Dagblaðið - 22.12.1978, Síða 30

Dagblaðið - 22.12.1978, Síða 30
42 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGLR 22. DESEMBER 1978. / Fjögur Grimms' ævintýri á tveim plötum Fjögur vinsælustu ævintýri Grimms-bræðra eru nú komin út \ . einum plötupakka hjá Fálkanum hf. Ævintýrin eru Hans dg Gréta, Mjallhvít, Rauðhetta og Öskubuska. Platan ber heitið: „Ævintýra-landið”. Ævintýrin eru á tveimur stórum plötum, þýdd úr sænsku, en það voru Sviar sem bjuggu þau til flutningsá hljómplötum. Umslag plötunnar er fagurlega skreytt litríkum myndum úr ævintýrunum. Leikararnir sem fara með hlutverk á plötunum eru( Bessi Bjarnason, Gísli Alfreðsson, Ellen Gísladóttir, Margrét Guð mundsdóttir og Sigurður: Sigurjónsson. Upptökumaður í Tóntækni hf. var Sigurður Árnason. -ÓV. 7 Ennþá nýtt lífs mark f gamla miðbænum — ilmandi pylsur meó öllu aftur á Lækjartorgi „Ef allt gengur að óskum verður hægt að bjóða vegfarendum um Lækjartorg heitar pylsur í jólakauptíðinni,” sagði Ásgeir Hannes Eiríksson í viðtali við DB. „Ég vonast til þess að geta byrjað með pylsuvagninn á markaðsdeginum í dag,” sagði Ásgeir. Miðaldra Reykvíkingar muna þá tíð þegar rjúkandi pylsuilm lagði upp úr pylsuvagni sem stóð fyrir framan and- dyri Útvegsbankans. Það var í raun sjónarsviptir að því þegar pylsuvagninn varð að þoka úr sínu gamla stæði vegna skipulags og umferðar, m.a. strætis- vagnaásínum tíma. Nú er sem sé komin betri tið og aftur verður hægt að seðja svangan maga með heitum pylsum á Lækjartorgi. Ekki hvað sízt verður þetta enn eitt nýtt lifs- litark á gamla, góða miðbænum okkar og fer ágætlega við markaðssöluna, sem er á góðri leið með að vinna sér héfð. Nýi pylsuvagninn er danskur að uppruna og ber þess merki eins og á myndinni sést. í staðinn fyrir „Tulip- pölser” verða seldar SS-pyslur með sinnepi, tómat og sem sagt „öllu”, bæði soðnar og grillaðar. Þær verða i glóðvolgum brauðum frá Bakaríi Gunnars Jóhannssonar i Hólagarði í Breiðholti. Þá skemmir ekki valin tónlist úr Pioneer-tækjum úr Karnabæ sem viðskiptavinir fá ókeypis ofan á góðgætið. Talsverðar breytingar varð að gera á danska vagninum, einkum til þess að fullnægja heilbrigðis- og hreinlætis- kröfum, sem Þórhallur Halldórsson setur ótæpilega fram og fylgist með á vegum borgarlæknisembættisins. Þessar breytingar voru gerðar í Skipasmíðastöðinni Nökkva í Garðabæ. Það er Jón A. Hansson sem er að leggja síðustu hönd á það verk. -BS. FULL BÚÐ affallegum fötum á börnin PÓSTSENDUM NEÐSTATRÖÐ8 KÓPAVOGI SÍMI43180 Buxnasett úr riffluðu og sléttu flaueli á allan aldur bama og unglinga. — Síð pils úr sléttu flaueli — Shet- lands ullarpeysur. Kjólar • Nœtföf Náttföt Sokkar • ÍJlpur Jólaskreytingar okkar eru frumlegar. ALA3KA BREIÐHOLTI Slmi 76225 HEILDSÖLUBIRGÐIR Hasfawkf Slmi 82655 EINS AUÐVELT OG VATN

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.