Dagblaðið - 28.11.1978, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 28.11.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978 9 Fiskimálastjóri um núverandi sókn og veiðitilhögun í þorskinn: Megum búast við minni göngum fisks á hrygningastöðv- arnar en áður Aðalfundur Landsambands íslenzkra útvegsmanna, sem nýlega var haldinn, telur að verði frekari sóknartakmarkanir taldar nauðsynlegar á næstu árum verði slíkar takmarkanir byggðar á óbeinum samdráttaraðgerðum eins og verið hefur, einkum með lengingu á þeim tímabilum, sem þorskveiðar yrðu bannaðar. Með þvi móti væri hægt að draga úr sókninni, 'þannig að það valdi sem minnstri truflun á atvinnulífi þeirra, sem byggja afkomu sína á sjósókn og fiskvinnslu. Þá beinir fundurinn því til stjórnvalda að um næstu áramót liggi fyrir ákveðin stefna um leyfilega sókn í þorskinn á næsta ári. Við þá stefnumörkun verði tekið tillit til tillagna Hafrannsókna- stofnunarinnar um þorksaflahámark á árinu. G.S. Vinur okkar, þorskurinn, gæti brugðizt okkur enn meir en áður, telja fiskifræðingarnir. DB-mynd Einar Gunnar Einarsson. Hugmyndir LÍU um minnkandi þorskveiðar: Óbeinar sam- dráttar að- gerðir heppi- legastar „Reynslan virðist líka sýna a.m.k. fram að þessu, að með núverandi sókn og veiðitilhögun náum við ekki að rétta hrygningastofninn við og megum því búast við minni göngum fisks á hrygningastöðvarnar en áður þekktust,” sagði Már Elisson fiskimálastjóri m.a. um ástandið I þorskveiðum hér við setningu fiskiþings fyrir helgina. Þetta hefur í för með sér að engar likur eru á batnandi vetrarvertíðum á suðvesturhorninu, sem byggzt hafa á hrygningafiski. Þá telur Már að þrátt fyrir hina miklu sókn nú muni þorskaflinn i ár verða minni en í fyrra, eða um 310 til 315 þúsund tonn á móti 330 þúsund tonnum i fyrra. Ekki benti Már á neinar afgerandi aðgerðir til lausnar þessum vanda, enda var ræða hans fyrst og fremst til að vekja umræðu. Taldi hann stjórnun fisk- veiða ekki síður efnahagslegt og félags- legt vandamál en liffræðilegt. Því þyrfti að ræða þessi mál i nánu samhengi. Reiknað var með að fiskiþingi lyki á sunnudag, en síðdegis I gær stóð það enn svo ekki lágu fyrir helztu niðurstöður umræðna um þetta og fleiri mál. -G.S. lce-Can fór líka Sambandslaust við umheiminn um tíma ísland var nær sambandslaust við umheiminn á tímabili á sunnudag. Þá fór símalínan á milli íslands og Kanada, Ice-Can ásamt þvi að síma- línan til Skotlands er enn slitin. Ice-Can fór úr sambandi klukkan hálfníu i gærmorgun en klukkan tvö var komið á radíósambandi við Grænland og öðru slitróttu við London. Herinn á Keflavíkurvelli bauð þá fram aðstoð sína eins og gert hefur verið áður í svipuðum tilfellum. ,En til þess þurfti ekki að koma. í Ijós kom að Ice-Can var ekki slitinn heldur var um smávægilega bilun I honum að ræða yfir Grænlandi. Tíminn á meðan báðir strengirnir voru ónothæfdir var hvildar- og hress- ingartími fyrir hina örþreyttu starfs- menn talsambandsins við útlönd. Þegar Scott-Ice slitnaði hrúguðust upp pantanir á símtölum og hafðist ekki undan að afgreiða. Með báða streng- ina slitna var hins vegar ekki hægt að afgreiða símtöl nema í neyð og datt þá i dúnalogn. En í morgun var allt komið í fullan gang aftur og svipað ástand komið á og var fyrir helgi. -DS. Hinn stórkostleo i plötusnúdur PETER GUNN med páfagaukinn | j^y er mættur á stadinn óJ&Éz. fullkomnasta 1ÍÍP video á landínu

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.