Dagblaðið - 22.12.1978, Síða 36

Dagblaðið - 22.12.1978, Síða 36
Fjárlagaumræður til kl. 4 í nótt EFNAHAGSFRUMVARP TIL TVEGGJA ÁRA — verður lagt fram fyrir 1. febrúar — Atkvæðagreiðslu f restað þar tilídag Umræður um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar stóðu lil rúmlega hálffjögur i nótl. cn atkvæðagreiðslu var þá frestað til fundar i sameinuðu þingi kl. 10 i morgun. Eftir að framsöguræður meirihlula og minni hluta fjárveitinganefndar höfðu verið fluttar og gerð grein fyrir störfum samvinnunefndar samgöngu- mála. kvaddi Ólafur Jóhannesson for sætisráðherra sér hljóðs og sagði m.a.: „í janúar munu verða kannaðar framkomnar tillögur Alþýðuflokksins um jafnvægisstcfnu í efnahagsmálum svo og tillögur hinna samstarfsflokk- anna um efnahagsmál, sem fram hafa komiðeða fram kunna að koma.” Sagði Ólafur að siðan yrði unnið að gcrð frumvarps um efnahagsstefnu til tveggja ára og yrði það frumvarp lagt fyrir rikisstjómina fyrir I. feb. nk. „Eftir áramótin verður gerð alvar leg tilraun til þess að finna varanlcgri lausn á þeirri meinsemd,” sagði Ólafur ennfremur um hinn öra verðbólgu vöxt. „Þetta er verk sem þarf að vinna, hverjir svo sem sitja í ríkis- stjóm á næsta ári." -HP. Frá umræðunum i nótt: Geir Gunnarsson formaður fjárveitinganefndar gerir grein fyrir áliti meirihluta nefndarinnar. Gils Guömundsson forseti sameinaðs þings er i forsæti, Pálmi Pétursson ritari, Steingrimur Hermannsson dómsmála- ráðherra, Hjörleifur Guttormsson, Ingvar Gislason og Jósep B. Þorgeirsson hlýða á. DB-mynd Ragnar Th. FÖSTUDAGUR 22. DES. 1978. Sri lanka slysið: Skýrslu ekki að vænta í bráðina Opinberrar tilkynningar islenzkra flugmálayfirvalda, um slysið i Sri Lanka. er ekki að vænta alveg á næstunni að sögn Skúla Sigurðssonar yftrmanns loft- ferðaeftirlitsins í morgun. Er verið að vinna úr hinum ýmsu upplýsingum og raða þeim saman i eina hcild. Skúli vildi á þessu stigi ekki tjá sig um neinar óstaðfestar fréttir erlcndra fréttastofnana um þetta mál. -G.S. ÞAÐ VERÐUR EKKISVARTARA — stytzti dagur ársins — vetrarsólstöður , í dag er slyzti dagur ársins. Á moigun lekur dag að lengja á ný — hægt og liægl lil vors. Sólin á Akureyri kom upp kl. 11:38 í morgun og hún staldrar ckki við nema I um þrjá tíma, sólarlag er kl. 14:44. Það er heldur lengur birla i Rcykjavik í dag. Sólin kom upp kl. 11:22 og sezt aftur kl. 15:31. Á myndinni er flugvél á lcið auslur yfir |Icnj>j|. DB-mynd: RagnarTh. Brennuvaígsmáiið: Tveir voru gripnir á Aski — en var sleppt eftir stuttar yfirheyrslur í gærkvöldi vöknuðu vonir um að Rannsóknarlögregla rikisins væri að koniast á slóð i brennuvargamálinu í Reykjavík. Tveir menn, sem sátu á veit- ingahúsinu Aski við Suðurlandsbraut heyrðust þar ræða málin nokkuð itar- lega sin á milli. Sá sem á mál þeirra hlýddi lét lögreglu vita þeg.u . stað og mennirnir voru tekn- ir til yfirhey slu. Arnar Ciuðnumdsson fulltrúi ríkis- 'rannsóknarlögrcglustjóra sagði hla'inu hins vegar í morgun að yfirheyrslur yfir mönnum hefðu ekki leitt til að malin upplýstust. og kvað hann báðum mönn- unum hafa verið sleppt að stuttum yfirhcyrslum loknum. ASt/ÓV. Blaðastyrkurinn hækkar f 60 millj. „Við sjálfstæðismenn höfum lengi haft hom í síðu þessa styrks,” sagði Lárus Jónsson í viðtali við DB. en hann og alþingismennirnir Ellert Schram og Pálmi Jónsson gerðu það að tillögu sinni i breytingartillögum við fjárlög að styrkur til blaðanna yrði felldur niður. Meirihluti fjárveitinganefndar lagði hins vegar til með breytingartillögu sem lögð var frant á síðustu stundu á þinginu I gær. að upphafleg fjárhæð. sem varið skyldi til blaðastyrkja á fjár- lögum. 40 milljónir, yrði hækkuð i 60 milljónir króna. „Það verður trúlega samþykkt." sagði Lárusennfremur. -H P. Upprétt hönd Lúðviks Jósefssonar til stuðnings blaðastyrknum. Á síðustu stundu var skotið inn í tillögur meirihluta fjárveitinganefndar tillögu um hækkun til flokksblaðanna úr 40 milljónum í 60 milljónir. DB-mynd R.Th. „Hvað vil ég í jólagjöf?” sagði Plötufeykir og setti sig í Kung-Fu stellingu. „Lifandi, japanska geishu!” DB-mynd: Hörður. til jóla „Ekki á morgun, heldur hinn.... Þá koma jólin. Gunnar Þórðarson, tónskáld -og allsherjarmúsikant, telur dagana með DB: 2 dagar til jóla. Rétt væri að kalla (iiinn.tr jóla- sveininn Plötufeyki, hann hcfur selt þær ófáarumævina. í’það' Kaupiff<'®j TÖLVUR. ITÖLVUÚ8 BANKASTRÆTIS «^»1276^

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.