svo undar-
legt sem það er.
Smám saman er verið að sverfa af
útvarpsdagskránni þessa látlausu
sveitalífskynningu frá gömlum
dögum. Áheyrendur í dag eru áreiðan-
lega að stórum hluta það sem kallast
ungt fólk, liðlega þritugt og þaðan af
yngra. Líklega er starfsfólk útvarpsins
líka ungt að árum og velur efni eftir
En sem sagt útvarp og sjónvarp:—
En sem sagt útvarp og sjónva^rp: —
Útkoman er harla góð, trúlega mun
betri en t.d. annars staðar á Norður-
löndum.
-JBP.
rt