Dagblaðið - 28.11.1978, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 28.11.1978, Blaðsíða 23
Askell Másson velur lögin sem leikin eru milli kl. 17 og 18 mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. DB-mynd Hörður. Jass, jass, rokk og þjóðleg tónlist DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978 í tónleikum útvarpsins milli 17 og 18 Þegar útvarpsþulurinn tilkynnir að næst á dagskrá séu tónleikar eru margir sem slökkva á tækjum sinum, þvi þeir búast við að heyra sinfóníur eða eitt- hvert „garg" eins og margir kaila tón- leikana. En þó að i dagskránni standi að tón- leikar séu næstir er ekki endilega uni eitthvert garg að ræða. Þvert á ntóti er oft unt að ræða létla og skemmtilega tónlist. Nú um eins og hálfs mánaðar skeið hel'ur verið talað um góða tónlist ntilli kl. 17.00 og 18.00 á daginn. Við forvitn uðumst unt hver það væri sem veldi þessa góðu tónlist og var okkur tjáð að V___________________________________ það væri Áskell Másson. starfsmaður á tónlistardeild útvarpsins. Áskell er þekktur tónlistarmaður og lék nteð hljómsveitinni Náttúru þegar hún var upp á sitt bezta fyrir nokkrum áruni. Sú tónlist sent Áskell hefur valið heitir jassrokk. Áskell sagði að hann spilaði hana vegna þess að það væri ný tónlist sem ekki hefði verið fáanleg fyrr en nú nýlega. Einnig sagðist hann velja ntikið af þjóðlegri tónlist en þó væri jassrokkið í meirihluta. „Jassrokkið er í meirihluta vegna þess að það er þægileg tónlist sem /“----------------------- Útvarp kl. 11.00 ífyrramálið: allir geta sætt sig við að ég hcld." sagði Áskell. Áskell velur þessi lög á mánudögum, miðvikudögunt og fimmtudögum. Reyndar sagðist hann velja lögin tvisvar á fimmtudögum, kl. 16,20— 16,40 og svo aftur á timabilinu milli kl. 17 og 18. Hann sagðist velja lögin eitthvað áfram á þessuni dögunt og myndi halda sig mest við jass, jassrokk og þjóðlega tónlist. -EI.A. J Höfundur kristindómsins —sr. Gunnar Björnsson les þýðingu sína „í þessum þætti les ég kafla úr þýðingu minni á bókinni Höfundur kristindómsins en hún er eftir einhvern fremsta Nýja testamentisfræðing nútímans, prófessor C.H. Dodd, sem var kcnnari við marga þekktustu háskóla heims s.s. Oxford á Englandi og Harvard í Bandaríkjunum,” sagði séra Gunnar Björnsson sóknarprestur i Bolungarvík en lestur hans héfst I fyrra- máliðkl. 11.00. „C.H. Dodd skrifaði þessa bók sér- staklega með það fyrir augum að hún yröi læsileg hverjum og einum venjulegum leikmanni. Eins og nafnið bendir til þá fjallar bókin um frelsarann Jesú Krist og lif hans og starf er rakið með þeim hætti að það er eins og við séum að kynnast honum i fyrsta sinn. Bókin verður að þessu sinni ekki flutt í heild heldur verða fluttir úr henni valdir kaflar. 1 þessum köflum verður fjallað um persónuleika Krists, hvers konar maður hann hafi verið og síðan er fjallað um hvers konar kennari hann hafi verið, hvað hann hafi I raun og veru kennt. í fyrsta lestrinum verður fjallað um heimildimar sem okkur eru tiltækar til að kynnast þessum persónuleika, en það eru aðallega guðspjöllin fjögur. Bókin hlaut óhemjugóðar viðtökur er hún kom fyrst út árið 1969, en höfundur hennar er tiltölulega nýlátinn.” -GAJ- Séra Gunnar Bjömsson sóknarprestur i Bolungarvik. 39 Xjh Erum aö taka upp mikiö úrval afleikföngum, wM jóla-og gjafavörum ÚrvaGð hefur aldrei verið meira Mikið af vörum á gömlu gengi Hringiö eða lítið inn Li;^;i;ijijijijijijijiji;ii rómuð gæði - loksins á Islandi Vegna einstakra gæða og orðstirs dönsku VOSS eldavélanna höfum við árum saman reynt að fáþær til sölu á fslandi, en það er fyrst núna, með aukinni framleiðslu. sem verksmiðjan getur sinnt nýjum markaði. Til marks um orðstir VOSS eldavélanna er nær 60% markaðshlutur í heimalandinu, sem orðlagt er fyrir góðan mat og kökur, en íslenskur smekkur er einmitt mótaður af sömu hefð í matargerðar/ist, hefð sem eiginleikar VOSS eru miðaðir við. VOSS er því kjörin fyrir íslensk heimili, og fyrst um sinn bjóðum við eina gerð, þá fullkomnustu, eina með öllu, t.d. 4 hitastýrðum hraðhellum, stórum sjálfhreinsandi ofni með fullkomnum grillbúnaði, hitastýrðri hitaskúffu og stafa-klukku, sem kveikir, slekkur og minnir á. 4 litir: hvítt, gulbrúnt, grænt og brúnt. Hagstætt verð og afborgunarskilmálar. jFOnix Hátúni - Sími 24420

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.