Dagblaðið - 09.11.1978, Síða 28

Dagblaðið - 09.11.1978, Síða 28
Foreldrar Friðriks Ólafssonar: URSLITIN TILKYNNTI MIÐJUM POPPÞÆTTI —og það er nokkuð sem við hlustum ekki á „Þetta er ánægjulegt fyrir alla, alveg eins aðra landsmenn og okkur," sögðu foreldrar Friðriks Ólafssonar, Sigriður Símonardóttir og Ólafur Friðriksson i gær er úrslit voru Ijós í forsetakjöri FIDE. „Þetta var tilkynnt í miðjum poppþætti í útvarpinu,” sagði Ólafur’ „og það er nokkuð sem við hlustum ekki á. Við vissum því ekkert um úrslitin fyrr en Hallur Símonarson fréttamaður Dagblaðsins hringdi í okkur og sagði okkur tíðindin. Það kom okkur á óvart að Gligoric skyldi falla úr í fyrri umferð. Hvað Friðrik snertir, gerðum við okkur ekki sérstak- ar vonir. Við vorum viðbúin öllu.” „Nei — við höfum ekkert talað við Friðrik. Það er svo alvanalegt að hann sé ytra. Þetta er eins og með þing- manninn forðum. Það vissi enginn hvort hann var að koma eða fara. Okkur hefur oft fundizt eins og þjóðin ætti barnið, en ekki við. Það var sér- staklega áberandi þegar hann keppti við Larsen hér á árum áður. það var eins og við ættum ekki strákinn.” Ég fæ þetta í afmælisgjöf,” sagði Sigríður, „en ég er sjötug á þessuári Ég tel að Friðrik sé vel hæfur til starfans, hann er hærverskur og mikill diplómat. Það er bara að þeim takist að semja frið.” -JH. Ólafur og Sigríður foreldrar Friðriks hlustuðu ekki á poppþáttinn og misstu af fyrstu frétt um kjör sonar þeirra sem forseta FIDE. Obemir skattar út úr wsHölunni? — Verður 12-13% kauphækkun um mánaðamótin skorin niður Í4%? Stjómarflokkarnir kunna ,að ná samkomulagi um að taka óbeina skatta, svo sem söluskatt, út úr kaupgjaldsvisitölunni og halda kauphækkun niðri með þvi. Talið er að óbreyttu, stefna i 12-13 prósent kauphækkun 1. desember. Alþýðuflokksmenn hafa, eins og fram hefur komið, krafizt endurskoðunar vísitölugrundvallarins fyrir 1. desember. Það hefur verið mikið hita- mál í stjórnarsamstarfinu. Stöðugt eru í gangi viðræður við verkalýðsforystu um, að verkalýðs- hreyfingin falli frá einhverju af þeim verðbótum, sem koma ættu til viðbótar kaupi 1. desember. Einn stjórnarþingmaðurinn sagði í gær í viðtali við DB, að vera kynni. að verkalýðshreyfingin félli frá fjórum prósentum af kauphækkuninni. Önnur fjögur prósent kynnu að verða bætt með öðru en beinni kauphækkun, svo að eftir stæði um fjögur prósent kauphækkun. -HH. Tryggingaráð- herra varþver- móðsku kerf is- insyfirsterkari: ATTA HEYRNAR- TÆKI PðNTUÐ heyrnardeild Heilsuverndarstöðvarinnar mun ráðstafa þeim „Nú getur ekki lengur hlaupið snurða á þráðinn, Tryggingastofnun ríkisins mun kaupa tækin og hafa þeg- ar átta tæki verið pöntuð,” sagði Magnús H. Magnússon trygginga- ráðherra í viðtali við DB í gær. „Eins og ég hef áður sagt mun ég jafnframt vinna að lausn slíkra mála til frambúðar svo slik staða þurfi ekki að koma upp aftur,” sagði Magnús ennfremur. Umrædd heymartæki eru nauðsynleg heyrnarskertum börnum, svo þeim sé unnt að stunda almennt nám, en eins og DB hefur rakið hafa hinar ýmsu opinberu stofnanir vikið sér undan ábyrgð á útvegun þeirra og þar við bættist að við siðustu tollskrár- brey'ingar lentú tækin i hátolli. Blaðið hóf að rekja þetta mál, er það hafði upp á sex ára dreng, Gunnari Þór, sem er nýbyrjaður nám í Árbæjarskóla, en átti strax í erfiðleik- um með aö fylgjast nægilega vel með vegna vöntunar á þessum tækjum, að sögn kennara hans. Foreldrar Gunnars hafa ekki eins og á stendur efni á að leggja út á áttunda hundrað þúsund fyrir tækjunum og óvíst var að nokkur stofnun tæki þátt í kostnaöinum. Leit um tíma út fyrir að Gunnar Þór neyddist til að fara í Heyrn- leysingjaskólann. Hann hefur hins vegar góðan orðaforða og á gott með að tjá sig, svo þar á hann ekki heima. Blaðið hefur að undanförnu rakið hvernig kerfið hefur kastað þessu máli frá einni stofnun til annarrar í rúmt ár án árangurs. Einnig að slíkt tæki var komið til landsins i vor en sent út aftur þar sem .það hafði ekki verið leyst úr tolli innan þriggja mánaða. Það var ekki fyrr en Magnús H. Magnússon ráðherrá fékk loks málið til sín, að það tók nýja stefnu. Er hann hafði kynnt sér það, var það eina sem hann hafði i stuttu máli að segja um það: „Þetta er hörmulegt slys”. Ekki lét hann þar við sitja heldur fól tryggingaráði þegar í stað að útvega slík tæki til bráðabirgða, eða á meðan unnið væri að varanlegri lausn slíkra mála. Tryggingaráð hafði áður vikið þessu máli af sér og leit i fyrstu út sem það hygðist enn reyna það. Hvaða hugarfarsbreyting sem þar hefur orðið, þá eru tækin nú pöntuð og þvi verður ekki breytt. -G.S. frjálst, nháð dagblað FIMMTUDAGUR 9. NÓV. 1978. Dagblöðin neyðast til að hækka Vegna síaukins kostnaðar við útgáfuna sjá dagblöðin sér eigi annað fært en að hækka verðlag sitt frá og með 1. desember nk. Verður mánaðaráskriftin þá kr. 2.500, en lausasöluverðið kr. 125 eintakið. Alþýðublaðið, Dagblaðið, Morgunblaðið, Timinn, Vísir, Þjóðviljinn. Pennalatir þingmenn — Jón G. Sólnes var sá eini sem svaraði v fyrirspurnarbréfi í fyrra sendu stjórnendur íslenzks fyrirtækis, sem starfrækt er erlendis bréf til alla þingmanna hins háa Alþingis. Mun þetta hafa verið einhvers konar fyrirspurnarbréf en fyrirtækið er einhver stærsti kaupandi og vinnsluaðili úr íslenzku hráefni. Fyrir nokkrum dögum hafði aðeins borizt eitt svarbréf. Á timabilinu frá því að fyrirspurnarbréfið var skrifað og þar til nú hafa að visu fariö fram kosningar og áttu ekki allir fyrri þingmenn aftur- kvæmt til sinna fyrri starfa eftir þær. En hver skyldi nú vera þingmaðurinn, sem svaraði einn fyrirspurn áðurgreinds fyrirtækis. Hann heitir Jón G. Sólnes. -ÓG. Lögreglumaðurinn: ígæzlu- varðhald — hafði verið leystur frá störfum fyrir nokkru Lögreglumaðurinn, sem DB skýrði frá að handtekinn hefði verið fyrr í vikunni grunaður um þjófnað, hefur nú verið úrskurðaður i allt að viku gæzluvarð- hald. Hann hefur ekki starfað i lögregl- unni um hrið, eða síðan honum var vikið úr starfi þar sem rannsókn stendur yfir á tveim málum, sem hann er viðriðinn. Húsrannsókn var gerð á heimili hans í gær. Ekkert er enn hægt að greina frá niðurstöðum rannsóknar- innar. Maðurinn tekur hálf lögreglu- mannslaun á meðan rannsókn stendur yfir. Skv. túlkun starfsmanna dómsmála- ráðuneytisins er maðurinn opinber starfsmaður og þá lögreglumaður, þar til rannsókn er lokið og Ijóst verður hvort ástæða er til að hann haldi áfram sem lögreglumaður eða verði endanlega látinn vikja. -G.S. y Kaupið^v |5 TÖLVUR. I* OG TÚLVUUR ®.I BANKASTRÆTI8 b£íMl 276^

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.