Dagblaðið - 22.12.1978, Page 7

Dagblaðið - 22.12.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978. • '7 Hver verður skóla- meistari ískák? 15-20 þús. nemendur eiga þátt- tökurétt Á vegum Skáksambands íslands er að hefjast stærsta skákkeppni sem haldin hefur verið hér á landi. Rétt til þátttöku hafa allir nemendur grunnskóla landsins. Keppninni er skipt í 2 flokka: eldri og yngri flokk. í yngra flokki keppa nemendur í 1.-6. bekk en i eldra flokki nemendur í 7.-9. bekk. Keppnin skiptist i skólamót þar sem keppt er um skákmeistaratitil hvers skóla, sýslumót eða kaupstaðamót, þar sem keppt er um titilinn skólaskákmeistari viðkomandi sýslu eða kaupstaðar, kjördæmamót. Þar keppa 2 efstu menn hverrar sýslu í viðkomandi kjördæmi og 2 efstu menn kaupstaðanna, Akureyri, Kópa- vogur og Hafnafjörður, hver í sínu kjördæmi um titilinn skólaskák- meistari viðkomandi kjördæmis. 1 Reykjavik fer ekki fram kjördæmamót heldur öðlast 2 efstu menn úr kaupstaðamótinu sjálfkrafa rétt til þátttöku í lands- móti. Keppninni lýkur svo með landsmóti, en þar keppa skóla- skákmeistarar kjördæmanna og 2 frá Reykjavík um titilinn skóla- skákmeistari íslands í hvorum flokki fyrirsig. Skólaskákmótunum skal lokið ekki síðar en 1. febrúar, sýslumótum / kaupstaðamótum ekki síðar en II. marz og kjör- dæmamótum ekki síðar en 1. april. Landsmótið skal haldið sem fyrst eftir að kjördæmamótunum er lok- ið. Þetta er í fyrsta skipti sem slikt mót er haldið hér á landi. Tilgangur keppninnar er að örva skákáhuga meðal barna og unglinga með því að veit.a ungum skákiðkendum jafnt úr dreifbýli og þéttbýli sem jöfnust tækifæri til skákiðkunar og auka kynni þeirra ogsamskipti meðsamræmdri fyrir- greiðslu taflfélaga og svæðasam- banda. -GAJ- „Partíplata fyrir fólk á öllum aldri" Fyrsta plata hljómsveitarinnar Alfa Beta er komin út og ber heitið Velkomin í gleðskapinn. Á plötunni eru fjórtán lög, tiu erlend og fjögur islenzk' Eitt er eftir Jóhann G. Jóhannsson en hin eftir tvo af þremur liðsmönnum Alfa Beta, Ágúst Atlason og Guðmund Hauk Jónsson. Þriðji maðurinn er HalldórOlgeirsson. Alfa Beta hefur notið talsverðra vinsælda undanfarin ár á einka- skemmtunum og víðar. Á umslagi segir að þetta sé „partíplata fyrir fólk á öllum aldri”. Útgefandi er ÁÁ-hljómplötur. ÓV Hverhefurfundið mynd ímiðbænum? Kona sem var i jólainnkaupum í Miðbænum á þriðjudaginn var, biður lesendur Dagblaðsins að hjálpa sér. Hún var svo óheppin að týna nokkuð stórri mynd í plast- hulstri. Myndin sýnir gamlan mann, sem stendur á tröppum með hamar í hendi. Þetta er eina myndin, sem er til af þessum manni. Hún var á leiðinni að láta taka eftir henni og fannst mjög slæmt að tapa henni. Sá sem kynni að hafa fundið hana er vinsamlegast beðinn að hringja I Guðrúnu Huldu, annað- hvort í síma 22300, á Umferðar- miðstöðina þar sem hún vinnur, eða heim i sima 17688. Deilt um ágæti rafmagnsritvéla — við vélritunarkennslu ígrunnskólum Kópavogs Stefnt hefur verið að því að taka í notkun rafmagnsritvélar við vélritunar- kennslu í 9. og síðasta bekk grunnskóla í Kópavogi. Þessi hugmynd hefur valdið nokkrum deilum og eru ekki allir á eitt sáttir um ágæti hennar. Samkvæmt upplýsingum fræðslu- stjórans í Kópavogi þarf um 20—30 raf- magnsritvélar fyrir hvern skóla, en grunnskólarnir eru tveir i Kópavogi. Nokkrar vélar hafa verið keyptar til reynslu undanfarin tvö ár, en þær nýtast þó lítið enn sem komið er. Við umræðu um fjárhagsáætlun Kópavogs komu þessi ritvélakaup til umræðu. Nirðurskurður er ofarlega á baugi og ýmsum þykir óþarfi að leggja út í þessi kaup. Ódýrustu rafmagnsrit- vélar hafa verið keyptar, en hver slik vél kostar rúmlega 100 þúsund. Venjulegar skólaritvélar sem hafa verið notaðar eru mun ódýrari. Skólarnir eiga slíkar vélar, en þær vélar þarf þó að endurnýja. Þá eru skólamenn alls ekki á eitt sáttir um ágæti þess að nota rafmagns- ritvélar við vélritunarkennslu. Raf- magnsritvélar eru yfirleitt ekki til á heimilum manna, þannig að ekki er hægt að æfa sig á vélarnar heima. Vélritunarnám byggist að mjög miklu leyti á heimavinnu ogstöðugri æfingu. Þá ná nemendur ekki miklum hraða á vélar nema að hafa alltaf sömu vélina. Ýmsir telja mun heppilegra að nemendur læri á venjulegar skólarit- vélar áður en notkun rafmagnsrit- véla kemur til. Fræðslustjórinn sagði þó að enn hefði ekki orðið vart mótmæla foreldra vegna þessa, enda lítið reynt á notkun raf- magnsritvélanna enn. Umræðan væri aðallega meðal skólamanna. Það er því alls ekki víst að rafmagnsritvélarnar verði teknar í notkun. Fræðslustjórinn sagði að sama hug- mynd væri til umræðu bæði i Keflavik og í Hafnarfirði. -JH. 0 Það er kannski ekki alveg svona sem á að kenna meðferð rafmagnsritvéla i skól- um Kópavogs. Myndin er af skrifstofu framtiðarinnar.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.