Dagblaðið - 22.12.1978, Qupperneq 13

Dagblaðið - 22.12.1978, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978. 13 Sautján ára skólastúlka rændl farþegaþotu TWA Bandaríkin: —yf irbuguð í nótt af lögreglunni Innanrikislögreglumenn komust seint i gærkvöldi um borð í bandaríska farþegaflugvél í Marion í lllinois og yfirbuguðu 17 ára skólastúlku sem hafði rænt vélinni. Stúlkan hélt gísluni um borð og krafðist þess að fá lausan fanga sem dæmdur er til ævilangrar fangelsisvistar fyrir flugrán. Móðir stúlkunnar var skotin til bana í mai sl. er hún rændi þyrlu í því skyni að frelsa sama fanga, en hann er geymdur í einu öruggasta fangelsi Bandaríkjanna. Farþegavélin sem er af gerðinni DC-9 i eigu TWA var i inn- anlandsflugi milli St. Louis og Kansas er henni var rænt. í vélinni voru 83 farþegar og fjögurra manna áhöfn Stúlkan sagði að þrjárdínamittuhur væru bundnar við líkama sinn ug skip aði flugstjóranum að lenda i Marion. Eftir 10 tima umsátur tókst lögregl- unni að yfirbuga stúlkuna og þá kom i Ijós að hún var alls ekki með dínamít á sér heldur hafði bundið dót inn á sig, sem liktist dinamittúbum og virteng- ingum. Flugræninginn heitir Robin Oswald frá St. Louis.Maðurinn sem ungfrúin vildi fá lausan er fertugur að aldri, Garrett Trapnell, fyrrum geðsjúkling- ur, sem rændi farþegavél árið 1972 með 101 farþega. Móðir Robin, Bar bara Oswald, tengdist Trapnell i fang- elsinu í- gegnum bréfaskriftir. Hún heimsótti hann í fangelsið skömmu áður en hún gerði tilraun til þess að frelsa hann úr fangelsinu i þyrlunni. Þyrluflugmaðurinn náði byssunni af frúnni og skaut hana til bana. Barbara var 45 ára gömul og fimm barna móðir. Eftir myrkur i gær laumuðust lög- reglumenn um borð i hina rændu vél og gátu komið einum og einurn far þega út, þannig að aðeins fáir voru eftir er ráðizt var gegn stúlkunni og hún yfirbuguð. Kúba: Dráttur á af- hendingu póli- tískra fanga Ekki er búizt við þvi að fyrsti hópur þeirra pólitísku fanga sem verða látnir lausir á Kúbu komist til Bandarikjanna á þessu ári eins og gert hafði vcrið ráð fyrir. Samkvæmt samningi Bandaríkja- manna og Kúbumanna verða látnir lausir 400 fangar á mánuði á Kúbu og Bandaríkjastjórn hefur skuldbundið sig til þess að taka við þeim sem koma vilja. Ráðagerð þessi hefur dregizt nokkuð og niunu fyrstu fangarnir ekki losna fyrr en í fyrsta lagi í janúar. Kúbumenn hafa heitið þvi að láta lausa 3000 pólitiska fanga. Kúbustjóm hcfur gefið út nafnalista yfir þá fanga. sem verða Iátnir lausir. Þrátt fyrir nokkurn drátt á þvi er ckki talið að það hafi nein afgerandi áhrif á heildaráætlun um afhendingu fanganna. BBC lamast —vegna verkfalls tæknimanna Talið er að allsherjarverkfall tækni- manna hjá brezka útvarpinu, BBC, hefjist síðar i dag. Það mun lama starf- semi útvarps og sjónvarps, bæði í Bret landi og stöðvar BBC víða um hcim. Báðar rásir BBC sjónvarpsins hafa verið lokaðar tvö undanfarin kvöld vegna verkfalls tæknimannanna. Leið- togar stéttarfélags tæknimannanna hafa lýst því yfir að verkfallið muni ná til allra tæknimannanna en þeir eru 14.000 að tölu. BBC útvarpar allan sólarhringinn i Ítalía: Tveir öryggis- verðir særðir Tveir öryggisverðir ítalska stjórn- málamannsins Giovanni Galloni særðust í gær er skæruliðar skutu á bif- reið hans. Galloni, sem er leiðtogi kristilegra demókrata á ítalska þinginu var ekki í bifreiðinni þegar árásin var gerð. Bretlandi og er auk þess með stöðvar i Landbúnaðarverkamenn 1 Suður-Portúgal mótmæltu þvi nýlega að stjórn landsins hefur ákveðið að ógilda það fyrirkomulag 39 þjóðlöndum. sem kommúnistaflokkurinn var búinn að koma á varðandi samvinnubú. Myndin er af nokkrum mótmælendanna. Jðblrésmaikaður í ALFARALEIÐ ÍSKEÍFUNN/11, NORDURENDA Jólatréenn til í öllum stœrðum, greinar á leiði, lausar greinar, jólaskraut, stormkerti og margtfleira. Erlendarl^^TTs^O fréttir | U0W; Úrval afjólatrjám og öllum pakkað í net. i REUTER 8 NÆG BÍLASTÆÐI k«U<?70. r^ð *n" UL sít**1 ™ 1(0 hílas*®0 , JÓLATRÉSMARKAÐURINN SKEIFUNN111 SfMI 39770 - OPIÐ TIL KL10 ALLA DAGA VIKUNNAR

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.