Dagblaðið - 28.11.1978, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 28.11.1978, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978 _ ........... ER BUIÐ AÐ LOGBINDA MEIRA EN 40% VERDBÓLGU Á NÆSTA ÁRI? íi \ Það hefur náðst um það samkomu- lag, að um næstu mánaðamót gangi í gildi lög, sem komi í veg fyrir rúmlega 14% launaskriðu út i samfélagið. Heimilað er, að rúmlega 6% launa- hækkun eigi sér stað, en því sem munar er „eytt” með öðrum hætti. Allir eru sammála um, að 14% hefðu riðið efnahagsmálum næsta árs að fullu, í kjölfar hefði fylgt óviðráðanleg fiskverðshækkun, gengisfelling og óðari verðbólga en nokkru sinni fyrr. En skuldarar hefðu grætt. Hins vegar er öllum lika Ijóst, að hér var engan veginn nóg að gert. Hætt er við, að þessar ráðstafanir, sem eru til bráðabirgða og auðvitað gersamlega ófullnægjandi, vegna þess hve skammt þær ná, leysi engan vanda, heldur dragi ögn úr honum, en áfram verði vandinn lítt viðráðanlegur 1. marz. Hætt er við, að rikisstjórnin sé búin að lögbinda fjörutíu prósent verðbólgu, og sennilega gott betur. Og einnig er hætt við, að þær pólitísku langtima- ráðstafanir, sem hefði verið hægt að gera nú, verði ógerlegt að gera að þremur mánuðum liðnum. Aðkoman Þrátt fyrir hagstæð ytri skilyrði segir sig sjálft, að aðkoma þessarar ríkisstjómar var óglæsileg. Fimmtíu prósent verðbólga og undirstöðu- atvinnuvegir gjaldþrota. Það hefði þurft aðgrípa til langtimaaðgerða með ákveðnum takmörkum. Ríkisstjórnin hefur haft til þess tvö tækifæri, 1. september og 1. desember. i bæði skiptin hefur meirihluti hennar, Alþýðubandalag og forusta Framsóknar, guggnað. Allar rikis- stjórnir njóta velvildar fyrstu mán- uði. Það er ofur eðlilegt. Brezki verkamannaforinginn Atlee sagði eitt sinn þau einföldu sannindi, að ef ríkis- stjórn þarf að grípa til erfiðra og rót- tækra efnahagsráðstafana, þá eigi hún að gera það strax. Þessi ríkisstjórn hefur ekki borið gæfu til þess að gripa til slíkra ráðstafana. í marz nýtur hún ekki lengur þess velvilja, sem hún nú nýtur. Svo kennir reynslan. Þá er eins líklegt að ríkisstjórnin hafi misst af strætisvagninum.Það iem hún þorir ekki nú, þorir hún varla þá. Er Alþýðubanda- lagið óstjórnhæft? Alþýðubandalagið sat síðast i rikis- stjórn 1971 — 1974. Efnahagsleg' aðkoma þá var góð, stjómin gat tekið 'vinsælar aðgerðir fyrstu misserin. Svo komu erfiðleikar, Vestmannaeyjar og oliuverðshækkun. Rikisstjórnin hrundi, sem kunnugt er. Nú eru aðstæður aðrar. Það voru erfiðleikar frá upphafi þrátt fyrir góð ytri skilyrði. Alþýðubandalagið hafði hins vegar rekið kosningabaráttu, þar sem öllum var lofað öllu. Launþegum var lofað samningum i gildi — og óbreyttu vísitölukerfi um aldur og ævi, þó svo allir viti, að þetta ástand skrúfar aðeins upp innistæðulausa peningaseðla. Bændum var lofað, að vandi þeirra yrði leystur með þvi að auka neyzlu á afurðum þeirra! Útgerðarmönnum og öðrum i rekstri var tofað, að þeirra hagur yrði aukinn með því að lækka vexti — þrátt fyrir það að Alþýðubandalagið hafi engin sýnileg áform um að lækka verðbólg- una. Samt tókust menn á hendur að gera tilraun til þess að stjórna með Alþýðubandalaginu — kannske vegna þess að menn vildu ekki trúa því, að mennirnir væru svona vitlausir. 1 tvígang hafa verið gerðir við þá samningar um að stjórna landinu til þriggja mánaða í senn. Samningar, sem eru gersamlega óraunhæfir og byggðir á óljósum loforðum um að tekin verði upp skynsamlegri efna- hagsstefna í framtíðinni. Ólafur Jóhannesson hafði átt þátt í samkomulagi, sem fól í sér 3,6 prósent kauphækkun. Svo héldu hans eigin menn og svo hélt Alþýðuflokkurinn. Á síðustu stundu kemur maðurinn fram með allt aðrar tillögur og setur skilyrði: Ef ekki þetta, þá verður ekkert gert og landið verður efnahags- lega stjórnlaust. Margir voru hissa og þó sennilega enginn meir en fjármála- ráðherrann. Svona leikfléttur er hægt að leika einu sinni og kannske tvisvar, en til trausts eru þær vart fallnar. Þvi áfram heldur verðbólgan. Það er hollt, að fólk viti um þetta. Það er auðvitað kjarni málsins, að það verða aldrei gerðar áætlanir í efna- hagsmálum, nema þær njóti trausts al- mennings. Heilbrigt almenningsálit verður að vera til staðar. Það er bjarg- föst sannfæring mín, að slikt al- menningsálit sé til staðar, hvað sem talsmenn einstakra þrýstihópa segja og gera. Kjarasáttmáli Tillögur Alþýðuflokksins að þessu sinni eru þekktar. Lagt var til, að sett Kjallarinn Vilmundur Gylfason yrðu um það lög eða bindandi reglur, að kaup hækkaði I fjórum áföngum frá 1. desember til 1. desember 1979, 4% i hvert skipti. Siðan var lýst aðgerðum til þess að ná verðbólgunni niður, m.a. úttekt á fyrirtækjum, .skattamálum. Ef ríkisstjórninni hefði heppnazt það, þá hefði kaupmáttar- rýrnun orðið við lágmark, meðan verulegur sigur hefði unnizt á verð- bólgunni og forsendur skapazt til nýti legrar hagstjórnar á árinu 1980. Þetta þorði Alþýðubandalagið ekki meðan Framsóknarflokkurinn virtist ekki hafa skoðanir á málinu. Það sem menn höfðu á móti slikum áformum var. að verið væri að svikja fyrirheit um kjarasátimála. Þetta er auðvitað rangt. Kjarasáttmáli þýðir fyrst og fremst, að hafa skuli skipuleg samráð við aðila vinnu- markaðarins. En á erfiðum timum, þegar samffélagið situr á efnahagslegu eldfjalli, þá er auðvitað alveg Ijóst, að löggjafarvaldið getur þurft að setja rammalöggjöf, til lengri eða skemmri tíma. Innan jressarar rammalöggjafar verði siðan samið um frekari útfærslu hennar og einstök atriði. Ef ríkisvald hefur ekki heimild til slikra aðgerða á erfiðum tímum er landið einfaldlega stjórnlaust. Þessi sannindi skipta enn meira máli vegna þess, að launþega- félögin eru mjög misjafnlega upp byggð, lýðræði misjafnt og félagsstarf semi einnig misjöfn. Kjarasáttmáli þýðir auðvitað ekki skilyrðislaust valdaafsal frá Alþingi til launþega félaga — enda skárra væri það. Og enda verður það að segjast og á að segjast, að það er með launþegafélögin eins og Alþingi og einstaka þingflokka — þarer lika valdabarátta, persónuleg ■og pólitisk átök, sem hafa áhrif á ákvarðanir. Launþegahreyfingin er langt frá þvi að vera samstæð heild. Launþegahreyfingin hefur vissulega mikil völd, sem hægt er að beita, meðal annars til verkfalla. En það er þá undir því komið. að launþega- forustan sé að flytja skynsamlegra mál en Alþingi. Ég er sannfærður um það, að víðast út um hið stóra samfélag hefði það notið stuðnings að hafast að. Binda tiltekna þætti hagstjórnar fyrir næsta ár, þar með talda visitölu, en leggja það síðan á ríkisstjórn að stjórna gegn verðbólgunni. Það hetði verið vit — en það sem nú hefur verið gert er án vits — vitlaust. Gálgafrestur Í þágu hverra er verið að stjórna? Ríkisstjórnin hefur gefið fyrirheit um að koma verðbólgunni niður i þrjátíu af hundraði fyrir árslok 1979. Lúðvík Jósepsson kallar raunvaxtamenn.sem vilja raunvexti á tveimur áruni, hins vegar jafnan hávaxtamenn, og talar jafnframt um fimmtíu til sextíu prósent vexti. Ekki er það nú sérstak- lega trúverðugt. Verðbólgan niðist miskunnarlaust á þeim. sem lægst hafa launin, vegna þess að það er ekki það fólk, sem nærist á bönkunum. Samt er augljósi, að Alþýðubandalaginu er sáralítil alvara með því, sem þeir segja um verðbólguna. Þessar siðustu aðgerðir eru gálga frestur, verði ekki gerð útfærð áætlun um aðgerðir fyrir árið 1979 og áfram. Þessi ríkisstjórn verður rúin trausti, þegar hún ætlar að leysa næstu sprengingu með ráðstöfununt til þriggja mánaða. Þetta hafá verið óviturlegar aðgerðir. Þeim verður hjálpað i gegn til þess að forða enti meiri skriðu. En fólk verður að vita. að þetta er ekki aðferðin. Og allur þorri fólks veit það mætavcl. DAGBIAÐIÐ frjáli úháð rlatjhlz SAMKOMULAG NAÐIST A ELLEFTU STUNDU — kaupiðl.nu afgreittmeð Samkomulag náðist en kratar bókuðu mótmæli: Ólafur stillti Alþýðu- f lokknum upp við vegg —6,13% kauphækkun nú, stefnt að 5% til viðbótar 1. marz IM-Auipar I (r\k«Vu.ti DB Irfálai, aháð dmgbbu i<K,<mut,i«tt.vm.iw Hótel Akureyri: Nætursalan erólögleg — segirbæjarfógeti Bláfjalla- svæðið opnað ■. m ___v_____ Meðbræður sem hafa orðið útundan Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður (A), hefur lagt fram lagafrumvarp um framkvæmdasjóð öryrkja. Lagði hún til að markmið sjóðsins verði að tryggja nauðsynlegt, sameiginlegt átak þjóðarinnar til þess að bæta úr aðbúnaði og aðstöðu líkamlega og andlega fatlaðra i þjóðfélaginu og þingmaðurinn segir ennfremur — Að það sé þýðingarmikið atriði, sem oft á tíðum geti ráðið úrslitum um framtíð þroskaheftra. að þeim sé tryggð rétt uppeldis- og kennslufræðjleg meðferð strax frá fáeðingu og væri það brýn undirstaða einhvers árangurs i námi þeirra síðar meir. — Staðsetning nauðsynlegra sérskóla, fjölskyldu- og vistheimila þurfi að vera í eðlilegu umhverfi. Hafðu þökk fyrir, Jóhanna Sigurðardóttir, það gleður mig mikið- að umræður um málefni öryrkja eru á dagskrá á Alþingi. Megi lagafruntvarp þitt fá sterkan jákvæðan meðbyr. Það er heldur hægfara hreyfing á þessum málefnum. Ennþá er staðan þannig að foreldrar vita oft ekki hvernig bregðast skuli við vandanum, fá fræðslu, meðferð, þjálfun. Jú, það er vitað, að strax og það er Ijóst að barnið er ekki heilbrigt — stundum koma einkennin ekki strax fram — á að bregðast fljótt við eftir hjálp, en s1ík aðstoð kostar mikla fyrirhöfn. Foreldrar standa yfir- leitt einir og einangraðir með vanda- mál sín og tilfinningar. Að þurfa að berjast fyrir rétti þessara einstaklinga er bitur og erfið lífsreynsla. Að fást við kerfi, sem sýnir tómlæti og þröngsýni, kerfi, sem á svo margar undir- og yfir- nefndir. Hver vísar á annan. Enginn er ábyrgur. Islenska nefndakerfið virðist skipað mannskap, sem getur engu ráöið. En við foreldrar megum ekki vera svo hlédræg i mati okkar, að baráttan einkennist af sektarkennd eða afsökun á að þessir einstaklingar skuli vera til. Við erum ekki að betla eitt eða neitt. Bara að krefjast þess að þeir fái þann rétt, sem þeim ber. Við ]eigum að teljast vel menntuð, vel upþlýst þjóð, en ennþá lítur fjöldinn á þessa einstaklinga sem afbrigðilegar verur. Samfélagið verður að skilja það að þetta eru meðbræður, sem hafa orðið útundan. Þeir eiga allir rétt á að fá möguleika til þroska. Það verður að ætlast til þess að sveitarstjórnarmenn, þingmenn og embættismenn þjóðarinnar kynni sér þarfir þessa fólks eigi síður en heilbrigðra og sinni þeim. Það hlýtur að vera hverjum heilbrigðum manni augljóst mál, að eitthvað hefur brugðist i stjórnun þeirra á málum fólksins, þeg- ar stórir hópar samborgara þeirra telja ástæðu til að stofna áhugamanna- félög um hin og þessi verkefni, sem á allan hátt heyra til samfélags- stjórnunar. Það getur vart verið að þessir menn fólksins hafi ekki orðið varir við fulltrúa þessara félaga, er þeir knýja dyra á nær hverju húsi í þétt- Kjallarinn Jóhanna Tryggvadóttir býliskjörnum landsins sérhvern sunnudag, biðjandi um aðstoð við eitt eða annað verkefni, sem hinir völdu fulltrúar hafa eigi séð sér fært að sinna. Ég gleðst þess vegna yfir þvi að verða vör við að þú, Jóhanna, skulir vilja sinna þessum málum og ég vona að þú eigir eftir að heimsækja eitt af litlu framtíðar fjölskyldu- heimilunum, sem undir umsjón sér- menntaðs starfsfólks myndar sterkari tengsl og samvinnu fyrir einstaklinginn og foreldra heldur en hinar stóru stofnanir sem verið hafa og eru gefa ntöguleika til. Það er svo sannarlega kominn timi til að sljórn völd sýni þessum málslað nieiri skilning en verið hefur, þvi að öll fyrir grciðsla frá þeim gengur svo hægt að það er með ólikindum. Það hefur hvaflað að mér, að kannski trúi þcir alls ekki á þennan málstað og líti á okkur foreldrana sem einhver viðundur i heimskulegri baráttu fyrir tilgangslausu málefni. I landssamtökunum Þroskahjálp teljast um 8 þúsund félagar. úr öllunt landshlutum. Sameiginlega ætlum við og verðum að rækta betur þann rcit. sem okkur var ætlaður. Við vcrðum að stefna að því, að þeir einstaklingar. 'sem eiga eftir að koma. fái sem fyrst alla þá hjálp, sem möguleg er og verða má til aukins þroska. Ég treysti á Þroskahjálp, að sam tökin geti líka hjálpað foreldrunt og aukið skilning samfélagsins og stjórn valda, með aukinni fræðslu og upplýsingum um þessi mál. Og bráðum rennur upp ár barnsins, vonandi verður það einnig ár þeirra barna, sem þarfnast hjálpar til að.fá að lifa við eðlilegri lifshætti en hingað til. Jóhanna Tryggvadóttir Akureyri.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.