Dagblaðið - 28.11.1978, Blaðsíða 13
12
íþróttir
Sunddrottningin Sonja Hreiðarsdöttir verður meðal
keppcnda Ægis, sem taka þátt i maraþonsundi Ægis og
Dagblaðsins.
1 1
i J ® Jþ 1 l . Í | ^ n ^
mm wm&\ L^tm. '...-tff'fo
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978
íþróttir íþróttir, íþróttir íþróttir
Fyrsti svertinginn valinn í enska landsliðið:
Þrír leikmenn Liver-
pool settir úr liðinu
Enski landsliðseinvaldurinn í knatt-
spyrnunni, Ron Greenwood, valdi I gser
lið það, sem leikur landsleik við Tékkó-
slóvakiu á morgun, miðvikudag. Green-
wood gerði sex breytingar á liði sínu frá
Evrópuleiknum við Íra á dögunum.
Bakvörðurinn Viv Anderson hjá
Nottingham Forest var valinn i stöðu
hægri bakvarðar ogerfyrsti svertinginn,
sem valinn er I enska landsliðið i knatt-
spyrnu. Þetta markar þvi tímamót í
Sovétmenn
unnu Dani
Sovétríkin sigruðu Danmörku í
tveimur landsleikjum i handknattleik á
föstudag og laugardag. Úrslitin i báðum
leikjum hin sömu, 21—15 fyrir Sovét-
ríkin.
Danir áttu ekki svar við stórskyttum
sovézka liðsins. Skot þeirra höfnuðu ótt
og tftt i danska markinu. f fyrri leiknum
á föstudag var staðan í hálfleik 12—6
fyrir Sovétríkin.
Mörkin í þeim leik skoruðu. Dan-
mörk: Erik Bue Petersen 5/1, Jesper
Petersen 3, Iver Grunnet 2, Anders-Dahl
Nielsen 2/1, Morten Stig Christensen 1,
Mikhael Kold 1 og Lars Bock 1. Sovét-
ríkin. Alexander Anpilogov 5. Vladimir
Belov 5, Juri Kidajev 3, Oleg Gagin 2/2,
Vladimir Repjov 1, Vladimir Kravcov 1,
Anberg Tabidze 1, Vladimir Nivozski 1,
Vasseli Barin 1 og Viktor Machorin 1.
Áhorfendur voru 1600.
Tölur úr síðari leiknum höfum við
ekki fengið enn. Þá má gcta þess, að f
þriðja leik Sovétríkjanna og Sviþjóðar,
sem leiknir voru í vikunni á undan dö-
nsku leikjunum, varð jafntefli 24—24.
Leikið var í Stokkhólmi og voru Svíar að
vonum mjög ánægðir með þann árangur.
Sovétríkin urðu í öðru sæti á HM sl.
vetur.
brezkri knattspyrnu en er aðeins upphaf
þess, að margir svertingjar feti i fótspor
Andcrsons. Það er ekkert nýtt að
svertingjar séu valdir f landslið i Evrópu.
Slikt er algengt til dæmis í Frakklandi
— og einnig hafa svertingjar leikið f flciri
landsliðum, mcira að segja Vestur-
Þýzkalands.
Það vakti mikla athygli í gær að þrír
leikmenn Liverpool misstu stöður sinar í
landsliðinu — Emlyn Hughes var einn
þeirra, en hann hefur ekki komizt í lið
Liverpool frá því í september. Er þó i
enska landsliðshópnumen nú er talið að
dagar hans séu taldir sem landsliðs-
manns. Hann var fyrirliði liðsins í
leiknum við íra — en nú tekur félagi
hans hjá Liverpool Phil Thompson við
stöðu hans sem miðvörður, og Kevin
Keegan verður fyrirliði.
Enska liðið gegn Tékkum verður
skipað þessum leikmönnum.
Peter Shilton, Nott. Forest, Viv
Anderson, Ncttm. Forest, Trevor
Cherry, Leeds, Phil Thompson,
Emlyn Hughes — missti stöðu sina.
Viv Andersson, Nottingham Forest —
fyrsti svertinginn i enska landsliðinu í
knattspyrnu.
Liverpool, Dave Watson, Man. City,
Tony Currie, Leeds, Ray Wilkins,
Chelsea, Steve Coppell, Man. Utd. Tony
Woodcock, Nottm. Forest, Kevin
Keegan, Hamborg SV, og Peter Barnes,
Man. City.
Auk Hughes misstu Liverpool-leik-
mennirnir Ray Clemence, markvörður,
og Phil Neal, bakvörður, stöður sinar i
liðinu. Það kemur ekki beint á óvart.
Anderson kemur í stað Neal, sem hefur
átt heldur slaka leiki að undanförnu, og
Peter Shilton fer í markið eftir snilldar-
markvörzlu sína tvö síðustu árin. Þá
kom Ray Kennedy, Liverpool, ekki til
álita vegna meiðsla en hann er í lands-
liðshópnum eins og félagar hans, sem
misstu stöður sínar í liðinu. Þess má
geta, að Emlyn Hughes hefur leikið 56
landsleiki fyrir England.
Trevor Brookipg, West Ham, var ekki
valinn i landsliðið vegna meiðsla og
kemur Tony Currie, Leeds, í hans stað.
Currie hefur undanfarna mánuði verið i
landsliðshópnum og komið inn sem
varamaður. Hann verður á miðjunni
með Ray Wilkins, Chelsea. Vinstri bak-
vörður er gamli landsliðskappinn Trevor
Cherry, Leeds, sem var valinn i stað
Mick Mills, Ipswich. Hann missti því
stöðu sina og það gerði líka Bob Latch-
ford, Everton. 1 hans stað valdi Green-
wood Tony Woodcock, Nottingham
Forest. Hinir þrír leikmennirnir I fram-
línunni, Coppell, Keegan og Barnes
héldustöðum sinum.
Ron Greenwood hefur ekki áður gert
svo rótækar breytingar á landsliðinu
enska frá því hann tók við sem einvaldur
eftir að Don Revie stakk af.
Tékkar og Englendingar munu einnig
leika B-landsleik á morgun, miðvikudag.
í enska B-liðinu eru fjórir leikmenn, sem
leikið hafa í enska landsliðinu, þeir Joe
Corrigan, Manch. City, Brian Green-
hoff, Manch. Utd. Brian Talbot, Ipswich
og John Gidman, Aston Villa.
Laurie Cunningham, svertinginn
snjalli hjá West Bromwich Albion, sem
alveg skyggði á stjömur Valencia, þá
Rainer Bonhof og Mario Kempes, í
Evrópuleiknum sl. miðvikudag í
Valencia, er valinn í liðið en hins vegar
ekki félagi hans Cyrille Regis — annar
snjall svertingi hjá WBA. Talið var
öruggt, að Regis kæmist í liðið. Þá er
fyrirliði Everton, Mick Lyons, valinn en
ekki er alveg öruggt að hann geti leikið.
Á við meiðsli að stríða. Ef hann leikur
ekki kemur Bob Hazell, Úlfunum, —
enn einn svertingi — í hans stað.
Kevin Keegan, enski landsliðsfyrir-
liðinn hjá Hamburger SV, hefur verið
kjörinn „vinsælasti leikmaðurinn” i
Vestur-Þýzkalandi. Það voru knatt-
spyrnumenn í Bundeslfgunni, sem
greiddu atkvæði. Af 270 fékk Keegan 96
atkvæði. Næstir komu Sepp Maier,
markvörður Bayern og þýska lands-
liðsins, og Klaus Fischcr.
MARAÞONSUND ÆGIS OG DB
Efnt er til þessa sunds til ágóða fyrir
Sundfélagið Ægi. Leitað verður til fólks um
að skrifa sig á áskriftarlista — þar sem heitið
er 30 krónum fyrir hvern kílómetra, sem
sundfólkið leggur að baki. Hér er þvi ekki
um stóra upphæð að ræða hjá hverjum og
einum, sem vill styrkja félagið — en safnast
þegar saman kemur.
„Það hefur verið keppt í maraþonknatt-
spyrnu og maraþonhlaupi i Vestmanna-
eyjum, Keflavik, Akranesi og i Kópavogi
síðustu vikur og mánuði en ekkert slíkt
hefur verið háð í Reykjavík. Við heitum því
á Reykvíkinga að styðja við bakið á okkur í
sambandi við þessa keppni — styrkja sund-
fólk Ægis með undirskriftum en Sundfélagið
Ægir hefur unnið mjög mikið starf á sviði
sundmála Reykvíkinga i marga áratugi.
Lagt þar mikið starf af mörkum til heilla
Reykvíkingum og reyndar öllum lands-
mönnum. Hefur um árabil verið öflugasta
sundfélag Íslands,” sagði Halldór Hafliða-
son, formaður Ægis í gær.” Þó við heitum
sérstaklega á Reykvikinga vitum við að
Ægir á stuðningsfólk um allt land og við
heitum einnig á það að styrkja okkur í þessu
sambandi,” sagði Halldór ennfremur.
Axel Alfreðsson hefur um langt árabil verið I
hópi beztu sundmanna fslands. Margfaldur
fslandsmeistari og methafi. Hann verður
elzti keppandinn, 22ja ára, I maraþonsundi
Ægis og Dagblaðsins.
„Eitt er ég viss um og það er að cnginn
mun gefast upp í maraþonsundinu — og
annað. Það verður sett heimsmet f Sundhöll
Reykjavíkur þvi þetta mun vera i fyrsta sinn i
heiminum, sem 24 sundmenn synda 24
klukkustundir samfleytt ,”sagði Guðmundur
Harðarson, hinn snjalli þjálfari Ægis i gær.
Sundfélagið Ægir í Reykjavík hefur ákveðið
aö cfna til maraþonsunds í samvinnu við
Dagblaðið, sem stendur í sólarhring. Fyrir-
komulag er þannig, að hver keppandi syndir
í eina klukkustund og rcynir að synda eins
hratt og mögulegt er til að komast sem
lengsta vegalengd. Keppendur verða 24 og
keppnin stendur því nákvxmlcga í sólar-
hring. Hefst i Sundhöllinni föstudagskvöldið
15. desember kl. 22.00 og verður synt alla
nóttina — allan laugardaginn 16. desember
til kl. 22.00 um kvöldið. Vegalengdin, sem
sundfólkið mun leggja að baki, verður senni-
lega cinhvers staðar á bilinu 85—89 km.
Ekki er vitað til að slikt maraþonsund hafi
áður verið reynt i heiminum. Hins vegar er
vitað um fimm sundmenn, sem syntu í 24
klukkustundir — og aðra 20, sem syntu 100
mílur á 24 klst. og 24mín.
Ægir vann KR
Ægir sigraði KR 5—4 f spennandi leik i
gærkvöld I SundhöUinni á haustmótinu f
sundknattleik. Það var fyrsti leikurinn á
mótinu.
Það hefur aldrei verið reynt opinberlega
fyrr hér á landi að synda í klukkustund —
hvað þá að 24 syndi í 24 klukkustundir. Það
'getur því orðið skemmtilegt fyrir áhorfendur
að fylgjast með sundinu í Sundhöllinni.
Keppendur verða 24 — piltar og stúlkur.
Yngsti keppandinn 10 ára en sá elzti 22ja
ára. Ein braut í lauginni í Sundhöllinni
verður afmörkuð fyrir sundfólkið — en að
öðru leyti verður Sundhöllin opin fyrir al-
menning á þeim tíma, sem sundið fer fram.
Það er á venjulegum sundtíma hallarinnar.
Ýmislegt verður gert til að sundið verði sem
áhugaverðast — Sundhöllin prýdd og annað
eftir því — og svo er líka hægt að taka sund-
sprett á sama tíma og fylgzt er með sund-
fólki Ægis. Undirbúningur fyrir maraþon-
sundið hefur staðið um tima og DB þykir
fengur að hafa fengið tækifæri til að styðja
við bakið á sundfólki Ægis í sambandi við
sundið. Það er skemmtileg nýbreytni. Veru-
legur áhugi hefur komið í Ijós hjá ýmsum í
sambandi við sundið — og margir hyggjast
styrkja Ægi. Ekki veitir af. Litlir peningar
sem eru í umferð í sambandi við sundmál
Íslendinga. DB mun næstu daga og fram að
keppnisdögunum 15.-16. desember skýra
betur frá þessu maraþonsundi Ægis og DB.
•hsim.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978
29
Iþróttir
Iþróttir
tíO
2
Iþróttir
Iþróttir
Margir telja að Austurrikismaðurínn Klaus Heidegger verði sigurvegari i keppni heimsbikarsins i vetur. Mjög fjölhæfur
skiðamaður. Hér er hann til vinstri — en til hægrí er Ingemar Stenmark Sviþjóð, sem sigrað hcfur I keppni heimsbikarsins
þrjú siðustu árín.
Stigaútreikningi
breytt í 12. sinn
—á 13 árum í keppni heimsbikarsins í alpagreinum á skíðum
Phil Mahre, hinn 21 árs Bandaríkjamaður frá White Pass i Washington-fylki er
talinn hafa góða möguleika i keppni heimsbikarsins f vetur.
„Þetta er kolvitlaust. Nú getur
næstum hver sem er komið og unnið til
25 stiga í heimsbikarkeppninni,” sagði
Franz Klammer, austurríski brun-
meistarinn, í viðtali við fréttamann
Reuters. Hann gagnrýndi mjög hinar
nýju keppnisreglur, sem fara á eftir í
vetur í keppni heimsbikarsins — einkum
þó að samanlagður árangur í svigi og
bruni eða stórsvigi og bruni vcrður
fjórum sinnum á dagskrá á ný.
Austurríkismenn eru gagnrýnir á
nýja kerfið ekki síður en Svíar. Það varð
einhvern veginn að stöðva sigurgöngu
Ingentar Stenmark, sem sigrað hefur í
keppninni um heimsbikarinn þrjú
síðustu árin, og því greip nefndin, sem
hefur með að gera að ákveða keppnis-
reglur til þess að breyta þeim i tólfta
skipti — og það 13. árið, sem keppnin
er háð.
Mikilvægasta breytingin er fólgin í því
að samanlagður árangur í tveimur
greinum á móti er tekinn upp á ný.
Að auki verður nýr stigaútreikningur
fyrir þrjú síðustu mótin i hverri grein.
Þá fá 25 beztu stig — ekki aðeins 10
beztu eins og áður hefur verið. Talið frá
25^'og niður úr. Það þýðir að þeir
keppendur, sem eru í beztri æfingu
siðast á keppnistímabilinu fá flest stigin.
Þessi mót verða þýðingarmeiri en þau,
sem verða háð i desember og til loka
janúar. Tíunda saéti á brunkeppninni á
mótinu fræga Hahnenkamm i Kitzbuhel
gefur til dæmis sama stigafjölda og 25.
sæti á Garibaldis- mótinu í bruni í
Kanada.
Ingemar Stenmark hefur ákaflega litla
möguleika til að vinna fjórða árið i röð
samanlagt. Þó hann sigraði í öllum 10
svigmótunum og öllum tíu stórsvigs-
mótunum gæti hann hlotið 150 stig í
hámark — og nú verða keppendur
einnig að hljóta stig í bruninu til að geta
Sveitaglíma
íslands
Sveitaglima íslands fór fram í íþrótta-
húsinu að Laugum í S-Þing. 25.nóv.
1978. Fjórar sveitir tóku þátt í mótinu,
tvær frá Héraðssambandi Suður-Þing-
eyinga, ein frá Ungmennafélaginu
Víkverja og ein frá KR.
ÚrsUt urðu þau að A-sveit H.S.Þ.
sigraði, hlaut 3 stig. í öðru sæti varð B-
sveit H.S.Þ. með 2 stig. Þriðja var sveit
Víkverja með 1 stig og i neðsta sæti varð
sveit KR með ekkert stig. Sveit Vlkverja
var ekki fullskipuð, hana vantaði þátt-
takanda I þyngsta fiokk.
GUmustjóri var Arngrímur Geirsson.
Yfirdómari Sigtryggur Sigurðsson.
Meðdómendur, Eysteinn Sigurðsson og
Haukur Aðalgeirsson.
sigrað. Stenmark hefur hingað til ekki
hætt á að taka þátt í brunmótum.
1 karlakeppni heimsbikarsins er há-
marksþátttaka hjá keppanda 34—10 i
svigi, 10 i stórsvigi, 10 í bruni og fjögur
mót samanlagt. Hjá konum i keppninni
26. Á mótunum í desember og janúar
verður stigatalan 25, 20, 15, 11,8,6,4,
3, 2 og 1. Það er fyrir 10 beztu. 1 febrúar
og marz fá 25 beztu stig 25, 24, 23 og
svo framvegis. Tekin verða saman þrjú
beztu afrek keppenda í hverri grein —
og auk þess á mótunum fjórum saman-
lagt. Það þýðir hámark 300 stig, 12 x 25
stig.
Nú þegar flestir telja, að Ingemar
Stenmark hafi litla sem enga möguleika
til að sigra i heimsbikarnum* i vetur —
hvort sem hann fer út i að keppa í bruni
eða ekki — beinist athyglin mjög að því
hver hafi mesta möguleika að ná titli
hans. Stenmark og Klammer telja báðir
að Klaus Heidegger, Austurríki, hafi
mesta möguleika — en aðrir eru á þvi,
að Bandaríkjamaðurinn Phil Mahre sé
sigúrstanglegastur. Hann er ágætur
brunmaður auk þess sem hann er meðal
hinna fremstu í svigi og stórsvigi. Auk
þessara tveggja koma þeir Piero Gros,
Ítalíu, og Andreras Wenzel. Lichten-
stein, mjög til álita — jafnvel Gustavo
Thoeni. Italíu, sem var hinn mikli
meistari áður en Stenmark kom fram á
sjónarsviðið.
Keppnin i heimsbikarnum hjá körlum
hefst í Val d’ Isere í Frakklandi 9.
desember. Keppt verður einnig þann 10.
Keppnisgreinar stórsvig og brun — og
samanlagt. 13. desember verður svig-
keppni í Madonna di Campiglio á Ítalíu.
16. desember brun í Val Gardena á
italíu. 20. desember brun i Cortina á
Ítalíu — og 21,—22. febrúar svig og
stórsvig í Kranjska Gora í Júgóslaviu.
Þá vertýur hlé til 6. janúar.
Keppni kvenna hefst i Val d’Isere í j
Frakklandi 7.—8. desember. Anna j
Maria Moser, Austurriki, verður meðal i
keppenda í vetur og stefnir að sínum
sjötta sigri í keppni heimsbikarsins — en
á síðasta keppnistímabili varð hún að
láta sér annað sætið nægja.
ENN MET HJA
GETRAUNUM
Einn með 12 rétta ogfékk eina milljón
þrjú hundruð sextíu og átta þúsund kr.
Það er sctt nýtt met næstum I hverri
viku hjá íslenzkum getraunum. i 14.
leikviku — leikir síðastliðinn laugardag
— kom fram einn seðill með tólf réttum
og fær handhafi hans kr. 1.368.000
krónur — eina milljón þrjú hundruð
sextíu og átta þúsund — sem er hæsta
vinningsupphæð, sem komið hefur á einn
seðil I getraununum frá upphafi.
Vinningshafi þessa seðils er úr Kefla-
vík, þeim mikla knattspyrnubæ. Fyrra
íslandsmetið i getraununum átti ungur
piltur úr Kópavogi, sem hlaut tæpa 1.2
milljónir króna í 12. leikviku getrauna.
Met hans hefur því verið bætt um tæpar
200 þúsund krónur.
1 14. leikvikunni með leikjuni á
laugardag komu einnig fram 54 raðir
með 11 réttum. Vinningur fyrir hverja
verður 10.800 krónur.
Þátttakan i getraununum heldur
áfram að aukast og var vinningsupp-
hæðin í 14. leikviku um 1.950.000
krónur — ein milljón niu hundruð og
fimmtíu þúsund krónur — sem er hæsta
vinningsupphæð í getraununum hér á
landi frá upphafi.
1 15. leikviku með leikjum i ensku
knattspyrnunni næstkomandi laugardag
eru þessir leikir.
Arsenal—Liverpool
Aston Villa—Coventry
Bristol City—Derby
Everton—WBA
Ipswich—Leeds
Man. Utd,—Norwich
Middlesbro—Tottenham
Nottm. Forest—Chelsea
QPR-Bolton
Southampton—Birmingham
Wolves—Man. City
Burnley—Luton
Hibs í stríði við
brezku
ríkisstjórnina
Edinborgarliðið Hibernian ætlar að
áfrýja þeirri ákvörðun brezku rikis-
stjórnarinnar að veita norska knatt-
spyrnumanninum Isak Refstad ekki at-
vinnuleyfi í Skotlandi. Honum var neitað
um atvinnuleyfi á þeirri forscndu, að
hann uppfyllti ekki þau skilyrði, sem
gerð eru til erlendra knattspyrnumanna
á Bretlandseyjum, það er „að vera
viðurkenndur knattspyrnumaður á
alþjóðlcgum vettvangi, sem getur lagt
eitthvað af mörkum til þjóðaríþróttar
brezkra” eins og segir í greinargerð
stjórnarinnar í sambandi við at-
vinnuleyfi.
Refvik kom til. Skotlands 13.
nóvember ásamt norska lands-
liðsmanninum Svein Mathiesen. Þeir
skrifuðu undir áhugamannasamning hjá
Hibernian tveimur dögum síðar.
Mathiesen fékk atvinnuleyfi þar sem
hann er landsliðsmaður— en Refstad
ekki. Lék þó einn leik með Hibernian
gegn Morton og skoraði bæði mörk liðs
síns í 2—0 sigri i deildabikarnum.
KRVARÐÍ3JA
SÆTIA ÍRLANDI
Körfuknattleiksmenn KR tóku þátt í
hraðmóti i körfuknattleik í Dublin á
frlandi um helgina. Léku fimm leiki i
förínni — unnu þrjá en töpuðu tveimur
— og urðu í þriðja sæti á mótinu. Á
mótinu léku ensku og skozku bikar-
meistararnir, írlandsmeistararnir — og
þaö liö, sem nú er efst I I. deild á írlandi,
auk KR-inga.
Fyrsti leikur KR var við bikar-
meistara Englands. Það var spennandi
leikur og KR með forustu ' lengi vel.
Undir lokin sigu þeir ensku- framúr og
sigruðu með 12 stiga mun.
Annar leikur KR var við írlands-
meistarana í körfuknattleik og þá sigraði
KR með 10 stiga mun. í þriðja leiknum
voru skozku bikarmeistararnir lagðir að
velli. KR sigraði þá með 18 stiga mun.
Fjórða leiknum töpuðu KR-ingar hins
vegar en það var við liðið á trlandi, sem
er í efsta sæti. Sá leikur skar úr hvort
liðið færi í úrslit gegn ensku bikarmeist-
urunum trarnir reyndust sterkari.
Sigruðu KR með niu stiga mun. Í keppn-
inni um þriðja sætið sigraði KR skozku
bikarmeistarana aftur og hlaut því
þriðja sætið.
Fara enn 2 leik-
menn til Lokeren?
áform hans. Morton var hér í keppnis-
för. Greinilegt að málin við belgiska liðið
Lokeren eru að komast á alvarlegt stig
— og eru reyndar komin það. Er ekki
ráð fyrir stjórn Knattspyrnusamhands
íslands að fylgjast vel með því sem cr að
gerast á þessu sviði?
Aberdeen
vann Dynamo
Moskvu
Aberdeen sigraði nýlega Dynamo
Moskvu 1—0 i Aberdeen. Það er fyrsti
jtapleikur sovézka liðsins í keppnisförinni
um Bretlandseyjar — áður jafntefli gcgn
Bristol City og sigur á Chelsea. David-
son skoraði eina markið í leiknum i
Abcrdeen.
Benedikt Guðmundsson, miðvörður-
inn sterki í Breiðabliki i knattspyrnunni,
sem aðeins er 17 ára, hélt I morgun til
Belgiu og mun næsta hálfa mánuðinn
dvelja hjá Lokeren — liðinu, sem þeir
Arnór Guðjohnsen og James Bett leika
með.
Talsverðar likur eru á þvi að Benedikt
gerist atvinnumaður hjá Lokeren ef um
semst hjá honum og belgiska félaginu —
og Benedikt líkar við aðstæður þar.
Þá eru einnig horfur á því aö Hafþór
Sigurjónsson úr Fram fari einnig til
Lokercn á næstunni. Belgíska félagið
hafði samband við Benedikt og Hafþór,
þegar þeir léku með islenzka unglinga-
landsliðinu i Hollandi á dögunum.
Það er greinilegt að belgiska félagið
ætlar sér mikinn hlut með kornunga
íslenzka leikmenn. Þetta minnir talsvert
á Morton-málið hér á árunum upp úr
1970, þegar Hal Stewart, framkvæmda-
stjóri og eigandiMorton á Skotlandi,var
að reyna að fá marga íslcnzka pilta til
sín. Hins vegar varð ekki af því. Albert
Guðmundsson, þáverandi formaður KSf,
stöðvaði Stewart og kom i veg fyrir
Kinverjar léku sér að Svíum í lands-
kt ppni í borðtennis i gær i Trollhettan I
Svíþjóð. Úrslit í karlakeppninni, Kína 5
;— Svíþjóð 0, og sömu úrslit voru í
kvennakeppninni.