Dagblaðið - 22.12.1978, Page 31
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978.
Jobbi Maggadon og dýrín ísveitinni
Jakob Magnússon sleppir sér lausum
JOBBI MAGGADON OG DÝRIN f SVEITINNI
Jakob Magnússon
Útgefandi Steinar hf. (Stoinar-032)
(Jpptökustjóm og útsetningar Jakob Magnús-
son
Hljóóritun fór fram f Los Angeles f febrúar og
maf 1978.
Jakob Magnússon er mestur heims-
maður íslenzkra tónlistarmanna af
yngri kynslóðinni. Enginn kemst ná-
lægt þvi að keppa við hann um þann
titil. Ef hugarfar hans hefur nokkru
sinni verið litilla sanda og sæva, þá var
það áreiðanlega löngu áður en ég
kynntist honum fyrst sumarið 1975 —
Stuðmannasumarið.
Ferill Jakobs sem tónlistarmanns
hefur verið viðburðaríkur með af-
■brigðum. Hann kemur fyrst fram á
sjónarsviðið sem liðsmaður hljóm-
sveitarinnar Rifsberju. Sú hljómsveit
vakti strax athygli fyrir að vera öðru
vísi en aðrar. Leið Jakobs lá síðan til
Englands, þar sem hann komst í kynni
við bæði þekkta og snjalla tónlistar-
menn. Englandstíminn kemur honum
nú áreiðanlega til góða er hann er tek-
inn til starfa á bandarískum markaði.
Ferill Jakobs sem Stuðmannafor-
ingja er flestum enn í fersku minni.
Stuðmenn sendu frá sér tvær stórar
hljómplötur auk tveggja lítilla og léku
nokkrum sinnum opinberlega. Þeir
eru taldir eiga stóran þátt i því að ís-
lenzkir popparar tóku að syngja á ís-
lenzku á nýjan leik eftir nokkurra ára
notkun enskrar tungu.
Eftir að Stuðmannatímabilinu lauk
lá leið Jakobs í háskóla um skeið og
þaðan í blaðamennsku á Dagblaðinu.
Hann stóð hins vegar stutt við í þröng-
um húsakynnum þeirrar stofnunar.
Umsjón lesendabréfa var ekki innan
áhugasviðs hans. Hugurinn stefndi
lengra og er hann hvarf frá störfum
sinum á DB fór hann i hljóm-
leikaferð um Kanada og vesturströnd
Kyrrnmg
á Morley Peda/s
í verzluninni
fram til jóla á hverjum degi,
frábœrt „sound”
Gítarinn nljómar eins og
strokhljóðfæri (selló og fiðla) með
E. Bow.
VAH/Volume{Wvo)
Pro Phaser (PFA)
Tónkvísl
LAUFASVEG117 • REYKJAVIK
Bandaríkjanna með vini sínum Long-
John Baldry. Hann hefur ekki komið
heim á landið bláa síðan nema i stuttar
kurteisisheimsóknir.
Jakob er ákaflega sagnafár af sjálf-
um sér, að minnsta kosti við blaða-
menn. Það voru því flestum óvæntar
fréttir er timaritið Billboard sagði frá
þvi að risaveldið Warner Brothers
hefði gert plötusamning við Jakob.
Lögin á plötunni Jobbi Maggadon
og dýrin i sveitinni voru sönnun hans
fyrir því að óhætt væri að leyfa
honum að reyna sig á stærsta tónlist-
armarkaði í heimi.
Það voru lögin á B hlið Jobba
Maggadon ... ásamt tveimur lögum
af plötunni Horft i roðann, sem Jakob
Magnússon fékk samninginn við
Warner Bros út á. Fyrirtækið aðstoð-
aði Jakob siðan til að taka lögin tvö á
A hliðinni upp eða styrktu hann til
frekari dáða, eins og Jakob orðar það.
Platan Jobbi Maggadon ... er
óvenjuleg í laginu. Hún er tíu tommur
að stærð, likt og 78 snúninga plöturn-'
'ar voru í gamla daga. Hún er snjóhvít
að lit. Öll eintökin, sem seld eru, hefur
Jakob sjálfur árikað og auk þess eru
eintökin sem til sölu eru töluett.
Jobbi Maggadon og dýrin í sveitinni
hefur ómengað jazzrokk að geyma.
Tónlistin er ekki tiltakanlega frumleg,
en mjög vönduð. Hljóðfæraleikur á
plötunni er allur stórum atvinnu-
mannslegri en við eigum að venjast
.hér. Dálítill munur er greinanlegur á
hliðum plötunnar. Mun meira er lagt i
lögin á A hliðinni, enda var B hliðin
tekin upp við takmarkaðar aðstæður,
svo að notuð séu orð Jakobs. — l heild
er platan furðugripur ársins í islenzkri
plötuútgáfu og ber óbeizluðu hug-
myndaflugi Jakobs Magnússonar
vitni.
-ÁT-
JAKOB MAGNÚSSON - Platan
ber óbeizluðu hugmyndaflugi hans
vitni.
SJA EINNIG POPP Á
BLAÐSÍÐUM 44 OG 45
HOOVER MEÐ 1000 W MOTOR,
ELEKTRÓNÍSK SOGSTILLING!
I hvert sintt sem þú notar “HOOVER CONGO“ verðurþér Ijósar,
hve val þitt á ryksugu var rétt. Hún er falleg og hefur allaþá kosti
sem ryksugu má prýða. Sjálfvirkt snúruinndrag. Gefur merki
þegar skipta þarf um poka. Stór hjól og m. m. fl. Auk þess býr
“CONGO“ yfir nokkrum sérstökum kostum sem ekki finnast
samankomnir hjá neinni annarri ryksugu á sambeerilegu verði.
/fyrsta lagi er sogstyrknum stjómað elektrónískt, svo hcefir hvort
sem er þykkasta teppi eða viðkvcemasta lampaskermi. / öðru lagi
er “CONGO“ búin sérstakri “HOOVER-pokalosun", þú þarft
aldrei að snerta fullan pokann við tœmingu, hreinlegt ogþœgilegt.
íþriðja lagi fylgir “HOOVER-tcekjáberinn“, hann er settur ofan
á ryksuguna svo öll hjálpartceki séu við hendina meðan unnið er.
Hann má svo hengja upp í skáp.
HOOVER er heimilishjálp
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Með ,flOOVER CONGO"
geíur þú samtímis uttnið
erfiðustu verkin jafnt og þau
viðkvœmustu, eins og t.d. að
hreinsa viðkvceman lampa-
skerm. Þú ákveður sogstyrk-
inn með því að stilla hnapp-
inn sem stýrir mótornum
elektrónískt.
SENDUM
BÆKLINGA