Dagblaðið - 22.12.1978, Síða 14

Dagblaðið - 22.12.1978, Síða 14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978. 141 BIADW Útgofandi: Dagbiaðiö hf. FramkvœmdastjóH: Sveinn R. Eyjótfsson. Ritstjórí: Jónas Krístjánsson. Fróttastjórí: Jón Birgir Pétursson. RKatjómarfutttrúi: Haukur Helgason. Skrífstofustjórí rítstjómar Jó- hannes RaykdaL íþróttir Hattur Sfmonarson. Aóstoöarfréttastjórar Atíi Steinarsson og Ómar ValdÉ marsson. Menningarmál: Aöalsteinn Ingótfsson. Handrit Ásgrímur Pálsson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurösson, Dóra Stofánsdóttir, Eiín Atoerts- dóttir, Gissur Sigurösson, Gunnlaugur A. Jónsson. Halur Hattsson, Helgi Pétursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson, ólafur Jónsson. Hönnun: Guðjón H. Pálsson. Ljósmyndir: Ari Kristínsson, Ámi Páll Jóhannsson, Bjamlerfur Bjamlorfsson, Höröur Viihjálmsson, Ragnar Th. Sigurösson, Sveinn Þormóðsson. Skrífstofustjórí: Ólafur EyjóHsson. GjakJkerí: Práinn ÞoríeHsson. Sölustjórí: Ingvor Svoinsson. DreHing- arstjóri: Már E.M. Halldórsson. Ritstjóm Siðumúla 12. Afg reiösla, áskríftadeild, auglýsingar og skríf stofu r Þ verhohi 11. Aöabimi blaðsins er 27022 (10 Ifnur). Áskríft 2600 kr. á mánuöi innanlsnds. i lausasölu 125 kr. ointakiö. Setning og umbrot Dagblaðiö hf. Stöumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hiimír hf. Siöumúla 12. Prentun: Arvakur hf. SkeHunni 10. Látið kné fylgja kviði Fyrirnokkrum árum kom það stöku sinnum fyrir, að útsölum Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins væri skyndilega lokað daginn fyrir stórhátíðir. Þá hafði ríkisstjórnin efni á fyrir hönd ríkissjóðs að hafa „vit” fyrir landsmönnum. Nú er öldin önnur. Ríkissjóður er ekki lengur til nema sem fínt nafn á gati. Ríkisstjórnin er orðin svo sólgin í fé í þetta gat, að hún hefur bæði efnt til kvöld- og helgar- sölu á brennivíni. Ér það framlag hennar til jólahaldsins! Þetta er ekki ákvörðun verzlunarinnar, heldur fjár- málaráðuneytisins. Það ákvað, að útsölurnar í Reykja- vík skyldu vera opnar til klukkan tíu á föstudagskvöld og til hádegis á laugardag. Ljótt er, að ríkissjóður skuli vera orðinn slíkur áfengis- sjúklingur, að ríkið stendur og fellur með brennivíns- neyzlu landsmanna. En það er einmitt kjarni málsins, að ríkið lifir á brennivínssölu. Bregðist hún, ér vá fyrir dyrum báknsins. Síðasta ríkisstjórn og þessi ríkisstjórn hafa höggvið í hinn gamalkunna knérunn að hækka verð á víni og áfengi til að halda ríkissjóði á floti. Á síðustu tólf mánuð- um hefur verðið hækkað um 60% eða töluvert umfram verðbólgu. Sú skoðun var almenn, að engu máli skipti, hvaða verð væri á víni og áfengi. Menn mundu alltaf neyðast til að kaupa það í sama mæli og áður. Þetta hafa lands- feður reynt að notfæra sér samkvæmt reglunni, að græða beri á veiklyndi manna. Þessi skoðun sprakk í loft upp, þegar vín og áfengi hækkaði í verði í september. Salan minnkaði verulega og hefur síðan haldizt minni. Fólk neitar sér um þessar vörur á einokunarverði ríkisins. Það ánægjulega hefur gerzt, að hinn gróðafíkni ríkis- sjóður hefur ekki fengið eina einustu krónu úr hækkun víns og áfengis í september. Hann fær bara þær upp- hæðir, sem gert var ráð fyrir í fjárlögum fyrir réttu ári, en engan aukagróða af síðustu hækkun ársins. Auðvitað er þetta ekki aðeins að þakka samdrætti í drykkju landsmanna. Aukin bruggun hefur gert sívax- andi fjölda manna kleift að hafna viðskiptum við áfeng- isverzlunina að mestu eða öllu. Og ríkið er bjargarlaust gegn bruggurunum. Þar duga engin boð né bönn. Þar duga ekki gerefnalögregla, ger- efnadómstólar né gerhundar. Rikið hefur einfaldlega' prísað sig úr markaðnum og getur ekki kúgað mörg þús- und keppinauta til hlýðni. En bruggið er heldur ekki eina ástæðan fyrir ósigri ríkisvaldsins. Bruggun tekur langan tíma. Menn mættu ekki septemberhækkuninni með þvi að byrja að drekka brugg, heldur með því að leggja í og neita sér um vín og áfengi á meðan. Opnun áfengisverzlana í kvöld og í fyrramálið er sönnun þess, að fyrrverandi viðskiptamenn hafa tekið ríkisvaldið á taugum. Landsfeðurnir eru orðnir hams- lausir af peningaleysi. Næst dettur þeim líklega í hug að hafa opið á aðfangadagskvöld. Við slíkar aðstæður geta menn látið kné fylgja kviði með því að neita sér um eða draga úr neyzlu áfengis um jól og nýár eða jafnvel með því að færa neyzluna yfir í létt vín, sem ríkið græðir minna á. Raunar geta bindindismenn, vínmenn og drykkju- menn tekið saman höndum um að veita ríkisvaldinu ær- í lega ráðningu fyrir að reyna að magna gróða sinn af j drykkjufýsn almennings. Spánn: ErHðleikar eftir þriggja ára frið og samvmnu? —skæruliðar Baska gera allt sem þeir geta til að egna her landsins til að grípa í taumana Nú virðist mega fullyrða að Spánn sé kominn í tölu lýðræðisríkja. Aðeins þrem árum eftir dauða einræðisherr- ans Francos og eftir nærri fjögurra áratuga fasistastjórn hans samþykktu spænskir kjósendur nýja lýðræðis- stjórnarskrá með yfirgnæfandi meiri- hluta atkvæða. Er hún hin fyrsta af sjö stjórnarskrám sem gilt hafa þar í landi á síðari tímum, sem gengið hefur i gildi með almennum kosningum og ekki eftir einhvers konar byltingu eða uppreisnarástand. Spánverjum hefur tekizt að komast ótrúlega langt i lýðræðisátt á þessum þrem árum. Einnig hefur tekizt að halda hinum fjölmörgu fyrrum stuðn- ingsmönnum stjórnar Francos, sem enn eru áhrifamenn í her landsins, lög- reglu og í opinberri þjónustu, í skefj- um, án þess að komið hafi til hernað- ar átaka. Allir stjórnmálaflokkar hafa fengið heimild til að starfa opin- berlega, þar á meðal kommúnista- flokkur landsins auk stjórnmálaflokka minnihlutahópa á sérstökum svæðum landsins. Flestir launþegar landsins eru nú í verkalýðsfélögum af ein- hverju tagi. Almennar kosningar til þings lands- ins fóru fram með friði og spekt í júní á fyrra ári. í október sama ár komst ríkisstjórn Spánar að samkomulagi við vinstri flokkana í stjómarandstöðunni og verkalýðsfélögin um takmarkanir á launahækkunum til að halda vinnu- Um hvað hefur Alþýðuflokkurinn verið að deila við verðbólguflokkana tvo, sem hann situr með í ríkisstjórn, undanfarna daga? Við tókum við rústuðu efnahagslífi i sumar og í haust, efnahagslifi þar sem geisað hefur 50 prósent verðbólga. Efnahags- ráðstafanir undanfarna mánuði hafa einasta verið til þriggja mánaða í senn. Gagnrýnendur þessarar stjórnar- stefnu, í Alþýðuflokknum sem utan hans, sögðu frá upphafi, að þegar til lengri tíma væri litið væri ljóst, að þessar aðgerðir fælu í sér enn meiri verðbólgu á næsta ári. Ríkisstjórnin hefur gefið fyrirheit um heildstæðar aðgerðir í efnahags- og verðbólgumálum. Við þessi fyrirheit hefur ekki enn verið staðið. Hins veg- ar var boðið upp á verðbólgin fjárlög ein sér. Alþýðuflokkurinn svaraði þessu með því að leggja fram við sam- starfsflokka fullmótað frumvarp um jafnvægisstefnu í efnahagsmálum og um samræmdar aðgerðir gegn verðbólgu. Jafnframt var sagt að fjár- lög yrðu ekki afgreidd fyrr en sam- starfsflokkar hefðu tekið tillit til þeirra krafna. Siðan þetta gerðist hefur farið fram linnulaus styrjöld milli stjórnar- flokkanna. Fjármálaráðherra lét skera fjárlagafrumvarpið allverulega niður þannig að markmiðin eru innan þeirra marka sem Alþýðuflokkurinn getur sætt sig við. Þetta hefur verið látið nægja og fresturinn til þess aö móta samræmda efnahagsstefnu-hefur verið framlengdur til I. febrúar. Auðvitað er þetta eftirgjöf, sem er ekki ýkja ánægjuleg. Eftirgjöf er aldrei ánægjuleg. En Al- þýðuflokkurinn er tilbúinn til þess ára þar sem allir þegnar þjóðfélagsins viti að hverju þeir ganga. Af hverju var þessi fjárlagaskrúfa sett? Við vitum, að um áramót bíða erfiðar ráðstafanir vegna ákvörðunar fiskverðs, l. marz biða enn erfiðar ráðstafanir vegna launahækkunar. Þessi ríkisstjórn hefur enn ekki fram- kvæmt neinar breytingar á efnahags- stefnunni, nema hvað krukkað hefur verið i launin án þess að nokkur árangur hafi náðst í verðbólgumálum. haía verið og stór- >»»«" að láta verulega undan til þess að koma viti í þessa ríkisstjórn, þannig að mótuð verði efnahagsstefna til tveggja Það segir sig sjálft að ef slíkar ráðstafanir á enn að gera á fyrstu mánuðum ársins 1979, án þess að launaþegahreyfingin hafi fyrir fram- an sig hvað ríkisstjórnin ætlast til á Hvað sem öllum skoðanakönnun- um um stuðning við stjórnina líður, er það orðin útbreidd skoðun almennings í landinu, að þeir aðilar, sem sitja á Al- þingi og styðja núverandi rikisstjórn, séu vanhæfir til þess að gegna þeim skyldum, sem kjósendur kusu þá til. Innan skamms hlýtur því að sjóða upp úr. Landsmenn sjá nú ekki fram á annað en skattaþvinganir, verðhækk- anir, eignaupptöku og loks óöld, sem verður lögfest af þessari nýju tegund stjórnmálamanna. Stefnumörkun byggð á athugasemdum Eitt af mörgum atriðum, sem stað- festir, að stuðningsmenn núverandi ríkisstjórnar á Alþingi hljóta að teljast vanhæfir til þess að gegna embættis- skyldum fyrir hönd þjóðarinnar, eru stjórnarfrumvörp þau, sem lögð eru fram i þinginu. í stjórnarfrumvarpi því, sem lagt var fram um efnahagsaðgerðirnar l. des. og er allt orðið úr sér gengið vegna athugasemda stuðningsmanna sjálfra, hafa nú athugasemdirnar orðið að uppistöðu frumvarpsins. Gengið hefur svo langt í vitleysunni, að Þjóð- hagsstofnunin sjálf gengur út frá þeim forsendum að ríkisstjórnin standi við þá „stefnumörkum”, sém fram kemur í athugasemdum við stjórnarfrum- varpið um efnahagsaðgerðirnar! Þegar svo er komið, að Þjóðhags- stofnunin verður að byggja spá sína á forsendum, sem svo aftur eru sóttar i „athugasemdir” frá sjálfu stjórnarlið- inu, hlýtur að vera stutt í það, að bráð- lega verði það stjórnarandstaðan á Al- þingi, sem marki stefnuna fyrir rikis- stjórnina. — Og I raun er staðan þannig, að það sem ríkisstjórnin leggur til, að gert verði gerir hún ekki, en byggir stefnumörkun sína á „athuga- semdunum” einum. Ummæli hinna „nýju” stjórnmála manna á Alþingi, þeirra er styðja stjórnina eru heldur ekki uppörvandi fyrir stjórnarsamstarfið. Þannig lætur einn ungkratinn eftirfarandi ummæli falla í blaði sínu, Alþýðublaðinu, þ 14. þ.m. undir fyrirsögninni „Þjóðar- hagsmunir eða stundargaman”. — „Biðlund kjósenda er á þrotum. Al- menningur krefst raunhæfra efna- hagsaðgerða og að áþreifanlegur árangur fylgi í kjölfarið.” Það má telja fullvíst, að flestir þeir, sem nú sitja á Alþingi til stuðnings nú- verandi rikisstjórn, lita á þátttöku sina sem stundargaman fremur en stuðn- ing við þjóðarhagsmuni. Ummæli ungkratans í áðurnefndri grein sannar a.m.k., að hvort tveggja virðist til stað- ar í stjórnarflokkunum, og ætla mætti, að hann þekkti sitt heimafólk. Og þvi er ekki að neita, að þær spár, sem birzt hafa um þessi helztu við- fangsefni íslenzkra stjórnmála, at- vinnu og efnahag, veita ekki neina ástæðu til bjartsýni. Hitt er svo annað mál, að það er ein- ungis til þess að magna svartnættis- drauginn, þegar forsvarsmenn hags- munasamtaka, sem því miður má stundum, og það réttilega, kalla þrýsti- hópa, taka sig saman og krefjast þess, að hið opinbera leysi vandamál við rekstur eða fjármögnun hinna ýmsu rekstrareininga í þjóðfélaginu, án til- lits til þess, hvort einhver grundvöllur erfyrir því eðaekki. Gleggsta dæmið um þess konar kröfur eru yfirlýsingar svokallaðra út- vegsbænda, og þó sérstaklega frá Vest- et em þe«ia ooinbera, ftá tanu “P'" {vrit hvört.^gðaektó rekstnnu'n eoa 61 Sf 8rundvöUut « Óáranog uppreisnarhugur Þeir sem gjörla fylgjast með fréttum af innlendum vettvangi 4 íslenzkum fjölmiðlum, komast vart hjá því að greina, hve innlent fréttaefni hefur snarsnúizt á tiltölulega stuttum tíma í þá veru að flytja fólki ótíðindi og ill- spár um atvinnu- og efnahagsmál þjóðarinnar, og oftar en ekki í formi yfirlýsinga hagsmunahópa eða stétta, sem ekki sjá framundan annað en svartnættið eitt. mannaeyjum í þetta sinn, sem hafa aúglýst í einu lagi 30 báta til sölu og er um helmingur bátaflota þeirra. Krafa þeirra er auðvitað sú, að „rekstrar- grundvöllur” þeirra verði leiðréttur! Að visu ku verið að gera einhvers kon- ar úttekt á þvi, hver staða fyrirtækja þessara útvegsbænda er, finna út hvar skórinn kreppir mest að, eins og þeir orða það — og gera tillögur. En auð- vitað hníga tillögur þeirra allar í eina átt. Opinberir styrkir og fyrirgreiðslur. — Þetta heitir á máli útvegsbænda, að „leiðrétta rekstrargrundvöll”. Ekki er þessum útvegsbændum Ijóst, hve mikið tap þeira er, en sl.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.